Helgarpósturinn - 26.06.1981, Síða 21

Helgarpósturinn - 26.06.1981, Síða 21
21 -he/garjDosturínrL. Fostudagur 20 júní 1981 ,,Sagan af flygl- inum í New York' Viötalsbók Ingólfs Margeirssonar við Guömundu Elíasdóttur kemur út í haust Nan Hoover. HOLLENSK INNRÁS í NÝLISTA- SAFNIÐ Dagana 10, 11 og 12. júlí veröur mikiö um aö vera i Nýlistasafn- inu. Aö sögn eins aöstandenda safnsins kemur hingaö hópur hollenskra myndlistamanna ásamt Vies Smalls sem er for- stöðukona listam iðstöðvarinnar De Apple. Wies er islenskum myndlista- mönnum i Hollandi aö góöu kunn. M.a. sýndu þeir Hreinn Friöfinns- son, Kristján Guömundsson og Siguröur Guömundsson i galleri- inu Serial sem hún var áöur meö. Wies mun halda fyrirlestur um listamiöstööina De Apple og þá starfsemi sem þar hefur fariö fram. I fylgd meö Wies veröa fimm listamenn búsettir i Hol- landi, en þaö eru: Harrie De Kroon og Christine Koenings sem veröa meö gjörninga, Nikolaus Urban og Krijn Giezin sem veröa meö installation og Nan Hoover sem veröur meö video gjörninga. —JÞ Ingolfur Margeirsson er þessa dagana ásamt Guðmundu Elias- dtíttur aö lesa yfir fyrstu próförk af viðtalsbókinni sem Ingólfur og Guömunda hafa veriö aö vinna aö sl. ár. Ingtílfur sagðist hafa fengiö hugmyndina að bókinni þegar hann vann sem blaðamaður á Þjóðviljanum. ,,Ég var meö þessi helgarviðtöl i sunnudagsblaö Þjóðviljans og for til Guðmundu og ætlaði að taka blaöaviðtal viö hana. En ég var ekki fyrr sestur inn i stofu hjá Guðmundu en ég vissi aö þetta yrði aldrei barablaöaviötal, heldur hafði Guömunda frá svo miá-gu að segja að þaö var efni í heila bók”. NU það varð Ur að ég dreif mig i þetta. Konan min fékk vinnu hjá norska Utvarpinu og við fluttum tilNoregs. Ég hafíi ekki ráðstaf- að ti'ma minum og fannst þvi al- veg tilvalið að gera þessa bók. — Af hverju er Guðmunda svona merkileg? „Guðmunda er alveg einstök kona og hefur lifað merkilegu lifi. Söngferill Guðmundu er merki- legur en þó legg ég meiri áherslu á manneskjuna Guðmundu þvi hún er engum lik. Guðmunda er fædd i Bolungar- vik, en fluttist 17. ára gömul til Danmerkur aö læra söng. I Dan- mörku giftist hún og eignaðist tvö börn. Hún var Uti öll striðsárin, kom siðan heim og söng i fyrstu óperunni meö islenskum kröft- um, sem var sett upp á tslandi: „Rigóletto”. Einnig söng hún i „Miölinum” sem var sett upp i Iðnó. Hún fór til Bandarikjanna ”53 og söng viöa, bæöi i útvarpi og sjónvarpi og einnig söng hún inn á plötu sem Fálkinn gaf út. Hún fór aftur til Kaupmannahafnar, og skildi viö manninn sinn. Hún söng i söngleiknum „Fiölaranum á þakinu” á móti Róberti Arnfinns- syni og eins lék hún i „Sporvagn- inum Girnd” hérna heima. Hún giftist Sverri Kristjánssyni sagn- fræðingi ”73 en hann dó ”76. Eins og söngelskir vita þá er Guö- munda messó-sópran. Þetta er svona æviágrip hennar i stórum dráttum en fyrst og fremst byggist þessi bók á frá- sögn manneskju sem lifað hefur merkilegu lifi”. — Kanntu ekki einhverjar skemmtilegar sögur af henni? „Kann ég? Þær eru svo margar að ég veit varla hverja ég á að láta þig fá. Biddu aöeins ég æUa að ráöfæra mig við Guðmundu hún situr hérna hjá mér”. — Það kemur smá þögn og Ingólfur kemur aftur i simann. „Heyröu við urðum sammála um eina góða sögu af henni, þessi saga gæti heitið „Sagan af flyglinum i New Ycrk” 1954þegar Guömunda bjó i Ameriku var siður New York-búa að henda út mublum og öörum innanstokksmunum út á fortóiö, Guðmunda og Ingtílfur að lesa yfir fyrstu próförk ljósmynd Jim Smart og siöan hirtu vegfarendur þaö sem þeim leist vel á. Guðmunda bjó þá á 107. götu og var alveg i vandræöum þvi hana vantaði svo hljóðfæri. Þar sem hún er á gangi einn daginn sér hún þennan forláta Taffel-flygil Uti á gangstéttinni beint fyrir framan nefið á sér. NU er Guðmunda ekki mikil kona að burðum og gat þvi engan veginn tekið flygilinn á bakið, og þá voru góð ráð dýr. Þvi það væri alsendis óvist að flygillinn myndi standa þarna þegar hUn væri búin að ná sér i burðarmenn, svona gripir hurfuum leið og þeir voru settir út á götu. Þá vill svo vel til að vinkona Guðmundu sem vann hjá i'slenska konsUlnum bjó þarna skammt frá svo Guðmunda hraðar sér heim til hennar i' von um að þar væri einhver sem gæti liðsinnt henni. Hddur þU þá ekki að þár sitji 6 is- lenskir lögreglumenn i kaffi- þambi hjá vinkonunni. Þeir voru á einhverju alþjóð- legu lögreglunámskeiði hjá Sam- einuðu þjóðunum og voru allir heljarmenni að burðum. Þeir tóku bónorði Guðmundu vel og þegar þau koma að sækja flyg- ilinn hitta þau fyrir eigandann sem féll næstum i yfirlið er hann sá Guðmundu með burðarkarl- ana. Lögreglumennimir lögðust nú allir sem einn á flygilinn og rúlluðu honum eftir gangstétt- inni. Það iskraði og brakaöi I flyglinum og upp úr honum komu alls kyns tónar þvi gangstéttirnar voru jú mishæðóttar. Guðmunda hljóp með og hljóðaði upp yfir sig eftir þeim tónum sem úr flyglin- um komu. Guðmunda segir að þetta sé örugglega i' fyrsta og eina skiptið sem New York búar hafa heyrt gangstéttarsónötu leikna fyrir Taffel — flygil, sópranröddu og 6 islenskra lögregluþjóna”. — Hvenær kemur bókin út? „Hún kemur út i október hjá Ið- unni og vorum við einmitt að fá fyrstu prófarkirnar af bókinni til jfirlestrar. — Hvað ætlarðu svo að gera Ingólfur? „Það vilég ekki segja, þó ég sé búinn að ákveða þaö. Eg hef unn- ið sem fréttaritari fyrir islenska sjónvarpið i Osló og ég býst við að vera þar áfram næsta vetur og hvað ég ætla að gera samhliöa þeirri vinnu er leyndarmál.” —EG. TVÖ TILBRIGÐI VIÐ Tónabíó: Mad Max (Tryllti Max) Aströlsk. Argerð 1978. Handrit: James McCausIand, George Miller. Leikstjóri: George Mill- er. Aðalhlutverk: Mel Gibson, Joanne Samuel, Hugh Keays-Byrne. Ef forstjóra Vökuportsins dytti i hug einn góðan veðurdag Þótt forstjóra Vökuportsins megi vel fyrirgefa slikt framtak vehður að vona að islenskir kvikmyndageröarmenn eigi aldrei eftir að þurfa aö gripa til þess. En ungur kvikmyndaiðn- aður Ástraliumanna virðist hins vegar hafa bæöi þörf og rúm fyrir blygðunarlausa gróða- hyggju svona myndar. Hún kitlar sömu kenndir og fylgt hafa mannkyni a.m.k. siðan Rómverjar kættust yfir blóðsút- hellingum og limlestingum •Kvikmyndir eftir Guðjón Arngrimsson 0g Arna Þórarinsson að farið væri að grynnast um of á lagernum þá væri ekki fráleitt fyrir hann að framleiða mynd eins og Mad Max. Lagerinn myndi fyllast von bráðar að töku lokinni, og það sem ekki myndi siður gleðja forstjórann: Peningakassinn yrði einnig full- ur á nóinu. gladiatora i formi skemmti- atriða. Hingað til hafa Amerikanar haft nánast einka- leyfi á slikum ofbeldismyndum, ekki sist American Inter- national-félagið sem var heldur ekki seint á sér að kaupa þessa mynd af Astraliumönnum, og selja hana m.a. hingað til lands, OGEÐ dubbaða upp á amerisku af þvi áströlsk enska er ekki nógu fin. Mad Max er mynd sem þrifst á einu saman ofbeldinu og þeirri tækni sem höfundar hafa yfir að ráða til aö tjá ofbeldið i mynd. Og sú tækni er að sönnu ekki litil. George Miller, leikstjóri og annar handritshöfunda, hefur mun öruggara handbragð og ferskari sjónarhól heldur en venjan er að sjá i ameriskum myndum af þessu tagi. Hann sýnir krambúleringar mann- fólks sem tökutækja af alveg sömu kaldrifjun og tilfinninga- legu vægðarleysi, með hrööu tempói i klippingum og örum breytingum myndhorna. Aðferöin minnir einna helst á tækni auglýsingamynda. En efnisramminn er hundgamall: Einkastrið lögga og mótorhjóla- lýðs i menningarlegri eyöimörk náinnar framtiðar. Heimilis- streita-aöalgæjans er bara hefð- bundið krydd til að tryggja þessa venjulegu blóðhefnd i lok- in. —AÞ. Nýja bíó: Inferno ítölsk-amerisk. Árgerð 1980. Handrit og leikstjórn: Dario Argento. Aðalhlutverk: Gabri- ell Lavia, Veronica Lazar.Irene Miracle, Leigh McCloskey. í Nýja biói er annar ungur kvikmyndagerðarmaður að æfa sig i ógeöi, — ítalinn Dario Argento. Hann velur sér að visu aðra umgerð en George Miller. A meðan Miller treður hina gamalkunnu slóö bila- og mótorhjólatöffaramynda, heldur Argento sig á slóðum hrollvekjunnar og vinnur ekki ósvipað þekktasta forvera sin- um i italskri hrollvekjugerð Mario Bava. Leggur litið upp úr sannferöugri sögu en býr til óhugnaðarfantasiu með óraun- verulegri leikmynd og lýsingu, eins og Bava gerði á sinum tima. Dario Argento hóf fyrst störf viö kvikmyndagerö sem hand- ritshöfundur, i félagi við Bern- ardo Bertolucci, að vestra Sergio Leone Once Upon a Time in the West. En siðan hefur hann „Mæðurnar þrjár” afgreiða einn af leikurunum i hrollvekju Nýja biós, Inferno. gróðamynda, einkum af'þriller- gerð. Aðalsmerki hans er einmitt sérkennilegar leik- myndir og miklar tilfæringar i töku og klippingu. Veikleiki Argento er svo hins vegar af- spyrnu vond handrit og stein- dauö stýring á leikurum. Næsta mynd Argento á undan Inferno, Suspiria þótti boða nýja og betri tima. Þar voru fyrrnefndir veikir punktar i lágmarki, þvi Argento byggði upp spennu fyrst og fremst með nákvæmri beitinu hljóðs (þar á meðal eigin tónlistar) og hreyfinga, en lagði minna upp úr orðum og eigin- legri leiksögu. Aö Suspiria óséöri er Inferno augljóst merki um hæfileika Argento i þessu efni. En hún er engu að siöur af- skaplega gölluð hroilvekja, langdregin á köflum og langsótt að efni, (hroðalegir dauðdagar af völdum einhverra goðsögu- legra kellinga sem kallaöar eru „Mæðurnar þrjár”). —AÞ. í ÆmW'mfwmf HHM j \ J ■Tmmfo- Fíflalætin eru oftast yfirgengiieg í mynd Laugarásbiós. FÍFLALEGT FÍFL Laugarásbití: Fíflið (The Jerk) Bandarisk. Argerð 1980. Hand- rit: Steve Martin, Carl GotUieb, Michael Elias. Aðalhlutverk: Steve Martin, Bernadette Pet- ers. Leikstjóri: Carl Rainer. Leikstjóri Ffflsins kemur fram i litlu hlutverki i myndinni, eins og leikstjórum finnst sumum gaman að gera. Hann leikur sjálfan sig, Carl Rainer, þekkt- an kvikmyndaleikstjóra, sem orðinn er rangeygður af notkun „opti-grab” gleraugna og getur ekki lengur klippt myndir sinar rétt. Ekki veit ég hvort Rainer er með þessu að skopast að sjálfum sér, — sennilega ekki, en vist er að eftir þessa mynd mun ég ætiö muna eftir Carl Rainer sem rangeygða leik- stjóranum sem ekki kunni að klippa. Og Steve Martin mun ég sennilega minnast sem gaman- leikarans sem ekki vissi hvenær hann var fyndinn og hvenær ekki. Hann samdi þessa mynd ásamt félögum sinum og hún er samansafn ódýrra brandara sem mynda á losaralegan hátt sögu um fátækan bóndason sem verður rikur og svo fátækur aft- ur, vegna „opti-grab” gler- augnanna. Lengst af leikur Martin fremur illa, enda býður textinn hans ekki uppá annað, en það skrýtna er að stundum dettur hann niður á bráðfyndnar hugmyndir og nýtir þær bæri- lega. Sem bendir til þess að fái hann góðan leikstjóra yfir sig, þá geti hann sitt af hverju. Carl Rainer sem áður hafði getið sérbærilegt orö fyrir „The One and Only” með Henry Winkler, ræöur ekkert viö Mart- in, og þá ekki myndina, vegna þess að hann er á t jaldinu allan timann. Ffflið er ein af þessum fjölda- mörgu þriðjaflMcksmyndum sem gerðar eru i Ameriku af litlum kvikmyndafyrirtækjum, — i þessu tilfdli Aspen Film Society. Fæstar þeirra ferðast yfir landamærin — þaö er að- einsef sttírfyrirtæki eins og Uni- versal Pictures taka þær uppá sina arma að þær fá lif eftir dauðann i öðrum löndum. Uni- versal hafa veðjaö á rangan hest þegar þeir keyptu Fiflið, þvi varla er mikil arðsemi i þvi fólgin aö hafa áhorfendur aö fiflum. He, he. — GA

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.