Helgarpósturinn - 21.09.1979, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 21.09.1979, Blaðsíða 7
—helgarpásturinn. Föstudagur 21. september 1979 Bob Starr: „Þaö var ég sem kom þessu af stab”. AÐ SELJA FÓLK Þeir sem oft koma á Hótei Esju kannast efiaust viö þéttholda Bandaríkjamann, sem gjarnan er á stjái viö afgreiðslu hótelsins. Utlit og klæöaburður hans vekja athygli islendinga, sem ekki eru vanir sama frjáls- ræði í klæðaburði og þeir í Ameríkunni.Hanner yf irleitt með sólgleraugu, og þegar Helgarpósturinn hitti hann á afgreiðslu hótélsins var hann i köflóttum buxum og skyrtu bjartri yfirlitum. Hann á líka skringilegan hatt og síðan frakka sem hann bregður sér i þegar hann fer út. Maöurinn heitir Bob Starr, og kemur frá Houston i Bandarikj- unum. Astæöan fyrir veru hans hér er ekki siöur óvenjuleg fyrir Islendinga en maöurinn sjálfur: Hann er sölumaöur, sem selur fólk. Nánar tiltekiö körfubolta- menn. Hann á heiöurinn af þvi aö hér á landi leika erlendir, banda-1 riskir, körfuknattleikskappar. Kannski heföu þeir komiö hing- aö þótt Bob Starr kæmi hvergi nærri, en þaö var þó hann sem hringdi fyrir nokkrum árum I Gylfa Kristjánsson þáverandi. framkvæmdastjóra Körfuknatt- leikssambandsins, og spuröi hvort Island vantaöi ekki góöa kana. Þá haföi engum dottiö sá möguleiki i hug aö styrkja islensku liöin meö erlendum leikmönnum hvaö þá meira. En BobStarrhaföi menn á boöstól. - um, og eftir talsveröar mála- lengingar komu Jimmy Rogers til Armanns og Trukkurinn sæll- ar minningar til KR. Bob Starr er stoltur af þessu og segist geta litiö til baka ánægöur: „Eftir nokkur ár þegar islenskur körfuknattleikur e» oröinn ennþá vinsælli en hann er I dag, þegar liöin eru oröin öflug, og á- horfendur fylla hallirnar, og þegar auglýsendur og stórfyrir- tæki eru farin aö sjá hagnaö i aö styrkja liöin þá get ég sagt viö sjálfan mig: Þaö var ég, Bob Starr, sem fyrstur kom meö bandariska leikmenn til tslands, þaö var ég sem kom þessu af staö”. Bob Starr er hér 1 þriöja skipti nilna. Hann kom í örstutta heimsókn áriö 1975, um þaö bil þegar Jimmy Rogers og Trukk- urinn komu, og hann var hér I þrjá mánuöi i fyrra, og er búinn aö vera núna i nokkrar vikur. Allan tlmann hefur hann búiö á hóteli. „Jú, þaö er vissulega dýrt fyrir mig aö vera hérna, en ég vil gera allt til aö hjálpa islenskum körfuknattleiksliö- um. Mér finnst þaö einhvers- konar skylda min aö dvelja hér á landi og fylgjast náiö meö framvindu mála. Mér finnst ég aö einhverju leyti bera ábyrgö á þesu öllu saman. Þaö væri hug- leysingi sem hlypist á brott frá hálfkláruöu verki. Eg er ekki hugleysingi, og ég fer ekki héö- an fyrr en ég er ánægöur meö þetta allt”. Umboösskrifstofa Bob Starr hefur aösetur i New York, og þaöan eru viöskiptin rekin. Bob Starr sjálfur er hinsvegar stöö- ugt á þvælingi um heiminn. „Þaö er ekki nóg aö þekkja leikmennina sem maöur selur, þú veröur lika aö þekkja liöin og landiö sem þeir eru aö fara til. Þess vegna verö ég aö fara til landanna, horfa á liöin, kynna mér aöstæöur. Þaö er alltof algengt i þessum viöskipt- um aö leikmenn eru sendir til einhverra liöa, sem síöan eru bæöi óánægö meö þá, og leik- mennirnir óánægöir meö félög- in. Þaö er bara vegna þess aö ekki liggja fyrir nægar upplýs- ingar, og ég er hérna til að bæta úr því. Eftir veturinn i vetur þekki ég oröiö nógu vel til islensku liö- anna til aö geta sagt umhugs- unarlaust hvort leikmenn eiga heima f þeim hópi eöa ekki. Eg þekki vandamálin sem viö blasa”. Þegar Bob Starr er hinsvegar spuröur um umboösskrifstofu sina veröur fátt um svör: „Ég vil ekki segja neitt um hana annaö en aö þetta er alþjóðleg umboösskrifstofa sem annast um sölu og feröir bandariskra leikmanna til fjölmargra landa.” Þegar Bob Starr er spuröur af hverju hann vilji ekki segja frá umboösskrifstofunni sinni segir hann aö samkeppnis- aöilar hans „geri allt”. Meira fæst ekki um þaö. Hann segist hinsvegar hafa sett sér þaö takmark aö selja hundraö leikkmenn á ári, en þegar spurt er hvort þaö takist veröur lika fátt um svör. Hann segist aftur á móti hafa marga afbragös leikmenn á sinum snærum.og nefnir Stuart John- son, sem lék hér i fyrra meö Ar- manni sem dæmi. Sá var at- vinnumaður i Bandarikjunum I 9 ár áöur en hann kom hingaö, og nú er hann i Argentinu. Bob Starr hefur hinsvegar á- kveöiö aö veröa viö málaleitan Armanns um aö þjálfa meist- araflokk félagsins i ár. Þaö seg- ist hann gera sem persónulegan greiöa viö Guömund Sigurös- son, formann körfuknattleiks- deildar félagsins. „Ég hef hitt margt afbragösfóik hérna á Islandi og betra fólk en Helga Agústsson, hjá KR, og Guömund, hef ég hvergi hitt i veröldinni.” Meöan á blaðaleysinu stóö kom svo sjö feta maöur til KR á vegum Bob Starr, og annar til Armanns skömmu siöar. Hvaö Bob fær sjálfur i sinn hlut er ekki vitaö, en hann ætlar aö ansskóli igurðar akönarsonar Reykjavík — Kópavogur Innritun daglega kl. 10-12 og 1-7. BÖRN — UNGL. — FULLORÐNIR (pör eða einst.) Allir almennir samkvæmisdansar og fl. Kennt m.a. eftir „ALÞJÓÐADANS- KERFINU” einnig fyrir 'BRONS - SILFUR-GULL D.S.l. Ath. Kennarar I Reykjavik og Kópavogi Sigurður Hákonarson og Anna Maria Guðnadóttir. Innritun og upplýsingar i síma: 27613 DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS eftir Guðjón Arngrimsson myndir: Friðþjófur fyrir dýrtiöina*! vetur. Armann ætlar aö redda málunum. —GA minnsta kosti ekki aö dvelja á Hótelinu, sem hann segist þó kunna afskaplega vel við, þrátt SE). .... Landsþing mroskahjaip verður haldið laugardag og sunnudag 22. og 23. sept. n.k. að Hótel Loftleiðum (Kristalsal). Þingið hefst kl. 10 árdegis á laugardag. Framsöguerindi flytja: Dr. Peter Mittler prófessor við háskólann i Manchester: Þátttaka foreldra i kennslu og þjálfun þroskaheftra. Ingimar Sigurðsson deildarstjóri: Ný lög- gjöf um aðstoð við þroskahefta. Jón Sævar Alfonsson varaformaður Þroskahjálpar: Skipulagning á málefnum þroskaheftra. Þorsteinn Sigurðsson sérkennslufulltrúi og Maria Kjeld, sérkennari: Um málörv- un þroskeheftra barna. Aðalfundur Landssamtakanna Þroska- hjálpar hefst kl. 10 árdegis á sunnudag. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.