Golf á Íslandi - 01.08.2015, Page 64

Golf á Íslandi - 01.08.2015, Page 64
Vönduð hönnun, fagurlega unnin húsgögn og munir eru hlutir sem halda verðgildi áratugum saman. Í Módern bjóðum við það besta í evrópskri hönnun og leggjum metnað í fallegar útstillingar sem gefa viðskiptavinum okkar hugmyndir og innblástur. Það er mikilvægt að vanda valið og sérfræðingar verslunarinnar eru ávallt til taks með fróðleik og ráðgjöf byggða á vöruþekkingu og þrautþjálfuðu auga fyrir samræmi og stíl. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 11–18 • HLÍÐASMÁRA 1 • 201 KÓPAVOGUR • 534 7777 • modern.is GÓÐ HÖNNUN FEGRAR HEIMILIÐ ÞITT HEIMILI – ÞÍN STUND Eclipse borð ⁄ ⁄ Verð frá 34.900 kr. M-sófi ⁄ ⁄ Verð frá 239.900 kr. Catifa 80 hægindastóll ⁄ ⁄ Verð frá 214.900 kr. 4240 Octo ljós ⁄ ⁄ Verð 144.900 kr. 4210 standlampi ⁄ ⁄ Verð 154.900 kr. Nordic Plain gólfmotta ⁄ ⁄ Verð á m2 74.900 kr. Arper púðar ⁄ ⁄ Verð 28.900 kr. Manhattan teppi ⁄ ⁄ Verð 18.900 kr. Omaggio thermobolli ⁄ ⁄ Verð 3.990 kr. Botanica vasi ⁄ ⁄ Verð 11.490 kr. PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 53 27 1 það að ég þyrfti að vera hjá atvinnumanni í lengri tíma til þess að ná tökum á þessu. Ég yrði bara helgarspilari – þá skipti forgjöfin engu máli, ég hafði engan áhuga á því.“ Þorsteinn dregur ekkert úr þeirri staðreynd að hann hafi margoft íhuga að draga sig í hlé sem formaður vegna anna í vinnu. Þá sérstaklega á upphafsárum Leynis og það hafi oft komið upp sú staða að hætta hafi verið á að klúbburinn legðist af. Vökvunarkerfið kom vellinum á kortið Garðavöllur þótti á upphafsárunum skemmtilegur golfvöllur og góðar flatir einkenndu völlinn allt frá upphafi. Vökvunarkerfi var sett upp á vellinum mjög snemma og var það nýlunda á Íslandi. Þorsteinn var að sjálfsögðu með puttana í því verkefni og hann er ekki í vafa um að sú aðgerð hafi komið vellinum á kortið. „Við vorum fyrstir með vökvunarkerfi hér á landi og mönnum þótti gaman að koma hingað og slá inn á flatirnar. Þær tóku vel við boltanum. Þetta var allt saman lagt með heimatilbúnum plóg og það gekk ágætlega. Þetta munaði miklu því strax á vorin gátum við vökvað. Maímánuður er oft þurr og ekki hægt að bera á. Við gátum borið á og vökvað það niður. Flatirnar voru því mun fyrr tilbúnar hér en hjá Golfklúbbi Reykjavíkur í Grafarholtinu. Þetta munaði miklu.“ Þorsteinn sló fyrsta golfhöggið þegar Garða völlur var opnaður formlega sem 18 holu völlur á sínum tíma og var hann ánægður með það högg þegar hann rifjar þá stund upp. „Það var skemmtileg stund þegar vellinum var breytt í 18 holur. Ég sló fyrsta höggið og var klæddur eins og maður var klæddur í gamla daga. Var með hatt og í jakkafötum með hálstau. Það var sérstakt og gaman að því þegar þetta var opnað. Ég sló með 5-járni og fór yfir skurðinn – það var alveg nóg. Ég var ekkert að taka dræverinn og slæsa út í skóginn.“ Að lokum segir Þorsteinn að Garðavöllur sé á góðum stað í fallegum bæ og bæjarbúar geti verið stoltir af þessum stað. „Ég held að byggðin komi ekki til með að þrengja að okkur. Þetta er voðalega þægilegt fyrir íbúa að hafa völlinn við bæjardyrnar. Það er látið vel af vellinum og margir telja hann í hópi þriggja bestu valla landsins. Ég er ánægður með það þegar maður hættir. Þetta er komið nóg, en ég slæ kannski nokkur högg í sumar,” sagði Þorsteinn Þorvaldsson. Hvað ertu að þvælast uppi á golfvelli? - Elín Hannesdóttir var fyrsta konan sem keppti á golfmóti hjá Leyni „Ætli það hafi ekki verið þannig að feðgarnir voru öllum stundum uppi á velli og ég var bara ein heima. Ég var að vinna í fiski niðri á Kampi og þegar ég byrjaði að spila golf þá hætti ég að vinna yfir sumarið til þess að geta spilað. Það var lítið mál að fá stelpur í vinnu yfir sumartímann til þess að fylla mitt skarð. Ég tók því bara öll sumur í frí,“ segir Elín Hannesdóttir þegar hún var innt eftir því hvernig hún byrjaði í golfíþróttinni. Elín er fyrsta konan sem tók þátt í golfmóti hjá Leyni og er fyrsta konan sem skráð var í klúbbinn. Það má með sanni segja að Elín hafi tekið golfíþróttina föstum tökum allt frá upphafi – enda var ekki hjá því komist þar sem um lítið annað var rætt á heimili hennar. Hún áttaði sig ekki á því að konur spiluðu líka golf fyrr en hún sá konur í golfi á Nesvellinum. „Ég heyrði í þeim heima öllum stundum tala um golf – ég skildi ekkert hvað þeir voru að segja, enda töluðu þeir bara golfmálið. Mér fannst þetta sniðugt þar sem þeir voru að gera, Steini að gera við vélar og traktora og annað slíkt. Ég fór með Steina suður á Nesvöllinn að ég held. Þar sá ég að konur voru að spila golf, þetta varð til þess að ég fór að fara með Steina upp á völl þegar ég vissi að hann var að fara að „leika“ sér. Ég var bara að draga fyrir hann og prófaði af og til að slá. Þegar gamli skálinn kom á svæðið fór ég að selja kók og prins-póló í skálanum fyrir klúbbinn.“ Skemmtilegur tími Það voru ekki margar konur sem lögðu leið sína á fyrstu árum Leynis upp á Garðavöll en smátt og smátt fór það að breytast. „Frænkur mínar tvær sem voru á fermingaraldri voru einnig að aðstoða mig við veitingasöluna. Síðar komu Katrín Georgsdóttir og Guðrún Geirdal. Þær voru fyrstu konurnar sem komu með mér í þetta. Við bökuðum vöfflur sem voru vinsælar þegar við vorum með „heimamót“. Klúbburinn átti engan borðbúnað á þessum árum og við fengum allt lánað neðan úr Sementsverksmiðju - þetta skipti miklu máli fyrir okkur á þessum tíma. Kata var bílstjórinn enda hef ég aldrei keyrt bíl og hún sá um að koma þessu á milli staða. Það var mjög skemmtilegur tími – þetta voru ekki margar konur á þessum tíma. Fyrst kom Kata, síðan Erla Karlsdóttir.“ Elín rifjar upp fyrsta mótið hjá Leyni þar sem keppt var sérstaklega í kvennaflokki. Þar var hápunkturinn að hennar mati að hún datt ofan í skurð en náði að klára keppnina. „Fyrsta mótið þar sem sérstakur kvennaflokkur var þá vorum við þrjár sem kepptum. Ég, Katrín Georgsdóttir og Guðrún Geirdal. Ég man ekki alveg hvort völlurinn var 9 holur á þeim tíma en gamli skálinn var enn í notkun. Ég man að ég datt í skurð á þessu móti og það var mikið hlegið. En ég náði að klára mótið, ég var rennandi blaut upp að hnjám en þetta var fyrsta kvennamótið hérna hjá okkur í klúbbnum.“ Elín dregur ekkert úr því að margir hafi undrast það að hún væri að stunda golfíþróttina sem þótti mikið karlavígi á þeim tíma. „Það var sagt við mig; Hvað ertu að þvælast uppi á golfvelli – það eru eintómir karlar þarna? Þetta þekktist ekki hér þetta golf.“ Frá vinstri: Ómar Örn Ragnarsson, Elín Hannes dóttir, Þórólfur Ævar Sigurðsson, Víðir Bragason og Janus Bragi Sigurbjörnsson. 64 GOLF.IS - Golf á Íslandi Bæjarbúar geta verið stoltir af Garðavelli
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.