Helgarpósturinn - 01.05.1981, Side 6
,v ''f tMfiMm
Nýi hafnargaröurinn þykir fallegur úr flugvéi.
Vopnafjöröur:
Nýi hafnargarðurinn
hefur vakið deilur
Okkur er þetta gjörsamlega
öskiljanlegt, og höfum skrifaö
ráöherra bréf þar aö iútandi”,
sagöi Smári Geirsson, sveitar-
stjóri i Vopnafiröi í samtaii viö
Aöalblaöiö, en i Vopnafiröi rfkir
nú talsverö óánægja meö nýja
hafnargaröinn þar.
„Okkur þykir garöurinn
óneitanlega fallegur”, sagði
Smári, „en i ljós hefur komiö aö
mjög erfitt er fyrir sæfarendur
aö stýra skipum sinum útúr
honum, eftir aö þau eru einu
sinni komin i hann. Auk þess
veitir hann bryggjunni sjálfri
ekki skjól”.
1 framhaldi af þessum um-
mælum Smára haföi Aöalblaðiö
samband viö Gunnar Sigurðs-
son, arkitekt, en hann og teikni-
stofa hans sáu um hönnun
hafnargarðsins. Gunnar og
teiknistofan hafa mikla reynslu
viö hönnun mannvirkja af þessu
tagi, og Breiöholt 3 hverfiö er til
dæmis frá þeim komiö. „Viö
leituðumst viö aö fella þennan
garö eins vel og mannlega aö
umhverfinu og hægt var”, sagöi
Gunnar, þegar Aöalblaöiö
spuröi hann um þá gagnrýni
sem fram hefur komið. „Ef
fólkiö þarna fyrir austan kann
ekki aö meta þetta, þá getur þaö
bara hannað sina garöa sjálft i
framtiöinni. Viö höfum tekiö
mikiö tillit til umhverfis og
náttúruverndar viö hönnunina,
og mér finnst persónulega
garöurinn mjög fallegur úr lofti.
Krókur hefur lika táknræna
merkingu, en helduröu aöAust-
firöingar geti fattaö þaö? ” sagöi
Gunnar Sigurðsson, arkitekt að
lokum.
Hjörleifs
Niöurstööur i virkjunarval-
kostsmálum landsins liggja
ekki allskostar fyrir enn. Þá
hefur dregist lltilsháttar að
ganga frá stóriöjumálunum.
Ekki hefur enn verið gengiö
frá lögum um eflingu iönaöar i
landinu. Innan skamms munu
liggja fyrir niöurstöður rann-
sóknarnefndar um Alverið. Nú
einhvern næstu daga veröur
haldin ráöstefna um orkumál
á Vestfjöröum.
Streytunámskeið
í Domus Medica
Hef ur þú áhyggjur? Hvað angrar þig? Veðr-
ið? Vinnan? Lífsgæðakapphlaupið? Sjúkdóm-
ar? Gunnar Thoroddsen? Styrjaldir? Að fara
út með rusliðá kvöldin? Að koma fram opin-
berlega? Eldingar? Yfirmaðurinn? AAistök?
Tilhugsunin um að vera settur inná geðveikra-
hæli fulitaf listamönnum? Kynþáttamisrétti?
Lög og réttur? Streitan? Að þurfa að fara á
fætur á morgnana og eiga kannski eftir að
fara í bankann og borga þrjá víxla? Ofneysla
áfengis? Bilaður bíll? Að detta niður af svöl-
um á annarri hæð og klessast niður í grasið
þannig aðöll skilningarvit bókstaflega fyllist
af mold? AAyrkrið? Dauðinn? Kuldinn? Eða
hitinn? Taugarnar? Peningaleysi? Atvinnu-
leysi? Einmanaleiki? Vaxandi söluerfiðleikar
áfreðfiskiá Bandaríkjamarkaði? Umferðin?
Sjónvarpsdagskráin? Oskur og læti? Ofbirta?
AAagakvalir á nóttunni? Glæpir? Tannlæknir-
inn? Langtímaáhrif verðbólgunnar í Vestur-
Evrópu á skinnasölu í markaðslöndunum, og
af leiðingar hennar fyrir innlendan loðdýrabú-
skap? Trúmál?
Ef svo er þá leitið ekki til okkar. Við hlust-
umá ykkur, tölum viðykkur, en sendum ykk-
ur frá okkur ennþá óstyrkari og taugaveikl-
aðri en þið komuð. Viðerum bara mannlegir.
Fáið ykkur frekar bók að lesa eða eitthvað.
Læknafélag íslands.
„KEMUR MJOG
A ÓVART”
— segir utanríkisráðherra
um síðasta tromp Grænlendinga í
miðlínudeilunni
A blaöamannafundi sjávarút-
vegsráöherra og utanrikisráð-
herra i gær tilkynntu ráöherrarn-
ir aö tslendingar hyggöust standa
fast á rétti sinum i deilunni sem
kominn er upp um miðlinuna
milli tslands og Grænlands.
Aö sögn utanrikisráöherra fer
þaö ekki milli mála I fornum
heimildum aö viö Islendingar
ekki bara fundum Grænland á
sinum tima, heldur vorum viö
einu ibúarnir um margra áratuga
skeiö. „Ég tel ekki vafa á aö viö
eigum tilkall til eyjunnar og
veiöiréttinda viö hana, bæöi á
sögulegum forsendum og eins
vegna þess aö fiskstofnarnir viö
strendur Grænlands eru I raun-
inni okkar stofnar”, sagöi utan-
rikisráöherra.
Ráöherrarnir tveir munu fara
fyrir nefnd til Noregs þar sem
rætt verður viö Grænlendinga
sjálfa um þessi mál, en Græn-
lendingar hafa óvart lagt fram
þær kröfur á viökvæmu stigi i
samningaumleitunum, aö fá að
halda réttindum sinum hvaö
varöar selveiöar. „Okkur kom
þetta mjög á óvart”, sagöi ólafur
Jóhannesson, utanrikisráöherra,
„þar sem ljóst er aö viö ís-
lendingar veiddum sel viö Græn-
land á árunum 1235 til 1245, eins
og fram kemur i Landsbók.”
Þegar ráðherrarnir voru spurö-
ir um tilkall Islendinga til Banda-
rikja Noröur-Ameriku, vöröust
þeir svara, og sögöu óráöiö aö
nokkuö birtist um þau mál i is-
lenskum fjölmiölum aö sinni.
„Við gætum misst þau, eins og viö
viröumst vera aö missa Jan May-
en”, sagöi Olafur.
Randall til vinstri og kótilettan til hægri. Fjær má greina Ævar R.
Kvaran, en ef fleiri andlit sjást á myndinni þá hefur eitthvaö yfir-
náttúrulegt skeö.
„íslenska lambakjötið
með dulræna hæfileika”
Hér á iandi er nú staddur kjöt-
iönaðarmaöurinn og dulsálar-
fræðingurinn Parker Randali,
prófessor viö Leeds háskóiann i
Bretiandi. Randall dvelur á Is-
landi i vikutima og heidur tvo
miðilsfundi.
Randall beitir sérstökum að-
feröum viö aö ná sambandi viö
látna, og hún byggir m.a. á sér-
þekkingu hans á kjöti. Hann kem-
ur meö sérstaklega valda kjötbita
á fundi sina, og meö þeim hefur
honum tekist aö ná sambandi viö
fólk sem i jarövist sinni unni góöu
kjöti. Myndin hér aö ofan er frá
fundi sem Randall hélt i Kjötmiö-
stöðinni i gærkvöldi, en þar kom
fram miöaldra maöur þegar hann
dró fram lambakótilettu. Maöur-
inn haföi átt kótilettur fyrir uppá-
haldsmat, meöan hann var á lffi,
en Randall segir islenska lamba-
kjötiö búa yfir miklum dulrænum
hæfileikum.
Siðari fundur Randalls hér á
landi veröur i kvöld i kjötiönaöar-
stöö SS viö Skúlagötu. Allir eru
velkomnir, nema jurtaætur.
Pálmi Jónsson, landbúnaöarráö-
herra veröur sérstakur heiöurs-
gestur.
Erlend myndsjá
Þórshöfn, Færeyjum —
Færeyska sjávarútvegsráöiö
tilkynnti i gær aö könnun á
gerö vins úr sjó væri langt
komin og lofaöi góöu. Er
sjórinn sagður blandaöur með
ýmsum köfnunarefnum og
súltrötum, meö þeim árangri
aö franskir vinsmakkarar
þekktu ekki muninn á hafinu
og Chatau Chalbot ’47. Fær-
eyingar halda uppskriftinni
leyndri, þvi eins og Jakvan i
Lóni, Færeyski sjávarútvegs-
ráöherrann sagöi: „Vi
Förjingar getum vist sopaö
hetta sjálvir, gamli”.
Los Angeles, Kaliforníu.
Þrir Grænlenskir landkönn-
uöir, frá Kasatiumztu á vest-
urströnd Alaska telja sig hafa
fundiö vesturpólinn á bila-
stæöi i suö-vestur hluta Los
Angeles i Caiiforniu. A mynd-
inni er leiðangurstjórinn, Dr.
Mangulusuk I miöjunni meö
vfsindamenn til sitt hvorrar
handa, aö taka myndir af þvi
þegar Grænlenski fáninn var
reistur á bilastæöinu.
Antwerpen, Beigiu —
Claude Perreau, fyrrverandi
skólastjóri, kynnti nýlega
fyrir fréttamönnum tækninýj-
ung sem hann kallar „kúst -
skemmtara”, og mun binda
endi á leiöindi þau sem hingaö
til hafa fylgt hreingerningum.
Kústurinn er knúinn rafmagni
og sópar hann sjálfur þaö sem
hann er beðinn um. Auk þess
er innbyggt i hann útvarp og
kassettutæki,
Kaupmannahöfn, Dan-
mörku
— Jens Kagerup var nýlega
skráöur i heimsmetabók
Guinnes fyrir aö búa minnsta
búi i heimi. Jörö hans er skráö
einn fermetri aö stærö, i land-
búnaöarráöuneytinu danska
og ér staösett við Kongens
Nytorv. A slöasta ári fékk
Jens fjárhagsaðstoð uppá 30
þúsund danskar krónur i formi
styrkja og niðurgreiöslna fyrir
að rækta ekki sauðfé. Hann
heldur þó geit „vegna mjólkur
og félagskapar”, eins og hann
sagöi.