Helgarpósturinn - 18.04.1980, Page 11
n
halijr^rpn^ti irinn Fostudagur 18. apríl 1980
eftir Þorgrím Gestsson myndir: Friðþjófur o.fl.
var fariB að kalla mig „hinn
islenska Róberti'nó”.
— Hvað hélstu þetta lengi út?
— Ég var að alveg þangað til ég
var 14ára. Þegar ég var 12 og 13
ára söng ég inn á tvær gömlu-
dansaplötur. Núna þegar ég
hlusta á þær heyri ég á þeim
greinilegan mun. Á þeirri fyrri
hef ég þessa náttúrulegu barns-
rödd, en á þeirri siðari er ég orð-
inn rútineraður gömludansa-
söngvari. Skömmu eftir þaö fann
ég lika að ég vildi hætta, meðal
annars vegna þess að ég fann, að
röddin var aö breytast.
Ég byrjaði svo aftur þegar ég
var 16 eða 17 ára, fór i sömu
rútinuna og áður, og gaf fljótlega
út gömludansaplötu. Þegar ég og
konan min hlustum á hana núna
köllum við hana ,,brabra”-plöt-
una, okkar á milli. Á þeim tima
vildi ég ekki sætta mig við, aö ég
gæti ekki haldið áfram á sömu
braut og áður. En ég fann á fólki i
kringum mig, að ég væri að
„missa röddina”. Það er mjög
erfitt fyrir þá sem eru i sviðsljós-
inu sem krakkar að fara að
syngja sem fullorðið fólk. Eftir
það söng ég inn á tvær plötur i
viðbót, en hætti alveg um tvitugt.
1 staðinn fór ég að leika mér að
gitar og fór siðan i kórsöng, og
syng i kór Langholtskirkju, sem
er ákaflega skemmtilegur kór.
Auk þess er ég i hópi sem syngur
madrigala og negrasálma. Ég
söng lika i þjóölagatriói, byrjaði
1976 með Sæmundi Haraldssyni
og Kjuregei Alexandra, og i
fyrrasumar fór ég svo að spila
„popp-rokk” músikk með Pónik.
— Hvernig var betta frægðar-
timabil, meðan þú varst strák-
lingur, „hinn islenski
Robertinó”?
— Ég hafði gaman af þessu. En
aðsjálfsögðu varð ég dálitið fyrir
striðni, sem mér fannst náttúr-
lega leiöinlegt. En mér var þó
aldrei stritt I félagahópnum. Ég
held að það hafi verið mjög mikil-
vægt fyrir mig, að mér var aldrei
hampað neitt að ráði. Aug-
lýsingamennskan i kringum þetta
var ekki eins mikil og hún er nú.
Þá var ekkert verið aö spila mann
upp, nema með einu og einu
blaðaviðtali.
Allraverst þótti mér það þegar
ég hætti að vera krakki, eftir að
hafa verið isviðsljósinu. Þegar ég
byrjaði aftur kom eitthvað allt
annað en ég bjóst við. Það sem ég
söng passaði alls ekki viö þá rödd
sem ég var kominn með, sagði
Sverrir Guðjónsson, hinn „fyrr-
verandi islenski Róbertinó”.
Hanna Valdís:
,,Átti að vera ólétt
í fimm ár"
Sjálfsagt muna flestir ennþá
eftir Hönnu Valdisi, stelpunni
sem sönglögin um Linu Langsokk
inn á plötu. Að minnsta kosti þeir
sem voru orðnir talandi árið 1972.
Þá var hún tiu ára gömul, og ári
seinna söng hún inn á stóra plötu,
lög eins og „Afi og amma”, sem
hljóma i óskalagaþáttum út-
varpsins enn þann dag i dag. Nú
er hún 18 ára gömul mennta-
skólastúlka og hefur þessa
stundina mestan áhuga á að læra
læknisfræði. Plöturnar uröu ekki
fleiri, en Hanna Valdis hefur ekki
alveg sagt skilið við tónlistina,
þvi meðfram skólanáminu lærir
hún á pianó.
— Þetta byr jaði þegar ég söng i
kór Melaskólans, Sólskinskórn-
um, með þvi að Hermann Ragnar
fór þess á leit við söngstjórann
okkar, Magnús Pétursson, að við
syngdum inn á plötu. Þar söng ég
einsöng, og skömmu siðar hafði
Svavar Gests samband við mig og
bað mig að syngja lögin um Linu
langsokk, sagði Hanna Valdis,
þegar við hittum hana heima i
föðurgarði þar sem hún býr með
foreldrum sinum Guðmundi
Magnússyni háskólarektor og
konu hans, Valdisi Arnadóttur.
— Þetta geröist allt svo hratt,
að ég hafði engan tima til að
hugsa. Linuplatan var tekin upp á
einu kvöldi, og ég vissi eiginlega
ekki hvað var að gerast. Óneitan-
lega var þetta dálitið skrýtið, en
það vandist ótrúlega fljótt aö
heyra i sjálfri sér i útvarpinu.
— Hvernig reynsla var þetta
fyrir tiu ára gamlastelpu — nú
varst þú auglýst mikið upp, með-
alannarsmeðhjálp sjónvarpsins,
og varðst landsfræg i einu vet-
fangi.
— Viðbrögðin voru mjög mis'-
jöfn. Þetta var mjög skemmtilegt
timabil á vissan hátt. Ég kynntíst
mörgu góðu fólki og fékk mikið af
bréfum og simhringingum — bæði
leiðinlegum og skemmtilegum.
Enþetta varerfitt lika, bæði fyrir
mig og fjölskylduna. Ég fékk ekki
að vera i friði og varð sérstaklega
fyrir striðni frá jafnöldrum min-
um og eldri krökkum. Og fólk
hefurkannski gert sér hugmyndir
um, að ég væri allt ööruvisi en ég
er. Maður var svo litill og við-
kvæmur og vissi eiginlega ekki
hvernig átti að taka þessu.
En það var gaman hvað yngri
SAFNLANAKERFI VERZLUNARBANKANS
ER EINFALT:
ÞÚ SAFNAR-
VIÐ LANUM
Safnlánakerfið byggist á því að þú
leggur inná Safnlánareikning þinn
mánaðarlega ákveðna upphæð í
ákveðinn tíma.
Upphæðinni ræður þú sjálf(ur)
upp að 100 þúsund kr. hámarkinu.
Sparnaðartímanum ræður þú
sjálf(ur), en hann mælist í 3ja
mánaða tímabilum, er stystur 3
mán. og lengstur 48 mán.
Þegar umsamið tímabil er á
enda hefur þú öðlast rétt á láni
jafn háu sparnaðinum.
Einfaldara getur það ekki verið.
SAFNAR
■VIÐ LANUM
UŒZIUNRRBRNKINN
Spyrjið um Safnlánið og fáið bækling í afgreiðslum bankans:
BANKASTRÆTI 5, LAUGAVEGI172, ARNARBAKKA 2,
UMFERÐARMIÐSTÖÐ, GRENSÁSVEGI13 og
VATNSNESVEGI 14, KEFL.
krakkar voru þakklátir, og einu
sinni fékk ég bónorð I strætis-
vagni. Það var fjögurra eða fimm
ára strákur sem vildi að ég biði
eftir sér! Svo lék ég Kamillu I
Kardimommubænum skömmu
eftir að fyrri platan kom út, það
dró svolitið athyglina frá Linu
langsokk.
— Sérðueftir þvi aö hafa lagt út
i þetta?
— Nei, ég sé aldrei eftir þvi.
Þetta var mikil lifsreynsla, ekki
sist allar sögurnar, sem mynduö-
ust um mig. Ég átti að vera ólétt I
fimm ár, og meira að segja núna
fyrir fáum dögum var hringt i
migfrá Akureyri og mér óskað til
hamingju með tviburana!
— En þú hefur samt ekki kosiö
að halda áfram?
— Það var reyndar hugmyndin.
Það stóð til að ég syngi inn á aöra
stóra plötu. En ég fann, að það
var komið að timamótum. Ef ég
ætlaði að halda áfram hefði ég
oröið að breyta um stil. Ég var
orðin of gömul til að halda áfram
aðsyngja einsogég hafði gert, og
þá heföi ég orðið að fara á fullu út
i samkeppnina á dægurlaga-
markaðnum. En ég var lika búin
að fá nóg. Ég var búin aö fá mig
fullsadda af þessu og vildi fá frið.
Eftir þessikynni min af frægðinni
hafðiéglika komistað þvi,aðþaö
er siöur en svo eftírsóknarvert aö
vera frægur, sagði Hanna Valdis.
■ ■
HÁRGREIÐSLUSTOFAN ns
JKlippingar, permanent, lagn- \L ^ r ingar, litanir og lokkalitanir. MIKLUBRAUT 1
Gefum skólafólki 10% afslátt
gegn framvisun sklrteinis.
CÍHAI o/acnc RAGNHILDUR BJARMADOTTIR
OIIVII HJÖRDÍS STURLAUGSDÓTTIR
IVlUI/rl
FJÖÐRIN
tll hjálpar
heymarskertum
Söludagar:
18., 19. og 20. apríl