Helgarpósturinn - 07.08.1981, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 07.08.1981, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 7. ágúst 1981 eftir Guðmund Árna Stejfájissoir^ myndir: Jim Smart llitstjórn Aiþýftublaðsins, Vilmundur Gylfason, Helgi Már Arthúrsson og Garðar Sverrisson á skrifstofu blaðsins i gær. Flokksfólk stendur með mér," segir Vilmundur. Umsátursástand á Alþýðublaðinu og hriktir í stoðum Alþýðuflokks ..Alþýðuf lokkurinn hefur undanfarið verið i pólitisku dauðadái. Þegar siðan Vilmundur gefur flokknúm raflost og setur öndunarvélina i gang, með hressilegum skrifum um verka- lýðsmál i Alþýðublaðinu, þá vaknar flokkurinn tii lifsins. Fn þá ekki til að hefja baráttuna. heldur til þess eins að kippa öndunarvélinni úr sambandi, þ.e. Vilmundi. Flokksfory stunni virðist liða best i dauðadái og innan um flokkseigenda- klæikuna." Þetta sagði einn öflugur stuðningsmaður Vilmundar Gvlfasonar. alþingismanns og ritstjóra Aiþýðublaðsins nú i sumar. um þær deilur sem risið Jón Baldvin llannibalsson telur ekki gerlegt fvrir sig að taka við ritstjórataumum Alþýðublaðsins á meðan ástand mála er óbreytt. Helgarpósturinn skyggnist bak við innanflokks átökin i Alþýðu flokknum, þar sem Vilmundur Gylfason hefur lýst striði á hendur flokksforustu hafa innan Alþýðuflokksins á siðustu dögum vegna Alþýðu- blaðsins. Þessi deila hefur verið tiunduð allrækilega i blöðum, en engu að siður virðist ekki futlljóst um livað nákvæmlega ágrein- ingurinn snýst. Að minnsta kosti eru deiluaðilar langt l'rá þvi að vera sammála i þvi efni. Er Vilmundur i heilögu striði við flokksforystuna og notar þetta tækifæri til að skera upp herör, vekja athvgli á sjálfum sér um leið og setja sig i lilutverk fulltrúa þeirra minnimáttar i baráttu við kerfið? Er uin að ræða ágreining vegna verkalýðsmálastefnu flokksins og blaðsins? Er verið að ræða mál- og ritfrelsi ritstjórnar? Er málið tilkomið vegna persónu- legra átaka einstaklinga innan flokksins um það liver fari með völdin? Er málinu raunverulega lokið, en haldið áfram vegna þess að báöir aðilar vilja lita út sem sigurvegarar út á við? Er Alþýðuflokkurinn að klofna? Máiið er snúið, vegna þess að deiluaðilar virðast tala sitthvort tungumálið og uni óskylda hluti. Verkalýðsmál — grinblað Helgarpósturinn hafði sam- band við fjölda Alþýðuílokks- manna vegna þessa máls og spurði einfaldlega um hvað væri deilt i Alþýðuflokknum þessa daga. „Um verkalýðsmál," sagði Vilmundur Gylfason sjálfur og visaði þvi frá, að hans persóna væri grundvöllur þessara deilna. „Min persóna er hjóm eitt i samanburði við mikilvægi heii- birgðrar verkalý ö.-pólitikur. Þetta er lika spurn'- g um það, að við hér á ritstjr rninni fáum að skrifa og tala. Spurning um prentfrelsi." Bjarni P. Magnússon formaður framkvæmdastjórnar Alþýðu- flokksins og blaöstjórnar Alþýðu- blaðsins visaði þvi alfariö frá aö þessi krisa snúist um verkalýðs- mál: „Framkvæmdastjórn hefur þegar lýst trausti á starfsmenn ritstjórnar og skrif þeirra. Þaö var gert með samkomulagi á föstudaginn var, enda kom laugardagsblað Alþýðublaðsins út að venju og þar t.a .m. var f jall- að um verkalýðsmál, án allra athugasemda frá útgáfustjórn blaðsins, eða framkvæmda- stjórn.” Af samtölum við Magnús H. Magnússon varaformann Alþýðu- iiokksins, Benedikt Gröndal fyrr- um lörmann flokksins og nuver- andi alþingismann, Eið Guönason þingmann, og Sighvat Björgvins- son lörmann þingflokks, þá eru þeir i aðalatriöum sammála túlkun Bjarna P. Magnússonar á eðli þessarar deilu, — a.m k. hvi að þetta snúist hreim ekki um verkalýðsmál. Sighvatur Björg- vinsson lýsli þessum deilum á þennan hátt: „Upphlaup rit- stjórnar i miðvikudagsblaði Alþýðublaðsins, grinblaöinu, var undanlari ieikrits, sem sett var á svið af Vilmundi Gylfasyni, sem er meistari i uppsetningu l'arsa af þessari tegund. Hins vegar er þetta sorglegt leikrit, sem Vil- mundur hefur hleypt af stokk- unum. Mér var í'reinilega ætlaö hiutverk i þessu leikriti — ekki gott hlutverk, en eg.neí neitað að taka þátt i leiknum," Upphafiö Áður en lengra er haldiö er rétt að rekja sögu þessara vandamála innan Alþýðuflokksins. Á þriðju- deginum i siöustu viku vann rit- stjórn Alþýöublaösins, Vil- mundur Gylfason, Helgi Már Artúrsson og Garðar Sverrisson, óvenjulegt blað, er skyldi útgefiö a miövikudegi. t blaðinu voru tilbúin viðtöi og fréttir, sem ekki áttu sér stað i raunveruleikanum. Lýsti rit- stjórnin blaðinu sem „háði með pólitiskum ádeilubroddi". Ekki kom þó til þess að blaöiö kæmi út á miðvikudagsmorgni eins og til stóð, þar sem meirihluti blaða- stjórnar tBjarni P. Magnússon, Jóhannes Guðmundsson og Björn Friðfinnsson) ákváöu aö stöðva blaðið i prentun. Hitstjórn Alþyöublaösins brást ókvæða við þessum aðgerðum blaðstjórnar og taldi að kippt hefði verið fótum undan frelsi rit- stjórnar, sem bæri ábyrgð á efni Alþýðublaðsins og ritfrelsiö væri fótum troðið. Lögðu starfsmenn blaðsins þá strax niður störf og kom Alþýðublaðið ekki út á fimmtudeginum. S.l. föstudag tokust hins vegar samningar i þá veru, aö „grin- blaðið” svonefnda kæmi út með hefðbundnu laugardagsblaði Alþýðublaösins. Skyldi „grin- blaðið’’ sérmerkt. Töldu flestir að málið væri leyst. Svo var þó ekki, þvi á þriðju- degi fór ritstjórn Alþýðublaðsins fram á, að framkvæmdastjórn lýsti yfir trausti á undanfarin skrif blaðsins um verkalýðsmál, auk þess að beiöast afsökunar á þvi, að „grinblaöiö" heföi verið stöðvað á aðíarandi miðvikudag. Þessari ósk ritstjórnar hefur ekki verið sinnt ennþá. En hvaða atburöir geröust um helgina, sem hleyptu öllu i bál og brand á nýjan leik? Ýmsar skýringar hafa heyrst þar að lútandi. Vilmundur sagði um þetta: „Samkomulagiö á föstu- daginn gekk aðeins ut á það, að laugardagsblaðið kæmi út og - miðvikudagsblaðið þar auðkennt með. Þetta samkomulag var auð- vitaðengin traustyfirlýsing á mig og ritstjórnina, þvi á sama degi var hringt til Jóns Baldvins Hannibalssonar, þar sem hann var á ttaliu og hann beöinn að koma heim og taka við stjórnar- taumunum hið snarasta. Fyrst stöðva þeir blaðiö á miðviku- deginum og siðan liggja þeir i Jóni Baldvin um leiö og sam- komulag hafði veriö gert á föstu- deginum og byrja aö vinna gegn blaðinu og starfsmönnum af fullum krafti. Vilja koma mér út strax eftir helgi Hvers konar rugludallar eru þetta eiginlega? Þeir brutu heiðursmanna- samkomulagið, ekki ég." Magnús H. Magnússon varafor- maður flokksins sagðist ekki hafa vitað annað, en fyrir löngu hefði það verið ákveðið að Jón Baldvin kæmi tilstarfa við blaðið þann 1. ágúst, þ.e. siðasta þriðjudag. Ymsir héldu svo vera innan flokksins, en sannleikurinn mun vera sá, að Jón og Vilmundur höfðu ákveðið sin á milli og með vitund blaðstjórnar að ritstjóra- skipti yrðu ekki fyrr en næstkom- andi mánudag. Bjarni P. Magnússon formaður fram- kvæmdastjórnar sagöist hafa vit- að, að til stæði að Vilmundur sæti i ritstjórastóii út þessa viku og blaðstjórn hefði sist af öllu haft nokkuð við það að athuga. „Með útkomu laugardagsblaðsins var lýst yfir fyllsta trausti við Vil- mund og hans starfsmenn og gengið út frá þvi að þeir héldu sinum skrifum áfram. Annað var ekki uppi á teningnum." Gagnrýni úr skúmaskot- um Aðrar raddir hafa heyrst viö- vikjandi þessum breytingum sem urðu um siðustu helgi. Helgar- pósturinn hefur frétt það frá fieiri stöðum en einum, aö Vilmundi hafi borist til eyrna, að ákveðnir forystumenn flokksins hefðu haft samband við nokkur dagblöð og útvarp, og beðið þess að varlega væri farið i umfjöllun þessa Al- þýðublaðsmáls, þar sem málið snerist ekki um pólitik heldur væri um „mannlegan harmleik" að ræða. Mun Vilmundi hafa fundist sem hér hafi verið hoggið nærri ærusinni ogheilsu og gefið i skynaðhann væri eigiheill heilsu

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.