Helgarpósturinn - 26.06.1981, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 26.06.1981, Blaðsíða 7
Föstudagur 26: júní 1981 7 Jielgarpósturínn. KristjánCtil vinstri)og Ingimundur Magnússynir Kristján og Ingimundur á Ijósmyndastofu sinni um fermingu. áriö 1981 Kristján og Ingimundur Magnússynir: Aldrei sérlega samrýmdlr — Við höfum aldrei verið sér- staklega samrýmdir, enda aexl- aðist svo til að þegar ég var sjö ára þvæklist ég til afa og ömmu og var þar í sex ár, segir Kristján Magnússon ljösmyndari. Raunar er hann þekktari sem pianóleik- ari, en fáir vita hinsvegar, að hann er upphaflega húsgagna- bólstrari. Ingimundur bróðir hans lærði á hinn bóginn trésmiði en söðlaði seinna yfir i ljósmyndun og hefur stundað hana siðan, nii siðustu árin hafa þeir bræður rekið ljós- myndastofu i Reykjavik i félagi. — Við höfum aldrei orðið varir við neina svona leynda þræði á milli okkar, eins og oft er talað um að séu á milli tvibura. Ætli það geti ekki verið vegna þessa aðskilnaðar okkar I æsku, og lika vegna þess, að Stjáni fór snemma að spila og var burtu öll kvöld. Hinsvegar veit ég alltaf þegar si'minn hringir, ef það er konan min! Það er Ingimundur sem hefur orðið, og þeir fara að rifja upp bræðurnir, hvernig þetta var allt saman. — Við vorum aldrei neitt sér- staklega mikið saman, jafnvel eftir að ég flutti heim aftur. Það var helst að við færum saman á skiði með pabba. En við vorum mjög mikið með öðrum tviburum frá þvi' um fermingu og lengi frameftir. En sitthvorum tvíbur- anum. Þegar við vorum yngri vorum við þó tvö sumur i sveit á sama bæ. Þá fór Ingi á næsta bæ, og mér féll það ákaflega þungt, fannst ég vera orðinn mjög einn, segir Kristján. Báðir hafa þeir bræður gaman af tónlist,og það var eiginlega til- viljun, að Ingimundúr varð ekki hljóöfæraleikari eins og Kristján. Þegar þeir voru um fermingu mynduðu þeir litla hljómsveit, með Jónasi Guðmundssyni, sem nd er rithöfundur, en hann lék á trommur. Þá vildi svo óheppilega til, aö klarinetta Ingimundar eyðilagðist, og á þeim árum var erfitt að fá hljóðfæri, svo tón- listarferill hans var þar með á enda. — Það varð ekki meir Ur þvi, og siðan hef ég látið mér nægja að spila á grammofón — og smiða utanum hátalara, segir Ingi- mundur um það. Að sjálfsögðu verða þeir bræður mikið varir við það, að þeir eru talsvert Ukir i Utlit, eða voru það sérstaklega á yngri árum. — En mér, finnst, að fólk sem hefur oft ruglast á okkur veröi hissa þegar það sér okkur saman og þekkir okkur auðveldlega i sundur. Þaö ruglar sjálfsagt að við skulum báðir vera i þessu starfi, segir Ingimundur, og viðurkennir fúslega, að ljós- myndadelluna hafi hann upphaf- lega fengið frá Kristjáni sem svona gott. Annars erum við dá- litið ólikir i skapinu. MagnUs er fljótari að reiðast, en ég er skap- betri og afskaplega þolinmóður. Þegar við vorum að alast upp hafði ég hinsvegar yfirleitt orö fyrir okkur enda er ég fimm sentimetrum hærri en hann, þreknari — og tiu minUtum eldri, segir Sæmundur, og MagnUs bætir við: Sæmi er glað- hlakkalegri, ég alvörugefnari. Ofthafa þeir bræður reynt það, að fólk ruglar þeim saman. Mest er um að MagnUs sé tekinn fyrir Sæmund, sem eðlilegt er vegna. frægðar hans sem rokkari á sinum tima og starfa hans i lög- reglunni. Það ruglar svo enn frekar, að þeir hafa unnið við dyravörslu báðir tveir, um timaá sama staðnum. Að öðru leyti hefur lifshlaup þeirra bræðranna verið ólikt. Sæmundur lærði hUsasmiði og vann við þær i 13 ár, þar til hann gekk I lögregluna. MagnUs er hinsvegar raftæknifræðingur, vann áður hjá IBM, en er nU full- tnii hjá Rafmagnsveitum rikis- ins. byrjaði að fikta við myndatökur um fermingu. Vegna starfs sins i hljómlistinni hefur Kristján kynnst aragrUa af fólki f gegnum árin, og Ingi- mundur hefur oftlega orðið heldur betur var við það. — Ég hef oft verið beðinn að spila, og stundum segist ég alls ekki vilja gera það vegna þess að ég sé að skemmta mér! Ef ég hefði reynt að skýra málið hefði Kristján kannski verið skamm- aður fyriraðreyna að vera „kost- bar”.Enég hef líka notið góðs af þessu og t.d. hefur mér veriö hleypt orðalaust inn á skemmti- stað eftir lokun vegna þess, að einhver hefur þóst sjá Stjána fyrir utan! Svo hefur okkur lærst smám saman að heilsa bara öllum sem heilsa manni. Ég nikka yfirleitt alltaf á móti, þvi annars fær Stjáni að heyra hvað hann sé hel- viti merkilegur meö sig, „bara heilsar manni ekki”, segir Ingi- mundur. Og ekki er fyrir þvi að fara, að þeir bræður séu samstiga i barnafjölda, Kristján á eitt en Ingimundur tvö. Hinsvegar býr sonur Ingimundar með tvibura- systur og eins og menn vita vilja tviburafæðingar oft leggjast i ættir. En ekki viljum við fullyrða að tvfburar í báðumættum tvö- faldi líkurnar á tviburafæöing- um! Kynntu þér betur kerfið okkar! Video 2000, það er framtíðin Þróunin í myndsegulbanda- kerfunum síðustu árin hefur verið svo ör að erfitt hefur verið að henda reiður á framtíð hvers og eins þeirra. Við höfum t. d. beðið átekta og boðið tvö kerfi og því verið óháðir innbyrðis samkeppni þeirra. En þrátt fyrir það höfum við nú látið sannfærast af reynslu okkar, virtum sérfræðingum á þessu sviði og gagnrýnendum fagrita sem margir hverjir hafa endanlega tekið af skarið og staðfest þá trú að evrópska VIDEO 2000 kerfið sé það sem koma skal. Hið fullkomna framtíðarkerfi. í fyrsta lagi: DTF, afgerandi yfirburðir. Það sem veitir VIDEO 2000 kerfinu afgerandi yfirburði og sérstöðu er ekki síst DTF (Dynamic Track Following) og eiginleikar þess. Þetta er stórkostleg uppfinning sem tryggir gallalausa mynd og alhliða möguleika á skiptum kassetta á milli allra tækja innan VIDEO 2000 kerfisins. Þetta fullkomna rafeindastýrða stjórnunarkerfi á upptökum og afspilun þýðir það að myndhausinn fylgir sjálfkrafa upptökumerkinu á bandinu og þannig eru bestu möguleg gæði tryggð við afspilun. í öðru lagi: Tvöföld kassetta. VIDEO 2000 kerfið er það eina sem getur boðið 2x4 stunda kassettur. 8klst.meðan aðrir bjóða í mesta lagi 3-4 klst.Þetta þýðir hvorki meira né minna en tvöfalt upptökumagn og allt að helmingi lægra verð pr. klst. Viö könnun á veröi kassetta á markaðnum í Reykjavík 20/5 1981 kom í Ijós aö VIDEO 2000 kassettan kostaði frá 61-81 kr. pr. klst. á meðan kassetturfyrirönnur kerfi voru á verðinu frá 110-148 kr. pr. klst. í þriðja lagi: Framléiðendur sannfærast. Það eru fleiri en við sem hafa látið sannfærast, því nú þegar hefur 21 framleiðandi á myndsegul- bandstækjum fylkt sér undir VIDEO 2000 kerfið, þar á meðal jöfrar eins og GRUNDIG, PHILIPS, ITT, LUXOR, B&O, SIEMENS. VIDEO 2000 Laugavegi 10 Sími: 27788 Þvíbetur sem þú kynnir þér myndsegulbönd því hrif nari verðurðu af Grundig 2x4 plus.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.