Helgarpósturinn - 11.04.1979, Blaðsíða 22
22
—he/garpósturinrL.
Fyrir skömmu kom á markaöinn alisérstæö hijómplata sem heitir i GÓÐU LAGI og tileinkuö er stemmningu 6. áratugsins. Þeir sem skrifaöir eru fyrir þessari plötu kalla
sig H.L.H-flokkinn (Halli, Laddi og Helgi), en þeimtil aöstoöar viö tónlistarflutninginn eru hljómsveitin Brimkló, Magnús Kjartansson sem leikur á R.M.I. tölvu, söngkonan
Ragnhildur Gislasóttir og blásararnir Gunnar Ormslev, Stefán Stefánsson og Viöar Alfreösson. Stjórn upptökunnar, semfór fram f Hljóörita i Hafnarfiröi, og útsetningar, annaöist
Björgvin Helgi Halldórsson. Vélstjóri var Jónas R. Jónsson. Útgefandi er Hljómplötuútgáfan h.f.
Látum feitina frussast um hárið
einsog við gerðum hér um árið
— spjallað við riddara götunnar: Haila, Ladda og Helga
Brilljantin, greiða
og sjónvarpstæki
A dögunum átti Helgarpóstur-
inn stefnumót við H.L.H.-fíokkinn
i nýlegu húsi uppvið Vatnsenda.
Þegar við mættum á staðinn sátu
þessir riddarar götunnar i ledd-
urunum fyrir framan sjónvarps-
tæki og biðu klistraöir eftir að sjá
auglýsingu um sjálfa sig. Allir
skinandi greiddir i piku að aftan
og kótilettu að framan, nema...
Laddi: Hva, er blaðasnápurinn
kominn... hvar er brilljantínið
Halli... greiðuna Helgi...
Helgi: Uss, nú kemur auglýsing-
in! Nei, nei, gat skeð enn eitt
imbalánið, þetta er nú ekki hægt.
En biddu við...
Laddi birtist á skerminum og
andrúmsloft 6. áratugsins leikur
um stofuna.
Laddi: Nei, tókuði eftir þessu
gæjar. Hljóöið passar ekki við
myndina.
Halli: Nei, það passar ekki við.
Þetta er ekki i góðu lagi...
Leikstjóri i laxveiði.
Drjúg stund liður við umræður
flokksins um auglýsinguna: „Við
viljum hafa allt pottþétt” — áður
en Helgarpósturinnkemstaðmeð
fyrstu spurninguna:
— Eruð þið að stæla Gris?
Halli: Gris! Hvað er það, —eitt-
hvað oná brauð?
Helgi: Nei, hugmyndinni að Gris
var stolið frá okkur. Leikstjórinn
var hérna i laxveiði á stnum tíma
og skrapp á dansleik með
Brimkló og Halla og Ladda og sá
þar atriði sem við köllum Seðil-
inn.
Laddi: Og hann kom að máli við
okkur og vildi að við gerðum með
honum þessa kvikmynd, sem
siðar varð Gris. En vegna ósam-
komulags, — Stigwood vildi hafa
myndina i lit, en við i svart/hvitu
— varð ekki af þessu.
Helgi: Svo gátum við heldur ekki
allir veriðDanny — þótt til greina
hefði komið að við létum hann
hver á mismunandi æviskeiði, en
það hefði bara ekki verið nógu
sniðugt.
H.L.H. og Superman
Helgi: Annars er H.L.H-flokkur-
inn búinn að gera sina eigin kvik-
mynd, niu mínútna langa, sem
sýnd verður sem aukamynd i
kvikmyndahúsum landsins m.a.
með stórmyndinni Superman i
Háskólabiói um páskana.
Halli: Við nenntum nú ekki að
taka hana i Hollywood, heldur
settum upp okkar eigið kvik-
myndaver i sýningarhöll uppá
Bíldshöföa með aðstoð Jóns Þórs
Hannessonar ogSnorra Þórisson-
ar myndgerðarmanna. Fengum
lánaða góðabilafrá 1955 og ’56 og
svoleiðis. Það var i góðu lagi.
Laddi: En þetta er náttúrlega allt
gert vegna þess að við vorum að
taka upp plötu. Góöa plötu
meira að segja.
Helgi: Já, þetta er stuðplata.
Halli: Á henni kynnumst við lika
mörgu skemmtilegu fólki s.s.
Munda mjaðmahnykk, Begga
bleyðu og Blaðurskjóðunum og
Hjörtur hjartabrestur fer burt i
lagi sem heitir Kveðjan. Einnig
kemur Minkurinn svokallaði, sem
verið hefur um langt skeið skifu-
þeytir á sjóræningjastöð i Faxa-
flóanum, nú loksins fram á plötu.
Helgi: Það er nú stutt siðan plat-
an kom út, en henni hefur verið
ótrúlega vel tekið. T.d. höfum við
frétt afstofnun mótorhjólaklúbbs
sem kallast Riddarar götunnar
eftir einu laginu. Og óskum við
þeim alls góðs.
Skemmtun ársins
— Mun H .L.H .-flokkurinn
fylgja plötunni eftir meöopinberu
spilverki?
Helgi: Við munum fara
erum að skipuleggja þetta allt
þessa dagana og stefiium að þvi
aðþetta verði skemmtanir ársins
ogallir eiga að mæta i góðu formi
með klistur i hári og greiðu i
hönd.
Halli:Hljómsveitin Brimkló mun
leika undir hjá okkur af alkunnri
snflld og sýna á sér alveg nýja
hlið.
Laddi: Já, og eftir þessa hljóm-
leika i Laugardalshöllinni mun-
um við klappa saman framhjól-
unum, skrifa BLESS á malbikið
og þeysa inni land. Það verður i
góðu lagi.
Sjónvarpsauglýsingar
— Nú hefúr mikiö verið skrif-
aö i blööin um að þiö og það fyrir-
tæki sem að baki ykkar stendur
noti skemmtiþætti sjónvarpsins
til auglýsingar. Hvað segiö þið
um það?
Halli: Það eina sem við getum
náttúrlega sagt, er að sjónvarpið
hefur samband við okkur, því
þannig er einmitt málunum hátt-
að.
IIelgi:Þaðmá gjarnan koma þvi
að hér, að sjónvarpið hefur gert
könnun á þvi hvaða aðilar eigi
mest af skemmtiefni þvi sem það
hefur sýnt og þar var útkoman
talsvert önnur en margir bréfrit-
arar vilja meina.
Laddi: En við erum annars mjög
ánægðir með þessi skrif á
lesendasiðum dagblaðanna, þvi
betri auglýsingu er i raun ekki
hægt að hugsa sér. Og þar hefur
hr. Nafnnúmer staðið sig einna
best má ég segja.
Halli: Já, við vildum gjarnan
hitta þann mannog þakka honum
fyrir allt sem hann hefur gert
fyrir okkur. Þetta er örugglega
sniðugur náungi.
Helgi:Okkur hefur jafnvel dottið
i hug að reyna að hafa uppá hon-
um og bjóða honum að gerast
áróðursmeistari okkar.
Að lokum
Laddi: Hvernig er það blaða-
snápur, ætlarðu ekki að biðja
okkur um að segja eitthvað að
lokum?
— Viðjiðisegja eitthvaö að lok-
um?
Laddi: Já,viðvonum að fólk hafi
eins gaman af þessu uppátæki
okkar og okkur þykir aðgera það.
Helgi: Og hvetjum alla sem
greiðu geta valdið til að koma á
böllin okkar i sumar.
Halli: Það verður 1 GÖÐU
LAGI...
Viðtal: Páll Pálsson
HP-mynd: Friöþjófur.