Kristilegt skólablað - 01.09.1957, Síða 13
Guðmunda Guðmundsdóttir:
I»(i (Ít 11 (Ijjlipið
essi orð mælti Jesús eitt sinn við Símon
Pétur, við Geneseretvatn. En Pétur sagðir
„Meistari, vér höfum setið í alla nótt og ekki
orðið varir, en eftir orði þínu vil ég leggja net-
in.“ (Lúk. 5, 5). — Hann átti erfitt með að trúa
orðum Jesú.
Það er rétt eins og þessi saga hefði gerzt nú
á dögum, svo vei á hún við okkur nútímamenn.
Hvaða þýðingu hefur það að trúa á Jesúm
Krist? segja sumir æskumenn. Er í rauninni
nokkur guð til, sem hægt er að treysta?
Margir komast svo aldrei lengra en að þess-
ari spurningu, láta aðeins þar við sitja. Þeir
taka orð Guðs aldrei alvarlega, er hann segir:
Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið.
Ef við iesum Gamla testamentið, getum við
séð, hvernig spámennirnir fóru að. Þeir heyrðu
orð Guðs, sáu hann og trúðu á hann.
eftir þessu. Láttu það fyllast þinni lífsnautn, sem
stafar af Guði eins og geislar sólar og heitir náð
Guðs.
Þú hefur sjálfsagt lesið 11. kapítula Hebrea-
bréfsins. Þar er talað um menn lífsnautnarinnar,
þá menn, sem mest nutu nautnar Guðs lífs og
ríkulegast, hetjur trúarinnar, hetjur hins ein-
beitta vilja, sem helgast af Guðs skapandi krafti
og stefnir að æðsta marki. Þeirra nöfn munu
ge-'mast, þótt öll önnur gleymist, því að málefnið
heldur þeim á loft, hefur þá upp, helgaði þá
einnig og gjörði þá að stórmennum, þótt smáir
væru í sjálfum sér. Þeir bjóða okkur að slást í
hópinn. Þeir sýna okkur stórmerki trúarinnar,
sem urðu í þeirra lífi og veittu sigrinum, gleð-
inni, fögnuðinum inn í h'f þeirra, — og spyrja:
„Ertu með?“
Biblían er raust Guðs til okkar, í orðum henn-
ar birtist Guð okkur mönnunum. Við höfum
því enga afsökun.
,,En þetta er ritað, til þess að þér skulið trúa,
að Jesús sé Kristur, guðs-sonurinn og til þess að
þér, með því að trúa, öðlizt lífið í hans nafni.“
(Jóh. 20, 31).
Jesús sagði: „Komið til xnín allir þér, sem
erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og ég mun veitá
yður hvíld“.
Getur þú hugsað þér nokkuð öruggara en
þetta til þess að byggja líf þitt á?
Er það ekki einmitt þetta, sem þú þarfnast?
Hann, sem elskaði þig svo mikið, að hann vildi
deyja fyrir þig á krossinum á Golgata, hann býð-
ur þér að koma til sín með alla þína synd, all-
an þinn mannlega veikleika, já, allan þinn
vanda.
En hann vill fá meira, hann vill fá að stjórna
lífi þínu. Það finnst þér e.t.v. til of mikils mælzt,
en heldur þú, að nokkur geti gert það betur en
Jesús Kristur?
Hann hefur gefið þér frjálsan vilja, það er
því þitt að velja eða hafna.
Eg stóð einu sinni frammi fyrir þessu vali.
Mér var það ljóst, að þetta var eina gæfuleiðin.
Mér fannst ég þurfa að afhenda rnikið, en ég
hef fengið meira í staðinn. Hann getur gefið
frið og örvggi, betur en nokkuð annað. Hann
getur leyst úr vandamálum, án hans væri lífið
nú innihaldslaust. Ég ráðlegg þér að koma til
Jesú, eins og Pétur gerði, þú munt þá einnig fá
að heyra þessi huggunarorð: „Vertu óhræddur,
héðan í frá skalt þú menn veiða.“ Legg því út á
djúpið, og þú munt konxast að raun um, að Jesús
bregzt aldrei þeim, sem treysta honum í ein-
lægni.
. KRISTILEGT ; SKÓLABLAU 9