Helgarpósturinn - 23.11.1979, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 23.11.1979, Blaðsíða 3
—helgarpásturinn- Föstudagur 23. nóvember 1979 3 ferð. Maöur sem Helgarpósturinn hafði tal af sagði frá þvi, að möðir hans hefði þjáðst af þunglyndi. Hún heföi fengið nokkur raflost og hresst við i nokkurn tíma, en þá hefði allt sótt i sama farið á nýjan leik. Hefði hún þá farið i lyfjakúr en það ekki gagnað. Þá var gripið til þess ráðs aö setja konuna — sem var einnig líkamlega las- burða og öldruö orðin — í raflosts- meðferð. Sagði þessi maður, að innan skamms hefði móðir sin látistog kenndi hann raflostunum um.enda þótt ekkert gæti hann sannað. Aður voru sjúklingum ekki gefin vöðvaslakandi lyf áður en raflosti var beitt. Það gerði það að verkum, að þeir fengu krampaflog mikil þegar straumnum var skelltá. Þótti það ófögur sjón, að sjá fólk engjast i krampaflogi með straumgjöf — ekki sist þegar hönd læknis setti strauminn á með þessum afleið- ingum. Voru þess dæmi að menn hefðu vöðvaslitið sig og beinbrot- ið i krampakastinu. t dag er þessu öðruvisi farið. Eins og fyrr segir eru sjúklingar svæfðir af svæfingarlækni og þeim gefin vöðvaslakandi lyf. Þegar straumnum er hleypt á kreppast fingur og tær sjúkhngs- ins. Ef það gerist hins vegar ekki þarf að hleypa á straum á nýjan leik. „Það ær leitast við að sjá svörun hjá sjúlkingum ” sagði Asgeir Karlsson geðlæknir. Stundum varanlegur árangur Ásgeir Karlsson og Jakob Jónasson eru sammála um að reynslan hafi I mörgum tilvikum sýnt allgóðan árangur eftir raf- lostsmeðferð og i einstaka tilfell- um hafi árangur orðið varanleg- ur. Þeir neita þvi alfarið að sjúklingur hafi borið nokkurn skaða af meðferðinni utan höfuð- verks og timabundins minnistaps fyrst á eftir. Það skal tekið fram að sjúklingur eöa aðstandendur hans verða að samþykkja raf- lostsaðferðina áður en slík með- ferð hefst. Enginn veit hvaða áhrif raf- straumurinn hefur á heilastarf- semina. Sálfræðingur sagði Helgarpóstinum að upphafið hafi verið, að menn sáu að floga- veikissjúklingar fengu ekki kleifhugasýki. Þvi hefði verið reynt að framkalla krampaköst með rafmagnsstuði og athuga árangurinn. Helgarpósturinn spurði lækna um raunveruleg áhrif rafmagns- stuðsins á heilann. Ásgeir Karlsson sagði: „Það hafa ýmsar teoriur verið á lofti um þetta at- riði, en menn hafa ekki getað full- yrt neitt um það, frekar en um það hvaöa raunverulegur læknis- máttur liggur i mörgui» geðlyf- um. Reynslan hefur hins vegar sýnt að þessi aðferð hefur verið um margt árangursrik og þess vegna er stuðst við hana.” „Það hefur verið nokkur skoðanaágreiningur uppi um þessa aðferö og almenningur óttast hana nokkuð,” sagði Ingólfur Sveinsson læknir. „Finnst þetta grófar lýsingar og ómanneskju- legar aðferðir. Þaö er rétt að að- ferðin viröist gróf og róttæk, en engu að siöur verður að horfast i augu við það, að lyfjameðferö dugar ekki i öllum tilvikum. Þá þykir mönnum rétta:a að reyna raflost, en að sitja með hendur i skauti og horfa upp á fólk i þunglyndisástandi- oft svo miklu að það sér litt aöra leið út úr vandamálinu en sjálfsmorö.” Ólafur Ólafsson landlæknir viðurkenndi að ekkert væri með vissu vitað um það hvaða lækningaáhrif raflostiö hefði á sjúkling. Það lægi ekki fyrir af hverju sjúklingurinn læknaðist af þessari meöhöndlun. Þannig væri það um margt annaö i læknis- fræðinni. Fræðimenn vissu litið meira um ýmis lyf annaö en þaö, aö þau skiluöu árangri. Þannig hefði enginn vitað um það hvernig nytroglyzerln sem notað er viö hjartasjúkdómum virkaöi fyrr en fyrir nokkrum árum. Þó heföi lyf- ið verið notað um langan tima. „Hvatt til íhaldssemi" „Það er engin læknismeðhöndl- un hættulaus meö öllu,” sagöi landlæknir. „Þess þekkjast meira Borgarspltali: „Þarna fara nokkrir tugir sjúklinga I raflostsmeöferö á KleppspitalirFá rafloststilfelii og aðeins hluti lækna notar silka aðferð á ári hverju. sjúklinga sina. að segja dæmi, að menn hafi oröiö mjög veikir af asperini. Hitt er annað mál, aö menn eru meira á varöbergi varöandi notkun á aö- ferðum sem enginn veit raun- veruleg áhrif af. Þannig er þaö með raflostiö. 1 læknatimariti frá 1954 var hvatt til Ihaldssemi við- vikjandi raflostsmeöferðinni.” Ýmsir læknar úti I heimi hafa tröllatrú á þessari aðferð. Þekkjast þau dæmi að læknar hafi látið einstaka sjúklinga fara i 50 „rafskot” á einu ári. Aðrir hins vegar hafa kastað þessari aðferð algjörlega frá sér. Viðast hvar er þróunin á átt frá „rafstuöinu”. Þó birtist ný- lega grein i bandariska timarit- inu Time og þar er sagt að siðastliðna áratugi hafi raflosts- tilfellum fækkað mjög vegna tilkomu nýrra lyfja. Hins vegar virtist sem svo að þessi lyf væru ekki eins haldgóð og menn hefðu vonað og þvi væri of snemmt að afskrifa „rafstuöið”. Nýjustu töl- ur i Bandaríkjunum sýna að raf- lostslækningar virðast fara I vöxt á nýjan leik. Bandarikin eru mjög framar- lega I læknavfsindum og oft nokkrum árum á undan mörgum löndum öörum. Hér heima virðist þróunin enn vera öll á átt frá lost- inu yfir i lyfjagjafir þegar um geðlækningar er að ræða. Eöa eins og landlæknir sagði: „Eg reikna með þvi að raflostsaðferð- in sé á fallandi fæti.” eftir Gudmund Árna Stefánsson Þú kemur bara með gamla svart/hvíta tækið þitt — við metum það og þú labbar út með nýtt litsjónvarpstæki að eigin vali, frá NORDMENDE, ASA eða Bang & Olufsen. Rs. Við tökum líka ónýt svart/hvít tæki uppí búÐin Skipholti 19

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.