Helgarpósturinn - 23.11.1979, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 23.11.1979, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 23. nóvember 1979 Jielgarpásturinru Nokkrir frambjóöendur Hins flokksins viröa fyrir sér væntanlegan vinnustaö. „Ástæöan fyrir framboöi okkar er fyrst og fremst vantrú á gömlu stjórnmálaflokkana og kerfi þeirra”, svöruöu frambjóöendur Hins flokksins fyrstu spurningu Helgarpóstsins, ,,—þaö er svo erfitt aö komast aö meö eitthvaö nýtt. Og viö viljum leiörétta þann misskilning aö framboö okkar sé ekkert annaö en grin, heldur til- raun til aö hræra uppi ástandinu, — og þaö er ekkert grin”. — Hugmyndafræöi Hins flokks- ins? „Já, hugmyndafræði okkar byggist eiginlega á kenningum Rousseus um „manninn ofar öllu”, og aö sjálfstæður persónu- leiki geti ekki þróast nema i óheftu félagskerfi. Okkar kjörorð er þvi: Leifturstrið gegn félags- höftum. Og viö viljum niöurskurð á lagagreinum, einkum þeim sem hefta frelsi einstaklingsins t.d. þessu i Lögreglusamþykktinni að fólk megi ekki ganga um alsbert og kela á almannafæri. Einnig viljum viö efla möguleika fólks til aö nota sköpunargáfuna en nú- verandi menntakerfi viröist bein- linis smiöaö með það fyrir augum aö bæla hana. En svo við vikjum aftur að Rousseu, þá má setja upp hug- myndafræðilega jöfnu, þar sem setja má ýmsa hluti inn ss bjór- inn, kannabisefni ofl. þeas sér- hver einstaklingur ræður sér sjálfur, og hann getur gert hvað sem er svo framarlega hann skaðar ekki aðra og náttúruna. Frumvarpaþjónustan 1 sambandi við unglingavanda- málið, þá viljum við gera fjár- hagslega fýsilegt að reka skemmtistaði án áfengis. Það eru ýmis ráð til þess. Viðstyöjum alla minnihlutahópa, aldraða, þroska- hefta, einstæða foreldra, kúgaðar konur osfrv. Ef við komum manni á þing, þá er ætlunin að setja á laggirnar fyrirtæki, frumvarpa- þjónustu, sem myndi taka að sér að koma málefnum á framfæri, málefnum sem fólk hefur hug á að nái fram að ganga, en gömlu fiókkarnir veigra sér við að taka fyrir”. — Hvernig gengur ykkur kosningabaráttan? „Erfiðlega. Við höfum ekkert málgagn, litinn tima og búum hreinlega ekki að neinum björgum. Það hefur þvi verið hálfgerður mellubragur á þessu hjá okkur. Við höfum þurft að gera okkur að söluvöru, koma með eitthvað fyndið og sniðugt til að vekja athygli fjölmiðlanna á okkur, en reynt svo að hnýta alvarleikanum aftanvið. Þetta er kannski ástæðan fyrir þvi að fólk heldur að við séum bara að grinast. En við viljum itreka, að okkur er rammasta alvara. Leiðréttingar Við viljum vekja athygli á villandi fréttaflutningi. Það hefur komiö fram i fjölmiðlum I sam- bandi við forsetakosningarnar i Bandarikjunum, að baráttan standi milli Carters OG Kennedys. Það má vel vera að svo sé, en þvi er bara oftast bætt aftanvið að frambjóðandi HINS flokksins eigi litla sem enga möguleika. Við sendum þvi bréf til Rikisútvarpsins, þar sem þessi fréttaflutningur er leiðréttur. Við erum ekki i framboði i forseta- kosningunum i USA . Einnig eru frammámenn i islenskum stjórnmálum alltaf að tala um HINA flokkana. Sem er hrein firra. Það er algjör óþarfi að tala um okkur i fleirtölu; við erum einkar samstæður flokkur. Hitt væri réttara, að tala um Sjálfstæðisflokkinn i fleirtölu (LSD-örlagafrikin). Kosið um „þetta” eða „hitt” I kosningabaráttunni þá reynum við ma að fiska auðu at- kvæðin, sem vitað er að verða mörg i komandi kosningum, þvi það vita allir hvað gömlu flokk- arnir ætla að gera. Þeir ætla að gera þetta, þetta og þetta. Við ætlum hinsvegar að gera hitt. Það verður það sem kosningarnar snúast um, „þetta” gömlu flokk- anna eða „hitt” Hins flokksins”. — Hvað verður um Hinn flokk- inn ef hann kemur ekki manni á þing? „Það er mikil þörf fyrir okkar flokk, og sú þörf verður alveg jafnmikil þó við komum ekki manni á þing. Við munum þvi starfa áfram. Þess ber að gæta að það eru ekki nema 2 ár i næstu bæjar- og sveitastjórnarkosning- ar, — og mörg kjördæmi enn ónumin. Viö heföum líka fullan hug á að bjóöa fram I forseta- kosningunum, en höfum þvi miður ekki nógu gamlan mann i okkar rööum til að geta sest að á Bessastöðum. Aö lokum viljum viö bara segja lesendum Helgar- póstsins: Kjósið okkur ekki, kjós- ið Hinn Flokkinn”. Hinn flokkurinn Leifturstríð gegn félagshöftum Bráðum koma blessaðar alþingiskosningarnar, og framboðsbörnin farin að titra af tilhlökkun. öll búin að pakka inn patentlausnunum sínum vandlega viðruðum, og leggja þær i glæsilegum umbúðum við tré kjósenda. Þau eru búin að dúka borðið, og nú er bara eftir að hjálpa þeim sem enn eru að ieita , að finna sinn „rétta" f lipp.., afsakið f libbahnapp. Aldrei þessu vant eiga allir flibba. Jákvætt hugarfar Tveir stjórnmálaf lokkar bjóða nú í fyrsta sinn fram fólk til setu í musteri þjóðarinnar,Hinn flokkurinn og Sólskinsflokkurinn. Til að kynnast þeim örlttið hitti Helgarpósturinn nokkra kandídata þeirra, og spurði fyrst um ástæður fyrir framboði: fyrst og fremst Sólskinsflokkurinn „Þetta er gömul hugmynd og upphaflega hugsunin var aö stofna samtök sem beröust fyrir bættu veöurfari, en þegar þessar óvæntu alþingiskosningar komu uppá ákváöum við aö slá til og mynda stjórnmálaflokk”. Sögöu frambjóðendur Sólskinsflokksins, þegar Ilelgarpósturinn bar upp fyrstu spurninguna. „Viö sáum frammá óvenju dauöan tima frammað jólum og datt i hug aö bregöa á leik. Við erum ekki að gera grín að öðrum flokkum beint, heldur erum við að gæöa kosningarnar húmor, og reynum þannig að létta þunganum af hinum slæma móral sem hér rikir. Við erum semsagt sólskinið i skammdeginu. Okkur fannst bara þrælgóö hugmynd að stofna stjórnmálaflokk sem berðist fyrir bættu veðurfari, og vildum koma henni á framfæri. Það er þvi ekki hægt að bera okk- ur saman við Framboðsflokkinn sáluga, sem tók fyrir viss málefni frá hinum flokkunum og gerði grín að þeim, — en viö gerum það ekki.” — Eruð þið þá ánægðir meö núverandi flokkaskipan? „Það eru nú skiptar skoðanir um það innan flokksins, Það má eiginlega segja að viö séum flokk- ur allra flokka, þvi við erum sam- bland Heimdellinga, kúltúr- komma, stjórnleysingja og jafn- vel framsóknarmanna. En flokk- urinn varð þó til i kringum ákveðna stefnuskrá, en ekki öfugt einsog margir halda.þeas bætt verðurfar, sem furðurlegt nokk hefur alveg farið framhjá öðrum flokkum.” Aflraunamaðurinn — Gerið þið ykkur von um að ná manni á þing? „Það gefur auga leið, að þarsem við bjóðum aðeins fram I einu kjördæmi, þá náum við ekki meirihluta á Alþingi i þessum kosningum. En við bindum mikl- ar vonir við þann mann sem skip- ar efsta sætið á lista okkar, og er , öruggur með þingsæti. Það er vaskur maður og garpur mikill, sérstaklega i aflraunum (án lyfja)”. — Hvernig ætlið þið að haga kosningabaráttunni sjðustu dagana? „Bara vel.” Ætlið þið að heimsækja vinnu- staði? „Já, að sjálfsögðu gerum við það, en þó ekki á sama hátt og hinir flokkarnir, sem bera enga virðingu fyrir meltingarfærum vinnandi fólks. Já, og við erum auðvitað með kosningaskrifstofu, en það þýðir ekkert að hringja I sima 49999”. Máttur jákvæðrar hugsunar Við leggjum áherslu á jákvæða hugsun og teljum að hið slæma veðurfar sem hér hefur veriö undanfarnar aldir, stafi af þvi hve neikvæðir íslendingar eru I hugsun . Þvf viljum við breyta fyrst og fremst og uppskera gott veður. Og það er hægt, það hefur verið sannað á visindalegan hátt: Fyrir tveimur árum fór fram tilraun i Bandarikjunum, sem þótti sýna fram á að mannshug- .urinn geti framkvæmt hluti, sem áður hafa veriö settir i samband við kraftaverk. 300 manna hópur kom saman og stundaði innhverfa ihugun i ákveðinn tima. Aðuren lengra er haldið skal það tekið fram að Sólskinsflokkurinn styður ekki innhverfa ihugun sem slika. En á þessum tlma, sem fólkið stundaði jákvæðar hugsan- ir kom fram m.a. að sólardögum fjölgaði um hvorki meira né minna en 10.3%. Ef þetta væri lagt til grundvallar veðurathug- unum hér heima kemur i ljós að Viðtöl: Páll Pálsson sólardögum myndi fjölga til mik- illa muna á tiltölulega skömmum tima. Aðrar niðurstööur úr könn- un þessari voru td. að glæpum, sjálfsmorðum og slysum fækkaði einnig mikið. Nú kann þetta að virðast fjarstæðukennt, en á sér þær eðlisfræðilegu skýringar, að við lágan þrýsting (vont veöur) er loftið hlaðið pósitivum jónum og draga þær negativar jónir fram i manninum. Við viljum snúa þessu ferli við, og ná, með jákvæðum (pósitivum) hugsunarhætti að breyta veður- farinu til hins betra. Svo einfalt er það nú.” — Hvað verður um Sólskins- flokkinn ef hann kemur ekki Myndir: Friðþjófur manni á þing? „Við komum manni á þing, það er engin spurning. En eftir kosn- ingar þá munum við strax leggja drög að næstu kosningabaráttu. Ekki er ráð nema i tima sé tekið. Og þá munum við bjóöa fram i öllum kjördæmum, — enda nær baráttumál okkar ekki fram að ganga nema með sameinuðu átaki þjóðarinnar. En þangað til vonum við að fólk noti fristundir sinar, og hittist til að ræða þessi mál td. væru Lions-, Rotary-, Kiwanis-, kven- ofl félög kjörinn vettvangur slikra umræðna. En umfram allt viljum við að fólk ástundi jákvætt hugarfar, hvar sem er og hvenær sem er.” Efsti maöur á lista Sólskinsflokksins, Jónatan K.K. Markússon. Stefán Guöjónsson og veöurfræöilegur sérfræöingur flokksins,

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.