Helgarpósturinn - 09.05.1980, Page 7
7
halrjarpn'Zturinn fös'"da9"r 9- maí 1980
gengist öll þessi ár, en við tslend-
ingar erum jú sérstaklega af-
skiptalaus um öll neytendamál,
nema yfir kaffibollanum, en þar
kemur i ljós að allflestir eru
þrautleiðir á þessu kerfi. Ég tel
ekki til bóta að gefa útvarps-
rekstur algerlega frjálsan þvi ég
er hrædd um að peningavaldið
myndi verða full mikið ráðandi.
Margir hafa bent á að útvarp eigi
að vera frjálst eins og blaðaút-
gáfa, en hvað er að á þeim vig-
stöðvum? Dagblöðin eru svo
mörg og svo pólitiskt lituð að það
er dagsverk að komast i gegnum
þau.
Ef útvarp yrði frjálst myndi
auðmelt skemmtiefni, auglýs-
ingarogmúsik helzta uppistaðan,
sykur er jú sætur en of mikið af
honum skemmir tennurnar, sama
er um stanzlaust skemmtiefni að
segja, notalegt, en krefst engrar
hugsunar af hlustenda hálfu.
Frjálsara útvarp myndi leysa
rikisútvarpið úr böndum, veita
þvi samkeppni, það yrði fjöl-
breyttara og fleiri hugmyndir
fengju að viðrast. En hvernig?
Mér finnst nauðsynlegt að hvert
hérað, kaupstaður eða þorp gætu
útvarpað beint á sérstakri rás
þannig að tilkynningar og
umræður sem aðeins varða ibúa
þess staðar kæmusi auðveldar til
skila. Það má æra óstöðugan að
senda krakka með miða i hvert
hús ef eitthvað er um að vera eða
þá lima miða á Kaupfélagið eða á
aðaldyr frystihússins, eins og nú
er gert. Ég er viss um að þetta
myndi efla mjög satnstöðu
félagsanda og samfélagsvitund
innan þessa ramma. Leikhópar
gætu spreytt sig á útvarpsleik-
ritum þannig að Reykvikingar
yrðu ekki eins allsráðandi eins og
eðlilega hlýtur að verða við
núverandi ástand. Ahugamanna-
hópar ættu auðveldari aðgang að
útvarpi til þess að kynna starf-
semi sina. Bein lina um viss mál-
efni gæti haft miklu stærra svig-
rúm, og þá ekki sizt innan minni
héraða þar sem oft er um ferða-
örðguleika að ræða fyrir utan alla
fundarsetuletina sem er að verða
þjóðareinkenni.
Það er mjög bagalegt hve litið
er um endurtekið efni, fólk er oft
vant við látið þótt það langi að
öðrum kosti til þess að fylgjast
með. Margir útvarpsþættir og
erindi hafa kostað mikla vinnu
flytjenda og er skömm að þvi hve
litill hluti fólks nær þvi að hlusta.
Það er ekki möguleiki fyrir eina
útvarpsstöð að gera öllum til
hæfis, fólk er i svo mismunandi
aðstöðu til hlustunar. Besta ráðið
væri trúlega að ráða útvarpsráð i
fiskvinnu, i viku á borði, viku i
vélasal, siðan i heimilisstörf i
viku, leggja siðan hópinn á
spitala i viku, eftir það er ekki
vafi á að alvarlegar umræður
hæfust um byltingu rikisútvarps.
Séra Bernharður Guð-
mundsson:
„Fjármagni séu ekki
tryggð ótvíræð forréttindi"
Ég trúi ekki á neina afdráttar-
lausa lausn i þessum efnum. Ef
lögunum um einkarétt Rikisút-
varpsins yrði breytt til rýmkunar
gæti það haft afdrifarikar afleið-
ingar í för með sér. Rikisútvarpið
sem berst i bökkum fjárhagslega
mundi missa auglýsingatekjur.
Landsmenn sætu varla við sama
borð vegna þess að smástöðvarn-
ar yrðu að öllum likindum flestar
á þéttbýlissvæðunum. Otvarpið
sem ■ er áhrifarikur fjölmiðill
gæti náð inn um bakdyrnar hjá
óþroskuðum unglingum með
vafasaman boðskap og án efa
miður heppilegum afleiðingum.
Niðurstaðan hlýtur að vera sú
að ef lögunum yrði breytt yrði að
tryggja jafnstöðu allra borgar-
anna til að hagnýta sér öldur ljós-
vakans, en þeim sem hafa fjár-
magn eða aðra getu séu ekki
tryggð ótviræð forréttindi til -
lítvarpsreksturs.
Árni Sigfússon:
//Frjálst útvarp er mál-
frelsi á öld tækninnar"
Prentfrelsi er annar helsti tján-
ingarháttur frjálsrarhugsunar og
er þvi talið með dýrmætustu
mannréttindum hverrar þjóðar.
En hver skyldi hinn þátturinn
vera? Jú — hann er málfrelsi. Og
loksins, á öld tækninnar, býðst
okkur tækifæri til þess að skapa
málfrelsinu sama sess og rit-
frelsi. Útvarps- og sjónvarps-
stöðvar risa viða um heim.
Það skýtur þvi skökku við i
lýðræðisþjóðfélagi að afturhalds-
öfl ætli sér að stjórna þessum
þætti mannréttinda með einokun
á slikum fjölmiðlum.
Hins vegar er ljóst að með þvi
að leyfa hverjum og einum að
starfrækja útvarpsstöð án
skilyrða, er siður en svo allt
fengið. Héryrði að virða þær leik-
reglur sem settar eru til þess að
brjóta ekki aðra þætti mann-
réttinda og gilti þvi sama ábyrgð
og hvilir á prentuðu máli.
Nýkomið mikið af
vörum fyrir hunda
og ketti.
Einnig fuglabúr í .
úrvali verð
frá kr. 14.700.00
Okkar sérgrein:
GÆLUDÝR
amazon
Laugavegi 30 $: 16611
Samkeppni um
íbúðabyggð á Eiðsgranda
Sýning á tillögum
að Kjarvalsstöðum
Dagana 10,—20. mai verður sýning á Kjar-
valsstöðum á 12 tillögum, sem bárust i
samkeppni um ibúðabyggð á Eiðsgranda.
Sýningin er öllum opin. Verðlaunaðar
hafa verið 3 tillögur sem úthlutunarhöfum
ber að velja á milli sbr. úthlutunarskil-
mála. Úthlutunarhöfum ber að tilkynna
lóðanefnd Skúlatúni 2, Reykjavik' eftir
hvaða verðlaunaðri tillögu þeir vilja
byggja fyrir 31. mai n.k., og jafnframt
velja aðra til vara.
Borgarstjórinn I Reykjavik
allt í matinn
DALVER
Dalbraut 3
Rikisútvarpið hefur látið margt
gott af sér leiða og gerir enn. Mér
kemur ekki tii hugar að leggja
það niður. Það er hlutverk rikis-
valdsins að gæta öryggis þegn-
anna og stuðla að grunnmenntun
þeirra. Með tilkomu frjáls út-
varpsreksturs gæti þvi rikisút-
varpið sinnt sinu hlutverki mun
betur t.d. varðandi fullorðins-
fræðslu, og ymiss konar annað
fræösluefni. Sá sem ekki hefði
áhuga á þvi sem á boðstólum væri
þar, gæti þá hæglega stillt á aðra
stöð og valið sér efni. Er nokkuð
sjálfsagðara?
Staðreyndin er nefnilega sú, að
einstaklingar hafa mjög mis-
munandi þarfir.og hver ætlar að
halda þvi fram að sú efnisblanda
sem einn fjölmiðil! býður sé við
allra hæfi?
BÍLASALA- BÍLASKIPTI
BORGARTUNI 29-
28488
REYKJAVÍK - ICELAND
Flat 128 C árg. 1977
Ekinn: 45 þús km litur
rauðbrúnn.
Verð= 2,7 millj.
Datsun 180 B árg. 1978
sjáifskiptur
Ekinn: 46 þús km litur
rauður
Verð: 5,2 millj.
Ford Ltd Country árg
1972
Gefur nýjum bfl ekkert
eftir I útiiti
Litur gulur og brúnn
með gullsansi
Verð: 3,9 millj
Willys árg 1974
Gulur.svört blæja.
Verö: 3,8 millj.
Ford Bronco árg 1973
Höfum tvö eintök á |
staðnum báðir I sér-
flokki.
Wagoneer árg 1975
Ekinn: 91 þús km litur
brúnn sans
Verð: 5,2 millj
Alfa Sud árg 1977
Ekinn: 17 þús km litur
rauður
Litur út sem nýr jafnt
utan sem innan
Verð: 4,2 millj Ath:
DEKUR BILL.
Puegoet árg 1977
Ekinn: 55 þús km iitur
blár sans
Ijósbrún tausæti fall-
egur vagn og góður.
Verð: 5,5 millj.
Subaru árg 1978
Litur hvitur.
Ekinn: 30 þús km.
Verö: 4,4 milij.
Opið irá kl. 9—19 alla daga nema fimmtudaga
írá 9—21, og SUNNUDAGA frá kl. 13-16.