Freyja - 01.04.1905, Page 10

Freyja - 01.04.1905, Page 10
228. FREYJA VII. 9. fólkið eins og heild trúir því, af þaö þurh aö líöa eöa borga tyrir sérhverja fullnæging sýnilegu eða ósýnilegu valdi—jafnvel fyrir það, að velja sér maka. Svo lengi veröur konan ambátt mannsins og glæpir, vaxandi afurðir mannfélagsins. Framleiðendurnir verða að berjast fyrir og ná sínu frelsi, því frelsi konunnar byggist á því. ‘' Nú settist rœðumaðurinn niður, og þegar hlé varð á lófaklappi og fagnaðarlátum fólksins, stóð upp maður nokkur, svartur á brún og brá,og sagði: að í 99 tilfellum af hverjum ioo,væri fátæktin sjálf- sköpuð víti. Vinnulýðurinn vœri latur, eyðslusamur og illa innrœtt- ur, sem heldur vildi eyða frítímum sínum á knœpum, spilahúsum, kvennahúsum og jafnvel á götuhornum ogberast á straumi spilling- arinnar f tukthúsin, en halda sig að heimilum sínum og hlynna að þeim Ef óttinn við guð og djöfulinn ekki héldi verkalýðnum í járn- greipum sínum, og kyrkjan, með sínum blessunarríku áhrifum héldi honum í skefjum, væri sízt fyrir að synja, að hann myrti og rændi gott og heiðarlegt fólk, hugsunarlaust um allar afleiðingar, að eins til að fullnægja sínum djöfullegu tilhneigingum. ,,Menn tala um lausar ástir. Getur nokkuð verið lausara en þau hjónabönd, sem nú eiga sér stað? Arlega er sótt um eins marga hjónaskilnaði og mörg hjónabönd eru stofnuð, og það sem mestri furðu sætir, er að hg.nn er oftast veittur. Það er mikils til of léttað fá hjónaskilnað, vœri það ekki, yrði fólk varkárara í vali sínu, þess vegna segi ég: Meiri lög,strangari lög og fram fylgið svo þeim löguml Látið þá sem giftast, vita, að hjónabandið gildi alla þeirra œfi og þá mun fólk una því betur og líða betur, “ sagði hann. IX. KAPITULI. Nú var fólkið tekið að ókyrrast, það var auðsjáanlega ekki á- nœgt. Þegar ræðumaðurinn settist niður kom miðaldra kona fram á pallinn. Hún hafði ljósjarpt hár, greitt vandlega en tilgerðarlaust aftur, svo ennið, hátt og vitund hvelft, sást vel. Augun voru blá og tindrandi og varirnar titruðu af bældum tilfinningum. Röddin var þýð og þó einarðleg. Hún ávarpaði fólkið sem vini og félaga, kvað það ei vanda sinn að tala á fundum þeirra því skoðanir sínar vœru vanalega svo vel skýrðar að hún hefði meiri ánœgju af að hlusta en tala. Nú ætlaði hún þóað bregða vana sínum, ekki til að finna

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.