Helgarpósturinn - 09.05.1980, Síða 23
23
-Jie/qarpásturinn}Fösiuda^r 9 maí 1980
A morgun hefst tslandsmótiö i Knattspyrnu, meö leikjum Fram og
Akranes annarsvegar, og tBV og Breiöabliks hinsvegar. Voriö góöa
gerir þaö aö verkum aö báöir veröa leikirnir á grasi, sá fyrri á Akra-
nesi en hinn i Kópavoginum.
Við upphaf mótsins er jafnan
spurt tveggja spurninga. Veröur
þetta gott ár fyrir fótboltann? og
hverjir verða Islandsmeistarar?
í ár eru báðar spurningarnar ó-
venju erfiðar. Auðvitað er aldrei
hægt að svara þessum spurning-
um með vissu, en oft er hægt að
sjá fyrirfram getu einstakra liða
og stöðu þeirra innbyrðis. Nú er
ekkert slikt upp á teningnum, lið-
in virðast öll vera svipuð að getu,
og ég er t.d. alls ekki viss um að
IBV, núverandi meistarar fari
létt með að vinna FH sem voru i
öðru sæti i annarri deild í fyrra.
Jafnir leikir og mikil barátta
son bætast i raðir Valsmanna,
auk þess sem Hermann Gunnars-
son tekur fram skóna. A hinn bóg-
inn hafa Valsmenn misst meira
en flest önnur liö, Guðmundur As-
geirsson, Atli Eðvaldsson, Hörður
Hilmarsson, Ingi Björn og Hálf-
dán örlygsson eru farnir og skilja
eftir sig stærra skarð en hinir
geta fyllt. Sérstök eftirsjá er i
Atla, ekki bara fyrir Val heldur
islenska knattspyrnu yfirleitt, þvi
hann getur tekið rispur sem gera
hrútleiðinlegan leik að skemmti-
legum. Valur verður með óút-
reiknanlegt lið i sumar, eins og
reyndar öll hin félögin. Þýski
þjálfarinn þeirra hefur þótt fara
?Mg.~
Veröur fótboltinn flatneskjulegur i sumar?
SPENNANDI FOTBOLTI, EN GOÐUR?
eiga án efa eftir að setja svip á
fótboltann i sumar, og mótiö gæti
orðið skemmtilegt af þeim sök-
um. Að öðru leyti er ekki mikil á-
stæöa til bjartsýni. Nú leika milli
20 og 30 af okkar bestu knatt-
spyrnumönnum erlendis, og það
þarf engan snilling til að sjá að
fótboltinn hér heima er lélegri og
leiðinlegri fyrir vikið. Komi virki-
lega efnilegur strákur upp, er
hann farinn til útlanda um leið.
Og nú eru 2. og 3. deildarliðin i
Sviþjóð farin að draga til sin
marga af okkar bestu mönnum,
og það segir meira en mörg orð
um þá vinnu sem islenskir knatt-
spyrnumenn leggja á sig fyrir
ánægjuna eina saman.
Þegar litið er á einstök lið
kemur i ljós að hreyfing leik-
manna milli félaga eykst stöðugt.
Við upphaf þessa móts leika um
25leikmenn með nýjum félögum i
fyrstu deild. Sumir koma úr neðri
deildunum, aðrir hafa skipt um
fyrstudeildarfélag. Þetta er
skemmtileg þróun.
Valsarar hafa sennilega fengið
stærsta skammtinn af nýjum
leikmönnum. Ottar Sveinsson og
Ólafur Magnússon. Matthias
Hallgrimsson og Hörður Július-
nokkuð óvenjulegar leiðir, og
stillt upp liðum sem grónum
Völsurum finnst skritin, en þeir
verða eflaust i hópi efri liða þegar
upp veröur staöið.
Skagamenn hafa misst fimm
menn frá i fyrra, Jón Alfreðsson,
Jóhannes Guðjónsson, Matthias
og Jón Þorbjörnsson. Þá hefur
Sveinbjörn Hákonarson farið til
Sviþjóöar. Þetta veikir liðiö að
sjálfsögðu, en á móti kemur að
yngri mennirnir eru að öðlast
meiri reynslu, og sú staðreynd að
George Kirby þjálfar vart hér á
landi án þess að landa einum eða
fleiri titlum á Skaganum.
Vestmannaeyingar hafa misst
þrjá af máttarstólpum sinum,
Arsæl, örn og Valþór, en fengið i
staðinn Sigurlás. Þetta veikir liö-
ið án efa, en Viktor Helgason,
þjálfarinn þeirra, sagði unga
menn vera að koma upp, og þeir
myndu vonandi fylla upp i skörð-
in.
Þessi þrjú lið, Valur, 1A og IBV
eru öll veikari en i fyrra, á
pappirnum aðminnsta kosti. Þrjú
neðstu liðin i deildinni, Breiða-
blik, FH og Þróttur virðast hins
vegar sterkari.
FH-ingar hafa fengið hóp
manna til liös við sig, og aö sögn
Þóris Jónssonar, fyrirliða, er
stefnan sett á að halda
sér i deildinni. „Annað
kemur, svo sem bónus”, sagði
hann. Asgeir Eliasson þjálfar
liðið og leikur með þvi, og með
honum kom úr Fram Knútur
Kristinsson. Þá hefur Magnús
Teitsson aftur gengið i FH úr
Stjörnunni, Valþór Sigþórsson
kom frá Vestmannaeyjum, og
Heimir Bergsson, sem verið
hefur sterkasti maður liðsins á
æfingaleikjum vorsins, kom frá
Selfossi.
Breiðablik hafa fengið Einar
Þórhallsson aftur og auk þess
Guðmund Asgeirsson frá Val.
Þeir hafa auk þess nóg af ungum
friskum strákum, og fá lið hafa
eins sterku B-liði á að skipa.
Breiðablik hefur ætið verið létt-
spilandi lið, en vantað baráttu-
kraft og ákveðni. Jón Hermanns-
son sagðist I samtali við Helgar-
póstinn hafa lagt mikla áherslu á
það i þjálfun sinni, að ná upp
krafti og baráttu og sagðist alls
ekki svartsýnn.
Þróttarar hafa veriö með al-
friskasta móti i vor. Þeir eru með
sama mannskap og i fyrra, en
hafa fengið Jón Þorbjörnsson aft-
ur, Skotann Harry Hill og Sigur-
karl Aðalsteinsson frá Húsavik,
sem allir styrkja liðið. Þeir eru
mjög ánægðir með þjálfarann,
Ron Lewin, sem hefur tekist að ná
fram meiri baráttuhug en hefur
þekkst áður I herbúðum Þróttara,
Það er ekki ótrúlegt að nú loksins
fái þeir þá trú á sjálfa sig sem
dugar til einhvers annars en rétt
að forðast fall.
Sem sagt: Þrjú neðstu liðin i
deildinni (miðað við i fyrra)
verða sterkari og þrjú efstu veik-
ari. Þá eru eftir liðin I milli —
Vikingur, Fram, KR, og IBK.
Aöeins eitt þessara liða, IBK,
virðist ætla að verða veikara en i
fyrra. Keflvikingar hafa misst of
mikið til aö halda dampi. Fimm
fastamenn frá 1 fyrra, Sigurður
Björgvinsson, Þorsteinn ólafs-
son, Rúnar Georgsson, Einar Ás-
björn Ólafsson og Sigurbjörn
Gustafsson, hafa fariö til Svi-
þjóðar. Þjálfari IBK er ungur
Skoti sem var hér fyrir 6-7 árum
og þjálfaði yngri flokka IBK.
Hann heitir John MacKernan, og
á ekki öfundsvert starf fyrir'
höndum. En keflviskir fótbolta-
menn hafa i sér mikinn dugnað og
seiglu sem oft hefur fleytt þeim
yfir skerin.
KR-ingar aftur á móti virðast
ætla að veröa sterkari en I fyrra.
Hálfdan örlygsson er kominn frá
Val og örnólfur Oddsson frá ísa-
firði, og sá drengur á eftir aö
reynast KR-ingum vel. Þá voru
KR-ingar Islandsmeistarar I 2.
flokki i fyrra, og hafa góða stráka
á þröskuldinum. Sæbjörn Guð-
mundsson á eflaust eftir að veröa
einn af betri mönnum íslands-
mótsins i sumar og Magnús Jóna-
tansson þjálfari veit vel hvað
hann ætlar sér með þetta lið. Gott
ár I ár fyrir KR, gæti ég trúað.
Framarar og Vikingar verða
sennilega jafn óútreiknanlegir og
i fyrra. Framarar hafa fengið
Gústaf Björnsson og Jón Péturs-
son aftur, en misst Hafþór Svein-
jónsson og Asgeir Eliasson.
Hólmbert náði ágætum árangri
með þá i fyrra, og með sterka
miðveröi og miðherja er hægt að
ná langt.
Vikingar hafa misst tvo frá i
fyrra, Sigurlás og Gunnar örn, en
fengiðistaðinnHafþór frá Fram,
Gunnlaug Kristfinnsson og Þórð
Marelsson frá Grindavik. Júri
Sedov, hinn rússneski þjálfari
þeirra hefur að sögn Vikinga
svipaðar aðferðir viö þjálfun og
nafni hans Ilitchev, nema hvaö
hann talar skiljanlegra mál. Vik-
ingar hafa ekki náð saman sinu
sterkasta liði i vor vegna meiðsla,
en þegar af þvi verður geta þeir
unnið hvaða lið sem er.
Það er ljóst að i sumar veröur
fyrsta deildin jöfn og spennandi.
Það kemur þvi til með að reyna
all nokkuð á dómarastéttina. Eins
og allir vita hefur orðiö gifurleg
breyting á þjálfun og undirbún-
ingi leikmanna hérlendis á sið-
ustu tiu árum. Dómararnir hafa
verið nokkuð seinir á sér og það
er ekki fyrr en á siðustu þrem ár-
um eða svo að þeir hafa tekiö sin
mál föstum tökum. Dómarar
þurfa æfingu og aftur æfingu, al-
veg eins og leikmenn, og skiptir
engu þótt þeir hafi haft réttindin i
20 ár. Þvi betur þarf bara að æfa.
YFIRSÝN
e ftir'
Guöjón
Arngrimsson
Tuttugu og einu ári eftir valda-
töku Fidels Castro á Kúbu, hefur
hann talið ráðlegast að létta
þrýstinginn i öngþveitisþjóð-
félaginu, sem hann hefur komið
á, með þvi að hleypa óánægðum
þegnum sinum unnvörpum úr
landi. öll ber sú aðgerð fidelskan
svip, þar fara saman klókindi,
duttlungar og fólska.
Sem stendur sigla farkostir
kúbanska útlagasamfélagsins á
Flórida látlaust milli Key West og
kúbönsku hafnarborgarinnar
Mariel, þar sem þeir taka við
flóttafólki. Þegar siöast fréttist
hafði bandariska innflytjenda-
eftirlitið talið yfir 20.000 komu-
menn frá Mariel á rúmri viku, og
var lítið lát á straumnum. Þær
sögur ganga meðal kúbanskra út-
laga, að sökum þess hversu
ástand á Kúbu hefur versnað upp
á siðkastið umfram venjulegar
þrengingar, vaki fyrir Castro að
losa sig við 200.000 til 400.000
manns i þessari lotu.
| | Upphaf flóttamannastraumsins
þessu sinni var að Kúbustjórn
þóttist móögast við mótmæli
sendiherra Perú, sprottin af þvi
að hervörður Kúbumanna við
sendiráðið misþyrmdi löndum
sinum, sem þangaö leituöu til að
komast úr landi, og þegar flótta-
fólk greip fyrir sitt leyti til vopna
og felldi einn varðmanninn við að
ryðja sér braut inn á friðhelga
sendiráöslóðina, kallaði Kúbu-
stjórn verðina á brott og kunn-
geröi, að ekki yrði neitt gert til að
hindra fólk i aö leita hælis I sendi-
ráði Perú.
A nokkrum klukkutimum yfir-
fylltist sendiráð Perú, svo að til
stórvandræöa horföi. TIu þúsund
manns höfðust við á litlum bletti
án nokkurrar aöstöðu til að sinna
daglegum þörf um sinum. Tók nú
kúbanska skriffinnskan við og
gerði sinar ráðstafanir til að láta
Perústjórn vorkennast, með þvi
að neita öllum uppástungum um
skjóta lausn á vandanum sem upp
var kominn.
Múg manns var safnaö saman
til aö fara fram hjá sendiráði
Perú og lýsa fyrirlitningu á
flóttafólkinu sem þar hafðist við.
Þegar nokkrir dagar voru liönir
og ástandið orðið þannig að hætta
var á að drepsóttir kæmu upp,
tóku kúbönsk yfirvöld að hleypa
fólkinu frá sendiráðinu til brott-
farar, en þá var safnað saman i
flugstöðinni óaldarlýð til að hrella
það og hrekja við brottförina.
Farangur var hrifsaður af flótta-
fólkinu, skartgripir rifnir af kon-
um og margir meiddir. Loks voru
flugflutningar flóttafólks til Costa
Rica og annarra landa I
rómönsku Ameriku stöðvaðir, en
þeim sem eftir voru i sendiráði
Perú beint til Mariel, sem Kúbu-
stjórn hafði opnað fyrir fólks-
flutningabátum frá Flórida.
Til Mariel leitaöi ekki einungis
fólk sem komist hafði inn á sendi-
ráðslóð Perú, heldur einnig fjöldi
fólks hvaðanæva að á Kúbu, sem
allt vill i sölurnar leggja til að
komast úr landi. Þegar fréttist að
hæli væri opiö I erlendu sendiráði
i Havana, hófst fólksstraumur
þangað utan af landsbyggðinni.
Farartálmar voru settir á vegi til
höfuöborgarinnar og fólkið gert
afturreka, en þeir sem ákveðn-
Kúbanskur flóttamaður kyssir
flugvallarmalbikið við komuna
frá Havana til San Jose á Costa
Rica.
astir voru i aö komast brott héldu
I þess stað til Mariel, eftir að
fólksflutningar á sjó hófust
þaban.
Meö þvi aö beina flóttamanna-
straumnum til Flórida slær
Castro tvær flugur I einu höggi.
Hann kemur málum svo fyrir, að
hann geti bent á þá sem brott fara
og sagt aö þeir leiti einvöröungu á
náðir erkióvinanna I Bandarikj-
unum, og hann bakar banda-
riskum yfirvöldum verulegan
vanda að takaumsvifalaust við
slyppum og snauðum fólksfjölda.
En þar að auki er ljóst, að
Kúbustjórn sér margvislegan hag
i þvi að losna við mikinn fjölda
þeirra, sem óánægðastir eru með
ástandið i landinu. Eftir ónýta
tóbaksuppskeru og lélega sykur-
uppskeru fara miklir þrenginga-
timar i hönd á Kúbu. Vöru-
skömmtunin, sem staðið hefur frá
1962, verður auðveldari, þegar
færri munna er að metta. At-
vinnuleysi er útbreitt á Kúbu, og
það er nú flutt út til Flórida. Hús-
næöisskortur er gifurlegur I
Havana, og með hverri fjölskyldu
sem flýr land rýmkast um þá sem
eftir verða. Þessar meginástæöur
færa þeir fram, sem telja að
Castro ætli að losa sig við nokkur
hundruð þúsund manns.
Siðan 1976 hafa yfirvöld á Kúbu
engar hagskýrslur birt, en talið er
aö á þvi timabili hafi þjóðarfram-
leiðsla i landinu minnkað um ti-
unda hluta. Stjórnarhættir Castro
hafa oröið til að allir bjargræðis-
vegir eru i ólestri. Þjóðinni nýtast
náttúrugæði landsins á engan
iiátt, vegna þess að atvinnuveg-
unum er ekki stjórnað af þekk-
ingu og fyrirhyggju, heldur duttl-
ungum eins manns, sem notar
herinn, lögregluna og einokun á
fjölmiölum til aö þvinga lands-
fólkið til vanhugsaðra skyndiher-
feröa i atvinnumálum, sem allar
hafa reynst jafn haldlausar. Um
tlma var allt kapp lagt á iönvæð-
ingu, sem fór út um þúfur. Þá átti
að framleiða metuppskeru af
sykri, sem varð til þess eins að
sykurvinnslan fór úr skorðum
jafnframt þvi sem verðið hrap-
aði. Aukin fjölbreytni landbún-
aðarframleiðslu hefur strandað á
þvi, að bændur fást ekki til að láta
þekkingarlausa embættismenn
segja sér fyrir verkum. I ár átti
að stórauka tóbaksframleiðsluna
meö nýjum stofnum, en þeim
fýlgdi blámygla, sem
gereyöilagði uppskeruna.
Nú er svo komið aö byltingar-
eftir
Magnús
Torfa
ólafsson
eldmóðurinn, sem Castro tókst að
vekja fyrstu stjórnarár sin, er úr
sögunni. Valdakerfi hans byggist
annars vegar á hernum, njósna-
kerfi Byltingarvarnarnefndanna,
sem ætlast er til að nái yfir allt
þjóðfélagið, og að þeir menn, sem
„leiðtoginn mikli” telur liklega til
forustu fyrir andstöðu gegn sér og
þvi hættulega, eru grafnir lifandi
eins lengi og honum þóknast i ein-
hverjum óhrjálegustu dýflissum
sem fyrirfinnast. Hins vegar
styðst Castro æ meira við gamla
kjarnann úr Kommúnistaflokki
Kúbu, mennina sem stuttu Bat-
ista einvaldsherra dyggilega á
fyrra valdatimabili hans og fengu
i staöinn yfirráð yfir verkalýðs-
félögum landsins. Nú stjórna
þeir skriffinnsku- og forréttinda-
kerfinu, sem komið hefur verið á
eftir aö raunverulegar vinsældir
Castro fjöruðu út.
Atburður sem skipti sköpum I
þróun mála á Kúbu eftir valda-
töku Castro, varö þegar hann
ógilti fyrstu kosningarnar i
verkalýösfélögum landsins eftir
byltinguna. I kosningunum
sigruöu lýðræðissinnar úr 26. júli-
hreyfingunni, samtökunum sem
voru uppistaöan i byltingarhreyf-
ingunni gegn Batista. Castro
ógilti kosningaúrslitin og setti
yfir verkalýösfélögin nýja banda-
menn sina úr rööum kommúnista.
Nokkru siðar leysti hann upp 26.
júli-hreyfinguna.
Verkamenn á Kúbu eru nú
skyldaðir til aö bera „vinnubók”
þar sem skráö er álit yfirmanna á
starfshæfni þeirra, fjarvera frá
störfum, undirgefni undir vinnu-
aga og afstaöa til stjórnarfarsins.
Kosningar hafa veriö afnumdar i
verkalýðsfélögum eins og öörum
stofnunum, forustumenn er sk\p-
aðir af stjórnvöldum.
CASTRO OPNAR ÖRYGGISSMUGU
Á ÖNGÞVEITISÞJÓÐFÉLAG