Golf á Íslandi - 01.08.2015, Qupperneq 77
Lokastaðan í karlaflokki á Símamótinu:
1. Kristján Þór Einarsson, GM 217 högg (71-77-69) +1
2. Guðjón Henning Hilmarsson, GKG 217 högg (73-69-75) +1
*Kristján hafði betur á fyrstu holu í bráðabana.
3. – 4. Heiðar Davíð Bragason, GHD 218 högg (72-74-72) +2
3. – 4. Björn Óskar Guðjónsson, GM 218 högg (77-70-71) +2
5. Arnór Snær Guðmundsson, GHD 219 högg (78-71-70) +3
6. – 8. Axel Bóasson, GK 220 högg (73-75-72) + 4
6. – 8. Stefán Már Stefánsson, GR 220 högg (73-75-72) +4
9. Hlynur Geir Hjartarson, GOS 221 högg (71-76-74) + 5
10. – 12. Haukur Már Ólafsson, GKG 222 högg (76-73-73) + 6
10. – 12. Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR 222 högg (76-73-73) + 6
10. – 12. Dagur Ebenezersson, GM 222 högg (73-73-76) + 6
Kristján Þór kom sér í bráðabanann með
mögnuðum lokakafla á lokahringnum þar
sem hann lék á -3 eða 69 höggum. Kristján
Þór fékk fugl á lokaholunni sem gerði það
að verkum að hann var á +1 samtals.
Guðjón Henning Hilmarsson úr GKG var í
lokaráshópnum og hann var með sex högga
forskot á Kristján Þór fyrir lokahringinn.
Það gekk fátt upp hjá Guðjóni þegar mest
á reyndi en hann átti enn möguleika á
að tryggja sér sigur með pútti fyrir fugli á
lokaholunni.
Hann náði því ekki og kom inn í
klúbbhúsið á 75 höggum og bráðabani
var staðreynd. Guðjón hitti ekki flötina í
upphafshögginu í bráðabananum og annað
höggið sló hann úr frekari erfiðri stöðu.
Hann náði ekki að setja pútt fyrir pari
ofan í.
Björn Óskar Guðjónsson úr GM og Heiðar
Davíð Bragason úr GHD voru jafnir í 3. – 4.
sæti á +2 samtals og voru þeir nálægt því
að komast í bráðabanann. Björn Óskar
fékk skolla á lokaholunni en par hefði
dugað honum til þess að komast í keppni
um sigurinn. Heiðar Davíð hefði þurft
fugl á lokaholunni. Þetta er besti árangur
Björns Óskars á Eimskipsmótaröðinni en
Heiðar Davíð er þaulreyndur sigurvegari á
mótaröðinni og varð Íslandsmeistari árið
2005.
Kristján Þór sigraði á þremur mótum í fyrra
á Eimskipsmótaröðinni og var þetta fyrsti
sigur hans á þessu tímabili.
Alls tóku 88 kylfingar þátt í karlaflokki en
64 þeirra komust í gegnum niðurskurðinn
að loknum öðrum keppnisdegi.
Púttið á 18. á lokahringnum
eftirminnilegast
„Ef ég ætti að velja eitt högg sem væri högg mótsins, þá
væri það 12 metra púttið sem ég setti niður fyrir fugli á
18. holunni á lokadeginum. Það kom mér í vænlega stöðu
og tryggði mér að lokum sæti í bráðabana um sigurinn á
mótinu,“ sagði Kristján Þór Einarsson um eftirminnilegasta
högg Símamótsins.
Fjórða brautin gefur og refsar
„Uppáhaldsholan mín á vellinum er 4. holan á Hlíðavelli.
Þetta er tiltölulega stutt par 4 hola með grjóthlöðnum skurði
niður alla brautina á vinstri hönd. Holan gefur frábæra
möguleika á fugli og jafnvel erni ef teighöggið er mjög gott.
Brautin er jafnfljót að refsa því skurðurinn fyrir framan
flötina grípur marga bolta ef þeir eru ekki 100%.“ - Kristján
Þór Einarsson
Bráðabani: Kristján
Þór undirbýr sig
fyrir lokapúttið í
bráðabananum
gegn Guðjóni
Sáttur: Björn Óskar Guðjónsson var
ánægður með þriðja sætið og fagnar hér
með móður sinni, Írisi Ösp Björnsdóttur
77GOLF.IS