Helgarpósturinn - 07.08.1981, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 07.08.1981, Blaðsíða 22
22 Af djassplötumarkaðinum: Söngkonurnar miklu Hvorki fyrr né síðar í djass- sögunni hefur verið annað eins úrval söngv’ara og á svíngtim- anum. Það var að sjálfsögðu eðlilegt. Allar stóru svinghljóm- sveitirnar voru lika dans- hljómsveitir og urðu að hafa söngvara, helst tvo, karl og konu. Flestir bigbandsöngvar-' arnir voru af ætt grát- og sköpun áhrærir: Billy Holliday, Ella Fitzgerald og Sarah Vaughan. Billy og Ella heyra svínginu til en Sarah kom til sögunnar með poppinu. 1 Fálkanum má finna nokkuð gott úrval af hljóðritunum Billy Holiday, en heldur færra með Ellu og Söruh. Billy er þeirra elst (1915—1959), en ævi hennar sleikjusöngvara og oft hafa evrópskir aðdáendur Ellingtons og Basie mátt taka á honum stóra sinum til að umbera söngvarana sem stundum hafa villst með þeim yfir Atlants- hafið. En Ellington og Basie spiluðu lika valsa og tangóa á böllunum i Ameriku, þótt þær útsetningar séu nú fallnar i gleymsku og dá. Timinn skilur hismið frá kjarnanumi Mannsröddin er ekki heppi- legasta djasshljóðfærið og fyrsti djasssöngvarinn var Louis Armstrong: allir þeir er á undan honum komu verða að teljast djassblúsöngvarar og þar ber hæst Bessie Smith. Þrátt fyrir að söngur Armstrongs hafi verið enn andstæðari evrópsk- um fegurðarsmekk en trompet- leikurinn, var hann fyrst og fremst hljóðfæraleikari, og það hafa flestirbestukarlsöngvarar djassins verið ss. Fats Waller, Jack Teagarden, Dizzy Gillespie og Chet Baker. Undan- tekningarnar eru Kansans City blúsgjallararnir: Jimmy Rushing og Big Joe Tumer. Djasssöngkonurnar hafa afturámóti flestar haft sönginn að aðaigrein og ! þeirra hópi eru þrjár sem setja má f sama flokk og helstu hljóðfæra- leikara djassins hvað listræna var oft i 11 og átti hið hvita eitur helsta sök þar á. A siðari árum hefur tónlist hennar notið mik- illa vinsælda og átti kvikmynd sú er gerð var um ævi hennar stóran þátt i þvi, þótt þar hafi flestum staðreyndum verið snúið við og tónlistin útþynnt af Diönu Ross. Billy var lærisveinn Bessie Smith og Louis Arm- strongs og kannskihefur enginn söngvari djassins sungið af meiri innlifun, að Armstrong undanskildum. Elstu hljóðritanirnar sem finna má i Fálkanum eru frá 1939 og ’44 gerðar af Comodore. Þæreru á tveimur skifum fyrir safnara (Fine & Mellow og I’ 11 Be Seeing You) þar sem tvær tökur eru af flestum lögunum, sömu lög máöll finna á Strange Fruit (Atlantic SD 1614) og hentar sú plata vel þeim er ekki eru á kafi i' Hollidaypælingum. Trió Eddie Heywood leikur með henni f flestum laganna og þar erá trommur sá svingtrommari er ég mét mest: Big Sid Cattle. Titillagið er ein hrottalegasta, en um leið listrænasta lýsing á negraaftökum án dóms og laga i Suðurrikjunum sem finnst, enda mátti Billy þola miklar ofsóknir vegna þessa verks. Strange Fruitmá einnig finna i nýrri út- gáfu á plötunni: Lady Sings The Blues (Verve 2304 124) þar sem Charlie heitinn Shavers blæs á trompetinn. Þar eru einnig God Bless The Child og Some Other Spring, en engfnn blúsinn nema i millikafla titillagsins. Billy söng mjög sjaldan blús og stöllur hennar Ella og Sarah einnig. Fyrir utan þessa Verve- plötu,sem gefin er útiuppruna- legu umslagi má finna blöndu af öðrum Verveplötum á Stormy Blues (Verve 2632 066) og The Voice of Jazz (Mercury 9291 053). Afturámóti er engu sullað saman á Lady Love (United Artist 0598) sem er tekin upp á hljómleikum i Þýskalandi 1954 (liklega í Colonge) og þar er Red Mitchell á bassann. öll gömlu lögin eru á efnisskránni einsog gjarnan á slikum tónleik- um. Ekki er um auðugan garð að gresja i Ellu Fitzgeraldhillu Fálkans. Þar vantar margan Verve gimsteininn, sérstaklega albúmin þrjú sem hún söng með Louis Armstrong og er hið fyrsta þeirra, Ella And Louis, eitt hið sigildasta verk djass- söngsins. Afturámóti er Porgy & Bess til og er margt meistara- lega sungið af Ellu og Louis á þvi tvöfalda albúmi. Einnigeru til hljóðritanir Ellu og Basie bandsins frá 1979. A Perfect Match (Pablo 2312 110), og Digital 111 at Montreux en þar eru þau Ella og Basie á helmingi plötunnar, en Joe Pass og Niels-Henning hinumegin. Þessar plötur eru i hópi þeirra sem Ella hefur gert best á og á fyrra albúminu (Basie er aö visu aðeins á pianóið i seinasta laginu þegar allt er á suöu- punkti: Basella) syngur hún nokkur Billy Holiday lög: Please Don't Talk About Me When I'm Gone, Some Other Spring og Fine And Mellow. Sarah Vaughan er vafali'tið einhver magnaðasta söngkona djasssögunnar og hún er enn á fullu og vann bæði lesenda-og gagnrýnendakosningar Down Beat i fyrra. Þvi miður eru nýjar plötur heldur sjaldgæfur glaðningur frá hennar hendi en ein slik fæst nú i Fálkanum: Duke Ellington Song Book Two . TODAY SARAH VAUGHAA: DUKE EI I I YGTOX Qmn^ookxTu'fí (Pablo2312 116).Auk þessmá fá t.vær skifur frá fyrri tið og er önnur þeirra: Swingin' Easy (Mercury 633 6 713) sprellfjörug og þar erShulie A Bop og Lover Man, sem hún hefur sungið flestum öðrum betur og berg- mál þess mátti heyra hjá Sheyvonne Wright á Dizzy-tón- leikunum 1 Háskólabfói. Af mörgum söngkonum sem orðið hafa fyrir áhrifum frá Söruh mun Cleo Laine best þekkt hér- lendis. Sarah er með djúpa altórödd og er tónsviðið mikiðog tæknina skortir hana ekki né heldur sveiflu eða tilfinningu. Þetta er stór orð en sá sem hlustar á nýja Ellington albúmið hennar mun sannfærast um að ekki er hér tekið of djúpt i árinni. Á skifunni eru tiu verk eftir meistara Ellington og eitt eftir Billy Strayhorn. hægri hönd hans og vin: Chelsea Bridge. Flest eru Ellingtonlögin þekkt, en þó eru þarna þrjár perlur, sem sjaldan heyrast: Black Butterfly, Tonight I Shall Sleep og Every- thing But You. Það er gaman að heyra þau aftur, sérstaklega það siðastnefnda og er furðulegt að það hafi ekki ratað oftar á efnisskrá djassmeistaranna. Plötuumslagið er heldur fátækt af upplýsingum og segir ekkert af útsetjurum, en i nokkrum laganna er bigband og strengir þar að auki. útsetning- arnar eru traust handverk, ekkert þarutan, og þjóna vel til- gangi sinum sem umgjörð um meistarasöng Söruh. A flestum laganna leikur þó með henni kvartett, þar sem menn á borð við Joe Pass og Jimmy Rowles sitja við hljóðfærin. Frank Wess tekur nokkra flautusólóa og Waymon Reed sólóar á trompet. Þar er allt vel gert og ekkert meira um hljóðfæraleikinn að segja þar tilkemur að Rocks In My Bed, þar er blúsinn kom- inn til sögunnar og Pee Wee Crayton á gitarinn og Eddie „Cleanhead” Vinston á altóinn og i miðju lagi syngur hann blúskafla 1 stil þeirra gömlu og Sarah raularundir. Allt er þetta i mflufjarlægð frá 41.útgáfunni 0ar sem Ive Anderson söng með Ellington. Það er lika eitt af þvi skemmtilega viðplötuna. Sarah meðhöndlar Ellingtonmelódi- jrnarsvo allt öðruvisi en við er- um vön. Hraðar Mood Indigo, syngur Chelesa Bridge orða- iaust og Prelude To Kiss öðlast lýja dýpt i snilldarfraseringu >öruh. Slika söngplötu rekur akki oft á fjörur djassgeggjara. fönk og gömlu Moody B/ues Reggae, UB 40-Present Arms Ekki eru nema nokkrar vikur liðnar siðan ég fjallaði um Sign- ing Off. fyrstu plötu UB-40, sem þá var loks komin á markað hér.mörgum mánuðum eftir að hún kom út. Nú eru aftur á móti ekki liðnar nema nokkrar vikur frá útkomu nýju plötunnar, Present Arms, og er hún nú þeg- ar komin hingað til lands. Við eigum þetta þvi að þakka að UB- 40 hafa skipt um útgáfufyr- irtæki. I stað þess að gefa út hjá Graduate, eins og áður, þá hafa þeir stofnað sitt eigið útgáfufyr- irtæki, sem þeir kalla Dep. Um leið gerðu þeir svo dreifingar- samning við Epic utan Bret- lands og þar er komin skýringin á þvi hve fljótt platan hefur bor- ist hingað til lands. Tónlistin á Present Arms hef- ur ekki tekið neinum stórstigum framförum frá Signing Off. UB- 40leika ennþá poppaða reaggae- tónlist, sem er töluvert frá- brugðin þvi sem aðrir eru að spila. En Englendingum hefur þó likað tónlist þessi svo vel að Present Arms hefur, eins og Signing Off gerði reyndar lika, þegar komist í efsta sæti vin- sældarlistans þar i' landi. Ég held að það hafi ekki komið neinum á óvart sem hlustað hafa á UB- 40 að þeir njóti þess- ara umtalsverðu vinsælda. Tón- list þeirra er nefnilega mjög skemmtileg, jafnframt þvi að vera ákaflega þægileg. Textar beirra eru þó hápólitlskir og hafa þeir að undanförnu sætt nokkurri gagnrýni fyrir það, þar sem sumir telja það eyði- leggja fyrir skemmtanagildi tónlistarinnar. Ég hef hins veg- ar ekkert á móti þvi að menn komi skoðunum sinum á fram- færi á þennan hátt. Allt yfirbragð Present Arms er miklu pottþéttara en Signing Off var og sakna ég stundum þess að sú nýja er ekki eins til- raunakennd og hin en þeir bæta það upp með þvi að láta litla plötu fylgja með, þar senr þeir gera dubinu hin ágætustu skil i lögunum Dont Walk Ón The Grass og Dr. X. Sjálf stóra plat- an er svo mjög heilsteypt og þó að ekkert lag séá viðbestu lögin áSigning Off, svo sem Food For Thought, þá eru samt. sem áður á henni mörg ágæt lög eins og t.d. Dardonicus, One In Ten og Don’t Let It Pass You By. Ef einhver er að leita að góðri skemmtilegri og þægilegri plötu, þá er Present Arms áreiðanlega rétta platan og ef Signing Off er einhvers staðar til ennþá, þá mundi ég krækja mér i hana lika, áður en það verður of seint. Ýmsir — Rock ’n Reggae Fyrir nokkrum árum skrifaði blaðamaður nokkur hér á landi grein þar sem hann dæmdi þá nýútkomna samansafnsplötu. Notaði hann þar nokkuð skemmtilega samh'kingu, sem hæfir reyndar flestum saman- safnsplötum. Hann llkti plötunni við skyrhræring, sem hann taldi hinn versta mat. Mér datt þessi samli'king 1 hug þegar ég var að hlusta á Rock ’N Reggae. Þvi eins og skyrhræringur er settur saman úr skyri.mér finnst gott og hafragraut, sem mér finnst vondur, þá hefur plata þessi inni að halda nokkur góð lög, en lika nokkur léleg og þau síðarnefndu gera þaö að verkutn að ekki er gaman að hlusta_a plötuna. Ef ég nefni fyrst eitthvað af bragðvondu löganum, þá má nefna lagið Jamaika High með hljómsveitinni Lake, There Are More Questions Than Answers með Johnny Nash, Producers með Spliff, Power með Live W'ire og No Woman No Cry með Garland Jeffreys, það siðast- nefnda er reyndar frábært lag en i miður góðri útsendingu. Góðu lögin eru svo Simon með söngkonunni Joan Armatrad- ing,Get Up Stand Up með Peter Tosh, Hey Girl (Don’t Bother Me) með The Regulars og besta lagið á plötunni er African Reggae með Ninu Hagen Band. Þessi lög er öll hægt að fá á ágætis plötum með viðkomandi listamönnum og ætti þvi að vera alger óþarfiað gefa út plötu sem þessa, þvi hún er vondur eyrna- matur. Moody Blues — Long Distance Voyager I byrjun slðasta áratugs þótti Moody Blues hreint ekki svo slæm hljómsveit og var þá oft kölluð minnsta sinfóniuhljóm- sveit heims, en þetta var ein- mitt á þeim árum sem hljóðfær- ið mellotron var hvað vinsælast, fyrir daga strengjasynthesizers- ins. Mike Pinder, þáverandi hljómborðsleikari hljómsveit- arinnar, þótti einkar slyngur mellotronleikari, og átti hann eitt slikt forláta hljóðfæri og það meira að segja sérsmiðað! A þessum arum sendi Moody Blues frá sér nokkrar góðar poppplötur eins og In The Search Of The Lost Chord, On A Threshold Of A Dream, Quest- ion & Balance og Every Good Boy Deserves AFavour Si"ðan er þó liðinn langur timi, að minnsta kosti ef miðað er við æviskeið flestra popphljóm- sveita og enn eru Moody Blues að selja plötur i milljónatali um allan heim. Tónlist þeirra hefur þó litið breyst. Að visu er Mike Pinder horfinn á braut með mellotronana sina og í hans stað kominn Patrik Moraz með synthesizera, svona til að móderniséra hljóminn. En allt kemur fyrir ekki, Moodies hljóma útrúlega likt og þeir gerðu fyrir sjö til átta árum sið- an. Ennþá semur Justin Hay- ward bestulögin, Graham Edge það lélegasta, og Ray Thomas þau væmnustu, en Patrik Moraz sem er ágætis lagasmiður á ekkert Iag á plötunni og er það skaði. Með Mike Binder er svo farinn sá meðlimur hljómsveit- arinnar sem samdi tilrauna- kenndustu lögin. Það eru sjálfsagt einhverjir Moodiesaðdáendur enn til á tslandi, eins og annars staðar i heiminum, og fyrir þá er Long Distance Voyager kannski ekki slæm plata, en ég held hún geti varla talist góð. Linx-I nutition Linx kalla þeir sig þessir tveir hressu náungar, David Grant og Sketch, sem hafa vakið verð- skuldaða athygli í Bretlandi að undanförnu. Þeir hafa nefnilega sýnt fram á það með plötu sinni Intuition að það er hægt að spila skemmtilega fönk tónlist. Að visu þótti Bandarikjamönnum þeir nokkuð grófir en það er bara góðs viti. Það tók þá Grant og Sketch þó nokkurn tima að sannfæra hljómplötuútgefendur i Bret- landi um ágæti tónlistarinnar og það varekkifyrr en þeir höfðu á eigin spýtur gefið út lagið You’re Lying, að Chrysalis hljómplötufyrirtækið tók við sér og gerði við þá samning. Plötunni hefur yfirleitt verið vel tekið og hafa óliklegustu músíksnobb sést læðast með hana inn'um bakdyrnar heima hjá sér, eftir þvi sem fréttir herma. Intuition er lika hin þokkaleg- asta plata, gerð til þess að skemmta fólki og heppnastþað ágætlega. Þar að auki er hún áreiðanlega með betri fönkplöt- um sem komið hafa út slðan C’est Chic kom út fyrir þremur árum.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.