Helgarpósturinn - 25.05.1979, Page 18

Helgarpósturinn - 25.05.1979, Page 18
18 Föstudagur 25. maí 1979 helgarpásturinrL. SJÓNVARPSFRÉTTIR MEÐ ÖÐRUM HÆTTI Til voru þeir, sem þótti þaB ganga guðlasti næst á sinum tlma,er Sjónvarpiö hóf fréttaút- sendingar, að blandaö skyldi saman innlendum og erlendum fréttum. Úr útvarpinu voru menn vanir þvi að hafa þetta hólfað niöur. Annarsvegar inn- lendar og hinsvegar erlendar * fréttir, hvor í sinni skúffu, og þær erlendu oftast lesnar á und- an. Þessu breytti sjónvarpið. Þar var fréttunum raðaö eftir mikil- vægi, að minnsta kosti í fyrri- hluta fréttatimans, og skiptust á innlendar og erlendar fréttir. Nú þykir held ég flestum þetta fyrirkomulag næsta sjálfsagt. Sjónvarpsfréttir i þeirri mynd, sem við þekkjum þær eru raunar ekki ýkja gamalt fyrir- bæri. Þessi háttur á fram- setningu frétta er frá Banda- rikjunum kominn, eni Bretlandi var það ITV, auglýsingasjón- varpið, sern varð fyrst til að kynna fréttatima af þessu tagi. Raunar segir I ágætri bók um þetta efni eftir Anthony Davis (Television, Hereis The News), að sjónvarpsfréttir i núverandi mynd hafi fyrst verið sýndar i Bretlandi klukkan tiu að kvöldi 22. september 1955, en það kvöld hóf fréttastofa brézka auglýsingasjónvarpsins út- sendingar. Hið gamla og virðulega rikis- sjónvarp i Bretlandi BBC hafði að visu lengi verið með frétta- sendingar. Þær voru þunglama- legar, og fyrst i stað mátti aldrei sjást framan i frétta- þulinn, og lengi vel var frétta- timinn i' þvi fólginn að sýnd var ein samhangandi fréttakvik- mynd sem þulur las texta með svipað og f réttamyndirnar, sem voru sýndar i kvikmynda- húsum. Einhversstaðar hef ég raunar einnig lesið, að um ti'ma hafi sjónvarpsfréttir BBC veriö þannig að fyrst hafi þulurinn lesið i tiu minútur eða svo án allra mynda, en siðan veriö sýnd fréttakvikmynd. Seinna var svo farið að bregöa upp myndum af helztu frétta- mönnum, en þetta þóttu alla tið og þóttu ágengir spyrlar sem fluttu fólki fréttir með nýjum hætti. Fyrstuárin var munurinn á fréttaflutningi BBC og ITN verulegur en nú eru fréttatimar beggja keimlikir. Þaðmunhafa verið svo fyrstu árin, að verulegur timi fór I það hjá BBC aö grána frá orðum og athöfnum konungsf jölskyld- unnar. Tekin voru viðtöl við erlenda ráðamenn á Lundúna- Fjölmidlun eftir Eið Guðnason aðeins myndskreyttar útvarps- fréttir. Eins og i brezku út- varpsfréttunum var lögð glfur- leg áherzla á áreiðanleik. Engin frétt var birt nema hún væri staðfest af tveimur aðilum hið minnsta. Fréttatiminn þótti li'tt upplifgandi, enda var haft eftir einum af fréttamönnunum: „Það skaöar engan að vera íeiðinlegur”. Atján dögum áður en auglýsingasjónvarpið hóf fréttaþjónustu vargreint frá þvi hvernig framsetning fréttanna yröi. Þar með hafði BBC eignast keppinaut, og breytti nú til, tók upp breytt fyrirkomulag, aukna myndskreytingu og meiri blöndun fréttanna. Fréttamenn ITN voru hinsvegar frjálslegri, létu BBC virðurleikann lönd og leiö, og töluðu ekki með til- búnum og uppskrúfuðum há- stéttar framburöi, heldur bara venjulegt mál. Þeir fóru ekki troðnar slóðir i fréttamennsku flugvelli, er þeir áttu þar leiö um. Þau vorugjarnanþannig að mönnum var gefinn kostur á að seg ja það sem þeim bjó i brjósti, og siðan spurðir hvort þeir vildu segja eitthvað að lokum. Man nokkur eftir svipuðum viðtölum úr útvarpinu hér? Þessu breytti ITN i Bretlandi og þessu breytti sjónvarpið einnig hér að margra dómi. Ég held aö það sé ekkert of- sagt þótt fullyrt sé, að f upphafi hafi fréttatimi islenzka sjón- varpsins verið undir nokkrum áhrifum einmitt frá Bretlandi um bæði form og framsetningu ogvarþaðvel. Þeir sem einkum mótuðu fréttirnar I upphafi voru þeir Emil Björnsson, Magnús Bjarnfreðsson og Markús Orn Antonsson, frétta- stjóri og fréttamenn við upphaf sjónvarpsins. Þeirri stefnu sem þá var mörkuð hefur litið verið breytt siðan. Bætt tækni og aðstaða hefur auðvitað haft sitt að segja seinni árin, og nú er fólk orðið vant þvl að spurt sé alvöruspurninga, en svarandinn ekki látinn algjörlega einráöur um hvað hann segir. Á Norðurlöndunum er fram- setning fréttanna mjög með svipuðum hætti og hér, enda byggt á sömu fyrirmyndum. Mér hefur oft fundist sem kominn væri timi til að endur- skoða hlutverk sjónvarpsfrétt- anna. Sú endurskoðun ætti að taka mið af þvi að sjónvarpið er aðeins með einn daglegan fréttatima frá þvi sjö á morgn- ana og fram undir miðnætti. Þarna ætti að koma til viss verkaskipting. Eins og áður hefur verið vikið að hér, getur sjónvarp seint keppt við útvarp að þvi er hraða varðar. Útvarpið getur nær ævinlega orðið á undan með fréttirnar. Sjónvarpið gerir fréttunum hinsvegar skil meðöðrum hætti. Er ekki kominn timi til að sjónvarpið fari að hugsa meira um hina myndrænu hlið ’fréttanna, og að gera ákveðnum efnum skil með itarlegri hætti en gert hefur verið? Areiðan- legaeru allirþeir sem standa að fréttum sjónvarpsins sammála um að þetta sé gert. Gallinn er bara sá, að til þess þarf aukið starfelið, og þar stendur hnif- urinn i' kúnni. Starfsmönnum fréttastofunnar hefur ekki fjölgað að ég held sföan árið 1967. Það er spurning sem veru'eg ástæöa er til að velta fyrir sér, hvort rétt só til aö þessieini sjó- varpsfréttatimi, sé eins .konar annáll alls sem gerðist mark- vert i þjóðfélaginu þennan dag, eða hvort einbeita eigi sér að til- tölulega fáum atriðum og láta tækni og sérkosti sjónvarpsins, sem miðils njóta sin til hlitar. Þetta held ég að mætti ihuga nánar. F restuðu Bagley-myndinni Sjónvarpsmyndinni eftir sögu Desmond Bagleys, sem Ragn- heiði Steindórsdóttur haföi verið boðið hiutverk i, hefur nú verið frestaðum ótiltekinn tima, m.a. vegna þeirra deUna sem upp kom mUli breska leikarafélags- ins og BBC út af þvf að Ragn- heiði skyldi falið hlutverk I myndinni og Helgarpósturinn greindi frá á sinum tima. Munu BBC-menn hafa tekið þann kostinn að skrifa nýjan þriller i skyndi til að taka í sumar I stað Bagley-myndarinnar. DÝRGRIPUR - DYLAN í JAPAN Bob Dylan — at Budokan BobDylan er óumdeilanlega sá listamaður sem auk Bitlanna, hefur átt einna mestan þátt i aö skapa og móta þann lifsmáta sem einkennir ungt fólk i dag og þá ekkisisttónlistina sem það hlust- ar á. Textar hans eru ófáum póli- tisk guðspjöll, þeim er eiga að erfa þá ruslatunnu sem heimur- inn er I dag, enda hefur hann oft veriö nefndur Messias atómald- arinnar. Margir einstaklingar og hljómsveitir eiga lika lögum Dyl- ans frama sinn að þakka s.s. Byrds með Tambourine Man, Brian Auger og Julie Drixcoll með This Weel’s On Fire, Man- fred Mann meðMighty Quinn o.fl. Nú fyrir skömmu kom út meö meistaranum tvöföld hljómleika- plata hljóðrituð i Budokanhljóm- leikahöllinni i Tokyo, en Japan er nú orðinn einn stærsti markaður- inn fýrir rokktónlist. Þaö er skemmst frá þvi að segja, að at Dudokan, þessi nýja plata Dylans, er hinn mesti dýr- gripur. Hér flytur hann 22 af sinum þekktustu lögum t.d. Mr. Tambourine Man, Don’t Think Twice It’s Alright, Like A Rolling Stone, Blowin’ In The Wind, Just Like A Woman, All Along The Watchtower, Knockin’ On Heav- en’s Door og The Times The Are A-Changin’ svo einhver séu neihd. Og mynda nokkuð góðan þverskurö af ferli Dylans, aö svo miklu leyti sem það er hægt á tveim plötum. Upptakan ogallur frágangur er til mestu fyrir myndar, enda er tæknin komin á það stig að varla er lengur hægt að greina sundur hljómleikaplötur og þær sem Simi 16620. BLESSAÐ BARNALAN MIÐNÆTURSÝNING i AUSTURBÆJARBtÓI teknar eru upp i hljóðverum. At Budokan hlýtur þvi aö gleðja hina mörgu aödáendur Dylans og vil ég eindregiö hvetja þá sem nú eru að byrjaað pæla i rokktónlist að láta ekki þetta tækifæri fram hjá sér faratil að kynnast á einu bretti þessum mesta spámanni alþýðutónlistar fyrr og siðar. Steve Forbert — Alive On Arrival Steve Forbert er af mörgum sem til þekkja talinn arftaki Bob Dylans. Steve er gitar- og munn- hörpumaður sem syngur um hið hrjúfa lif á götum stórborganna, (Grand Central Station, March 18 1977 og Big City Cat), einmanna- leikann, (Tonight I Fell So Far Away From Home), og mögu- leika mannskepnunnar til að breyta heiminum ef viljinn er fyr- ir hendi, (It Isn’t Gonna Be That WayogYou CannotWin If You Do Not Play). Tónlistin er hrá, en ljúf og melódisk og rödd Forberts er einsog kokkteill af Bob Dylan, Rod Stewart og Van Morrison. Þetta er plata sem hrifur hlust- andann með frá upphafi og verð- ur þó ekki leiðigjörn þegar frammisækir einsogvill oftverða með plötur sem maður gripur strax. Sem sagt, mjög góð plata. Sutherland Brothers — When The Night Comes Down ER ÞETTA EKKI MITT LIF? 3. sýn. i kvöld uppselt Rauð kort gilda 4. sýn. laugardag uppselt Blá kort gilda 5. sýn. miövikudag kl. 20.30 Gul kort gilda STELDU BARA MILJARÐI föstudag kl. 20.30 sunnudag kl. 20.30 fáar sýningar eftir laugardag kl. 23:30 Siðasta sinn. Miöasala í Austurbæjarbfói kl. 16 — 21. Slmi 11384. Sutherlandsbræðurnir Iain og Gavin hafa nýlega sent frá sér plötu sem heitir When The Night Comes Down. Þeir bræður slógu fyrst almennilega i gegn árið 1976 með laginu Arms Of Mary. En gátu ekki fylgt þvi eftir og hafa siðan smátt og smátt verið að falla I gleymsku. Einnig urðu vandræði með undirleikara til að gera bræðrunum enn erfiðara fyrir. Tónlist Sutherland Brothers er mjög óli"k þvi sem gerist i heima- landi þeirra, Bretlandi, i dag. Þeir hafa alla tið hallast meir að hinu svokallaða mjúka rokki (soft rock) Amrikunnar, þvi rokki sem Jackson Browne, Eagles, Poco, Byrds o.fl. leika. Hvort þessi nýja plata þeirra bræöra eigi eftir að færa þeim aftur frægðina, er ekki gott að segja, — þaö er önnur tónlist sem gengur i' dag, en þegar Arms of Mary brunaði upp vinsældalista heimsbyggðarinnar. Hinsvegar þykir mér When The Night Comes Down jáfnbesta plata Sutherland Brothers og á henni má finna mörg lög sem standa Arms Of Mary ekkiað baki t.d. First Love, Natural Thing, I’m Going Home og titillagið. Bram Tchaikovsky — Strange Man, Changed Man í fyrra var Motors ein vinsæl- asta hljómsveitin I riki Betu engladrottningar, fyrst og fremst vegna lagsins Airport. En þoldi ekki velgengnina og sprakk. Söngvarinn og gitar/bassa- leikarinn Bram Tchaikovsky hef- ur nú stofnað hljómsveit sem heit ir i hausinn á honum, og skipa hana, auk Tchaikovskys, Micky Broadbent — söngur, gitar, bassi, hljómborð og Keith Boyce — trommur. Bram Tchaikovsky flytur þá tónlist sem hvað vinsælust er á Bretlandseyjum og raunar viöar, um þessarmundir þ.e. ný-bylgju- rokk, eða ætti maður kannski frekar að segja veggfóðrar þöng- ulhausarokk. Og er með betri hljómsveitum i þeim flokki, — minnir um margt á Rumour. Og þessa dagana er eitt laganna á þessari fyrstu breiðskifu Tchai- kocskýs, lagiðGirlOfMy Dreams mjög vinsælt meðal tjalla.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.