Freyja - 01.09.1905, Side 20
44-
FREYJA
VIII 2.
.... Þaö er átakanlegt aö sjá sumar aumingja konur fá hrylling .í
sig viö sogunni í Freyju, þó aö andlitin á þeim sjálfum séu með
niöur hangandi kynnar og allslausum augnakvörmum.......Nanna.
.. .. Með þessurn iíiíum læt ég þig vita, að ég er í þeirra tölu,
sem eru meö því, að sagan ,,Heimili Hildu" haldi áfram aö koma
út í Freyju, því rnér lfkar sagan vel. Það eru líklega þeir, sem
helzt þyrftu að heyra hana sem sízt þola hana. Freyja er yfir
það heila tekið mjög kœr komin á mitt heiinili.....
—Halldóra Bjarnason, Winnipegoses.
.. . .Nágranna kona mín ein segist hafa Freyju ,,upp á treat“. Ég
vona það sé ekki frá þér, því hún lætur ekkert tœkifæri hjá líða að
spilla fyrir henni og telja öðrum trú um að hún sé óheiSarlcg.
Sjálf les hún hana ávallt en í laumi..Sigr. Sigurðsson
Ég get ekki stillt mig um að hripa þér fáeinar línur bœði til
að votta þér þakklæti mitt fyrir starf þitt í þarfir okkar kvennanna,
og einnig til að láta þig vitá að ég er í tölu þeirraósmekkvísu, sem
óska að sagan í Freyju haldi áfram að koma út. Ég er ekki hissa
á því þó Freyja fái hnútur frá einstöku mönnum, slíkt er í mínum
augum ljósasti votturinn um að starf þitt er að bera ávöxt. Og þó
aö þessi kynslóð hafi hvorki vilja né þrek til að fœra sér kenningar
þínar í nyt, þá munu ókomnar kynslóðir sjá og meta gildi þeirra
og blessa starf og minningu þína...
— Sigríður Jónsson, Tantallcn.
. . . .Ég sem kaupandi Freyj : óska eftir að sagan „Heimili Hildu“
haldi áfram að koma út í blaðinu. . . ..—Solveig Thorvaldsson,
Winnipeg. .
. . . .í hámingju bœnum, áfram með „Heimili Hildu“.....—h)ag-
björt 'fhorsteinsson, Point Róberts.
Nokkur bréf hafa komið síðan þann 15. þ. m., sem ekki er
hœgt að koma að, én þau eru öll með sögunni. Samkvœmt þessu
hlýtur sagan að halda áfram.—Ritstj.