Helgarpósturinn - 27.04.1979, Side 15

Helgarpósturinn - 27.04.1979, Side 15
Gamla góða Naustið veröur i nóvember næstkomandi 25 ára. Það voru ýmsir vantrúaðir á þetta fyrirtæki, þegar nokkrir fé- lagar, sumir hverjir i háskóla eða aðskriða úrhonum, tóku sig sam- an og gerðu upp ein elstu hús bæjarins, gamla timburhjalla að margra áliti og breyttu i fyrsta flokks veitingahús. En Naustið sannaði tilverurétt sinn eftir- minnilega og er löngu orðinr. nauðsynlegur þáttur i borgarlif inu auk þess sem hann hefur verulegt aðdráttarafl fyrir bless- aða ferðamennina. Afmælisárið er á margan hátt timamótaár i sögu fyrirtækisins. Um áramótin skipti Naustið að mestu leyti um eigendur. Þeir sem við tóku voru svo sem engir nýgræðingar i veitingamennsku, Geir Z'óega yngri reyndar einn af upphaflegum stofnendum staðar- ins og framkvæmdastjóri siðustu árin en hinir nánustu aðstoðar- menn hans, Guðni Jónsson skrif- stofustjóri, og Ib Wessman yfir- matreiðslumeistari. Þeir þremenningarnir létu þaö verða sitt fyrsta verk að stokka upp matseðil hússins. „Hann hef- ur þegar gert mikla lukku,” sagði Guðni Jónsson í viðtali við Helg- arpóstinn. ,,A þessum seðli er boðið upp á nýja og fjölbreytta rétti, þar á meðal fleiri logandi rétti sem við köllum og hafa mælst geysilega vel fyrir." Nýi matseðillinn hvarf þó um tima i skuggann af þorramatnum vinsæla, sem Naustið hefur e.t.v. átt mestan þátt i að endurvekja og skipa fastan sess i islensku mataræði yfir svörtustu skamm- degisdagana. Fljótlega eftir að þvi timabili lauk i rekstri húss- ins, brydduðu Naustmenn upp á annarri nýbreytni sem er lifandi humar og þeir flytja hingaö til lands beint frá Nova Scotia. Þykir þetta hið mesta tostæti. „Við höfum humarinn lifandi i búri fram i salnum, þar sem menn geta valið sér þann sem þeim þykir líklegastur til að bragðast best,” segir Guðni. „Þess eru lika dæmi að menn fylgi humrinum sem þeir völdu alveg fram i eldhús til að tryggja Heiðdis (t.v.) og Fanndis fagna sigri. HEIÐDÍS OG FANNDÍS KEPPTU SEM EIN DfS kókus og ananas var þaö sem Ib valdi fyrir okkur og uppskriftin er þannig: 8 kolaflök eru hreinsuð og þerruð, krydduð salti og pipar, velt upp úr hveiti og steikt á pönnu. < A sömu pönnu og fiskurinn hefur veriö steiktur á er einn smásaxaður laukur látinn krauma ásamt einum niöur- skornum piparávexti. 2-3 bollar af soönum hris- grjónum ásamt einum bolla af rækjum eru hituð vel á pönnunni. Hrisgrjónin eru sett á ofnfast fat, kolaflökin sett þar ofan á, ananasinn skorinn til helminga og raðað ofan á hvert fiskstykki en karrýsósa sett yfir svo að hylji fiskinn. Kókosmjöii er siðan stráö yfir. Rétturinn er bakaður i ofni eöa grilli, þar til kókosmjölið er ljósbrúnt. Þessi uppskrift er fyrir 3-4, - OG UNNU! Orslitin i ljósmyndafyrir- sætukeppninni á Sunnukvöldi á Hótel Sögu á sunnudagskvöldið urðu dulitið óvenjuleg. Sigur- vegararnir urðu nefnilega tveir en ekki einn eins og venja er. Þær heita Heiödis og Fanndis Steinsdætur eru 16 ára tviburar og „kepptu sem ein manneskja,” eins og Fanndís komst að orði. Systurnar eru i Karon og um hádegisbilið á sunnudaginn hringdiHanna Frimannsdóttir i þær. Þær slógu til, þótt þær hefðu aldrei gert neitt því Ukt áður og dómnefnd ljósmyndara og gestir á Sunnukvöldinu völdu þær ,,Ljósmyndafyrirsætu(r) Sunnu ’79.” Og sigurlaunin eru fri sólarlandaferð. Ahugamál systranna sem eru i 9. bekk Hólabrekkuskóla? „Sýningar, ferðalög, tungumál og heilbrigt lif!’ sagði Fanndis og var hress i bragði. Ib Wessmann og Guðni Jónsson fyrir framan hinn sivinsæla veitingastað Naustið að humarinn þeirra sé sá sem i pottinn fari.” Það er ef til vill ekki að undra þótt Naustið leggi töluvertá sig til að ná i humarinn góða, þvi að fyr- ir sjávarrétti sina er Naustið nafntogaðast. Svo verður lika enn um sinn eftir öllum sólarmerkj- um að dæma. „Við erum með i undirbúningi sérstakan matseðil með fiskrétt- um einvörðungu og höfum vandað mjög til hans, ekki sist með tilliti til sumarsins, þvi að það hefur alltaf verið okkar helsta vertið," segir Guðni. ,,Þá eru það útlend- ingar sem sækja okkur aðallega heim til aðborða og iðulega kem- ur fvrir að útlendingar segjast vera til okkar komnir fyrir á- bendingu einhverra vina ogkunn- ingja erlendis, sem hafi einmitt borðað hjá okkur og mælt með staðnum. Slikt gleður alltaf hjarta manns.” Það er þannig enginn bilbugur á Naustinu þrátt fvrir að fyrsti ald- arfjórðungurinn sé aö baki. Það má heldur ekki gleyma þvi að Naustið sinnir einnig þörfum dansglaðia matargesta, þvi að þar er spilaðfyrir dansi á laugar- dögum og sunnudögum og veröur æ algengara að matargestir sitji áfram eftir matinnogslái sér upp i dans. — BVS ....sja HLH flokkinn i VIDEO”í goöu lagi, Fá sér kaffi Penthúsinu Lattu sjá þi meö f-í; betri helminginn! mj i ' f a W|§§ | i] ■> i v: w 1 K|p 1 pr 'sSjt j m ~*g| —i ■ - —i HP-Kriðþjóöfur

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.