Golf á Íslandi - 01.08.2015, Page 48
sumarsins kom á þeim degi þar sem rigndi
eins og hellt væri úr fötu á keppendur.
Meistaramót klúbbsins var fyrst haldið
1970.
Garðavöllur hefur smám saman verið að
taka á sig núverandi mynd. Árið 1969
náðist stór áfangi er samþykki fékkst fyrir
afnotum á álíka stóru landi og fyrir var
vestan sex holu vallarins. Uppdráttur
af níu holu velli var samþykktur árið
1969 og hafist var handa við leik á
þessum velli sumarið 1972. Árið 1977
fékkst enn meira land og völlurinn var
stækkaður enn frekar árið 1978. Árið
1982 var framtíð Garðavallar tryggð þegar
völlurinn var samþykktur í aðalskipulag
Akraneskaupstaðar.
18 holur árið 2000
Hugmyndin að stækkun Garðavallar í 18
holur fór á skrið árið 1988 og árið 1994
tókust samningar við Akraneskaupstað
um landnýtingu og kostnaðarþátttöku
bæjarfélagsins. Árið 1995 voru núverandi
1., 2., 3. og 4. braut vallarins teknar í
notkun. Alls voru 11 holur á vellinum allt
fram til ársins 2000 þegar allar 18 holurnar
voru teknar í notkun.
Völlurinn var formlega opnaður sem 18
holu völlur árið 2000 og Íslandsmótið í
höggleik fór fram á vellinum árið 2004 þar
sem Birgir Leifur Hafþórsson fagnaði sigri í
karlaflokki en hann var þá genginn í raðir
GKG. Ólöf María Jónsdóttir úr Keili sigraði
í kvennaflokki.
Margar hugmyndir að
stækkun
Núverandi félagsaðstaða var tekin í
notkun árið 1978 og leysti af hólmi gamla
klúbbhúsið sem keypt var árið 1969.
Margar hugmyndir eru til um stækkun á
núverandi klúbbhúsi og má þar nefna að
byggja ofan á húsið útsýnispall eða jafnvel
aðra hæð. Árið 2005 á 40 ára afmælisári
klúbbsins voru uppi hugmyndir um að
byggja nýtt klúbbhús á þeim stað þar sem
9. flötin er í dag.
Nýtt æfingaskýli var tekið í notkun þann
3. júlí árið 2004 og fékk mannvirkið
nafnið Teigar. Skýlið er við æfingasvæði
vallarins og er það mikið notað – enda er
það upplýst og hægt að slá þar fram eftir
hausti og eitthvað fram eftir vetri þegar
aðstæður leyfa. Flatarmál Teiga er tæplega
200 fermetrar og undirstöðurnar eru
steinsteyptar. Þessi aðstaða hefur gjörbreytt
æfingaaðstöðu félagsmanna og gesta.
Ný og glæsileg vélageymsla
Árið 2011 var gerður samstarfssamningur
við Akraneskaupstað um byggingu á nýrri
vélageymslu. Nýja vélageymslan er rúmlega
500 fermetrar. Mannvirkið gjörbreytir
allri geymsluaðstöðu fyrir þann vélakost
sem Leynir á. Þar er einnig verkstæði
til að viðhalda vélum og aðstaða fyrir
starfsmenn sem vinna við golfvöllinn.
Yfir vetrartímann hefur vélageymslan verið
nýtt sem æfingaaðstaða fyrir félagsmenn
og æfingar afrekshópa. Nýlega var tekinn
í notkun fullkominn golfhermir sem hefur
vakið mikla lukku hjá félagsmönnum sem
eru í dag á vel á fimmta hundrað.
Eftir stækkun Garðavallar í 18 holu
keppnisvöll hafa öll helstu golfmót GSÍ
verið haldin á Garðavelli frá árinu 2000
fram til dagsins í dag. Þar má nefna Íslands
mótið í höggleik, Íslandsmót öldunga,
Íslandsmót unglinga, Landsmót 35 ára
og eldri, sveitakeppni GSÍ í 1. deild karla
og kvenna auk stigamóta karla, kvenna
og unglinga. Má með þessari upptalningu
staðfesta að Garðavöllur sé einn af betri
keppnisvöllum landsins.
Breytingar: Loftmynd af nýja hluta
Garðavallar.
Gamalt: Hér er mynd sem er tekin upp eftir 1. og 9. braut. Eins og sjá má eru miklar breytingar
frá þessum tíma.
Vígsluathöfn. Reynir Þorsteinsson fyrrum
formaður Leynis á vígsluathöfninni þegar
Garðavöllur varð að 18. holu velli.
48 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Gríðarlegar breytingar