Helgarpósturinn - 23.11.1979, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 23.11.1979, Blaðsíða 4
NAFN: Kristján Thorlacius STARF: Formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja FÆDDUR: 17. nóvember 1917 HEIMILI: Bólstaðarhlið 17 Reykjavik HEIMILISHAGIR:Eiginkona Aðalheiður Thorlacius og eiga þau tvö börn og fimm barnabörn TRÚMÁL: í þjóðkirkjunni og þvi mótmæh endatrúar BIFREIÐ: Peugeot árg. 1977 ÁHUGAMÁL: Félagsstörf og fleira Á PÓLITÍSKRI EYÐIMERKURGÖNGU 1 öllum hamaganginum I flokkapólitikinni vilja gleymast önnur mikilvæg málefni. Þar má nefna, að samningar opinberra starfsmanna hafa veriö lausir frá áramótum og vinna BSRB- menn nú aö kröfugerð. Þvi má búast viö hatrömmum átökum á vinnumarkaönum strax i upphafi næsta árs. Eftir áralanga baráttu fengu félagsmenn BSRB ^kertan verkfallsrétt. Þaö geröist þó ekki þrautalaust. Þá hefur æviráöningargrundveili starfsmanna rikis og bæja veriö kippt burt og eru þeir nú ráönir á svipuðum forsendum og gengur og gerist á atvinnumarkaönum. Innan BSRB eru félagsmenn meö mjög misjafnlega há laun. Launastiginn nær yfir ekki færri en 32 þrep. - Þaö er Kristján Thorlacius, formaöur Bandalags starfsmanna rlkis og bæja sem er I Yfir- heyrslu Helgarpóstsins I dag. Nú varöst þú fyrir alvarlegu áfalli I vor þegar þú og þlnir menn I forystu BSRB voru kol- feildii I allsherjaratkvæöa- greiöslu innan félagsins, þegar deiltl var um 3% margumtöl- uöu. Var þetta ekki beint vantraust á þig sem formann? „Nei, allsekki. Þarna var £ar- iö aö réttum leikreglum í sam- tökunum. Félagarnir tóku ákvöröun, eins og gerist i þjóöaratkvæðagreiöslu. Ég lit ekki á niðurstööurnar sem vantraust. Nú lagöir þií og aörir forystumenn samtakanna mikla áherslu á aö ykkar tillaga yröi samþykkt. Þaö varö þó ekki. Getur þetta veriö nokkuð annaö en beint eöa óbeint vantraust? „Nei, þetta var hvorki beint eöa óbeint vantraust”. Og þúhefur ekki Ihugaö afsögn I þessu sambandi? „Þaö hvarflaöi aldrei aö mér.” Nú er mikiö talaö um aö draga saman seglin I rikis- búskapnum. Má ekki búast viö þrengri hag starfsmanna rlkis- ins I þvi framhaldi? „Ég óttast að þaö geti oröiö haröar árásir aö kjörum launa- manna — jafnt opinberra starfemanna sem annarra — ef framfylgt veröur yfirlýsingum sem sumir af stjórnmálaflokk- unum hafa gefiö. Og kjara- baráttan getur oröiö mjög hörö á næsta ári.” Þú óttast ekki fjöldauppsagn- ir innan rikisgeirans? „Okkar samtök hafa aldrei haft viö þaö aö athuga, aö framkvæmd væri hagræðing i ríkisrekstrinum. Viö setjum ekki fram kröfur um of fjölmennt starfsliö. Hins vegar er því ekki aö leyna, aö þaö getur veriö mjög alvarlegt fyrir starfsmennina og ekki siður þjóöfélagiö, ef fækkaö er óeöli- lega starfsmönnum i þjónustu- greinum.” En má ekki viöa fækka innan rlkisapparatsins? „Þaö tel ég aö sé óraunhæft. Þegar stjórnmálamenn tala um fækkun, þá held ég aö fólk hugsi aðallega um hiö svokallaða skrifstofubákn, en menn verða aö gera sér grein fyrir þvi aö i skrifstofubákninu starfar aöeins litill hluti starfsmanna rikis og sveitarfélaga. Lang- fjölmennasti hópurinn starfar við heilbr igöis- og kennslumál.” Hvaö þá meö skrifstofubákn- iö, sem þú ættir aö þekkja vel eftir störf þin I stjórnarráöinu. Má skera þar niöur? „Þaö er matsatriöi. Annars held ég aö starfsliö i stjórnar- | ráöinu sé I lágmarki. Ef viö | berum saman stofnanir sem | hafa tekiö viö verkefnum sem I stjórnarráðiö sinnti áöur, þá hefur starfsmannafjöldi marg- faldast viö slika tilfærslu verkefna. T.d. vinna I Seöla- bankanum tugir manna viö störf sem fáeinir starfsmenn fjármálaráöuneytisins unnu áður.” Þaö er sem sagt hvergi manni ofaukiö innan rikiskerfisins? „Þaö segi ég ekki. A hinn bóginnveröum viöað notast viö mun færri starfsmenn hlutfalls- lega en aörar þjóðir og mörg verkefni liöa fyrir þaö. Þaö er þó, ekki þar meö sagt aö ekki sé ofaukiö manni einhversstaöar. Hvaö i'etuö þiö . af hendi I staöinn fyrir verkfallsréttinn? „Ekki neitt. Viö vorum aö sækja rétt, sem aörir þjóöfélagsþegnar eru biínir aö hafa áratugum saman og lögfestur var meö vinnulöggjöf- inni 1938. Okkar samtök hafa barist fyrir þessum rétti frá stofnun BSRB. Viö höfum náö áföngum i samningsréttarmál- um 1962 og 1973 og siöan lögin um takmarkaöan verkfallsrétt 1976. Þetta voru áfangasigrar sem unnust eftir langa baráttu.” Er þaö ekki óhrekjanleg staöreynd aö f samninga- viöræöum er makkaö og versl- aö, látiö af hendi og fengiö I staöinn? „Stundum og stundum ekki. Það er eftir atvikum og yfirleitt vil ég ekki kalla þaö makk. Menn takast á I samninga- viöræöum um viss atriöi. Stundum náum viö fram okkar málum,stundum veröum viö aö gefa eftir. Þetta fer mikið eftir aöstæöum hverju sinni”. Nú eru bæöi há- og láglauna- menn innan vébanda BSRB. Hvernig getur ein og sama forystan barist fyrir hagsmun- um svo óllkra hópa? „Þaö er misskilningur aö viö höfum hálaunahópa innan okk- ar samtaka.” Það er engu aö sföur djiip launagjá miili þeirrasem hæst hafa launin og þeirra launa- lægstu? „Nei, þaö er ekki rétt. Launa- stigi BSRB er 32 launaflokkar og fyrir ofan 25. flokk eru aöeins 20 til 30 rikisstarfsmenn, og inn- an viö 100 bæjarstarfemenn. Þaö er þvi algjör miss kilningur aö þaö sé um tvo mjög ólika hópa aö ræöa. Flestir félags- menn okkar eru fyr.ir neöan 15. flokk. Hver er t.d. munurinn á þfn- um launum og þeim sem lægst hafa launin innan BSRB? Ég hef um það bil tvöföld laun miöað við þann lægsta sem kominn er meö 6 ára starfsald- ur. Þetta er réttur samanburöur þvi ég er enginn byrjandi i starfi.” Er þetta eölilegur launamun- ur? „Þarna komum við inn á þá spurningu, hvort menn vilji hafa launamun? Vilt þú hafa launamun? ,,Ég tel aö þaö sé nauösynlegt eins og sakir standa. Ég fullyröi aö menn vilja ekki aö allir séu meö sömu laun. Menn vilja allir fáeitthvaöfyrir td?aö taka á sig .; ábyrgö. Og hver vill vinna ár eftir ár án þess aö fá umbun fyrir reynslu I starfi. Hins vegar vil ég ieggja á þaö áhershi aö lægstu launin eru of lág. Þess vegna viljum viö i BSRB hækka lægstu launin og gera þau lff- vænleg og jafna þannig kjörin. Finnst þér sanngjarn launa- munur aö þú sért meö tvöföld laun á viö launalægstu umbjóöendur þina? Ég biö um já eöa nei svar. „Nei,en ég var með þessi kjör þegar ég tók viö formennsku i BSRB. Ég veit aö enginn krefst þess af mér aö ég berjist fyrir þvi aö lækka min laun. Hins vegar á aö bæta kjör þeirra sem lægri eru — fyrir þvi höfum viö barist og náö nokkrum árangri”. Nú taliö þiö BSRB-menn gjarnan um launajöf nunar- stefnu. Er þetta nokkuö annaö en fint orð sem þiö flaggiö á hátiðisdögum? „Jú, þetta er miklu meira en fint orö og viö höfum sýnt þaö i verki. Við höfum haft þessa stefnu um árabil og okkur hefur tekist aö ná lágu laununum upp og þó svo aö allt of margir séu enn I lágu flokkunum, þá tókst okkur I siöustu samningum aö ná upp og fá tröppugang fyrir lægst launaöa fólkiö og þaö er nánast undantekning ef fólk er fyrir neöan hámarkslaun i 5. flokki. Meö þessum tröppugangi höfum viö i reynd lyft lægstu flokkunum og þaö er okkar stefna aö gera launamismuninn minni.” En hefur hækkun lægstu launa ekki aöeins fylgt hækkun þeirra hærra launuöu? „Nei, það hefur ekki haft þaö i för meö sér i samningum BSRB.” En nú hafið þiö. staöiö dyggan vörö um óbreytt visitölukerfi sem hefur magnaö launamis- mun. Hvernig kemur þetta heim og saman? „Þaö er misskilningur aö visi- tölukerfi magni launamismun. 1 þessari veröbólgu hækkar launamismunurinn I krónum, en hlutfalliö helst dbreytt.” Nú hækka laun um næstu mánaaðamót. Launahlutfalliö veröur þaö sama eftir þá hækk- un, en finnst þér þaö sanngjarnt aö þin laun hækki t.d. helmingi meira en þeirra lægst launuöu?. „Mér finnst kolvitlaust aö hafa veröbólgu eins og hún er I okkar þjóðfélagi og þetta er afleiðing af veröbólgunni. Menn veröa aö hafa kjark i sér til aö móta launastefnu. Tilfinninga- tal á þar ekki aö koma til. Stjórnmálamenn tala hér til til- finninga. Launafólk á aö afþakka slíkt. Viö höfum mark- aö ákveöna stefnu I launamál- um og gengiö út frá ákveönu hlutfalli milli lægstu og hæstu launa. 1 óðaveröbólgu sem og ööru árferöi veröa menn aö standa á þessari stefnu, en stilla sig um það aö spila á tilfinn- ingar.” Ein spurning af tilfinninga- legum toga. Heldur þú aö þfnir félagsmenn sem fá t.d. 50 þúsund I hækkun 1. des. n.k. séu ánægöir og hamingjusamir i hjarta slnu, þegar þú færö helmingi hærri hækkun? „Nei, þaö er ekki von. Og þaö á aö taka á þessu meö allt öörum hætti heldur en meö hjartanu eins og þú segir. Og þarna á aö marka stefnu sem gerir þaö aö verkum aö svona vitleysa eigi sér ekki staö.” Þú talar um aö veröbólgan magni þetta allt. En veröa ekki víxlverkanir á milli veröbólgu og visitölukerfisins? „Jú, þarna veröa vfxlverkan- ir, og margt annaö kemur til. Þaö er ekki hægt að afgreiöa veröbólguna þannig aö hún stafi af víxlverkunum launa og vöru- verös. Þaöer svo margt annaö sem kemur þarna inn I. Þaö er aö mlnu mati grundvallaratriöi aðkoma veröbólgunni niöur. En i óöaverbólgu er útilokaö annaö en aö bæta mönnum það upp meö visitölugreiöslum.” Sem aftur eykur, verbólguna? „Ef visitalan yröi afnumin, þá er launafólkiö i landinu sokkiö i örbirgð fyrr en varir.” Má ekki tryggja hag verka- fólks meö öörum hættí? „Það má ef til vill gera þaö meö þvf aö semja aöeins til eins eöa tveggja mánaöa i senn. Ég hef ekki trú á aö atvinnu- rekendur semji á 2. mánaöa fresti.” Er visitölukerfiö sem sagt heilög kýr I þinum augum? „Vísitölukerfiö er ekki heilög kýr, en þaö er frumskilyröi aö launin séu verötryggð og viö höfum ekki komiö auga á aöra leiö en þetta kerfi og meöan svo er þá máttu kalla þetta heilaga kú. Núhafiöþiö haftlausa samn- inga frá þvi i sumar, en lítiö frá ykkur heyrst. Biöiö þiö eftir vinveittri rikisstjórn? „Viö höfum þegar lagt fram meginefni kröfugeröar okkar og leggjum hana alla fram innan tiöac. Þvf miður eigum viö þvi ekki aö venjast aö hafa vinveitt- ar ríkisstjórnir i þessum skiln- ingi. A vissan hátt eru BSRB menn alltaf i stjórnarandstööu sama hvaöa rikisstjórn er við völd.” Eigiö þiö ykkur enga óska- : stjórn? „Ég á ekki von á neinni rikis- stjórn, sem taki meö einhverj- um silkihönskum á okkar kröfum.” Nú varst þú framsóknar- maöur á sinum tfma. Yfirgafstu flokkinn vegna þessaö þú komst þar ekki til metoröa? „Ég sóttist aldrei eftir metoröum i Framsóknarflokkn- um. Gaf fyrst kost á mér I trún- aöarstööu þar fyrir þrábeiðni þáverandi forustumanna, þ.á.m. formanns flokksins. Þá var stór hópur manna sem vann aö þvi meö verulegum árangri um tima aö gera flokkinn aö launamannaflokki. Þá jók hann fylgi sitt verulega. Þegar þetta breyttist aftur og atvinnu- rekendur og kaupmenn fengu mest áhrif á stefnumótun flokksins kvaddi ég og fór. Ég kunni einfaldlega ekki við kaupmenn og atvinnurekendur i Framsóknarflokknum sem pólitlska sálufélaga og samherja. 1 dag eru þdsundir manna I okkar þjóöfélagi á pólitiskri eyöimerkurgöngu. Ég er einn af þeim. Osk min og von er sú aö islensk stjórnmál komist sem fyrst úr þeirri lág- kúru sem þau nú eru i.” eftir Guðmund Árna Stefánsson

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.