Helgarpósturinn - 01.05.1981, Page 24
hplgarpásturinn Föstudag ur 1. maí 1981_
Taktuekki óbarfa áhættu!
Sölu og þjónustumaður
Bílaborgar h.f. tekur við bíl
til sölumeðferðar.
Þjálfaður viðgerðarmaöur yfirfer allt gangverk og
öryggisbúnaó og lagfærir það sem þörf erá.
Blllinn afhentur kaupanda I
1. flokks ástandi og með 6
mánaða ábyrgð.
Notaöir Mazda bílar meö 6 mánaöa ábyrgö.
Þeir sem kaupa notaöan Mazda bíl hjá okkur geta veriö fullvissir úm
aö bíllinn sé yfirfarinn, nýstilltur og í fullkomnu lagi og aö ef leyndir.
gallar kæmu íIjós myndi Bílaborg h.f. lagfæra þá aö kostnaöarlausu.
Firriö yöur óþarfa áhættu í kaupum á notuðum bíl...
Kaupiö notaöan Mazda meö 6 mánaöa ábyrgö.
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23,/sími 812 99.
• Sovéskir sendiráösstarfs-
menn komust i fréttirnar i vik-
unni eftir að uppvist varö um
hnupl sendiráðskvenna. En
sovéskir sendiráösmenn eru um-
svifamiklir einnig á öörum
sviöum. Ýmsir hafa veriö ugg-
andi yfir húsakaupagleöi sovéska
sendiráösins i kringum Tún-
götuna og nú heyrum viö aö
sendiráöiö sé búiö aö festa kaup á
tveimur húsum til viöbótar á
þessum slóðum — nánar tiltekiö
viö Sólvallagötuna. Heyrum viö
aö jafnvel mörgum innan is-
lensku utanrikisþjónustunnar sé
fariö aö þykja nóg um og menn
tali um þaö sin á milli hvort ekki
sé oröiö timabært aö setja ein-
hverjar hömlur á húsakaup
Rússa hér á landi, ekki sist vegna
þess aö á sama tima þarf islenska
sendiráöiö I Moskvu aö sæta
margháttuöum takmörkunum og
þrengingum af hálfu þarlendra
yfirvalda....
• Gh'muskjálfti út af bæjar- og
sveitarst jórnarkosningum á
næstaári er aðeins farinn aö gera
vart viö sig. úr röðum
Framsóknarmanna i Reykjavik
heyrum viö aö nú sé afráöið að
Kristján Benediktsson, sem veriö
hefur oddviti framsóknar i
Reykjavik um árabil, sé búinn aö
tilkynna flestum samherjum sin-
um aö hann ætli ekki aö vera
áfram i framboöi og hafi hannsett
stefnuna á starf iþróttafulltrúa
rikisins. Á mörgumFramsóknar-
mönnum er aö heyra aö viö þetta
hafi skapast hálfgert tómarúm á
framboðslistanum i Reykjavik,
þar sem ekki séu allir á eitt sáttir
um það hversu sterk framboð
þeirra Eiriks Tómassonar og
Geröar Steinþórsdóttur séu, þvi
aö þó þau hafi komið næst á eftir
Kristjáni i siöustu kosningum, þá
séu þau litt þekkt utan flokksins
og frami þeirra byggist fyrst og
fremst á ættartengslum. Vitaö er
aö töluvert er róiö I Alfreö
Þorsteinssyni um aö hella sér
aftur I slaginn og óneitanlega
vakti það nokkra athygli á dögun-
um að á íúndi hjá framsókn hér i
borginni á dögunum lét Alfreð
töluvert að sér kveða og hélt m.a.
upp harðri gagnrýni á meirihlut-
ann i borgarstjórn fyrir Rauða-
vatnshugmyndir sinar i skipu-
lagsmálum. Hins vegar hefur
Alfreð ekkert viljað gefa ákveðið
upp hvað hann hyggst fyrir i
, framboösmálum og jafnan látið i
þaö ski'na að hann uni vel sinum
hag i Sölunefnd varnarliöseigna.
• Þaö er viöar togstreita i Sjálf-
stæöisflokknum en milli Gunnars
og Geirs og þeirra hatrömmustu
stuöningmanna. Framundan eru
stjórnarkosningar i Heimdalli,
félagi ungra Sjálfstæöismanna i
Reykjavik. Núverandi formaöur
Heimdallar, Pétur Rafnsson
hyggst láta af störfum, enda
rennir hann hýru auga til em-
bættis formanns Sambands ungra
sjálfstæðismanna. Aöalfundur
Heimdallar var auglýstur þann
25. april s.l. og haföi þá veriö
gengiö frá þvi aö Arni Sigfússon
blaöamaður VIsis hreppti hnossiö
og varaformaöur hans yröi Gunn-
laugur Snædal.Höföu flestir stóru
strákarnir i SUS, (Jón Magnús-
son formaöur SUS Júllus
Hafstein, formaöur Handknatt-
leikssambandsins og fleiri) lýst
sig ánægöa meö þá niöurstööu.
Siöan skipuöust veöur i lofti og
Pétur Rafnsson og Július Haf-
stein, sem hyggur á borgar-
stjórnarframboö næsta vor, töldu
Arna ekki nægilega tryggan sér
og báöu um frest á fundinum.
beir hafa nú fundiö mótframbjóö-
anda sem þeir telja sér tryggan.
Þaö er Björn Hermannsson flug-
virki og hans varaformaöur yröi
Jón BragiGunnlaugsson.Stefnir i
hatramma kosningu. Erfitt er að
henda reiðurá Gunnars/Geirslin-
um I þessu sambandi, heldur
viröist hér um glimuskjálfta hjá
ákveönum póstum unghreyfingar
sjálfstæöismanna. Nei, hann
virðist sjaldgæfur einhugurinn
hjá sjálfstæðismönnum þessar
vikurnar og virðist þá sama hvar
borið er niður...
• Nú standa fyrir dyrum for-
setaskipti i Bandalagi Islenskra
listamanna. Thor Viihjálmsson
rithöfundur, sem veriö hefur for-
seti má ekki sitja lengur sam-
kvæmt lögum sambandsins. Sá
fyrsti sem var tilnefndur sem
eftirmaður Thors er Jón Nordai
tónskáld, og virtist góö samstaöa
meöal félaga um hann. En Jón
aftók meö öllu aö gefa kost á sér á
fundi BÍL fyrir skömmu. Þá
komu tvær nýjar uppástungur um
nýjan forseta BIL, þau Hrafn
Gunnlaugsson og Þorgeröi
Ingólfsdóttur tónlistarmann...
• Koma stórmeistarans
Korchnojs var um margt merki-
leg og þó kannski merkilegust
fyrir þá sök hvernig hún endur-
speglaöi þá úlfúö sem veriö hefur
innan Skáksambands tslands allt
frá þvi aö stjórnarskipti uröu þar
á siöasta aöalfundi sambandsins
og dr. Ingimar Jónsson lagði
Einar S. Einarsson I formanns-
kjöri. Viö heyrum tam. aö þegar
forsvarsmenn stuöningsnefndar
fjölskyldu stórmeistarans hafi
verið aö safna hinum 100 undir-
skriftum til stuönings Korchnoj
og fjölskyldu hans, hafi þeir
Einar S. Einarsson og Högni
Torfason, sem voru aöalmenn i
móttökunefnd Korchnojs, oröiö
æfir þegar spuröist aö bjóöa ætti
dr. Ingimar aö skrifa nafn sitt á
listann og um tima jafnvel haft i
hótunum um aö Scrifa þá ekki
nafn sitt á listann. Þegar mót-
tökunefndin fékk siöan þaö hlut-
verk aö útdeila miöum i veislu
borgarstjórnar i Höföa, dreiföu
nefndarmenn samviskusamlega
miöum til allra þátttakenda i
landsliösflokknum á Skákþingi
tslands nema hvaö Asgeir Þ.
Asgeirsson fékk engan miða. -
Hann er ritari I stjórn Skáksam-
bandsins. Sigurjón Pétursson,
forseti borgarstjórnar, mun hafa
haft spurnir af þessu og þá boöið
Asgeiri persónulega til veisl-
unnar en Asgeir hins vegar af-
þakkaö boöiö. Allt segir þetta
nokkuð um þær væringar sem
geta oröiö á aöalfundi Skáksam-
bandsins 30. mai nk. enda munu
Ingimar og hans menn vera
komnir á fullt I aö tryggja honum
endurkjör á sama tima og andófs-
mennirnir, sem kalla sig gjarnan
siálfa „lýöræöissinna”, leitá nú
að mótframbjóöanda gegn dr.
Ingimar. I þvi sambandi hefur
veriö nefndur Gísli Arnason, eins
og viö höfum áöur sagt frá, og nú
upp á siökastiö Þráinn
Guömundsson skólastjóri, sem
var i núverandi stjórn sam-
bandsins en sagöi sig úr henni...
#Og af þvi aö veriö er aö tala
um skák. Viö höfum frétt aö
óskaö hafi veriö eftir þvi viö Guö-
mund Arnlaugsson, aö hann taki
aö sér aö veröa einn þriggja dóm-
ara þegar þeir Karpov og
Korchnoj ieiöa saman hesta sina
um heimsmeistaratitilinn I skák
seinna á árinu...
• Þing Körfuknattleikssam-
bands Islands verður haldiö um
helgina. Mikil gróska hefur verið
ikörfuknattleik á siöustu árum og
körfuknattleiksfélögin hér mörg
hver fariö inn á nýjar brautir,
m.a. meö þvi aö ráöa bandarfska
leikmenn I liö sln samkvæmt
heimild KKt. Nú heyrum viö aö á
þingi KKI muni koma fram tölu-
vert kröftugar raddir I þá veru aö
þetta heimildarákvæði veröi
afnumið og körfuknattleikurinn
innlendi veröi aftur byggöur ein-
göngu upp á innlendum leik-
mönnum. Treysta menn sér ekki
fyrirfram aö spá til um það hvort
þetta sjónarmiö veröur ofan á en
ljóst aö þaö mun einnig eiga sér
kröftuga andmælendur sem halda
þvi fram aö bandarisku leik-
mennirnir eigi ekki lítinn þátt 1
velgengni körfuknattleiksins hér
á landi á siöustu árum...
• Popptónlistariífiö i Reykja-
vik hefur veriö mjög svo fjörugt
undanfarna mánuöi, þar sem
hverjir tónleikarnir hafa rekiö
aöra. Allt útlit er fyrir, fiö
sumariö og haustiö veröi jafn
blómleg. Viö höfum heyrt, aö eitt
stærsta nafn framúrstefnupopps-
ins, Brian Eno, hafi gert fyrir-
spurnir I Hljóörita um upptöku-
tima, og mun kappinn væntan-
legur hingaö I júni, ef af veröur.
Hins vegar er ekki útséö hvort
hann muni þá jafnframt halda
tónleika. Þá standa einnig yfir
þreifingar um aö fá hingaö meö
haustinu einhverja stærstu
grúppu Ameriku fyrr og siöar,
Santana. Nýbylgjurokkarar
munu væntanlega fá sinn skerf
lika, þvi nú er unniö aö komu
tveggja breskra sveita sem leika
þessa tegund tónlistar. Þær eru
Cabaret Voltaire og Fail. Einnig
hefur heyrst, aö veriö sé aö reyna
aö fá löggubandiö, eöa
Police.til aö lenda hér á skerinu
einhvern tima i næstu framtiö.
Viö skulum bara vona, að þessar
ágætu hugmyndir veröi aö veru-
leika, og aö þannig veröi rofin sú
einangrun, sem islenskir popp-
unnendur hafa veriö i um langt
árabil...
• Dómsmálaráöuneytiö fær oft
hin undarlegustu mál til af-
greiðslu, eins og eftirfarandi
dæmi sannar: Kunnur borgari
lést ekki alls fyrir löngu. Hann
haföi veriö þrigiftur, en aöeins átt
börn meö konunni i miðiö. Þegar
hann var jarösettur var honum
vaiinn hvilustaöur viö hliö konu
nr. 2, sem hann haföi átt börnin
meö. Þriöja konan, sem liföi
mann sinn vildi hins vegar ekki
una þessu þegar á leið og sótti
mál sitt svo fast aö dómsmála-
ráöuneytuö gaf á endanum leyfi
til aö maöurinn skyldi grafinn
upp og fenginn legustaður annars
staöar i kirkjugaröinum....
• Það getur oft borgaö sig. aö
þora í viöskiptum. Hér fylgir
örlitil saga, hvernig hægt er að
græöa stóran pening á skömmum
tima og þar sem áhættan er alls
ekki svo stórkostleg. Flestir
muna eftir strandi bátsins Sigur-
bárunnar fyrir nokkrum vikum.
Eigendur bátsins fengu hann
borgaöan upp i tq>p af Trygg-
ingarmiðstöðinni og er taliö að
þær greiöslur hafi fariö yfir
milljarð gamalla króna. Þegar
þetta geröist var báturinn enn á
strandstað og Trygginga-
miðstööin ákvaö aö selja bátinn,
þar sem hann lá á strandstað.
Kaupandi var, Björgun h/f og
mun kaupverð hafa veriö 79
gamlar milljónir. Siöan þurfti
Björgun h/f, að ná bátnum af
strandstað og gera á honum lag-
færingar, þar sem hann var nokk-
uð skemmdur eftir strandiö. Þær
viðgeröir munu hafa kostaö i
kringum 230gamlar milljónir. Nú
hefur Björgun boðið bátinn út og
er búist viö að hann seljist á góöu
verði i kringum 800—900 gamlar
milljónir. Kunnugir reikna dæmið
þannig Ut að Björgun h/f fái út I
hreinan gróöa, ekki undir 400
gömlum milljónum vegna
ævintýrisins i kringum Sigurbár-
una. Það myndu nú sum fyrirtæk-
in vera á grænni grein eftir slik
uppgrip i viðskiptum.