Golf á Íslandi - 01.12.2014, Síða 66
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
66
Guðmundur hefur tekið þátt í félagsstarf-
inu hjá Hamri frá upphafi og hann bendir
á að konur hafi leikið stórt hlutverk í starfi
klúbbsins.
„Ég er einn af stofnfélögum GHD en ég er
enginn snillingur í golfíþróttinni. Golf-
klúbburinn var lengi vel með lögheimili
heima hjá mér. Ég var formaður klúbbsins
og Guðrún Konráðsdóttir, konan mín, hefur
einnig verið á kafi í þessu starfi. Hún hefur
einnig verið formaður klúbbsins. Það er
oft mikið lagt undir þegar við keppum við
hvort annað. Konur hafa verið fjölmennar í
klúbbnum og það eru fáir golfklúbbar á Ís-
landi sem hafa haft yfir að ráða eins sterkum
kvennahópi. Í fjöldamörg ár var Hamar
þekktur fyrir hve vel var tekið á móti gestum
í golfskálanum – með hnallþórum sem nutu
vinsælda. Það var allt saman konunum að
þakka sem sáu um afgreiðsluna og veitinga-
söluna í skálanum.“
Golfskálinn reis við Arnarholtsvöll fyrir um
tveimur áratugum og segir Guðmundur að
félagsmenn hafi lagt mikla vinnu á sig við
þá framkvæmd. „Það var nú bara þannig að
klúbbmeðlimir tóku lán og báru ábyrgð á því
að sumarbústaður var keyptur undir starfið.
Menn unnu síðan bara í þessu og komu
húsinu upp. Það hefur alltaf verið góður
félagsandi í klúbbnum og menn tilbúnir að
leggja mikið á sig,“ sagði Guðmundur en
hann býður alla kylfinga landsins velkomna
á Arnarholtsvöll á næsta ári.
Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt
svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki
nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar:
Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða
nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Má ekki nota á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Má
ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir, augu, sár, exem,
vessandi húðbólgu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum
umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir
notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á altækum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni.
Getur dregið úr frjósemi en þau áhrif ganga til baka. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfis hafi: Novartis Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Fæst án lyfseðils
Verkir?
Verkjastillandi og
bólgueyðandi!
VoltarenGEL011014KVK-A4 copy.pdf 1 28/09/14 21:45
Sjöunda brautin er stutt par
3. Útsýnið er víða fallegt á
vellinum eins og sjá má hér.
Önnur brautin er par 5 og er lengsta
hola vallarins. Það eru víða hættur
á leiðinni m.a. er vatnstorfæra fyrir
framan og til vinstri.
Völlurinn fór frekar illa
eftir harðan vetur eins
og sjá á hluta 6. flatar.
ALLTAF GÓÐ VERÐ OG VIÐ SENDUM VÖRUR FRÍTT.
10% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM GJAFABRÉFUM TIL JÓLA.
SKOÐAÐU TILBOÐSSÍÐUNA Á NETGOLFVORUR.IS.
Óskum öllum kylfingum gleðilegra jóla og þökkum viðskiptin á árinu.
TAKTU ÞÁTT Í JÓLALEIK
OKKAR Á FACEBOOK.