Helgarpósturinn - 23.11.1979, Side 2
2
Föstudagur 23. nóvember 1979-&IQdrpOStUrinrL-
Raf lostsaðferðin viðfækningu sinnisveikra vekur óhug
hjá flestum enda er þessi aðferð umdeild innan læknis-
fræðinnar. Margir munu vafalaust minnast kvik-
myndarinnar Gaukshreiðursins, sem sýnd var hér fyrir
fáeinum érum, og þar sem lýst var vist geðsjúklinga á
sjúkrahúsi og þeim aðferðum sem læknar beittu gagn-
vart sjúklingum. Eitt áhrifamesta atriði myndarinnar
var þegar sjúklingunum var gefið raflost, sem átti að
flýta fyrir bata þeirra en i myndinni voru afleiðing-
arnar þó sýndar aðrar: Sfendurteknar raflostsmeðferðir
gerðu sjúklingána sýnu sljórri og meðan á meðferð stóð
engdust þeir sundur og saman í krampaflogum.
Raflostsaðferðinni er beitt enn i
dag við lækningu sálsjúkra og
einnig hér á landi. Hún er ein af
mörgum aðferðum sem beitt er
við meðferð sjúklinga sem eiga
við sinnisveiki að striða, en þar
eru auðvitað lyfjagjafir ýmiss-
konar tiðastar auk raflostsað-
ferðarinnar fyrrnefndu og sál-
greiningar, sem þó hefur aldrei
náð þeirri fótfestu hér á landi og
vfða annars staðar, t.d. i Banda-
rikjunum þar sem hún er nánast
tiskufyrirbæri. En hér verður at-
hyglinni beint að raflostslækning-
um og rætt við lækna og að-
standendur sjúklinga, og kostir
og gallar þessarar aðferðar
dregnir fram.
Hrossa lækning eða
hávisinda leg?
Ýmsar sögur hafa spunnist
víða um heim. Þótti raflost
nánast vera allra meina bót og
var meðal annars notuð við
höfuðverk. Siðan hægði nokkuð á
notkun raflosts og viða er aðferð-
in litt eða ekki notuð. Hérlendis er
henni þó nokkuð beitt, eins og
komið verður að siðar.
60-70 volta spenna sett á
En hvernig skyldi þessi með-
ferð vera i raun? Jakob Jónasson
geðlæknir á Kleppsspitala lýsir
þvi. „Þessari raflostsaðferð er
beitt i alveg sérstökum
sjúkdómstilfellum, þ.e. þegar
sjúklingarnir eru mjög
þunglyndir, daufir og framtaks-
lausir. Eru settir pólar á gagn-
augu þeirra og spennan sett i 60-
70 volt i nokkrar sekúndur. Áður
en spennan er sett á eru
sjúklingar svæfðir og þeim gefin
krampastillandi lyf. Yfirleitt þarf
Hjúkrunarfræfiingur á geðdeild Borgarsjúkrahússins setur pólana að gagnaugum blaðamanns. Þannig
fer raflosts aðgerðin fram. t þessu tilviki var straumi þóekki hleypt á, en þegar sjúklingar eiga I hlut er
rafstuðið upp á
Lágspenna
lífshætta ?
vegna þessara raflosta. And-
stæðingar aðferðarinnar hafa
kallað þetta hrossalækningu og
segja hana varhugaverða i meira
lagi. Ýmsir aðrir fræðimenn
segja hins vegar raflostsmeðferð-
ina hættulausa og oft árangurs-
rika, þótt ýmsar hliðarverkanir
geti fylgt.
Hér á Islandi er raflostum beitt
fyrstog fremst i tilfellum þar sem
sjúklingar þjást af þunglyndi. Er
aðferðin notuð á Kleppsspitalan-
um og geðdeild Borgarsjúkra-
hússins, þó mun minna á Klepps-
spítala.
Raflost, sem lækningaraðferð i
sjúkdómstilfellum geðveikra var
fyrst reynd af itölskum sál-
fræðingum árið 1937 og þá fyrst
og fremst sem tilraun til lækn-
ingar á geðklofa. Fljótlega náði
þessj aðferð talsverðri útbreiðslu
og mun hafa veriö allmikið notuð
r Raflostsaðferðin
í geðlækningum
er umdeild
Sumir telja hana
valda meira tjóni
en hún verður að
gagni
® Raflostsaðferðin
hefur verið all-
útbreidd hér
sem erlendis um
nokkurt skeið og
er enn beitt í
allríkum mæli
Helgarpósturinn
kannar kosti og
galla raflosts-
aðferðarinnar og
viðhorf manna til
hennar
að endurtaka meðferðina nokkr-
um sinnum á fáum dögum. Að-
ferðin dugir mjög misjafnlega á
sjúklinga. Sumir geta læknast al-
gjörlega af meðhöndluninni, en
aðrir ná sér aðeins upp i fáa
mánuði og fara þá i sama horf
aftur.”
Jakob Jónasson bætti þvi við,
að þessi . - aðferð væri mjög litið
notuðá Kleppsspitalanum og ekki
fyrren öll önnur ráð þrytu. Fyrst
væri lyfjagjöf reynd og allar
aðrar tiltækar aðferðir. Ef sú
meðferð dygði ekki og mat lækna
væri að raflostsmeðferðin gæti
dugað, þá væri slikt reynt. Ein-
staklingar sem gengjust undir
þessa meðferð á Kleppsspitala
væru þó ekki fleiri en um það bil
þrir á ári hverju.
A Borgarspitalanum varð fyrir
svörum Asgeir Karlsson geð-
iæknir. ,,Jú, þessi aðferð er notuð
hér á sjúkrahúsinu oghefur verið
það siöan sjúkrahúsið tók til
starfa árið 1969. Raflost er notað
á sjúklinga sem eru haldnir þung-
lyndi og lyf hafa ekki virkað á.
Þeir skipta tugum sjúklingarnir
sem raflostsmeðferðin er fram-
kvæmd á*
Talið er að lyfjámeðferð viö
þunglyndi beri ekki fullan árang-
ur i 20-30% tilfella.”
„Vafasöm aðferð"
Geir Viðar Vilhjálmsson sál-
fræöingur sagði við Helgarpóst-
inn, að hann teldi raflostslækn-
ingu mjög vafasama aðferð til
lækningar á geðrænum sjúkdóm-
um. „Þetta er algjör neyðarað-
ferö að minu mati”, sagði Geir.
„Raflostið er þaö mikið, að um er
að ræða gróft inngrip i starfsemi
heilans. Er ég dvaldist i London
fyrir nokkrum árum, var þar sér-
fræðingur sem notaði þessa að-
ferö. Hann tjáöi mér að hætta
væri á nokkrum aukaverkunum
samfara raflostinu, t.a.m.
minnisleysi. Yfirleitt væri
minnisleysið timabundið, en þó
svo að hann framkvæmdi ekki
raflost á sjilklingum sem ef til vill
siðar myndu vinna vitræn störf
ýmiskonar.”
Samkvæmt upplýsingum geð-
lækna, þá munu aukaverkanir
helstar vera þær eftir að raflosts-
meðferðinni er lokið, að sjúkling-
ur þjáist af höfuðverk fyrst á eftir
og einnig minnisleysi i mislangan
tima Asgeir Karlsson sagði að
minnisleysið væri undantekn-
ingarlaust timabundið, en nokkuð
Æ:a '-
Mynd úr kvikmyndinni „Gaukshreiörið” (One Flew Over the Cuckoo’s
Nest). Sjúklingur á geðsjúkrahúsinu gerist óstýrilátur, og afleiðingin
er sú aö hann er sendur i raflostsmeöferö tii aö hann sé meöfsrilegri.
Sjúklingar bföa raflostsmeöferöar.
hafa ekki haft nein bætandi áhrif
á sálarástand systur minnar. Mér
finnst þetta hrottaaðferðir og er á
móti.þeim. Afleiöingar með-
feröarinnar á systur minni hafa
kallað fram þessa afstöðu mína,”
sagði þessi kona.
Eins og áður hefur komið fram
var aðferðin mun meira notuð
fyrr á árum. I Bandarikjunum
fækkaöi einstaklingum sem i
þessa meöferð fóru um 38% á ár-
unum 1972-1977. Sama þróunin
hefur átt sér stað á Islandi. Þá
var aðferðinni beitt við ólikustu
sálarkvillum. Meira að segja not-
uð viö höfuðverk. Jakob Jónasson
geðlæknir segir um slika notkun
raflosts: „Það er forkastanlegt
aö nota raflost við höfuðverk”.
Þannig hefur afstaða til þessara
aðferða breyst á seinni árum.
Það vekur nokkra athygli að
raflostsmeðferðinni er beitt i mun
rikari mæli á Borgarsjúkrahús-
inu en á Kleppsspitalanum. Eru
deilur uppi um ágæti þessarar
Ölafur bætti þvi við að aðferðin
hefði ekki verið mikið notuð hér
siðastliðin 10-20 ár, sérstaklega
eftir að áhrifamikil geðlyf komu
til sögunnar. „Þessi raflostsað-
ferð hefur sinar takmarkanir og
ég held að henni sé ekki beitt fyrr
en fokið er I flest skjól, en hafa
ber I huga að þessi aðferð er
viðurkennd sem læknismeðferð á
allflestum sjúkrahúsum vestan-
og austanhafs”, sagöi landlæknir.
Helgarpósturinn hefur sann-
fregnaö að Jakob Jónsson sé eini
geðlæknirinn á Kleppsspitala sem
raflostsaðferðina noti.Hann var
spurður um ástæöur fyrir þvi.
„Ég get varla svarað þvi. Það
er aðeins eitt svona rafmagnstæki
til hér á sjúkrahúsinu og það er i
minum höndum. Þá kemur það
fyrir að ég beiti þessari með-
höndlun samkvæmt óskum frá
öðrum læknum hér. **
Ingólfur sveinsson geðlæknir á
Kleppsspitala mun ekki nota raf-
lostsmeðferð á sjúklingum sin-
„Það eru margar ástæður fyrir
þvi, að raflosti er beitt meira hér
á Borgarspitalanum en á Klepps-
spitala,” sagði Asgeir Karlsson
geðlæknir á Borgarspitala, „Ég
held að ekki sé um að ræða spurn-
inguna að vera með eöa á móti
þessari aðferð. öllu frekar mein-
ingarmunur hvort hin eða þessi
aðferðin henti á hinn eða þennan
sjúklinginn”.
Sú spurning vaknar, hvers
vegna hefur raflosti verið æ
minna beitt nú á siðari timum?
Hafa komið i ljós einhverjir van-
kantar aðferðarinnar eða nýjar
og haldbetri aðferöir verið upp-
fundnar?
„Ég held að það sé með raflosts-
aðferðina eins og tilraunirnar við
lækningu á berklum á sinum
tima. Þá var það eina sem unnt
var aö gera að reyna að vera
góður við berklasjúklingana og
gefa þeim aö borða, og sumir
þeirra læknuöust. Nýjum lyfjum
hefur skotiö upp á sjónarsviðið
sem reynst hafa áhrifarik við
meðhöndlun geðsjúklinga. Þau
hafa I mörgum tilfellum verið tal-
in standa framar raflostsmeö-
ferðinni. Þess vegna hefur raf-
loststilfellunum fækkað. Ég
reikna meö þvi að raflostsaöferö-
in sé á fallandafæti,” sagði Ölafur
Ólafsson landlæknir.
Allir aðrir viðmælendur
Helgarpóstsins tóku í sama
streng og sögðu nýleg lyf hafa
leyst raflostið af hólmi að miklu
leyti. Geir Viðar Vilhjálmsson
sálfræðingur taldi þó einnig, að
ástæðan gæti verið sú, að minnis-
tap vegna raflosts væri meira og
endanlegra en menn hefðu gert
sér grein fyrir i upphafi.
Lést hún af meöferöinni?
Ýmsar hrikalegar sögur hafa
verið sagðar af þessari læknisað-
einstaklingum, hve
lengi það varaði. Oftast væri það
aðeins i nokkrar klukkustundir og
allra mest i nokkra daga.
Helgarpósturinn hefur þó feng-
ið aðrar lýsingar af afleiðingum
raflosts. I samtali við konu
nokkra i nágrannabyggð Reykja-
víkur kom fram að systir hennar
— kona komin á efri ár — hafði
farið í rafiostsmeðferð við og við I
nokkur ár. Sagði þessi ónafn-
greinda kona, að systir sin hafi
alltaf eftir meðferðir þjáðst af
minnisleysi og slikt ástand varað
i nokkrar vikur.” Þessi raflost
læknisaðferðar? Helgarpósturinn
hafði samband við nokkra lækna
og bað um svör við þeirri spurn-
ingu.
„Hefur sínar takmarkan-
ir"
„Landlæknisembættið hefur
ekki gefið neina ákveðna linu
með eða á móti raflostsmeðferð-
inni. Einstökum læknum er leyfi-
legt að nota þær læknisaðferðir
sem þeim þykja heppilegastar i
hverju tilviki fyrir sig — svo
fremi sem þær eru ekki skaðlegar
heilsu sjúklinga”, sagði Ólafur
Ólafsson landlæknir.
um. „Ég er ekki alveg andvigur
þessari aðferð, en það hefur ekki
komið til þess hér á spitalanum
að ég hafi talið ráðlegt að beita
henni,” sagði Ingólfur. „Þessi að-
ferð getur i ýmsum tilfellum flýtt
fyrir og sparað fólki vanliðan.
Það er ljóst að langvarandi þung-
iyndi og sjúkleiki getur haft
varanleg áhrif á sálarástand við-
komandi sjúklings. Við slikar að-
stæður gæti verið rétt að beita
raflosti. Á hinn bóginn hef ég ekki
þannig sjúklinga og nota þvi ekki
aðferðina.”
„Ekki spurning með eða á
móti"