Kristilegt skólablað - 01.09.1957, Side 18

Kristilegt skólablað - 01.09.1957, Side 18
Narfi Hjörleifsson, 3. bekk Iðnskóláns í Rvík. Itiiiagiiítur — IlvítBæiiir ví að Kristur leið ]íka einu sinni fyrir syndir, réttlátur fyrir rangláta, til þess að hann gæti leitt oss til Guðs. (1. Pét. 3, 18). Syndin er asgilegt afl. Hversu mörg mannslíf liafa ekki Ivorfið fyrir verkan syndarinnar. Hefur þú, lesandi góður, nokkurn tíma hugsað út í það, hve mikil ítök syndin á í þér? Ég hugsaði frem- ur lítið um syndina, áður en ég eignaðist per- sónulega trú á Guð, þ. e. Jesúrn Krist. Hvaða afleiðingar hefur syndin í för með sér? Jú, við erum rangHt, eins og segir í I. Pét. 3, 18. Kristur leið réttlátur fyrir rangláta. Guði sé lof. Við mennirnir þurfum ekkert að óttast. Kristur leið fyrir syndir okkar. Hvílíkur fagnaðarboðskap- þess að þú þurfir að taka þau til þín: Maður, sem hefur verið konu sinni ótrúr, biður hana fyrirgefningar og bætir ráð sitt. Sonur, sem hef- ur komið heim drukkinn um miðja nótt, segir: ,,Elsku mamma, mér þykir þetta leitt, ég skal ekki gera það aftur“. Og um leið biður hann frelsara sinn að hjálpa sér að standast freisting- una. Stúlka, sem liefur verið frek við foreldra sína og verið eigingjörn, í stað þess að heiðra þá (samb. 4. boðorðið), hjálpa móður sinni og hugsa fyrst og fremst um að vera góð dóttir. Þjófur skil- ar peningunum. Svona mætti lengi telja, og þú veizt áreiðanlega sjálfur bezt, hvað þér ber að gera til þess að fullnægja kröfum Guðs. Það er erfitt, en er það ekki undirstaða þess, að þú öðl- ist frið við Guð? Það er undir því kornið, að þú „einstaklingurinn" takir trúna alvarlega, með því að elska Guð af öllu hjarta og náungann eins og sjálfan þig. Þannig þjónar þú því mál- efni, sem er við þitt hæfi og stuðlar að lvinu góða í heiminum. ur. Það ei gott að eiga trúna á Jesúm Krist. Ég get vitnað um það. Eg finn aldrei til einstæð- ingsskapar, finn aldrei fyrir áhyggjum, því ég á Jesúm Krist að. Hann hjálpar í hverju sem er. Það er ótrúlegt, að nokkur Skuli efast um tilveru Guðs. Plversu oft er það ekki, sem Við menn- irnir fáum að reyna kraftaverk? Allmargir kalla slíkt heppni, en ég trúi því, að Guð sé að verki. Til dæmis allir bifreiðaárekstrar. Hversu oft er það ekki, sem bílar stórskemmast, en fólk slepp- ur lítið sem ekkert meitt. Og að segja svo, að Guð sé ekki til. Hvað eru yfirnáttúrleg öfl ann- að en Guð að verki? — Lengi vel trúði ég því, að allir menn kæmust að lokum til Guðs. En þegar ég fór að lesa Biblíuna, þá komst ég að þeirri niðurstöðu, að svo er ekki. Kristur krefst persónulegrar trúar. I Jóh. 3, 16 kemur í ljós, hvað um þá verður, sem ekki trúa. Og enn gleggra í Opinberunar- bókinni 20, 11—14. Hverjir eru þeir, sem glatast? Þeir, sem syndin hefur náð of miklurn tökum á. Það er margt í fari okkar mannanna, sem er synd- samlegt. Ég tek ekki alltaf eftir því, hvenær ég syndga og hvenær ekki. Þess vegna verð ég að koma daglega fram fyrir Guð og biðja hann um fyrirgefningu synda minna og láta mig koma auga á, hvað sé syndsamlegt í fari mínu og hjálpa mér til að fjarlægja syndina. Ég veit, að þti les- andi góður, finnur það með sjálfum þér, að þú syndgar oft. En syndin útilokar okkur frá Guði. Leitaðu til Guðs. Fáðu fyrirgefningu synda þinna, því það er gott og mikill styrkur að koma í bæn fram fyrir Guð. Lestu Guðs orð, Biblíuna, því hún veitir þér svölun. Lestu t. d. 6. kapítulann hjá Matteusi. Guð gefi þér náð til að eignast lif- andi trú á Jesúm Krist. Hann er hið eina, sem hægt er að byggja á í lífinu. 14 KRISTJLEGT SKÓLABLAÐ

x

Kristilegt skólablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.