Helgarpósturinn - 26.06.1981, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 26.06.1981, Blaðsíða 19
he/garpásturinn Föstudagur 26. júní 1981 19 NNAR LEIÐARVÍSIR HELGARINNAR LEIÐARVÍSIR ^^ýningarsalir Galleri Langbrók: Guðbergur Auðunsson sýnir verk sin. Opið daglega kl. 12 -18, Laug- ardaga og sunnudaga kl. 14 - 18. Sýningunni lýkur 29. júni. Torfan: Sýning á leikmyndum Messiönu Tómasdóttur. „...Messiana er greinilega fjöl- hæfur leiktjaldamálari sem veld- ur ólikum og margþættum verk- efnum og leysir þau á fágaðan og hugmyndarikan hátt.” _ HBR. Listasafn Einars Jónsson- ar: Opið alla daga nema mánudaga. Nýja galleríiö/ Laugavegi 12: Alltaf eitthvað nýtt að sjá. Ásgrímssafn: Safnið er opið sunnudaga, þriðju- daga og fimmtudaga kl. 13.30—16. Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar: Opið á þriðjudögum, fimmtudög- um og laugardögum frá klukkan 14 til 16. Bogasalur: Silfursýning Sigurðar Þorsteins- sonar verður i allt sumar. Sigurður þessi var uppi á 18 öldinni. Rauða húsið Akureyri: A laugardaginn opnar Sigrún Eldjárn sýningu á teikningum og graffk, en Sigrún stundaði nám við Myndlista- og handiðaskóla íslands á árunum 74—77, auk þess sem hún lærði i Póllandi um hrið. Sýningin stendur til sunnudagsins 5. júli og er opin frá kl. 15—21 alla daga. Kjarvalsstaðir: Sumarsýning i Kjarvalssal. Sýnd eru verk eftir meistara Kjarval, úr eigu Reykjavikurborgar. í vestursal og á göngum eru verk eftir 13 islenska listamenn sem ber yfirskriftina: Leirlist, gler, textill, silfur, gull. — sjá kynn- ingu „...verðugt og timabært inn- legg i baráttunni gegn meðvit- undarleysi okkar i listrænum efnum. Vonandi ýtir hún undir skilning á listhönnun og nauðsyn þess, að hlúð sé sem mest og best að öllum sviðum hennar”. — HBR. Kirkjumunir: Sigrún Jónsdóttir er með batik- listaverk. Listasafn islands? Litil sýning á verkum Jóns Stef- ánssonar og einnig eru sýnd verk i eigu safnsins. 1 anddyri er sýn- ing á grafikgjöf frá dönskum málurum. Safnið er opið daglega frá kl. 13.30—16.00 Árbæjarsafn: Frá 1. júni til 31. ágúst er safnið opið alla daga nema sunnudaga frá kl. 13.30—18.00. Strætisvagn nr. 10 frá Hlemmi fer að safninu. Norræna húsið: 4. júli verður opnuð sýning á verkum Þorvaldar Skúlasonar, sem stendur yfir i allt sumar. 1 anddyri er sumarsýning á is- lenskum steinum á vegum N áttúruf ræðistof nunar. Djúpið: Sýning á myndverkum Björns Jónssonar og Gests F. Guð- mundssonar er opin til 1. júli. — Sjá umsögn i Listapósti. Epal/ Síðumúla 20. Sýning á grafik- og vatnslita- myndum og textilverkum eftir danska listamanninn og arkitekt- inn Ole Kortzau. Sýningin stendur yfir til 16. júli og er opin á venju- legum verslunartima. „Don’t look now”: Julie Cristie, Hilary Mason og Clelia Matania. ÞRJAR RUSINUR I PYLSUENDANUM Nú fer að liða að þvi að sjón- varpið fari í sumarfri og eru þrjár rúsinur i pylsuendanum rétt i iokin. i kvöld verður sýnd stórmyndin „Belle de Jour” eft- ir hinn heimskunna spænska kvikmyndagerðarmann og leik- stjóra Louis Bunuel. Bunuel hæðist óspart að öllu sem mannlegu lifi viðkemur t.d. allri trúarhræsni og kynferðis- fordómum. Hann hefur gert fjöldann all- an af kvikmyndum og er mynd- in sem við fáum að sjá i kvöld ein af þeim bestu sem hann hef- ur látið frá sér fara. Myndin fjallar um unga gifta konu (leikna af Catherine De- neuve) sem þrátt fyrir öll ytri efnaleg gæði hundleiðist lifið. Hún tekur það þá til bragðs að fara að vinna i vændishúsi i hlutastarfi, nánar tiltekið á fimmtudögum frá kl. 2 til 5. Unga konan lifir sig inn i starfið og kemst i ótal vandræði þegar hún fer að blanda sér i ýmis vandamál sem viöskiptavinirn- ir eiga við aö striða. Að þessu gerir Bunuel góðlát- legt grin en fær þó áhorfandann til þess að hugsa málið. Með að- alhlutverk fara Catherine Den- euve, Jean Sorel, Genive Page og Michael Piccoli. A siðasta útsendingarkvöldi sjónvarps, þriðjudagskvöld verður sýndur alislenskur þátt- ur með blönduðu efni sem ber heitið „Lengir hláturinn lifið?” i umsjá Ólafs Ragnarssonar. 1 þessum þætti veröur leitast við að svara þessari spurningu og verða til þess fengnir lærðir menn og leikir. Inn á milli verða stutt atriði i grini og al- vöru t.d. söngur og ferðalag um bæinn þar sem falin myndavél er með i ferðinni. Eftir þennan vonandi hressilega þátt kemur svo stórmyndin „Don’t look now” eftir leikstjórann Nicolas Roeg, sem fékk fjórar stjörnur i timaritinu Sight and Sound 1973. Með aðalhlutverk fara stór- stirnin Julie Christie, Donald Sutherland, Hillary Mason og Cleiia Matania. Ung hjón hafa misst dóttur sina i hörmulegu slysi. Þau setj- ast að i Feneyjum og kynnast þar miðli sem kemur þeim i samband við dóttur þeirra. Þetta er magnþrunginn þriller i hæsta gæðaflokki, þeir sem eiga litasjónvarp, takið eftir rauða- litnum sem fer eins og rauður þráður i gegnum alla mynd- ina.... L eikhús Tónlist Þjóöleikhúsiö: 29. og 30. júni verða haldnir tón- leikar sem hafa fengið yfirskrift- ina Vinir og vandamenn. Hefjast þeir kl. 20 bæði kvöldin og eru þeir til styrktar M.S. (Multiple Sclerosis) félagi Islands. A hljómleikunum veröa ýmsar tón- listarstefnur s.s. rokk jilassik, ný- bylgja, bossa nova svo eitthvað sé nefnt. Forsala aðgöngumiða veröur i hljómplötuverslun Karnabæjar og einnig verða mið- ar seldir i þjóðleikhúsinu bæði kvöldin. Miðaverði er stillt i hóf og kostar 100 kr. pr. stk. A/iöburðir Laugardalshöllin: Bandalag islenskra listamanna BIL verður með risauppákomu á laugardaginn kl. 21—3. Ahersla verður lögð á góða stemmningu og troða listamenn upp með tón- list, leikatriðum og uppboðum á listmunum. Einnig verða veit- ingar, pizzur og vin og undir lokin verður stiginn dans. —Mætum. Norræna húsið: Fimmtudaginn 2. júli verður Helga Jóhannsdóttir með kynn- ingu á islenskum þjóðlögum á sænsku og verður hún með tón- dæmi til skýringar, einnig verður sýnd kvikmyndin Hornstrandir. Hra f nagilsskóli/ Eyja- firði: Orlofsheimili reykviskra hús- mæðra verður þetta sumar i Hrafnagilsskóla. Þær sem áhuga hafa geta haft samband við or- lofsnefndina, Traðarkotssundi 6, kl. 15-18 virka daga. Þjóðleikhúsiö: Föstudagur: Gustur eftir Rozovski og Tolstoj. „A þessari sýningu Þjóðleikhússins á Gusti kemur enn einu sinni fram hversu góður leikstjóri Þórhildur Þor- leifsdóttir er. Sýningin hefur létt- an og myndrænan heildarsvip en samt er hinn alvarlegi undirtónn aldrei langt undan.” — G.Ast. Laugardagur: Sölumaður deyr eftir Miller. „í fyrsta skipti á þessum raunavetri Þjóðleikhúss- ins þóttist ég skynja að leikhópur- inn gengi að verki sinu samstillt- ur og fullur áhuga... Hér sjást engin dæmi um þann dauða rútinuleik sem hefur gert svo margar sýningar leikhússins óþolandi leiðinlegar.” — JVJ. Sunnudagur: Gustur. Þjóðleikhúsið er nú i leikför með leikritið i öruggri borg. Verður það sýnt á Hellisandi á föstudag- inn og i Stykkishólmi á laugar- daginn. Leikfélag Reykjavíkur: Nú hefur leikfélagið hætt sýning- um i Iðnó en er nú á ferðalagi um landsbyggðina, nánar tiltekið á Norðurlandi með leikritið Rommi. Norðlendingar! Fylgist nánar með auglýsingum frá leik- félaginu og missið ekki af skemmtuninni.. Góða skemmtun. Ferðafélag íslands: t kvöld verður farið i þrjár ferðir kl. 20.00, i Þórsmörk. á söguslóðir Laxdælu og undir jökul að Haga- vatni og Jarlhettum. A sunnudag- inn kl. 10 veröur farin leiðin Ketil- stigur — DjUpavatn — Sogiö — Keilir. Og kl. 13 leiðin DjUpavatn — Grænavatnseggjar — Höskuld- arvellir. Utivist: Helgarferð verður i kvöld kl. 20.00 um Þórsmörk og Eyjafjallajökul. Gist verður i nýju húsi I Básum og leiðsögumaður verður Jón I. Bjarnason. A sunnudag verður einsdagsferð i Þórsmörk kl. 8.00 og kl. 13 verður gengið um Hafna- berg eða Eldvörp. 1. júli, verður siðan kvöldganga um Heiömörk. Vanir fararstjórar i öllum ferðum. B... ioin -Á- 'if ★ ★ frámúfskarandl' ★ ★ ★ ágæt ★ ★ ' 8Ó6 þolanleg _____ afleit Nýja bíó: Inferno. Aðalhlutverk: lrene Miracle, Leigh McCloskey og Alida Valli. Tónlist: Keith Emer- son. Ef fólk fær kikk utúr þvi að sjá ógeðslegar hryllingsmyndir, þá er hún hér. Verði ykkur að góðu! — Sjá að öðru leyti umsögn i Listapósti. Stjörnubió: Bjarnarey. (Bear Island) Banda- risk. eftir samnefndri bók Alistar McLeans. Leikstjóri: Don Sharp. Aðalhlutverk: Donald Suther- land. Vanessa Redgrave, Richard Widmark og Christopher Lee. Þessi mynd er i hörkuspennandi og viðburðarrikastilnum. Tónabíó: Tryllti Max (Mad Max) — sjá umsögn i Listapósti. 0 •■ZZW’ __ geymsluþolinn þeýtirjómi -eínn ómíssandi í sumarhúsíð. nms" Míólkursamsalan

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.