Kristilegt skólablað - 01.09.1957, Qupperneq 20
sanna Guði eða ekki. Og þess vegna vil ég segja
við þig, þegar þú lest þetta:Allt er hégómi einn
dn Guðs. A honum einum er mögulegt að byggja
framtíð um eilífð. Ekki aðeins tímanlega vel-
ferð,. heldur eilíflega. Hugsaðu þig því um, áður
en þú þeytir þessu í burtu frá þér, bálvondur
yfir því, livað mönnum getur dottið í hug. Eða
finnst þér það ef til vill ekki sjálfum, þrátt íyrir
alla menntun og fróðleik, sem við þykjumst svo
full af, eitthvað vanta í líf okkar? Það finnst mér
að minnsta kosti. VitS getum ekki byggt á neinu,
sem er alltaf að breytast, geturn ekki haldið
í neitt öruggt og traust. Hví þá ekki að taka
Biblíuna sína ofan tir skápnum og lesa svolítið
í henni? Hví ekki að leita til Guðs? Ég fyrir mitt
leyti er algjörlega sannfærður um, að það er
nokkuð til, sem heitir Guð. „Almáttugur Guð
allra stétta“, alvitur Guð, sem fylgist með öllu.
Og það er öruggasta leiðin, sem ekki bregzt, til
þess að eignast frið í hjarta og öryggi í sálu. Að
leita til Guðs með allt, sem okkur liggur á hjarta,
og fela það í hans hendur, gefur sálunni ró og
hvíld.
En nú veit ég, að þér finnst þetta einum of
mikið af því góða. Og það er ef til vill skiljan-
legt. Því að eins og ég minntist á áðan, fannst
mér þetta hreinn og beinn lydduskapur'að taka
svona upp háttu og siðu hins gamla fólks. Þá
fannst mér það vera svo fjarri, að ég hélt al-
deilis útilokað, að slíkt ætti nokkurn tíma eftir
að koma fyrir mig. En þannig er lífið í henni
veröld, að þrátt fyrir öll mín áform og skoðanir,
þá- fannst mér allt vera ákaflega reikult og valt.
Og það var einungis vegna þess, að ég byggði á
mér sjálfum. En síðan fór ég að lesa Biblíuna
og hugleiða það, sem þar stóð. Og viti allir góðir
menn, kraftaverkið átti sér stað, fyrir náð og
blóð Jesú Krists kom ég auga á það, að ég átti
ekki að vera að streitast einn í þessari veröld. Ée
átti ekki að byggja á sjálfum mér. Það var sem
sé einn, sem vildi hjálpa mér í blíðu og stríðu
Og ég hætti að byggja á sjálfum mér og byggði
á bjargi í staðinn. Bjargi, sem aldrei bifast. Og
þá breyttist allt. Allt fékk annan blæ. Nú veit
ég, til hvers ég lifi og fyrir hvern. Nú hefur lífið
tilgang. Og ég berst áfram að markinu, sem er
að vísa öðrum leiðina til hins eina óbrigðula.
Hann er „bjargið alda“, sem ég vildi benda þér
á, Jesús Kristur. Honum er hægt að treysta í
ER EFiMSMYGGJAN ÚKELT?
Framhald af bls. í.
lögmálum sem svar við bænum. Georg Broch-
mann lýsir ágætlega þess konar „cleisma" með því
að umrita Jóh. 1:1. á þennan hátt: „í upphafi var
sviðið og sviðið var guð“. Slíkur deismi (guðstrú)
kemur kristnum mönnurn eins ókunnuglega fvrir
sjónir og ateismi (guðleysi).
Nútíma efnishyggja kemst að vorrt hyggju að
tvenns konar niðurstöðu. í fyrsta lagi vill hún
afrná manngildi. Oss mundi finnast vér vera
ábyrgðarlaus og oss stjórnað af ósýnilegu afli.
í öðru lagi vill hú ndraga úr trúnni á Guð sem
persónu. Það mun hæglega hafa í för með sér
nýja mynd fjölgyðistrúar, þar sem Guð er ekki
skaparinn, en aðeins liluti af sköpunarverkinu.
En kristnir menn geta aldrei hætt að trúa á
Guð sem persónu, sem skapað hefur himin og
jörð og elskar og lætur sér annt um livern ein-
stakling.
Að endingu getum vér gjarna sagt, að vér
sem kristnir menn skulum gleðjast. vegna þess,
sem gerzt hefur innan náttúruvísindanna síðustu
áratugi. Vér skulum einnig sýna franr á, þannig
að kunnugt verði, að hin hreina efnishyggja sé
í afturför. En vér skulum losa oss við vísindahjá-
trúna og gera oss óháða náttúruvísindunum. Oss
ber einnig að fylgjast vel með öllu og meta allar
andastefnur frá kristilegu sjónarmiði.
(,,Fast Grunn.“ S. B. þýddi.)
Bretinn Kóbert Morrison var brautryðjandi í kristniboðs-
starfi mótmælenda í Kína. Hann dvaldist bar í byrjun aldar-
iiinar sem leið. Hann þýddi Biblíuna á kínversku, samdi kín-
verslca málfræði off einnig kínverska orðabók í sex bindum.
Gefur það nokkra hugmynd um dugnað þessa r.ianns og gáf-
ur. — Þegar Morrison var á leiðinni til Kína, sa«;ði inaður
nokkur við hann háðslega:
,,Sef?ið mér, væntið þér þess í raun o£ -A?eru, að þér getið
haft einhver áhrif á alla þessa skurðtfoðadýrkendur í hinu
stóra Kínaveldi?"
,,Nei, herra minn“, svaraði Morrison einarðlega, ,,en é|?
vænti þess, að Guð geri það“.
öllum hlutum. Hugsaðu þig vel um, áður en
þú hafnar þessari leið. Mundu það svo að lok-
um, að „miskunnsamur er Drottinn, þolinmóð-
ur og mjög gæzkuríkur“. Hann hjálpar þeim,
sem til hans leita og gefur þeim öryggi og festu.
16 KRISTILEGT SKOLABLAf)