Freyja - 01.08.1906, Qupperneq 6
6
FREYJA
'IX. i.
hús meö 15 herbergjum og öllum nútíöar þœgindum. Svo nú hefir
hún hospital og tekur konur heim til sín. Er hún eina konan í
Duluth sem hefir ráðist í slíkt og sýnir þaö kjark og árœði. Höfir
hún þá kosti, eins og marga aöra í ríkum mœli, enda hafa þeir oft
komið henni að góðu gagni á lífsleiðinni.
TILUNGRA STÚLKNA OG MÆÐRA.
Eftir Unni.
(Framhald frú síffasta niimcri.)
En þrátt fyrir allt þetta taka stúlkurnar lífið vanalega létt á þeim
árum, því æskan er léttlynd og vonir hennar margar og bjartar.
Það er oft ekki fyr en þœr taka að eldast að þœr taka eftir vand-
hœfninni, sem þessum árum fylgir. En þó að stúlkur ekki megi
fara í ástaleit— biðja sér pilta og naumastgefa hýrt auga, þágera
þær það þó stundum, ég meina það síðara, því það myndi setja
ónota hrylling í flesta pilta ef stúlkur tœkju upp á því fyrra. Hér
er eitt dæmi:
Stúlka sem ég þekkti einusinni vel, segir svo frá:
,,Við höfðum þekkst býsna lengi og vorum saman öllum þeim
stundum er við gátum. Það, var siður hans að koma eftir mér
þangað sem ég vann, um það leyti sem verk mín voru búin — því
hann vissi vel hvenær það var, og fórum við þá vanalega eitthvað
út, ýmist á leikhúsið, á reiðhjólum út fyrir borgina, á samkomur
eða þá að við gengúm eitthvað ogheimsóktum éinhverja kunningja
saman. Hann var lesnari en ég og hafði æfinlega frá einhverju
skemtilegu aðsegjaog mér geðjaðist vel að honum, annars hefði ég
ekki farið með honum og mér datt ekki í hugað þettaværi að neinu
leyti rangt. Þegar eitthvað var að borga, borg^ði ég vanalega fyr-
ir mig sjálf, þó kom það fyrir að hann gerði það.
Einn góðan veðurdag fer hann að ympra á því að fólk sé farið
að orða okkur saman. Ég gaf því engan gaum — vissi ekki hvað
það var, enda var ég þá langt fyrir innan tvítugt. En upp frá því
breyttist hann gjörsamlega. Hann fór að verða þögulli og þögulli,
þótti mér það bæði skrítið og sérlega leiðinlegt. Ég reyndi hvað
eftir annað að brjóta upp á ýmsum málefnum er við höfðum áður
rœtt og ég vissi að hann var hrifinn af, en allt kom fyrir ekkert.