Golf á Íslandi - 01.12.2014, Page 76

Golf á Íslandi - 01.12.2014, Page 76
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 76 Framleiðum barmmerki í öllum stærðum og gerðum. Mikið úrval af bikurum og verðlaunapeningum. Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 17 eða hafið samband í síma 588-3244 fax 588-3246 netfang: isspor@simnet.is Það var tilviljun sem réði því að Auðunn Einarsson, PGA golfkenn- ari, réð sig til starfa í Noregi fyrir tveimur árum. Auðunn kann vel við sig á nýja staðnum og það hefur margt komið Ísfirðingnum á óvart hjá frændum okkar Norðmönnum. Auðunn var á sínum tíma í fremstu röð afrekskylfinga á Íslandi og hann starfaði lengi hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði sem golfkennari. „Ég hafði verið á heimaslóðum á Ísafirði í tæp tvö ár og var að skoða möguleikana á að komast til útlanda. Ég sendi upplýsingar um sjálfan mig til PGA samtakana í Noregi og tveimur dögum síðar fékk ég símtal. Það má eiginlega segja að ég hafi laumast út án þess að vita hvort ég fengi starfið. Ég var á sínum tíma mjög ánægður í Hafnarfirði en vegna þreytu og persónulegra ástæðna ákvað ég að leita á önnur mið,“ segir Auðunn en hann starfar fyrir fyrirtæki sem heitir Golfbu- tikken sem hefur samstarf við fjóra golfvelli og golfverslanir. Fjölbreytt verkefni „Það sem ég er að gera hérna í Noregi er nokkuð frábrugðið því sem ég var vanur heima á Íslandi. Golfbutikken rekur einn- ig ferðaskrifstofu og við erum fjórir PGA kennarar sem starfa hjá fyrirtækinu. Mitt svæði er við Arendal & Omegn golfklúbb- inn sem er rúmlega þúsund manna klúbbur með æðislegum 18 holu velli, 9 holu par 3 og góðu æfingasvæði. Ég sé einnig Grimstad GK sem er um 700 manna klúbbur, 9 holu völlur og er ansi skemmtilegur einnig. Gren- land og Kragerø eru einnig undir sama hatti en ég fer lítið þangað. Kragerø er GolfResort og er á allt á öðru plani. Það má segja að eyðslusömu Norðmennirnir fara þangað yfir sumarið,“ segir Auðunn en Arendal er stað- sett skammt suður af höfuðborginni Osló og er nánast mitt á milli Oslóar og Kristiansand á suðurströnd Noregs. Eins og gefur að skilja er skipulagið mikið hjá Norðmönnum og segir Auðunn að einkatímarnir séu það eina sem ekki er skipulagt áður en vertíðin hefst. „Norðmenn eru ekki eins duglegir að nota einkatímana hjá golfkennurum eins og á Íslandi. Hinsvegar er ég með mikið af þriggja daga golfskólum, byrjendanámskeiðum og svo er klúbbaæfing yfir allt sumarið. Þar getur hinn almenni kylfingur gengið að mér vísum og verið á allt að 3 klst. æfingum sem skiptist niður í pútt, stutt spil og sveiflu. Ég vinn kannski langa daga eða frá 10 til 20 en þeir eru misþéttir og það er nokkuð flókið að útskýra fyrirkomulagið. Ég er tvo daga í Grimstad og þrjá í Arendal og sumar helgar deilast niður eftir námskeiðum og löngum helgarfríum sem ég fæ inn á milli. Þar sem ég hef skrifstofu í Arendal og stærri búð sé ég um allar pantanir og skipulagsvinnu þaðan. Aðstoða svo bara í búðinni ef ég er laus sem og í Grimstad. Þarf svo að flytja á milli staða vörur eftir þörfum,“ segir Auðunn. Veðrið, bátar og niðursveifla Líkt og víða annars staðar hefur niðursveifla verið í golfíþróttinni í Noregi. „Golfið er á niðurleið hérna eins og í mörgum löndum og menn ekki á eitt sáttir hvað veldur. Ég hef heyrt oft þá kenningu að þegar aukningin var sem mest, þá hafi sprottið upp golfvellir út um allt og núna eru of fáir meðlimir í svona mörgum klúbbum. Sumir klúbbar hafa reynt að lokka til sín meðlimi með þvi að lækka árgjaldið. Svo heyrir maður af gjaldþrotum hér og þar en alltaf byrja þeir aftur. Sumir vilja meina að þetta sé eðlilegt og muni jafnast út fljótlega því útbreiðslan hafi verið svo gífurleg fyrir um 10 árum. Golfíþróttin er að keppa við svo margt á sumrin. T.d hjólreiðafólkið sem er svakalega vinsælt núna. Það eiga nánast allir Norðmenn báta og það hefur einnig áhrif á golfið. Ef veðrið er mjög gott þá eru NORÐMENN ERU LANGT Á EFTIR ÍSLENDINGUM - Ísfirðingurinn Auðunn Einarsson kann vel við sig á suðurströnd Noregs þar sem hann starfar sem PGA golfkennari Auðunn og Laufey Garðarsdóttir, sambýliskona hans.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.