Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 27.04.1979, Qupperneq 20

Helgarpósturinn - 27.04.1979, Qupperneq 20
HP-mynd: Friðþjófur. 20 Föstudagur 27. apríl 1979 —he/garpústurinrL. BLAÐAÐ ISKÁLDSÖGUM —1 Ekki veit ég hvort bókaáriö 1978 verður heldur kallað ár ungu höfundanna eða ár hins nýja raunsæis, þegar frá liður. Hitt sýnist mér augljóst, þegar skoðaður er álitlegur fjöldi skáldsagna frá þessu ári, að þar ber mest á tvennu, annars veg- ar fremur ungum höfundum, og hins vegar þvi að þessir ungu höfundar skrifa flestallir hefð- bundnar skáldsögur sem auð- kenna mætti með yfirskriftinni „gagnrýnið raunsæi”. —Sé litið fáein ár til baka, sýnist hafa orðið einhverskonar stefnu- breyting. Við minnumst sjöunda áratugarins liklega einkum fyrir nýstárlegar tilraunir rit- höfunda eins og Guðbergs Bergssonar, Halldórs Laxness, Svövu Jakobsdóttur, Thors Vil- hjálmssonar og fleiri og fleiri, tilraunir með skáldsöguformið. En nú er eins og eitthvað hafi gerst sem aftur leiðir skáldsög- urnar inn á hefðbundin stig. Mér sýnist vera ómaksins vert að velta þessu ofurlitið fyrir sér, leita jafnvel hugsanlegra skýr- inga. I fyrsta lagi má minnast þess, að mikið var um það talað i sambandi við „tilraunaskáld- sögurnar” að með þeim væri ekki sennilegt að höfundar næðu til fjölmenns lesendahóps. Við lok sjöunda áratugarins hófst hávær umræða um félagsmál (námsmannaóeirðirnar ’68, kvennahreyfingar o.s.frv.). 1 þessari umræðu hefur (liklega einkum á vinstri væng) borið ailmikið á gagnrýni á hvers- konar „menntamannabók- menntir”, talað hefur verið um skáldsögur sem skrifaðar væru fyrir „bókmenntasnobbið” og þar fram eftir götunum. Sjálf- sagt mætti hugsa sér að ungir höfundar okkar væru nú að láta undan kröfunum um „skáldverk fyrir alþýðuna”, eitthvað sem allir gætu skilið og notið. Með öðru hugarfari mætti lika orða þetta svo að höfundarnir væru að daðra við lágkúrulegan les- endasmekk. I annan stað má svo velta fyrir sér, hvort ekki sé hugsan- legt að það samfélag sem mót- ast hefur hér á landi, beinlinis fæði af sér raunsæilegar bók- menntir. Það er t.d. skoðun sumra að raunsæið gamla á 19. öld hafi staðið i beinum tengsl- um við þær hræringar sem áttu sér stað þá, þegar evrópsk sam- félög stefndu óðfluga að þvi að verða einhverskonar stóriðju- samfélög. A sama hátt er haldið fram — og reyndar varla deilt um lengur — að hin mikla gróska sem hljóp i „félagslegar skáldsögur” á fjórða áratugn- um hafi staðið i sambandi við umrót kreppuáranna. öldungis eins má hugsa sér að sá veru- leiki sem við búum i, sé á ein- hvern hátt svo yfirþyrmandi, að höfundum þyki ekki önnur leið færari til að lýsa honum en leið hins gagnrýna raunsæis. Þessi hugmynd verður kannski sér- lega áleitin við lestur sögu eins og Vatn á myllu kölska eftir Ólaf Hauk Simonarson, ellegar þá Milljón prósent menn eftir nafna hans Gunnarsson, að ó- gleymdum bókum þeirra Asu Sólveigar, Guðlaugs Arasonar, Úlfars Þormóðssonar og jafnvel Péturs Gunnarssonar, þótt sagnaflokkur hans sýnist reynd- ar stefna fremur að þvi að verða „sálfræðileg þróunarsaga” en beinlinis úttekt á samfélaginu. Þriðja leiðin til skýringar á raunsæinu er illkvittnust, og rétt nefnd hér i framhjáhlaupi. Hún er einfaldlega sú, að unga rithöfunda okkar skorti allan þann frumleik sem þurfi til þess að fara annað en troðnar slóðir. Verður sú kenning ekki rædd nánar hér. Hvað sem öllum skýringum liður, stendur þó eftir sú stað- reynd, að mikil gróska var i skáldsagnagerð á siðasta ári. 1 næsta pistli verður vikið að fá- einum sögum, sem. sérstaka athygli' mina vöktu. Blómarósir Ölafs Hauks — Nýtt leikrit í uppsiglingu hjá Alþýðuleikhúsinu //Leikritiö fjallar um hóp af stelpum/ sem eru á sama vinnustað. Þaö snýst um einkamál þeirra og samskipti innbyrðis/ einnig um samskipti þeirra við vinnuveit- endur sína/' segir ólafur Haukur Símonarson rit- höfundur um nýtt leikrit sitt, sem Alþýðuleikhúsið er að æfa. Leikritið heitir Blómarósir, og koma alls 15 leikarar fram i sýningunni. Þá er einnig tónlist við verkið og er hún samin af Ólafi Hauki, Eggert Þorleifssyni og fleirum. Búningar eru eftir Valgerði Berg, Þorbjörg Höskuldsdóttir gerir leikmynd og leikstjóri er Þórhildur Þorleifs- dóttir. „Blómarósir er i eðli sinu gamanleikur. Þetta er mitt fyrsta virkilega sviðsverk, en áður hef ég skrifað barnaleikrit, fyrir sjónvarp, og siðan fór eitt i skól- ana á vegum leikhóps, sem starf- aði hér um árið.” — Hvernig er að starfa fyrir leikhús? „Það er mjög skemmtilegt. Ég hef nú löngum lyktað af leikhúsi og fylgst með þvi sem þar er að gerast, þannig að þetta er ekkert nýjabrum fyrir mér. Ég hef þó aídrei áður fylgst með vinnu á heilu leikriti. Það er mjög lær- dómsrikt”. — Hvenær skrifaðirðu leik- ritið? „Ég skrifaði frumdrög að því i Hollandi i fyrrasumar, en vann siðan við það i haust. Svo hef ég núna farið i gegnum það allt um leið og það er unnið.” — Ertu að vinna að nýrri skáldsögu? „Já ég er með skáldsögu ein- hvers staðar i takinu lika. Hún er laustengd Vatni á myllu kölska, en fjallar að mestu um annað fólk. Gunnar Hansson er aðeins rétt i baksýn,” segir Ólafur Haukur Simonarson að lokum. —GB LOFSVERT FRAMTAK Það var góö skemmtan aö ganga um sýningarsali Norræna hússins og skoða ljós- myndasýningu Samtaka frétta- ljósmyndara. Að nokkru ber sýningin það með sér, að hún er frumraun nýstofnaðra sam- taka, þvi stefnan er kannski svolitið reikul á pörtum. Þarna er bæði að finna „harðar” fréttamyndir frá liðnum árum svo og myndir margvislegar sem varla tilheyra fréttum en eru listilega vel gerðar. Auðvit- að eru þarna lika myndir sem litið erindi virðast eiga á sýn- ingu, sem þessa; þær eru þó ekki ýkja margar. Það rifjaðist sitthvað upp fyrir þeim sem unnið hafa við fréttaskrif I ein sextán ár við aö skoða þessa sýningu: Nóttin þegar Isaga brann, og viö vor- um að ganga frá Alþýðublaöinu fram undir morgun. Þóttumst hafa unnið býsna gott verk, er öllu var lokið og blaðiö farið i pressuna. Bilaöi þá ekki ótætis pressan og blaðið komst ekki út fyrr en seint á næsta degi. Þá voru menn spældir eins og það heitir núna. Náttúruhamfarir, eldgos, snjóflóö, slys. Það voru þó ekki þær myndir á sýning- unni sem snertu mig mest. Heldur mannlega hliðin. Skritinn svipur á karli eöa keri- ingu. Varaforseti Banda- rlkjanna að halda ræðu af hliö- stólpanum við stjórnarráöiö. Hver gleymir þvi sem sá? Eða Baldur Möller ráðuneytisstjóri umgirtur pappirshaugum á viröulegri skrifstofu sinni. Það var góð mynd. Annars mundi það æra óstööugan aö fara að tiltaka hér einstakar myndir, þvi eins og fyrr sagði er flest þarna með ágætum og sumt frá- bært. Þrir valinkunnir ritstjórar skrifa um myndir og mynda- notkun i sýningarskrá. Við lest- ur greinar Matthiasar Johannessen rann það upp fyrir mér, að nestor islenskra blaða- ljósmyndara OlafurK. Magnús- son, er þarna viðsfjarri góðu gamni. Hvað veldur? Það hefði sannarlega verið fróðlegt að sjá þarna eitthvað úr fór- um hans. Ólafur er sem alþjóð veit frábær mynda- smiöur og á áreiðanlega i handraðanum efni i margar slikar sýningar. Enda væri það annaðhvort, með mann sem verið hefur viöstaddur flesta stóratburði innlenda undan- farna áratugi. Vonandi sér úrval úr myndasafni Ólafs dagsins ljós á sýningu fyrr en siðar. Ólafur Ragnarsson ritstjóri Vísis rifjar m.a. upp málshátt sem okkar gamli yfirmaöur séra Emil sjónvarpsfréttastjóri vitnaði oft til: „Ein mynd segir meira en tiu þúsund orð”. Eins og margt sem eignað er Kinverjum er þetta auðvitaö af- ar spaklega mælt. En þessi ágæti málsháttur er alls ekki allur þar sem hann er séöur. Við megum ekki láta hann glepja okkur til þess að hafa oftrú á myndum. Það má nefnilega lika snúa þessum málshætti við, þvi vissulega getur ein mynd lika logið meiru en milljón orð megna, — og héfur gert. Það er afar auðvelt að ljúga með myndum, og fólk hefur auðvitað tilhneigingu til að trúa betur eigin augum en eyrum. Arni Bergmann vikur að þessu þar sem hann talar um að menn á sinum tima hafi stundað „pólitiskan myndagaldur”. Þessi myndagaldur hefur nú til skamms tima lifað góðu lifi á siðum Þjóöviljans, þótt vera megi að þar hafi orðiö breyting á með nýjum ritstjórum. Þar hefur þaö lengi verið siður, að birta sem aumlegastar og hali- ærislegastar myndir af pólitisk- um andstæðingum og er raunar enn. Bezt var til dæmis,; ef til var mynd aö pólitiskum and- stæðingi þar sem hann virtist annaðhvort vera dauðadrukk- inn eða þá aö pissa úti I móa. Slfkar myndir hafa ætlð veriö I hávegum haföar á siðum Þjóðviljans. Lágkúruleg blaða- mennska það. Það hversu auðvelt er að ljúga með myndum minnir á söguna, sem flestir blaðamenn sjálfsagt kunna um ljósmyndar- ann, sem sendur var til að taka mynd af pólitiskum fundi, og spuröi hvort ritstjórinn vildi hafa fátt eöa margt manna á fundinum. Það hafði ljósmynd- arinn auðvitað i hendi sér. Við skulum hinsvegar ekki gleyma þvi aö orðiö og myndin eru siöur en svo aðskild eöa sérgreindir þættir fjölmiðlunar. Þaö er samspil þessara tveggja þátta sem skiptir mestu, hvernig þeir bæta hvor annan upp og auka skilning á þvi sem um er fjallað, bæta við nýrri skynvidd. Gengi ljósmyndaranna á siðum blaðanna hefur verið með ýmsu móti. Aöur en sjónvarp varö almenningseign rikti öld myndablaðanna og fréttakvik- myndanna i bióunum. Hvoru- tveggja tilheyrir nú nánast liö- inni tið. Myndablöð eins og Saturday Evening Post, Look, Collier’s o.fl. hafa dáið drottni sinum. Hið stærsta og frægasta þeirra allra Life, dó, en er nú vakið til lifs að nýju. Sjónvarps- fyrirtækin hafa keypt mynda- söfn fréttamyndafyrirtækjanna og allar myndir birtast jafn- óðum I sjónvarpinu. En auðvit- að er það og verður staðreynd að myndir og fréttamyndir eiga áfram sinn sess i blööum. Sinn þátt i upplýsingamiöluninni enn um ókomna tið. Þaö er fengur að sýningu fréttaljósmy ndaranna i Norræna húsinu. Vonandi verður þar framhald á.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.