Golf á Íslandi - 01.12.2014, Blaðsíða 110
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
110
KYLFINGUR ÁRSINS
RORY
SÁ BESTI ÁRIÐ 2014
ÁRIÐ 2014 BYRJAÐI EKKI VEL FYRIR RORY MCILROY, EN ÞEGAR ÞVÍ LAUK VAR
HANN Í GÓÐUM MÁLUM, EINS OG HANN REKUR Í ÞESSU VIÐTALI.
Árið 2014 hjá Rory: 310,5 Meðallengd teighögga, 59,93 Hlutfall teighögga sem lenda
á braut, 68,82 Meðal skor, það lægsta á PGA mótaröðinni, 69.44 Hlutfall af flötum í
tilskyldum höggafjölda (GIR) 293 Fuglar sem McIlroy fékk á PGA mótaröðinni, 436
Lengsta teighögg Rorys, á Opna skoska meistaramótinu, 63 Lægsta skor hans, á Me-
morial mótinu, 296,1 Meðallengd boltaflugsins með „dræver“, 179,73 Hraðinn á
boltanum (í mílum), þriðji mesti hraðinn á mótaröðinni, 15 milljónir dollara: Verð-
launafé Rorys árið 2014 20 milljón dollarar: Það sem hann þénaði annars staðar en á
vellinum, samkvæmt Forbes tímaritinu.
Þúsundir áhorfenda voru við Tower
brúna í London þegar borgar-
stjórinn, Boris Johnson, klúðraði
golfhöggi, einn daginn í september, vikuna
áður en Ryder keppnin hófst. Við hlið hans
stóð ungur maður frá Ulster með breitt
bros á andlitinu; glaðlegur þátttakandi í
kynningarátaki – fyrir löngu orðinn eitt af
þekktustu andlitum golfheimsins.
Rory McIlroy...Lionel Messi golfsins?
„Ég þarf tíu ár eins og það sem er að líða
núna,“ sagði kylfingurinn sem búinn er að
sigra á fjórum risamótum. Spurningunni
var varpað fram í léttum tón og svarið var á
sömu nótum. En ótrúleg velgengni McIlroys
í sumar hefur þaggað niður í hörðustu gagn-
rýnendum hans.
„Ég hélt að sigurinn á Opna breska myndi
hjálpa mér að komast á hærri stall í íþrótt-
inni,“ sagði McIlroy eftir frammistöðu sína
á Hoylake og Valhalla, og Firestone, þar sem
hann sigraði á Bridgestone Invitational. „Ég
var þokkalega ánægður með tvo risatitla í
safninu þegar árið byrjaði, en núna er ég
kominn með fjóra slíka og stefni á Alslemm-
una á Augusta. Ég bjóst aldrei við að vera
búinn að ná þessum árangri á mínum aldri,
en þetta hefur gengið vel og ég gæti auðvitað
ekki verið ánægðari með hvar ég er staddur
með golfið mitt.“
McIlroy tókst ekki að komast framúr Billy
Horschel og vinna Tour Championship
titilinn og tíu milljón dollara verðlaunaféð
en hann er hins vegar handhafi Rauðvíns-
könnunar, Wanamaker bikarsins, Gary
Player verðlaunanna að ógleymdu toppsæti
á Evrópumótaröðinni, Race to Duabai, og
það sýnir þroska þessa 25 ára gamla kylfings.
„Golfið er einfaldlega í fyrsta sæti hjá mér;
allt annað er í aukahlutverki,“ segir McIlroy,
sem komst aftur á topp heimslistans eftir
sigurinn á WGC mótinu í Akron í Ohio. „Ég
er búinn að leggja hart að mér, en mér hefur
tekist að einbeita mér betur og það virðist
hafa skilað sér.“
Fyrsti sigur kappans á þessu ári kom á BMW
meistaramótinu í maí. En árið byrjaði ekki
vel og hann var gagnrýndur fyrir að vera
ekki nógu einbeittur í golfinu. Hann stóð í
málaferlum, skipti um kylfur og sambands-
slit hans við Caroline Wozniacki fóru ekki
framhjá neinum sem kunni að lesa. Bjartasta
von golfsins þurfti að svara gagnrýni á
hverjum einasta blaðamannafundi. En þegar
sólin var að setjast í Louisville í Kentucky,
þá tókst engum eða neinu – ekki einu sinni
úrhellis rigningu – að koma í veg fyrir enn
eitt töfrandi augnablik McIlroys. Hann stóð
að lokum uppi sem sigurvegari, eftir erfitt
mót og erfiða mánuði þar á undan.
„Að ná svona árangri við erfiðar aðstæður
er það skemmtilegasta,“ segir McIlroy, þegar
hann rifjar upp lokahringinn á Valhalla, þar
sem rigningin gerði honum erfitt fyrir, svo
ekki sé minnst á samkeppnina frá Phil Mic-
kelson og Rickie Fowler. „Það skipti máli að
sigra á þennan hátt, því það segir mér að ég
geti það: ég veit að ég get náð keppinautum
mínum, spilað með þeim bestu í heimi þegar
risatitill er undir, og sigrað. Phil Mickelson
er einn af bestu kylfingum sinnar kynslóðar
og það að hafa sigrað hann á sunnudagseftir-
miðdegi er gott að hafa í minningunni.“
McIlroy er alinn upp í litlum bæ á Norður
Írlandi og fékk tækifærið þar til að rækta
hæfileika sem snemma komu í ljós. Þessi
reynsla hefur fært McIlroy getuna til að
horfa raunsætt á stöðu sína og gera sjálfur
breytingar; nokkuð sem hefur skipt höfuð-
máli undanfarin misseri. Hann hefur per-
sónuleikann til að læra af mistökum sínum
og snúa neikvæðum atburðum upp í eitthvað
sem hann lærir af. McIlroy er búinn að gera
sér grein fyrir því að sigurvegarar bíða ekki
eftir tækifærinu til að ná á toppinn; þeir
grípa það einfaldlega.
Ekki hugsa of mikið um efsta sætið
„Með því að verða efsti maður heimslistans
hef ég lært að hugsa ekki of mikið um það,“
segir McIlroy, sem varð fyrsti evrópski
kylfingurinn til að sigra á þremur risamótum