Helgarpósturinn - 07.08.1981, Blaðsíða 24
Föstudagur 7. áqúst 1981 hplrjFirpÓ^turÍnn
BLABLABLA...
moti þeim. Þegar ég fer út um
helgar dressa ég mig upp. Annars
hlusta ég ekkert eingöngu á pönk
tónlist. Ég hlusta á vægari lög
lika”.
U^áhaldshljómsveitir okkar
hafa alltaf veriö þessar sömu”
segja Adam og maurarnir
„þ.e.a.s. Roxy Music, The Sex
Pistols, nú og þessar gömhi eins
og Slade, T. Rex, Gary Glitter,
The Arrows, Hello, Alvin Stardust
og Alice Cooper. Alice er týpan
sem hræöir mömmu þina” segja
strákarnir. Og þá vitum við
■hvaða hljómsveitir við getum
hlustað á meö góðri samvisku...
Söngvarinn blindi Stevie
Wonder, var eitt sinn giftur söng-
konunni Sygreeta Wright. Ein-
hverra hluta vegna skildu þau ár-
ið 1971. ,,Ég ætla aldrei að giftast
aftur” sagði Stevie ,,Það er ekki
þar með sagt að mér sé illa við
konur. Siður en svo. Mér lfkar i
rauninni alltofvel við þær. Einka-
llf mitt er mjög flókið. Ég er oft
með fleiri en einni konu í einu.”
Hljómsveitin The Who sem sá
um tónlistina i myndinni McVicar
sem sýnd var i Háskólabiói fyrir
skömmu, á i stökustu vandræð-
um þegar hún spilar á hljóm-
leikum. Aheyrendur vilja alltaf
heyra gömlu lummurnar þeirra
sem þeir eru fyrir löngu orðnir
dauðleiðirá að spila.The Who eru
samt alltaf að reyna blessaðir að
vera skapandi, og semja eitthvað
nýt.t. Það er ekki kvalalaust
þetta lif...
The Rollers, sem áður voru
þekktir undir nafninu Bay City
Rollers og flestir hafa vlst af-
skrifaö.eru aldeilis ekki hættiraö
spila. Þeir hafa nýlega skrifaö
undir samning hjá CBS og sent
frá sér plötuna Richochet.
BLABLABLA...
I Bretlandi erum við jafnvel
ekki kallaðir pönkarar
— segja tveir pönkarar
..l>egar eitthvað nýtt keinur
uppá yfirborðið gripur maður
það. Það er tilbrevtingarleysi
sem hrjáir mannkynið og ungl-
ingana yf irleitt. Svo er lika ágætt
að vera öðruvisi en aðrir og
gaman að hneyksla fólk", segja
tveir pönkarar sem Stuðarinn
gróf upp. Pönkararnirsem eru 16
ára gamiir heita Helgi Kliasson
og Snorri Þorsteinsson, en þeir
eru i pönkaragengi i Hafnar-
firðinum.
Þú og þinn Hlemmur.
— Er fólkið hneykslaðá ykkur?
S: ..Aðallega þegar maður er
að flippa Uti á götu”.
— Er þetta stór klika sem þið
tilheyrið?
S: ,,Þetta er ákveðinn hópur”.
H: ,,Við hittumst oft á
Hlemmi".
S: ,,Iss, þú og þinn Hlemmur.
Það er nú bara hópur smápönk-
ara þar. Blessaður maður, um
leið og maður birtist þá eru þeir
vælandi i manni. — Áttu tikall? —
Þeir eru hálf lás!”.
— Erueinhver inntökuskilyrði i
klikuna?
,,Nei, engin sérstök. Fólk þarf
bara að vera skemmtilegt”.
— Er þetta kannski fólk sem
hefur verið með ykkur i skóla?
S: „Viðerumekkiskóla. 1 vetur
höfum við unnið. Helgi i Fisk-
verkun Bersa Gislasonar en ég
hjá Gunnars mæjonesi”.
Kkki pönkarar í
Rretlandi.
— Hvernig finnst ykkur að búa
á Islandi?
S: ,,Æ það er islappara lagi. Þú
sérð það nú að ef við byggjum i
Bretlandi, þá værum við varla i
viðtali. En hérna! Máður getur
ekki einu sinni gengiö niður
Laugaveginn án þess að sé litið á
eftir manni”.
H: ,,í Bretlandi værum við
jafnvel ekki kallaðir pönkarar.
— Hafið þið kannski verið i
Bretlandi?
H: ,,Við höfum kynnt okkur
málin i gegnum blöðin. Það er
meiriháttar atvinnuleysi þar”.
S: ,,Og i Danmörku er ástandið
ferlegt. Unga fólkið fær ekkert að
gera. Það endar oft með eitur-
lyfjaneyslu og aumingjaskap”.
— Hvað finnst ykkur um vimu-
gjafa?
S: ,,Ég hef ekkert á mótihass-
reykingum, Brennivinið er þó al-
gengara en dópið”.
Dressa mig upp
— Hvað með stelpur. Reyniði
ekki stundum við þær?
S: ,,Það er mál að vera pönk-
ari. Þá verður maður að halda sig
að þvi liði sem hefur ekkert á
Þá erum við koniin aö knatt-
spyrnudeild Vikings. Vikingur
var stofnaður 21. april 1908 i
framhaldi af stofnun K.R. og
Fram. i upphafi var tilgangurinn
sá að spila knattspyrnu en á
seinni árum hefur starfsemin
verið á fleiri sviðum, ekki hvað
sist handbolta. Einnig er skiða-
deild, kvennadeild, o.s.frv. Vik-
ingur reið á vaðið með hina svo-
kölluðu knattspyrnuskóla scm er
ætlaður drengjum og stúlkum á
öllum aldri. En Vikingur er starf-
andi meö flokka i öllum deildum
fyrir 8 ára og eldri. Aðsetur Vik-
ings er i Smáibifðahverfinu.
Ég hafði upp á einum fótbolta-
manni i þriðja flokki og spurði
Karl Þráinsson
15 ára
IÞROTTAFELAG VIKUNNAR:_____
Knattspyrnudeild Víkings
hvað það væri sem hann sæi við
knattspyrnuna.
— „Knattspyrna er skemmtileg
Iþrótt og þaö er góður félags-
skapur.”
— Geta allir orðið góðir knatt-
spyrnumenn?
,,Já ætli það ekki. Ef fólk mætir
á æfingar og leggur sig fram við
að gera æfingarnarrétt.Það verð-
ur kannski að hafa einhverja
hæfileika lika.”
— Af hverju fórstu i Viking?
,,Ég átti heima i hverfinu og fór
strax þegar ég var 8 ára að æfa
með Víkingi. Það hefur ekki
annað komið til greina og ég hef
æft með þvi liði næstum stans-
laust siðan.”
„Kostimir eru útiveran og
hreyfing likamans en gallarnir
eru þeir að menn geta orðið fyrir
meiöslum. Og sjálfsagt eitthvað
fleira.”
Miklir peningar i diskóið
— Þú ert kannski enginn pönk-
ari?
S: „Sko, fyrir tveimur árum
siðan voru færri pönkarar og ég
var yngri þá. Maður labbaði sér
kannski niður á Plan og varð þá
fyrir árásum, var laminn og
annað slikt. A timabili hætti ég að
vera pönkari. Þá fannst mér vera
komnir of margir”.
H: „Eftir að Bubbi og Utan-
garðsmenn komu á sjónarsviðið
og Þeyr.þá komu fleiri pönkarar
uppá yfirborðið”.
„Kosturinn við pönkara er að
þeireru miklu sjálfstæðari en t.d.
þettadiskólið. Hjá diskóliðinu eru
alltof miklir peningar i spilinu.
Sbr. þessi föt sem þeir ganga i.
Þeir sem standa a bak við diskóið
notfæra sér tækifærið til þessað
græða á diskóinu. Annars er
diskóið á niðurleið. Þú sérð t.d.
poppþættina eins og Skonrokk.
Fyrst voru þeir uppfullir af diskó-
tónlist, en núna hefur nýbylgjan
tekið völdin”.
H: „Svo eru þeir sem eiga rik-
ari foreldra frekari diskói heldur
þeir sem eiga fátækari for-
eldra”.
— Hvað gera ykkar foreldrar
•>
,Mam ma er póstur og pabbi
hjá bænum”.
H: „Mamma vinnur i fiski og
bbi er netagerðarmaður”.
— Hvar eruð þið i pólitikinni?
Friöarsinnar
H: „Ég er anarkisti eða stjórn-
leysingi?”.
— Hvað þýðir það?
H: „Ég er bara á móti st jórn og
öllu sem að þvi litur. Mér finnst
að allir eigi að ráða sér sjálfir”.
S: „Ég hef sama sem enga
skoðun. Ef það væri eitthvað veit
égekkihvortþaðættiað kalla það
pólitiskar skoðanir. Ég er t.d.
friðarsinni og herstöðvaandstæð-
ingur.
— Ert þú það lika Helgi?
„Já”.
— En ég var að spyrja ykkur
um stelpumálin. Eru þið ekki að
reyna við þær?
S: ,,Ég meina, við erum ekkert
að kyngreina liðið, sem við um-
göngumst”.
H: „Ef maður nær sér i ein-
hvern mundi maður frekar vilja
stelpu”.
— Gerið þið það stundum?
„Það koma stundum góð tima-
bil svo önnur verri”.
Náttúran kallar.
— Hvað með foreldrana?
S: „Mér finnst þau ekki gera
sér grein fyrir aðstæðum okkar.
Við viljum skemmta okkur lika.
Eða eins og Bubbi segir:
Náttúran kallar, kynhvötin
vaknar. Hver verður að sinna sin-
um þörfum. Við erum lika mann-
eskjur”.
H: „Þau hafastundum of mikla
ábyrgðart ilfinni ngu ’ ’.
S: „Maður skilur þau kannski.
En þessar eili'fu áhyggjur eru
þreytandi. Og þau eru alltaf að
tönnlast á þvi að þetta hafi nú
ekki verið svona þegar þau voru
ung. Þau gera sér ekki grein fyrir
þvi að timarnir þróast svo svaka-
lega. En það þyðir svo sem ekki
alltaí að kvarta. Við erum ekkert
of góð sjálf.Við getum bætt okkur
ef við kærum okkur um það”.
— Er ekki góður mórall i Vik-
ingi?
„Hann er svona þokkalegur.
Það er stundum skammaö inná
vellinum. Sumir leikmenn ætlast
til of mikils af öðrum leikmönn-
um”
— Er heilbrigð sál i hraustum
likama?
„Já.”
— Hvaða önnur áhugamál hef-
urðu?
„Handbolta, frjálsar iþróttir,
badminton og blak. Nú svo er ég
með i félagslifinu bæði i skólanum
og annars staðar.”
— 1 hvaða skóla ertu?
„Ég var i Réttarholtsskóla en
fer i Menntaskólann við Sund.”