Kristilegt skólablað - 01.09.1957, Síða 27
Birger Breivik;
S|í> b' þn fniið fyrst!
ú ert ungur, en samt hefur þú þegar tamið þér
ýmis konar vana. Flest viðbrögð þín og at-
hafnir í daglega lífinu framkvæmir þú ósjálfrátt.
Þú þarft ekki að hugsa mikið um það. Vér menn-
irnir erum á valdi vanans í ríkari mæli en vér
gerum oss Ijóst. Og það er hæði gott og illt.
Nú ætla ég að benda þér á góðan vana. Það
var eiginlega kaupmaðurinn á horninu, sem
benti mér á þetta. í búðarglugganum hans stend-
ur letrað: Spyrjið mig fyrst! Með þessu á hann
við, að fólk skuli leita fyrst til hans, þegar eitt-
hvað þarf að kaupa.
En nú er ég að hugsa um að breyta þessum
einkunnarorðum kaupmannsins, — í þeirri von,
að þau festist í huga þér, sem ert ungur. Og þá
hljóða þau svona: Spyr þú Guð fyrst!
Þetta er ekki frumleg setning. Hvorki kaup-
maðurinn né ég höfum samið hana. Það var
Jesús, sem sagði hana fyrstur. Þú manst, hvað
lrann sagði: „Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis,
og þá mun allt annað veitast yður að auki.“
(Matt. 6, 33).
Spyr þú Guð fyrst! Láttu það verða höfuð-
reglu lífs þíns að spyrja Guð ávallt fyrst. Ekki
aðeins þegar þú þarft að taka mikilsverðar á-
kvarðanir, heldur á hverjum degi, á hverjum
morgni, við öll tækifæri: — Spyr þú Guð fyrst!
Ég nefndi það góðan vana, og e.t.v. fannst þér
það ekki viðeigandi orð í þessu sambandi. Er
það of hversdagslegt? Ég held ekki. Vaninn get-
ur líka verið heilagur og leitt oss undir náðar-
áhrif Guðs.
Alls konar áhrif og hugsanir vilja þrengja sér
inn í sál þína, þegar þú vaknar á morgnana. —
Hleyptu þá Guði að! Láttu hann verða það
fyrsta, sem fyllir hug þinn og hjarta á kyrrlátri
morgunstund.
Hleyþtu Guðs orði að, dður en þú lest morg-
unblöðin. Gerðu það að reglu að gefa Guði
fyrstu mínúturnar af þeim 1000, sem þú hefur
til umráða á degi hverjum. Hann muir launa
þér ríkulega. Þú færð að sannreyna fvrirheit
hans bókstaflega: „Allt annað mun veitast yður
að auki“.
Þú ert ekki búinn að lifa ýkja lengi, þegar
þú þarft að taka ýmsar ákvarðanir. Spyr þá Guð
fyrst! Því miður hafa margir kristnir menn þann
vana að spyrja Guð aldrei. Það er hræðilegur
vani. Hvernig geta þeir vænzt nokkurs í samfé-
laginu við Guð?
Margs konar vani nær auðveldlega tökum á
þér, meðan þú ert ungur. Góður vani getur
hjálpað þér allt lífið. Og á hinn bóginn getur
þú þurft að berjast við slæman vana árum sam-
an. — Ó, hvað ég vildi, að þessi orð mín gætu
grópazt í huga þér og orðið þér til hjálpar.
Ég vitna fyrir þér um það, sem lífið og reynsl-
an hefur kennt mér: Það borgar sig að spyrja
Guð fyrst!
KEMUR ÞÚ MEÐ
á Kristilegt skólamót í Vatnaskógi um
bænadagana. — Ef svo er, skaltu setja
þig í samband við einhvern úr Kristileg-
um skólasamtökum. — Fundir í K.F.U.M.-
húsinu, Amtmannsstíg 2 B, flest laugar-
dagskvöld.
KRISTILEGT SKOLABLAÐ 23