Helgarpósturinn - 11.04.1979, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 11.04.1979, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 11. apríl 1979 helgarpásturinn.. 30. mars slöastliöinn voru liöin þrjátiu ár frá stofnun Atlantshafsbandalagsins. Varöberg, félagsskapur ungra áhugamanna um vestræna samvinnu hélt hátiðafund af þvi tilefni. A aðal- fundi Varöbergs fyrir skömmu var Alfreö Þorsteinsson kjörinn formaöur samtakanna. Alfreö starfar einnig sem forstjóri Sölu varnarliöseigna. Einnigsat hann hér á árum áöur I borgarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn, en hætti siöan allsnögglega virkri pólitiskri þátttöku. Um þetta fjallar yfirheyrsla Helgarpóstsins I dag. Og þaö er Alfreð Þorsteinsson sem er yfir- heyröur. Hver eru tengsl Varöbergs viö NATO? „Varðberg er félag ungra áhugamanna um vestræna samvinnu og tilgangur félagsins er meðal annars sá að kynna markmið og starf Atlantshafs- bandalagsins hér á íslandi. Hvaöan fáiö þiö þessar upplýsingar sem þiö siöan dreifið hér heima? „Við fáum að sjálfsögðu upplýsingar frá Atlantshafs- bandalaginu, frá höfuðstöðvun- um, en við leggjum okkar sjálf- stæða mat á þessar upplýsing- ar.” Gleypiö þiö þessar upplýs- ingar hráar og túlkiö strax sem hinn eina stóra sannleik? „Eins og ég sagði áðan, þá leggjum viö okkar sjálfstæða mat á þessar upplýsingar, en hingað til hef ég að minnsta kosti ekki haft ástæðu til að vé- fengja það sem okkur hefur borist frá NATO.” Hvernig er Varðberg fjármagnaö? „Félagið hefur sinn eigin fjárhag og aflar fjár með sama hætti og önnur áhugamanna- félög”. Og þið fáiö engan fjárhagsí iegan stuöning frá NATO? I „Ja, eini stuðningurinn sem við fáum þaöan er i gegnum upplýsingaskrifstofu Atlants- hafsbandalagsins á islandi, sem er undir stjórn Magnúsar Þórðarsonar. Sú aðstoð er ein- ungis fólgin I þvl að skrifstofan aðstoðar okkur i sambandi við t.d. undirbúning funda og þessháttar.” Má þá kannski segja að Magnúsc sé> óbeint framkv- æmdastjóri Varöbergs? „Já, þaö má segja það.” Hvert er starfsvið Magnúsar annaö en aö vera ykkur til aöstoöar? „Hann er á launum hjá Atlantshafsbandalaginu og starf hans er fyrst og fremst fólgið i þvi að kynna almenningi hér á tslandi störf bandalags- ins.” Ganga þessar uppiýsingar i báöar áttir. Miölar hann upplýs- ingum frá tslandi til höfuö- stööva NATO? „Já.” Hvers konar upplýsingar eru þaö? ,,'Það er kannski ekki gott aö svara þvi i fljótu bragöi, þaö væri miklu nær aö spyrja hann sjálfan.” Þiö Varðbergsmenn miöliö ekki upplýsingum héöan til höfuöstöövanna? „Nei, það gerum við ekki.” Er þaö rétt aö Magnús Þórðarson greiöi ekki skatt af launum sinum hjá Nato? „Það er rétt eftir þvi sem ég best veit.” A hverju er það grundvallað? „Ég verð að visa þessu beint til Magnúsar. Þaö er eðlilegra að hann svari þessari spurningu.” Hvaö fara Varðbergsmenn i margar boðsferöir erlendis á vegum NATO? „Það er farin ein ferð á ári á vegum Varðbergs. Fara þar þrir menn frá hverjum lýðræðisflokkanna, þannig að i allt fara 9 manns. Það er fariö til Brussel, þar sem aöal- stöðvarnar eru og einnig komið við i ósló.” Hver ér tilgangur þessa feröalaga? „Þetta eru kynnisferðir. Þarna er láhugamönnum um vestræna samvinnu gefin kostur á að kynnast betur starfi banda- lagsins.” Halda NATO og Bandarikja- menn úti CIA agentum á tslandi? „Ég hef aldrei orðið var við neina agenta, hvorki frá KGB eða CIA, en hins vegar þykir mér ekkert óliklegt að sendiráö- in her afli sér upplýsinga, þá bæði bandariska sendiráðiö og það sovéska.” Eruö þiö Varöbergsmenn hlekkur. I þeirri upplýsinga- miölun? „Það er af og frá.” Er Varöberg vettvangur pólitiskra pabbadrengja? „Ég hef ekki orðið var við það. Að minnsta kosti er ég ekki pabbadrengur af þeirri tegund- inni.” Eru félagar I Varöbergi yfir- leitt úr efri stéttum þjóöféiags- ins, þeir sem meira mega sin. Yfirstéttarfélagsskapur? „Það er upp og ofan. Þarna eru menn úr öllum stéttum. Baratil fróðleiks get ég sagt þér það að nú á skömmum tima hafa hundrað nýir félagar geng- ið I Varðberg og það er fólk úr öllum stéttum og þjóðfélags- hópum.” Nú virðist stjórn Varöbergs þánnig saman sett, aö þar viröast sitja menn sem hærri hafa launin, en gengur og gerist hjá t.d. verkamönnum. „Ég hef nú ekki skoðað nákvæmlega hvaða laun stjórnarmenn i Varðberg hafa, svo ekki get ég svarað þvi.” Er Sala varnarliðseigna skransala? „Ef menn telja t.d. nýlega ameriska bfla, árgerð*78 eða ’79 skran, þá er hún skransala. En þarna er jú selt allt milli himins og jarðar og sumt af þvi má kannski teljast skran, en ég held þó að megnið af þeim varning sem Sala varnarliðseigna selur sé góður varningur, sem ástæðulaust sé að kalla skran.” Hvaö veltiö þiö miklu árlega? „Veltan á siðasta ári var eitt- hvað um fjögur hundruð milljónir.” Fallið þiö undir rikisbókhald? „Já, já og það má gjarnan geta þess að það fer fram ströng endurskoðun á Sölu varnarliös- eigna. Og það hefur alltaf veriö gert.” Meö hvaöa hætti eru afborgunarskilmálar á vörum sem seldar eru? „Sala varnarliðseigna setur sér ákveðnar meginreglur i þvi sambandi. T.d. eru skilmálar yfirleitt þannig á bilakaupum aö helmingur er greiddur út, en hinn helmingurinn greiddur meö fjögurra mánaöa vixli.” Þú talar um meginreglur. Eru þess dæmi aö ákveðnir aöilar eöa gæöingar fái mun betri lánakjör? „Það getur komið fyrir, að forsendur manna breytist eftir að menn hafi oröið fyrir óvænt- um áföllum og þurfi lengri greiðslufrest. En slikt tíðkast jú alls staðar þar sem lána- viðskipti fara fram. Þetta þekkja til dæmis allir banka- stjórar. Hins vegar hef ég ekki orðið var viö það að gæðingar ýmiskonar, eins og þú nefnir það, séu á einhverjum slíkum sérsamningum.” Hvert rennur ágóöi Sölu varnarliöseigna? „Hún er rikisfyrirtæki og all- ur ágóði rennur þvi i rlkissjóð. Það gætir oft talsverðs mis- skilnings hvað þetta atriði varð- ar. Það er eins og menn viti almennt ekki að þetta er rikis- fyrirtæki. 1 stuttu máli þá er sala varnarliðseigna nokkurs konar tollskrifstofa gagnvart Keflavikurflugvelli fyrir rikið. Kefla vikurflug völlur er tollfrjálst svæði fyrir Banda- rikjamenn, sem þar eru og þá verktaka sem starfa fyrir varnarliðið. Fari varningur út af þessu svæði þá er það hlut- verk Sölu varnarliðseigna að tollafgreiða þessar vörur.*’ Nú standa ýmsir I þeirri trú að þarna fari fram fjármála- spilling og brask ýmiskonar. Hvers vegna eru þessar hug- myndir á lofti? „Auðvitað hefur maður heyrt þessar raddir, en ég verð þó að segja það, að þessi tvö ár, sem ég hef verið þarna, hef ég ekki heyrt nokkurn mann minnast á sllkt. Það er kannski erfitt fyrir mig að svara þvi hvers vegna menn hafa þessar hugmyndir, en ég hef tekið þá stefnu siöan ég tók þarna við aö hafa þetta sem opnast og vera ekki með neitt pukur með eitt eða neitt þarna. Og þarna geta allir kom- ið og verslað og spurt eins og þeir vilja.” Er Alfreð Þorsteinsson aö þakka fyrir sig og sina stööu hjá Sölu varnarliöseigna þegar hann tekur virkan þátt i starfi Varöbergs og berst fyrir veru islands I NATO og dvöl banda- riska hersins á Keflavikurflug- velli. Er hann aö vernda sina hagsmuni innan Sölu varnar- liðseigna? „Það er nú alveg fráleitt að spyrja um slikt. Starfsemi Varðbergs og Sala varnarliös- eigna eru algjörlega óskyld mál. Ég lit svo á að dvöl varnar- liðsins hér á landi sé ill nauðsyn. En sé nauðsyn. Og á meðan varnarliðið er hér, þá tel ég langeðlilegast að islenska rikið sjálft hafi umsjón með öllum kaupum og sölum i sambandi við varnarliðið.” Verður Alfreö Þorsteinsson ekki atvinnulaus ef herinn hyrfi úr landi? „Ég kviði engu um mina at- vinnu og fegnastur yrði ég ef sú stund rynni upp, að þær forsendur yrðu fyrir hendi, að varnarliðið gæti farið úr landi. En þær forsendur eru ekki fyrir hendi i dag, þvi miður. Og það hvort að ég hafi áhyggjur af minni framtlð er af og frá. Mér bjóðast mörg atvinnutilboð og ég er engan veginn viss um, að ég verði neinn eilifðarkall hjá Sölu varnarliðseigna, hvort sem herinn verður hér áfram eða ekki.” Er st jórn m álam aöurinn Alfreö Þorsteinsson úr sögunni? „Nei, við skulum bara segja að stjórnmálamaðurinn Alfreð Þorsteinsson sé i pólitisku frii.” Ertu framsóknarmaður enn þann dag i dag? „Að sjálfsögðu. Ég hef aldrei veriö harðari framsóknar- maður.” Ertu virkur innan flokksins? „Mjög virkur.” Nú fórstu allsnögglega i þetta pólitiska fri og aö undangengn- um talsveröum átökum. Var gerð aö þér pólitlsk aöför á sln- um tíma? „Já, ég tel að það hafi verið gert. En það breytir þvi ekki að ég hafði setið i borgarstjórn I tvö kjörtimabil og ég hafði ekki hugsað mér að starfa lengur á þeim vettvangi. En I og með má jú scgja það að að mér hafi verið gerð pólitisk aðför.” Þegar þessu pólitlska orlofi Alfreðs Þorsteinssonar lýkur, hvert veröur stefna tekin þá? „Þátttaka i stjórnmálum er ekki endilega bundin við það að komast á þing eða i borgar- stjórn,þaö eru mörg önnur verk- emi sem lúta að stjórnmálum. En á þessari stundu vil ég ekkert tjá mig um þaö hvert hugurinn stefnir. En hitt er ann- að mál, að ég ætla að vinna Framsóknarflokknum allt það besta sem ég get.” eftir Guðmund Árna Stefánsson NAFN: Alfreð Þorsteinsson. FÆDDUR: 15. 2. 1944. ATVINNA: Forstjóri. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Guðnýju Kristjánsdóttur og eiga þau tvær telpur. HEIMILI: Vesturbergi 22, Rvik. ÁHUGAMÁL: íþróttir, féiagsmál, silungs- og laxveiði. STJÓRNMÁLAMAÐURINN ALFREÐ ÞORSTEINSSON BARA I POLITISKU FRII

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.