Helgarpósturinn - 26.06.1981, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 26.06.1981, Blaðsíða 14
14 Gjafa- og minningarsjóöir af ýmsum toga virðast æði margir i Íslensku þjóðfélagi. Sjóðir af hin- um og þessum gerðum, eru langt frá þvi að veia óþekktir hérlendií Stjórnvöld stofna sjóði um að- skiljanleg málefni — sjóði fjár- magnaöa af almannafé. Og ekki er hitt óalgengara aö Pétur eöa Páll úti i bæ, ákveði að stofna sjóð til styrktar hinum og þessum fé- lögum eöa einstaklingum, sem höllum fæti standa i þjóöfélaginu eða berjast fyrir ákveðnum þjóö- þrifamálum. Sömuleiðis þekkist það, að menn setji saman sjóö i eigin nafni, gefi ákveðna fjárhæö til sjóðsins, og eigi siðan vextirnir að ganga til styrktar þessu og hinu málefninu. i eftirfarandi sainantekt er ætl- unin að lita örlitið á þetta sjóða- fargan. Annars vegar á sjóði, sem eru undir hatti borgarinnar og hins vegar sjóöi sem hafa stað- festar skipulagsskrár af dóms- málaráðherra og eru undir rikis- forsjá. Lúta til dæmis rikisendur- skoöun hvað varðar sjóðsreikn- inga. Hjá borginni eru nú á lifi 17 gjafa- og minningarsjóöir. Sam- anlagt fjármagn þessara sjóöa, var um siðustu áramót 135.483.000 (rúmar 135 gmilljónir), en af þessari upphæö hefur Visinda- sjóöur Borgarsjúkrahúss Reykja- vikur 103 gmilljónir á sinum snærum. Heildaríjármagnsvelta hinna sextán sjóöanna er þvi aö- eins rúm 31 gmilljón. 100 ára sjóður með 13 þúsund gkrónur íil flestra þessara sjóða var stofnað íyrir mörgum áratugum, sá elsti er frá árinu 1883 — veröur þvi 100 ára eftir tvö ár. Þetta er Verölaunasjóöur H.Th.A.Thom- sen. Stofnfé var kr. 500 og upp- hæðin gefin af umræddum Thom- sen i þvi tilefni, aö 25 ár voru liöin frá þeim tima, aö hann fékk borg- araréttindi, sem kaupmaöur i Reykjavik. Vöxtunum af stofn- fénu skal árlega variö til verö- launa ibarnaskólum Reykjavikur fyrir framúrskarandi ástundun við námið eða frammistööu viö próf. Heildarf jármagnseign Thomsenssjóðsins er i’ dag rúmar 13 þúsund gamlar krónur eöa 130 nýkrónur. Litið hefur þvi l'ariö fyrir þvi, aö grunnskólabörn hafi hlotiö verölaun úr sjóönum á siö- ustu árum, enda hann varla lær um aö festa kaup á umtalsverð- um verðlaunum. Og þannig er þaö um flesta þá sjóöi, sem eru undir borginni. i verðbólgu siðasta áratugs hefur höfuöstóll sjóðanna, aö engu orð- iö. Þar af leiöandi hafa þessir sjóöir ekkert boimagn til, aö veita styrki eöa verölaun til þeirra, sem það eiga að fá samkvæmt skipulagsskrám. i eftirfarandi dæmum um þá gjafa- og minningarsjóöi.sem eru á hendi borgarmnar, kemur glögglega fram bágborin fjár- hagsstaða sjóöanna. Er óhætt aö fullyrða aö langflestir þessara sjóöa eru i dag litið annaö en orö- in tóm. Skipulagsskrár þessara sjóða gera hinsvegar yfirleitt ekki ráð fyrir þvi, aö hægt sé aö leggja þá niöur. Þetta þýðir, aö eitt sinn sjóður, alltaf sjóður, enda þótt viðkomandi sjóöur sé ekkert annaö en nalniö tómt og ef til vill aöeins meö íáeinar krónur á bankareikningi. Eitt þúsund á nokkra kjósendur um aldamót Litum á nokkra þá sjóði, sem eru undir Reykjavikurborg, og tilgang þeirra. Sjóðurinn „Hallveig" var stofn- aður 1918 af Eiriki Briem og var stofnfé 600 krónur. Þessi Hallveig sem sjóðurinn er kenndur viö, er engin önnur en fyrsta húsmóöirin i Reykjavik, nefnilega eiginkona Ingólfs Arnarsonar lyrsta land- námsmannsins. Samkvæmt skipu- lagsskrá sjóösins, skal hann ávaxtaður óbreyttur á milli alda- móta, þannig aö vextirnir eiga aö leggjast við höfuðstólinn árlega og s jóöinn á ekki aö hreyfa fyrr er um aldamót. Um næstu aldamót kæmu þá til úthlutunar úr sjóön- um á eftirfarandi hátt: ,,Bæjar- stjórn Reykjavikur skiptir helm- ingi innistæöu sjóösins i hluti, er séu 100 krónur hver. Þessir hlutir ganga til manna, er á aldamótum hafa kosningarétt til bæjarstjórn- ar Revkjavikur og ræöur hlut- Helgarpósturinn kannar gjafa- og minmngarsjóði borgar og ríkis: BAUTASTEINAR Á BÁLKESTI VERÐBÓLGUNNAR Föstudagur 26. júní 1981 he/garpósturini Sjóðirnir hátt á annað þúsund og langflestir peningalausir eftir Guðmund Árna Stefánsson kesti hverjir hlutina lá. Sér bæj- arstjórnin um hlutkestið. begar sjóðurinn er orðinn svo stór, aö hver kjósandi getur lengiö 1000 kr. i hlut, þarf ekkert hlutkesti, og skiptast upphæöir, þá jafnt milli þeirra allra". Það er sem sé um næstu alda- mót áriö 2000, sem hlutkesti á aö fara fram meðal kosningabærra Reykvikinga um það, hverjir eigi að fá 1000 gamlar krónur (lOnkrónur) úr þessum sjóöi Hallveigar. Augijóst er þó, aö þeir veröa ekki alltof margir, þar sem eign sjóösins er i dag, 96 þús- und gamlar krónur og helmingur upphæðar skal lil úthlutunar hverju sinni. Ef úthlutaö væri úr sjóðnum i dag, kæmu þvi 43 Reykvikingar til meö aö fá 10 ny- krónur úr þessum sjóöi Hallveig- ar. Verðlaunaupphæðin nægir varla fyrir póstkostnaöi viö að senda tikallinn og varla iyrir strætó niöur i bæ og heim aftur fyrir verðlaunahafa sem þyrltu að nálgast úthlutunina úr sjóön- um. Fatnaður handa skóla- börnum Áriö 1921 var stofnaöur minn- ingarsjóöur Ingibjargar Hansen og var stofnlé 3000 gkrónur gefn- ar af Morten Hansen skólastjóra, til minningar um móöur hans, Ingibjörgu Jóhannesdóttur Han- sen. Af vöxtum þeirrar upphæðar komu 50 gkrónur til útborgunar, eða helmingur vaxtaupphæöar- innar, ef vextirnir eru umíram 50 krónur. Þessari upphæö skal verja til að „styrkja fátæk börn, sem ganga I barnaskóla Reykja- vikurbæjar, einkum til aö fá sér nauðsynlegan fatnaö og þá einnig skófatnaö.” Stjórn þessa sjóðs skulu skipa borgarstjóri og for- stöðumenn barnaskólanna. Verömætaaukning minningar- sjóðs Ingibjargar Hansen var á siðasta ári (vextir og verðbætur) rúmlega 1.2 milljón krónur, en heildareign sjóðsins er rúmar 3 milljónir gamlar. 2 milljónir handa stór- kostlegu fyrirtæki bámá nefna gjafasjóð Sighvats Bjarnasonar frá 1890. bar er stofnfégkr. 100 og var hugmyndin sú, samkvæmt skipulagsskrá, að vextir skyldu leggjast við höluö- stól og sjóðurinn þannig óhreyfö- ur þangað til sjóðsupphæö næöi 2 milljónum eöa 5 milljónum, eltir mati bæjarstjórnar. „En þegar sjóðurinn hefur náö þeirri upp- hæö, skal þaö á valdi þáverandi bæjárstjórnar aö ákveöa, meö samþykki æðsta valdsmanns landsins — hafi hann þá nokkur afskipti af bæjarmálefnum — hvort fénu skuli öllu variö til ein- hvers stórkostlegs fyrirtækis i þarfir Reykjavikurkaupstaöar eða hvortaöeins skuli verja vöxt- unum .... til aö styrkja eitthvert það framfarafyrirtæki, er bænum eða bæjarbúum mætti aö gagni koma.” Tilefni Sighvats Bjarna- sonar meö þessum sjóöi, var „aö endurgjalda bænum á einhvern máta það lé”, sem laöir hans „neyddist til sökum langvarandi heilsuleysis að fá úr fátækrasjóöi 2 eða 3 siðustu árin sem hann lifði”. Árið 1929 stofnaöi Sighvatur Bjarnason siðan annan sjóð undir sama nafni og var stofnfé þá 1 þúsund krónur. Sömu reglur áttu aö gilda um þennan sjóö og hinn fyrri, sem Sighvatur stoínaöi árið 1890 eins og fyrr greindi. 1 dag er langur vegur frá þvi, aö eignir þessara sjóöa, nái tilskild- um tveimur milljónum gamalla króna, en það er sú upphæð sem tilskilinn er samkvæmt skipu- lagsskrá, til aö unnt sé aö veita fé úr sjóðunum. Sjóðir Sighvats Bjarnasonar stóöu um siðustu áramót i 29 þúsund gkróna og 52 þúsund gkróna, þannig að lyrir- sjáanlegt er aö ekki verður um streymi úr þessum sjóöurn að ræöa á næstum árum. Auk þess er ljóst, að tvær milljónir gamlar krónur duga skammt til að styrkja „stórkostlegt fyrirtæki” eða „eitthvað þaö framfarafyrir- tæki, er bænum eða bæjarbúum mætti aö gagni koma". Og þannig má halda áfram aö rekja gjafa- og minningarsjóði borgarinnar. beir eru nánast allir félausir og geta þvi ekki sinnt sin- um upprunalega tilgangi og koma liklegast aldrei til meö að geta það miðað við óbreyttar aðstæð- ur. Má fullyrða að eini sjóðurinn, af þessu tagi, sem getur sinnt hlutverki sinu, sé Visindasjóöur Borgarsjúkrahúss Reykjavikur, en þar liggja rúmar 103 gmilljónir á reikningi. Að öllu samanlögöu er þvi meira en ljóst, aö nær allir gjafa- og minningarsjóðir á hendi borg- arinnar, eru i dag litið annaö en orðin tóm. En skipulagsskrár þessara sjóöa, gera almennt ekki ráð fyrir þeim möguleika, aö unnt sé að leggja sjóöina niöur. beir munu þvi standast timans tönn, þótt innistæöur sjóöanna geri þaö ekki. Vafalaust hafa margir þess- ara sjóða verið sæmilega stönd- ugir á sinum tima, en ör þróun peningamála og veröbólguhraö- inn hefur gert þaö aö verkum, aö sjóöirnir eru félausir. „Sjóðirnir ekki fyrir neinn” Gunnlaugur Pétursson borgar- ritari sagði i samtali aö ljóst væri, að þessir gjafa- og minningar- sjóðir væru i dag litiö annaö en nöfnin. „bað hefur ekki verið peningastreymi úr langflestum þessara sjóða um árabil,” sagði hann. „bað eina sem gerist á ári hverju, er það, aö reiknaöir eru út vextir og þeim bætt viö höfuöstól- inn”. Borgarritari sagöi, aö i sumum tilfellum hefði tekist aö ávaxta fjármagn þessara sjóöa á hag- kvæmari hátt, en veriö heíöi, með kaupum á spariskirteinum eöa með þvi að setja þá á verðtryggða reikninga. Hjá einstaka sjóöum yröu sjóðirnir hins vegar aö vera á venjulegum sparisjóösreikning- um vegna ákvæða i skipulags- skrám básagðiGunnlaugur Pétursson ennfremur, að I fæstum tilfellum væri unnt að leggja sjóðina niður, eða sameina þá öðrum. „En ; þessir sjóðir eru út af fyrir sig, ekki fyrir neinum", sagöi borgar- ritari, „og eina vinnan við þá, er að gera sjóðina upp i hver árs- lok”. En látum þetta duga um gjala- og minningarsjóöi borgarinnar og litum á opinbera sjóði, sem hlotiö hafa staöfestingu á skipulags- skrám sinum hjá dómsmálaráö- herra. Áður en fariö verður út i þá sálma, er rétt að geta þess, að skipulagsskrár margra þessara sjóða gera ráð fyrir þvi, aö ljár- magn sjóöanna sé ávaxtaö eftir reglum Söfnunarsjóös Islands. Sí er samheiti yfir þessi gjafa- og minningarsjóði alla og tilgangur- inn með stofnun Söfnunarsjóðs is- lands, var á sinum tima sá, aö innan vébanda S1 væri hægl aö ávaxta þessa sjóöi á hag- kvæmari máta, en gerðist i bankakerfinu á þeim tima. En margt breytist i timans rás og þaö sem þótti hagkvæmt i pen- ingapólitikinni fyrir nokkrum áratugum, er forboðiö i dag Skipuiagsskrár margra sjóöa gera hins vegar ráö fyrir þvi, að ávöxtun sjóðanna fari eítir linum Söfnunarsjóðs íslands, þannig aö ekki er unnt að setja inneignir sjóðanna á reikninga sem gefa af sér einhverja vexti, sem hægt er að tala um. Sjóöirnir eru þvi læstir. Ekki aöeins er ómögulegt að leggja þá niöur, heldur og er ókleift að tryggja þeim alvöru tekjustofna, meö hagkvæmri ávöxtun á fjármagni sjóðanna. 1200 sjóðir hjá hinu opin- bera Opinberir sjóðir s.s. styrktar- sjóðir, gjafasjóðir, minningar- sjóðir, verðlaunasjóðir og hvaða nafni sem þeir annars nefnast, eru rúmlega 1200 og fer fjölgandi með ári hverju. Til þessara sjóöa

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.