Helgarpósturinn - 27.06.1980, Síða 4

Helgarpósturinn - 27.06.1980, Síða 4
4 Föstudagur 27. júní 1980mJlB/QdrpOStUrinrL- NAFN: Hrafn Gunnlaugsson STAÐA: Leikstjóri og rithöfundur FÆDDUR: 17. júni 1948 HEIMILI: Fálkagata 17 HEIMILISHAGIR: Sambýliskona Edda Kristjánsdóttir og eiga þau tvö börn BIFREIÐ: Volkswagen Derby, árg. '17 ÁHUGAMÁL: Ljóð, pönk og Beethoven „SKIL VEL AD PEMPÍUR VERÐISJOKKERAÐAR” Fyrir utan forsetakosningar hefur fátt vakiö jafn mikla athygli manna undanfarna daga og frumsýning kvikmyndar Hrafns Gunnlaugssonar, óhal feöranna. Og eins og venjulega þegar Hrafn á f hlut eru skoöanir manna um kvikmyndina æriöskiptar. Gagnrýnendur eru allir sammáta um aö kvikmyndin sé tæknilega séö meö þvi besta sem herlend- is hefur veriö gert. Þeir eru lika sammála um aö Utiö fer fyrir gleöi I myndinni. Og um þaö hefur veriö rætt aö f henni sé aö finna kvenfyrirlitningu, mannfyrirlitningu, drétttáta mynd af sam- vinnuhreyfingunni ásamt ööru miöur geösleeu. Af þessu tílefní yfirheyrir Helgarpósturinn Hrafn Gunnlaugsson leikstjára aö þessusinnni. Þú lýstir þvl yfir áöur en óöal feöranna var frumsýnd, aö hún væri mynd, sem fjallaöi um Islenska fjölskyldu f sorg og I gleöi. Hvar er gleöin f mynd- inni? ,,Á sama staö og sorgin, f hjörtum þeirra sem koma þar viö sögu.” Hán sést ekki mikiö i mynd- inni. „Yfirleitt er nú hvorki gleöi né sorg sjáanleg. Þó maöur hlæi þarf hann ekki endilega aö vera glaöur, eöa sorgmæddur þó hann gráti. Og viö skulum ekki gleyma þvi aö sé stutt á milli einhverra tilfinninga þá er þaö milli hláturs og gráts”. En er ekki fullmikiö af óláni á þessa fjölskyldu lagt? „Þaö er til gamalt islenskt máltadcisem segir: „Sjaldan er ein báran stök”. Og þaö er svo einkennilegt meö höpp eöa óhöpp eöa hvaö sem er i lifinu aö þaö er eins og þetta hafi ein- hverja raötengingu. Þegar þú segir sögu i mynd á einum og hálfum tima, sem á aö gerast á hálfu ári eöa heilu eöa hvernig sem þaö nú er, þá þjapparöu saman á afskaplega stuttum tima þeim atriöum sem valda straumhvörfum I lifi þessa fólks. Og hvaö er þaö sem veld- ur straumhvörfum I lifi okkar? Jú, þaö eru þau áföll eöa höpp sem viö veröum fyrir. Kvik- myndin er svo lygilegur listmið- ill; hún er fy rst og fremst lygileg vegna þess aö hún er alltaf aö velja. HUn eralltaf aö skera niö- ur tima á meðan skáldsagan geturleyft sér aö teygja hann og sveigja. Vandamál þess manns sem vill gera kvikmynd er af- staöa hans til yrkisefnisins, hvernig hann tekur á þvi. Þetta er ekki spurning um hvort ein- hver raunveruleiki liggi i hverju einstöku skoti. Heldur um þaö hvort afstaöan til efnisins sé heiðarleg”. Vilt þú halda þvi fram aö kaupfélagið sé sú voöalega mafia sem þaö er látiö vera I myndinni? „Þegar búiö er til listaverk er sett inn togstreita, — andstæö öfl sem skapa dramatiska spennu. Eru allir kaupamenn nauögarar eöa forfallnir drykkjuræflar? Allar mæöur I sveit lokaöar inni I heimi ein- búans? Eru allir eldri bræöur I fjölskyldu i lögfræði? Eru öll kaupfélög glæpasamtök? Þetta er spuming um val. ÞU veist aö þessir hlutir geta gerst, — aö þessir hlutir eru tilí* Hefur þú einhver fordæmi? „Ég endurtek, aö þaö er ekk- ert f þessari mynd sem þU getur ekki fundiö dæmi um I raun- veruleikanum. Samvinnuhreyf- ingin og verkalýöshreyfingin voru nauösynlegar á sinum tima til aö efla stéttarvitund manna. En þeir menn eru hættulegastir framsækinni hugsun sem fara aö lita á þessar hreyfingar sem sina privateign, einhvern kóka-kóla sjálfsala, sem þeir geta stungiö I túkall þegar þeim dettur i hug. I þessu liggur raunverulega ekkert annaö, svo vitnaö sé I enn eitt máltækiö, aö „byltingin étur börnin sin”. Allur valdastrúktúr i kringum bændur á tslandi er formgamlaöasta kerfi sem viö búum viö I lýöræöinu. Og þaö er þaö sem þessi mynd vill m.a. fjalla um. HUn vill fjalla um miöstjórnarvald sem er ekki lengur miöstjórnarvald fjöldans heldur einræöisvald spilltra ein- staklinga,” Telur þú forráðamenn sam- vinnuhreyfingarinnar spillta? „Þar eru sjálfsagt til gjör- spilltir menn og stálheiöarlegir, eins og annars staðar. Þaö er engin alhæfing I þessari mynd. Ef menn vilja alhæfa þá eiga þeir ekki aö bUa til listaverk; þá eiga þeir aö skrifa leiöara i dag- blaöi' Er myndin ekki dauöadómur yfir smábændum? „Nei, hUn er hvatning til smá- bænda, aö lita i eigin barm og gera sér grein fyrir þvi aö þaö er hægt aö bUa til betri tlmaV Boöar myndin I heild ekki frekar einhvers konar uppgjöf? „Nei, hUn er frekar hvatning til uppreisnar, vegna þess aö hUn segir: Svona veröiö þiö ef þib gefist upp.” Þaö hefur veriö talaö um kvenfyrirlitningu I myndinni, aö konurnar séu þar hugsunarlaus- ar gljápiur? „Ég hef ekki oröiö var viö neina kvenfyrirlitningu I mynd- inni.” Er það ekki kvenfyrirlitning þegar konurnar eru meira eöa minna látnar vera heimskar eöa hugsunarlausar gljápiur? „Þær eru bara jafn heimskar og hugsunarlausar og hver ann- ar karlmaður. Þurfa allar konur aö vera hetjur og ganga um meö gyllta skildi og glóandi hár? Eöa karlmenn graöfolar meö tittlinginn Ut I loftiö? Máliö er þaö aö þU ert aö segja sögu ein- stæörar móöur, þU ert aö segja sögu ekkju sem stendur I gegn- um þykkt og þunnt meö sinum börnum af hreinu og heiöarlegu hjarta. En hennar afstaöa mót- ast af þvi þjóöfélagi sem hUn lif- ir I. Ef talaö er um hetju hvers- dagsins, þá er þaö I rauninni móöirin I myndinni. Og menn skyldu athuga þaö aö einna nánasta tilfinningasambandiö sem byggt er upp i myndinni er á milli móðurinnar og dóttur- innar.” Þarf einstæöa móöirin f myndinni aö vera drusla? „Er það aö vera einhver drusla og aumingi að lenda i þvi aö leigja manni herbergi mán- uðum saman og hann stendur ekki I skilum viö þig? Eöa aö fara á kenderi meö vinkonu sinni á laugardagskvöldi og þurfa jafnvel á miöju kenderfinu aö fara Ut i þvotta- hús að hengja upp bleyjur? Er þaö aö vera drusla og aum- ingi?” Hún er látin stela af honum peningum? „Stela af honum pening? Hver er það sem stelur pening- um i myndinni? Þaö er kaup- félagsstjórinn og laxveiöi- maöurinn. HUn stelur ekkert af honum peningum; hUn átti þennan pening inni hjá bróöur hans, og henni finnst sjálfsagt aö fá þá i gegnum þessa ávisun. Þaö eru bara konur meö frosiö hold sem sjá kvenfyrirlitningu Ut úr þessari mynd, sem sjá alls staöar kvenfyrirlitningu ef kon- ur eru ekki gerðar aö einhverj- um litlum englum.” Þaö eru til konur sem spjara sig I þessu þjóöfélagi. „Já, myndin fjallar bara ekki um þaö. Þaö getur verið aö næsta mynd muni f jalla um þaö. Þessi mynd velur ákveöna leiö. Þaö eru lika kaupamenn sem eru ekki nauögarar og kaup- félagsstjórar sem ekki eru glæpamenn. Mér finnst þetta heimskuleg umræöa.” En nauðgunin, — heföi ekki veriö eölilegt aö vangefin stúlka færi beint i fóstureyöingu? „Nei, þaö hefði veriö alveg Ut I hött. ÞU sérö þaö ef þU skoðar myndina. Þegar strákurinn kemur heim eftir spltalaheim- sóknina, og segir viö móöur sina aö Helga sé ólétt. Hverju svarar hUn? HUn svarar: „Ég veit þaö”. Og hver er þaö sem ræöur yfir Helgu og hver er þaö sem tekur ákvaröanir fyrir hana? Jú, móöirin og fyrir henni er þaö aö flytja burt eöa láta fram- kvæma fóstureyðingu á dóttur hennar óhugsandi hlutur. Af- staöa móöurinnar er alveg skýr, hún myndi aldrei láta eyöa fóstri eöa eyöa mannlegu lifi. Hennar ást á lifinu stendur upp Ur I myndinni”. Attir þú frumkvæðiö aö þvi aö þessi nauögunarsena var tekin upp f tímaritinu Samúel? „Ég átti ekki á neinn hátt meira frumkvæöi aö þvi en gagnvart öörum blööum. Ég sendi öllum blööunum ljós- myndir Ur þessari mynd. Siðan var þaö þeirra aö sjá hvaö þeim þætti spennandi i myndinni. SamUel er blaö fyrir tippalinga; ef þeir sjá naui^un og ekkert annaö Ut Ur myndinni, þá er þaö þeirra hausverkur. En þaö er ekkert þarna haft eftir mér, ekki stafkrókur!1 Er geldingaratriöiö i mynd- inni ómissandi? „1 mynd er kannski ekkert ómissandi; þetta er spurning um þaö hversu mikiö þú ákveöur aö segja áhorf- andanum.” Heföi myndin ekki sagt þaö sa ma, þó þessu atriöi heföi veriö sleppt? „Ég held ekki. Fyrir meiri- hluta áhorfenda sem sjá þessa mynd, er þessi harðsnúni raun- veruleiki sem menn lifa við I sveit I dag, afskaplega fjar- lægur. Og ég held aö sjokkeri geldingin einhvern, þá sjokkeri hUn mest einhverja smáborg- ara, sem vita ekki i hvaöa landi þeir bUa. Fyrir venjulegan bónda, er þessi gelding jafn sjálfsagöur hlutur og þaö aö þurfa aö klippa á sér negl- urnar.” Hefuröu gaman af þvl aö sjokkera fólk? „t raun og veru skil ég ekki af hverju fólk veröur sjokkeraö yfir mínum verkum. Ég skil vel aö pempiur veröi sjokkeraöar, vegna þess aö þær neita yfirleitt aö horfast I augu viö raunveru- leikann. Þessa dagana er veriö aö gelda tugi hrossa Ut um allt land.” Þú hefur veriö ásakaöur um aö velta þér upp úr ljótleika mannllfsins I myndum þinum. „Ef listin er bara einhver postulinsvasi, sem bregður upp falsmynd af þeim raunveru- leika sem viö lifum i, þá er hUn eitthvað sem ég hef engan áhuga á aö koma nálægt. Þaö sem ég hef áhuga á er aö bæta þennan heim. Sá sem ekki hefur gengiö i myrkrinu skilur ekki hvaö sólin er sterk. Til þess aö skynja birtuna i mannlifinu þarftu lika aö hafa þaö svarta. Ég hef alltaf dáöst aö hugarflugi Miltons um Satan. Aö þaö stóra I Satan sé þaö aö hann var erki- engill á himnum áöur en hann féll ofan i afgrunnið. Þar meö þekki Satan gljfe himinsins og myrkurhelvltis, andstæður hins góöa og illa. Þess vegna sé Satan herra heim«ins, en Guö aöeins grunnhygginn skýja- glópur. Til þess aö veröa lista- maöur þarf maöur i rauninni aö ganga i gegnum þetta fall erki- engilsins.” Af hverju notar þú ekki at- vinnuleikara I myndinni? „Þaö hefur komiö fram mjög heimskuleg gagnrýni I sam- bandi viö val á leikurum I þessari mynd. Þaö er sagt aö ég hrdsi mér af þvl aö nota óreynt fólk, og sé þar meö aö gera mikiö Ur mér sem leikstjóra. Þaö er alls ekki máliö. Ég nota ekki atvinnuleikara, en ég nota leikara. Ég nota fólk sem veit hvaö þaö er aö leika og hefur fengið þessa reynslu á ööru sviði og á öörum stööum. Ástæöan til þess er einfaldlega sU aö fer- tugur maöur getur leikið tvi- tugan mann á sviöi, en þaö er ekki hægt I kvikmynd, sem er mun nærgöngulla listform.” Þaö eru til fullt af atvinnu- leikurum á öllum aldri. „Islenskir atvinnuleikarar eru I rauninni jafn reynslulausir l aö leika I kvikmyndum og is- lenskir áhugaleikarar. Og viö bak við vélina erum lika jafn reynslulaus og leikararnir.” Finnst þér þaö sanngjörn krafa sem leikarar hafa gert, — um aö visst hlutfall leikara I kvikmyndum skuli vera at- vinnuteika rar? „Mér finngt hUn algjörlega Ut i hött. Það geta komiö upp aöstæöurþar sem þú getur ekki kallaö til neitt nema fagfólk. Þá ertu meö verk sem gerir þá kröfu Ut frá sinu yrkisefni. En yrkisefniögetur veriö þess eölis aö þU ert hreinlega tilneyddur, ef þU ætlar aö vera trUr þvi sem þú ert aö segja, aö leita til fólks- ins I umhverfinu sem þú ert aö lýsa.” Svarthöföi var aö velta upp þeirrihugmynd aö þú snerirþér næst aö þvl aö gera kvikmynd um spillingu verkalýöshreyf- ingarinnar, hvernig list þér á þaö? „Yrkisefni i mynd, veljast oftast Ut frá þvl aö þaö er eitt- hvaö sem brennur á þinu skinni.” Spiliing innan verkalýsö- hreyfingarinnar brennur þá ekki á þinu skinni? „Þvi miöur þá hef ég ekki veriö7 ár innan verkalýðshreyf- ingarinnar, eins og ég hef verið 7 ár i sveit. Ég held aö ég væri afskaplega ófær um aö fjalla um hana á þann heiöarlega hátt sem reynt er aö fjalla um fjöl- skylduna I Óðali feöranna.” Ertu farinn aö huga aö næstu kvikmynd? „Ég er mikiö aö hugsa um kvikmynd f dag.” Um hvaö á hún aö fjalla? „Ef þaö er eitthvaö sem mig langar til aö fjalla um I dag, þá er þaö helst fölsunin á hug- takinu hetja i Islenskum sam- tima.” eftir Ernu Indriðadóttur

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.