Golf á Íslandi - 01.12.2014, Blaðsíða 98
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
98
Meira en 7000 íslendingar á
aldrinum 2ja til 98 ára hafa
kynnst golfi í gegnum SNAG.
Allt frá byrjendum til afreksfólks í golfi
hafa fundið leiðir til að bæta golftækni sína
og hugarfar með SNAG. Fyrsta SNAG leið-
beinendanámskeiðið á Íslandi var haldið
í mars 2013. Síðan þá hafa rúmlega 80
manns á aldrinum 14-78 ára lært að kenna
golf með SNAG kennslufræði.
Hvað er SNAG ?
Upphafið að SNAG var að golf hafði lengi
talist sport hinna efnameiri og talið erfitt
að læra og spila. Aðstæður og þjálfarar voru
ekki aðgengileg öllum, annað hvort vegna
staðsetningar eða kostnaðar. Með því að fjar-
lægja þessar hindranir kom í ljós að námið
getur verið auðvelt, skemmtilegt og aðgengi-
legt fyrir fólk á öllum aldri og hvaða getustigi
sem er. Markmiðið með SNAG er að færa
golfþátttöku til fjöldans með golfnámi sem
þarfnast lítils rýmis, er ódýrt og sérlega
skemmtilegt að taka þátt í.
Allir eiginleikar og smáatriði hefðbundins
golfs voru hafðir með í þróun SNAG
kennsluaðferðanna og búnaðarins sem er
skemmtilegur, litríkur og auðveldur í notkun.
Hægt að kynna golfíþróttina bæði á golf-
vellinum og utan hans og hægt að æfa og
spila bæði úti sem inni. Hann hentar yngstu
kynslóðinni og hinni eldri og er frábært
kennslu- og námstæki. SNAG hefur víða
fengið verðlaun, meðal annars frá evrópsku
PGA samtökunum árið 2012 fyrir að vera
frábærlega vel hönnuð hjálpartæki við golf-
kennslu. Formaður þeirrar dómnefndar var
Tony Bennett sem er yfirmaður menntunar-
mála PGA í Evrópu og ein aðalstoð íslenska
golfkennaraskólans.
SNAG á Íslandi
SNAG er í örum vexti úti um allan heim.
Ísland er á meðal 20 landa í Evrópu þar sem
unnið er að útbreiðslu golfsins með SNAG.
Útfærslan er mismunandi eftir löndum en
hér á landi er að mótast öflugt grasrótarstarf
með áhugafólki um útbreiðslu golfíþróttar-
innar. Þar tengjast golfkennarar, afreks- og
áhugafólk í golfi og öðrum íþróttum, fagfólk
í íþróttum, fólk úr menntakerfinu og fólk á
öllum aldri sem hefur áhuga á hreyfingu í
hinum ýmsum myndum.
Áhugaverð þróun í útbreiðslu golfsins er að
Meira en 7000 íslendingar 2-98 ára hafa kynnst golfi í gegnum SNAG:
Snag að slá í
gegn á Íslandi
Krakkar á Snag námskeiði í Hraunkoti hjá Björg-
vini Sigurbergssyni.
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti er
fyrsti skólinn á framhaldsskólastigi
þar sem nemendur á íþróttabraut
læra fagið Golf. Þau læra SNAG og
venjulegt golf og eru bæði inni og úti.
Faszination Autopflege mit
Markenprodukten von SONAX
Lassen Sie mehr Glanz in Ihr Leben!
Gerðu bílinn kláran fyrir veturinn
með SONAX bón- og hreinsivörum
Glansþvottalögur
SONAX er margverlaunað bílhreinsimerki frá Þýskalandi.
SONAX býður allt sem þarf: bón fyrir allar gerðir af
lakki, felguhreinsi, dekkjahreinsi, sápur, svampa, vínyl-
hreinsi, gluggahreinsi og fleiri hágæða hreinsivörur.