Helgarpósturinn - 26.06.1981, Qupperneq 27
27
h&lgr=irpn<T/’l irinn Föstudagur 26. júnf 1981
Umsjón: PÁLL
Vinir og
vandamenn
Stuðarinn vill vekja athygli á
einum stærstu hljómleikum sem
haldnir hafa verið á tslandi fyrr
og siðar. Þetta eru hljómleikarnir
VINIR OG VANDAMENN sem
verða í Þjóðleikhiísinu næstkom-
andi mánudags- og þriðjudags-
kvöld
Á þessum hljómleikum verður
gefinn þverskurður af íslensku
tónlistarlífi eins og það getur best
oröiö. Framkoma Ólöf Harðar-
dóttir, Mezzoforte, Þursaflokk-
urinn, Orghestarnir, Kómbó
Snorra Snorrasonar, Magnús
„blúskóngur” Eiriksson, Gunnar
Þórðarson, Reykjavik rythm
session, B jörgunarsveitin,
Laufey „fiðla” Sigurðardóttir og
Diddi „fiðia” Jönsson. Heiðurs-
gestur verður að öllum likindum
Shady Owens ásamt Náttúru 72
endurvakinni. Stúdió Stemma
veröur mætt á staðinn og mun
festa tdnleikana á band.
Hugsuðurinn og heilinn á bak við
allt þetta stúss er sjálfur Karl
Sighvatsson, sem mun koma viöa
við og spila meira eða minna með
flestum gestum kvöldsins. Fram-
kvæmdastjóri er Þorlákur Krist-
insson. Allur ágóði af hljómleik-
unum rennur til M.S. Félags ts-
lands sem er félagsskapur sem
berst fyrir fólki sem á viö þann
erfiða sjúkdóm multiple sclerosis
(heila- og mænusigg) að strlöa.
HLEMMUR
Það eru ekki margir staðir þar
sem unglingarnir geta hópað sig
saman á þessum siðustu og
verstu tfmum. Það skyldi þvii
engan undra að á Hlemmi væri
stundum fjölmennt á kvöldin og
um helgar. Stuðarinn hleraði að
stjórn Strætisvagna Reykjavíkur
hefði nú ráðið ungan umsjónar-
mann til að ræða við unglingana
og hringdi i Guðrúnu Ágústs-
dóttur formann stjórnarinnar til
að spyrjast fyrir um það mál.
„Þetta er alls ekki dulbúinn
umsjónarm aður að njósna um
unglingana, heldur höfum við
fengið ungan mann einstöku sinn-
um, til að rabba við unglingana.
Þetta er alls enginn útkastari. En
þvi ber ei aö leyna að á Hlemmi
hafa safnast saman unglingar,
bæði huggulegir og skemmtilegir
sem miður huggulegir svo og
meinlausir rónar. Á meðan ungl-
ingarnir hafa engan stað til að
hittast er ekki hægt að reka þá út
heldur fer betur á að reyna að
láta unglinga og farþega vera
saman i' sátt og samlyndi. Þetta
hefur gengið misvel. Krakkarnir
hafa gengið vel um Hlemm en það
gefur augaleið að það er ekki
hægt að leyfa þeim að drekka sig
fulla á þessum stað. Að sjálfsögðu
væri æskilegt að vera með uppá-
komur þarna en staðurinn var
ekki byggður sem félagsmiðstöð,
heldursem biöskýli. Það væri full
ástaiða aö ráða mann i fullt starf
þarna, t.a.m. félagsfræðing eða
áhugasaman mann, en við höfum
bara ekki ennþá fengið slikan.”
— Er alltaf troðfullt af ungling-
um þarna?
„Það er mjög misjafnt. Þegar
sjónvarpið er með gott efni sjást
unglingarnir varla. Þegar fyrsti
þátturinn i Dallasmyndaflokkn-
um var t.d. sýndur, var varla
nokkur hræða.”
— Hafa farþegarnir kvartað yf-
ir unglingunum?
„Sumir farþeganna hafa jú
kvartað, en ég veit ekki til þess að
þeirhafiorðið fyrir aðkasti. Þó að
það sé kannski engin furða að þeir
hneykslistá grænhærðum og blá-
hærðum pönkurum með leðurólar
um hálsinn, held ég að þeir veröi
að sýna unglingunum umburðar-
lyndi.”
POSTUR
OG
SÍMI
Stuðarinn er ekki alvitur,
alsjáandi og alheyrandi frekar
en aðrir. Þó að hann viti
margt um áhugamál og
vandamál ungs fólks, þá veit
liann ekki allt. Þess vegna ætl-
ar hann að opna póst- og sima-
þjónustu. Póstþjónustu fyrir
þá sem eru pennaglaðir, síma-
þjónustu fyrir þá sem eru
pennalatir.
Stuðarinn mun sitja við
sima 81866 á fimmtudögum
frá kl. l-3eftir hádegi og utan-
áskriftin er.
STUÐARINN
c/o Helgarpósturinn
Síöumúla 11
105 Reykjavik.
Málin rædd I biðskýlinu við Hlemm.
PÁLSSON OG JÓHANNA ÞÓRHALLSDÓTTIR
Ingvar Helgason
Vonarlandi við Sogaveg — Sími 33560
*
Ovenju hagstæðir
samningar
Óvenju hagstæð
greiðslukjör
Óvenju hagstætt verð
Eftir
verðlækkun
Datsun Cherry
3ja dyra GL
um kr. 84.844,00
Datsun Cherry
3ja dyra DL
um kr. 81.924,00
(án ryðvarnar og
skráningar)