Helgarpósturinn - 23.12.1981, Page 4

Helgarpósturinn - 23.12.1981, Page 4
_______helgarpásturinn- • spri er það skemmtilegasta sem hún veit. Hún vill að það sé dansað og við dönsuð- um saman þegar Ingimar Eydal spilaöi svolitið á eftir. Ég semsagt geri það sama og aðrir foreldrar. Les mikið fyrir hana og við spjöllum og körpum um hvað er rétt og hvað rangt. Við erum nefnilega ekki alltaf sammála fremur en aðrar mæðgur.” Ryksugan á fullu — Hvernig notarðu annars fristundir, — ef þær eru einhverjar? „Ja,allir verða nú að hafa einhverjar fristundir. bað væri litið púður i lifinu annars. Ég er ákaflega heimakær og þyk- ir gott að vinna heima. Fristundirnar hef égalla ævi mest notað til að vinna. Það er ef til vill skritið að segja þetta en ég slappa af við að vinna. Þegar ég er heima og ekki að spjalla i góöu tómi við vini og kunningja.” — Hvað ertu aö vinna? ,,Ég er að dunda viö að skrifa eitthvað, þýða eitthvað, eða að lesa eitthvað sem ég held að geti komið mér að gagni seinna, punkta sitthvað hjá mér, geri útdrátt og svo framvegis. Og svo þetta klassiska sem alltaf á vist að fylgja: Ég hlusta mik- ið á tónlist.” — Hvað hefurðu verið að lesa núna? „Ég er búin með Ólaf Thors, svona nokkurn veginn, Stóru bombuna,Einbjörn Hansson, svo er ég auðvitað búin að lesa viðbótina af sjálfri mér! Ég hef blaðað i gegnum Landið þitt — sem er okkar, og sitthvað fleira, en ég á eftir að lesa heil- mikið af þvi sem ég ætla mér.” — Löngum hefur verið sett samasem merki milli kvenna og heimilishalds. Att þú til að rjúka i ryksuguna? „Nú þykir mér gaman að þér! Mér hef- ur alltaf þótt gaman að heimilisstörfum. Ég veit að margar konur eru mér sam- mála um að það er gott að hugsa meðan maður ryksugar. Maður hreinsar hug- ann um leið og gólfið. Og það sem ég get verið einbeitt þegar ég er að þvo upp! Ef ég á að halda ræðu eða eitthvað slikt,þá tek ég gjarna til við uppþvottinn. Hitt er annað, að þegar mað- ur hefur mikla hjálp, þá er auðvitað oft búið að gera þetta þegar maður birtist. Ég hef feikigott starfslið i kringum mig.” — Kokkar þú nokkurntima sjálf i gesti þina? „Já, það geri ég oft. Ekki gesti embætt- isins að Bessastöðum að visu, enda eru það svo stórar veislur yfirleitt. En ef það eru einkagestir minir, þá geri ég það oft. Mér þykir ákaflega gaman að búa til mat. En mér leiðist að baka.” — Þú bakar þá ekki til jólanna? „Nei, þaðgeri ég ekki, — ekki einu sinni Bessastaðakökur.” Seint týnist skáldagáfan — Einhleyp kona i forsetaembætti er tilvalið hráefni i slúðursögur. Verður þú mjög vör við þær? „Ég heyri sitt af hverju og seint munu Islendingar týna skáldagáfunni.” — Læturðu þetta hafa áhrif á þig? ,,Nei,ég held ég sé komin yfir það. Ég var óvön þessu fyrst. En I rauninni er þetta svo smátt. Sjálfri leiðist mér slúður og er vandræðalega óminnug á kjaftasög- ur. Þegar á að fara að rif ja eitthvað upp af þessu tagi,sem ég á að vita,er ég búin að gleyma þvi. Sérstaklega af þvi að mér finnst mér ekki koma það við. Og það dái ég mikið á Islandi, og hef margsagt og komið á framfæri erlendis, hve einkahag- ir manna eru virtir. Það er ekki sjiunnið upp neitt slúður um landsmenn i blöðun- um. Það er islenskum blaðamönnum til sóma að hafa haldið friðhelgi einstakl- ingsins að þessu leyti.” — Hvað er forsetinn aö gera núna? „Forsetinn á að halda nýársræðu 1. janúar. Ég þarf mikið að skrifa af ávörp- um, greinum og þess háttar. Hvenær sem ég get hjálpað til við eitthvert málefni, þá geri ég það ef ég mögulega get. Það er alltaf eitthvað undir penna, og það er timafrekt.” — Hver verður áramótaboðskapurinn? „Eigum við ekki að láta hann biða sins dags?” — Jú, kannski. En hvernig helduröu jól? „Með fjölskydu minni. Ég er svo heppin að ég á stóra f jölskyldu,er vinmörg mann- eskja. Ég er ákaflega vinasæl. Þ.e. að ég er sæl með vini mina. Ég nýt sældar 1 sambandi við vini, og á góða fjölskyldu.” — Ertu búin að taka ákvörðun um að bjóða þig fram annað kjörtimabil? „Þetta eF varla nema rétt byrjað. Ég læt hver jum degi nægja sitt að sinni. Það er ómögulegt að segja hvernig maður kann að hugsa eftir mörg ár. Mér er eftir- minnileg ung kona sem ég hitti fyrir nokkrum árum úti i Sviþjóð. Hún var þá um 25 ára gömul og var nýbúin að flytja inn i stórt hús. Og hún sagði við mig: „Harskallvibo tills vi pensioneras.” Mér fannst þetta hálf dapurlegt. Ég treysti mér alls ekki til að ákveða á þessari stundu hvað ég vil helst gera þar til ég fer á eftirlaun.” Miðvikúdagúr 23. deserriber’ 1981 Flestum likaði vel, en einn sagði að þú værir einum of mikið glamúr fyrir sinn smekk. „Þetta finnst mér nú ákaflega sér- kennilegt ef ég á aö segja eins og er. Ég hef aldrei veriö mikiö fyrir glamúr og þetta er I fyrsta skipti sem ég heyri það nefnt i sambandi viö mig. En ég hef alla tið verið broshýr og er ákaflega hlátur- mild, enda finnst mér þó nokkuð gaman að lifinu. Mér er ákaflega tamt að sjá hin- ar spaugilegu hliðar þess. Hvað er annars glamúr? — Er það ekki eitthvað sem kvik- myndastjörnur hafa? „Eru þessar glamúrdömur ekki venju- lega á sundbolum að auglýsa bila eða eitt- hvað svoleiðis? Ég átta mig ekki á hvað maðurinn meinar. Ég er ósköp venjuleg miöaldra frú. Ef ég sit fyrir framan mann, eöa jafnvel fyrir framan ljósmynd- ara eins og núna,þá get ég ómögulega ver- ið aö setja mig i stellingar.” Ekki stríð — Þú sagöir áðan að fjölmiölafólk hefði heimsótt þig unnvörpum. Hvernig er reynsla þin af þvi fólki? „Góö. Veistu það, ég er svo lánsöm i þessu lifi að ég hitti yfirleitt fyrir sóma- fólk. Aragrúi fréttamanna hefur komið hingaö, viö höfum spjallað frjálslega saman og margt ágætt komið útúr þvi. Þú veist, að þvi meira sem maður fer að kryfja til mergjar spurningar eins og þu varpar fram um glamúr og þviumlikt, þvi betur kemstu að einhverri niðurstöðu um lifiö. I öllum þessum viðtölum hefur komið fram að ég hef einsett mér, — og það er með ráðum gert, að lita fremur á björtu hliðar lifsins en þær dökku. Ég má ekki hugsa til þess að fólk i kringum mig hafi mig sirexandi yfir sér. Þannig fólk er svo óendanlega leiðinlegt. Þessi endalausi barlómur útaf öllu. Þessu hef ég komið til skila. Ég er bjartsýn að eðlisfari, en þó raunsæ að ég tel. Auðvitað á ég, eins og allar aðrar manneskjur i heiminum, stundir þar sem mér finnst allt ómögu- legt. En ég hef sett mér að láta það ekki kaffæra mig. Hefði ég gert það væri ég löngu farin til feðra minna. Ég hef komið þvi til skila að ég treysti þvi, og reyni að vinna aö þvi öllum árum, — að ekki komi strið. Og fólk hefur veitt þvi athygli. Ég hef talaö um þetta i mörg ár. Núna virðist þetta vera sérstaklega i takt við timann. Menn eru sifellt aö gera sér grein fyrir þvi að það verður að gera eitthvað, og að það er almenningsálitiö, nógu óendanlega sterkt, sem getur ráðiö þar nokkru um. Þar vil ég vera þátttak- andi. Og ákaflega mikið af bréfum sem ég fæ eru i sambandi við þetta. Ég hef reynt að koma landinu og þjóð- areinkennum til skila i viðtölum við þessa blaðamenn. Menningu okkar, landinu sjálfu,undrinu að eiga þvilikar auðlindir, sem vatnið og jarðhitann. Friðarhreyfingarnar merkilegar — Má ekki skilja þig þannig að þú styöjir hinar svokölluöu friöarhreyfingar I Evrópu? „Mér finnst þessar friðarhreyfingar 1 Evrópumjög merkilegar og athyglisverö- ar. Hugsaðu þér, að það skuli gerast aö það safnast saman á einum sunnudegi i Bonn 250þúsund manns.sama sem öll is- lenska þjóðin, til að vekja á þessu athygli; það sama gerist i öðrum borgum. Þetta er fólk sem á eitt sameiginlegt markmið. Það vill ekki gera lönd sin að vigvelli. Menn taka einnig til máls hjá Sameinuðu þjóöunum og slá á sömu strengi. Nei,ég sætti mig ekki við aö börnin vaxi upp um- lukin ótta okkar fullorðinna við strið. Maður hlýtur að þurfa að stappa stálinu i unga fólkið. En það er ekki nóg að þær þjóöir einar afvopnist sem eru friðsam- astar, heldur þarf að nást alhliða sam- komulag um afvopnun. Ég vona að vax- andi umræöa um þessi mál skapi grund- vöíli þá veru. Sterkt almenningsálit hefur þar geysimikið að segja. Aö hrópa svo hátt að það verði alls staðar hlustað.” Næmt ,/loftnet" — Frægðin er dóp, sagði einhver ein- hverntíma. Hefurðu nautn af frægðinni og umtalinu? „Nei, ég nota ekki það dóp frekar en annaö. Ég tek litið eftir þessusjálf. Ég hef um nóg annað að hugsa. Stundum verð ég þó auðvitað vör við að eftir mér er tekið. Ég heyröi einu sinni i sumar konu segja við aðra konu þar sem þær gengu á eftir mér á Strikinu I Kaupmannahöfn: Det er underligt hvor den dame ligner præsident Vigdís! En yfirleitt skiptir þetta mig litlu.” — Áttu sömu vinina nú og áður en þú tókst við þessu embætti? „Já, alla sömu vinina. Engum tapað. Auk þess hef ég eignast marga i viöbót. Það er það merkilega við þetta allt sam- an. Og þó. Ég hef kynnst svo mörgum, og þau kynni hafa iðulega leitt til vináttu. Svo hafa lika gamlir vinir skotið upp koll- inum — vinir sem ég hafði ekki hitt I hálf- an annan áratug, eða lengur.” — Er ekki svolitið erfitt aö greina á milli þeirra sem hafa áhuga á þér af þvi að þú ert Vigdis, og þeirra sem hafa á- huga á þér af þvi aö þú ert forseti? „Nei, maður finnur það nú nokk á sér. Ég hef talsvert næmt „loftnet”. Ætli það sé ekki þetta sem kallað er „womans intuition”, eða kvenlegt innsæi^ins og það hefur vist verið þýtt á islensku. Hlédrægni — Verðurðu mikið vör viö snobb i kringum þig? „Nei. Ef ég verð vör við eitthvað þá er það fremur hlédrægni. Islendingar eru svo blessunarlega lausir viö snobb. Enda trúi ég ekki að nokkur tslendingur sé snobbaður fyrir mér. Ég er það ekki sjálf.” „Ef ég á að halda ræðu eða eitthvaö slikt, þá tek ég gjarna til við uppþvottinn”. — En hvernig hefur framkoma fólks breyst gagnvart þér? „Sumir eru samsagt hlédrægari og hefja mál sitt eitthvað á þá leið: Ja, ég veit nú ekki almennilega hvort ég á að þora að nefna þetta við þig. Og þá verö ég aö taka af skariö og segja: auðvitað,eða af hverju ekki? — Aðrir eru miklu broshýr- ari en áöur, þegar ég birtist, og það kann ég vel að meta. En annað hefur vakið athygli mina. Ég vissi ekki að þetta embætti ætti svona mikil itök i fólki. Það sýnir þessum emb- ættismanni þjóðarinnar hlýju. Ég hef fundið þetta og ég held að þeir sem voru i embættinu á undan mér hafi fundiö það á sama hátt. Að minnsta kosti var það af- staða min til forvera minna, án þess aö mig grunaði að ég ætti nokkurntima eftir að feta I þeirra fótspor.” — Fetarðu I þeirra fótspor eöa tekurðu þin eigin hliðarspor? „Svo ég komi að þessu aftur: Allar skoðanir eru til að breyta þeim,ef ný við- horf myndast. Ég er ekki sama mann- eskja og þeir. Ég hlýt að lifa minu lifi, með þeim skyldum sem ég hef tekið að mér.Það væri til að æra óstööugan ef for- setinn væri eins og útklippt mynd,alltaf eins. Guði sé lof að svo er ekki.” Eins og aðrir foreldrar — Þegar þú sest niöur að kvöldi fyrir framan spegilinn eftir erfiðan dag, fullan af opinberum brosum, séröu þá gömlu Vigdisi, sem var kennari og leikstjóri? „Já, það er nú likast til. Verð freknótt á sumrin alveg hreint eins og áður.” — Er ekki tómlegt þarna hjá ykkur mæðgunum i stórum sölum Bessastaða? af hverju ætti það að vera? Við höfum einkaibúð, sem einmitt eru litil hlýleg búum á efri hæðinni.” — Eruði mikið á Bessastöðum? „Að sjálfsögðu. Dóttir min gengur i Álftanesskóla. Við eigum okkar lögheim- ili þar og búum þar.” — Hvaöa áhrif hefur þetta haft á dótturina? „Hún hefur komist blessunarlega frá öllu umstangi og breytingum á lifshátt- um. Og það er nú fyrst og siðast af þvi að éghef lagt áherslu á að vernda hana. Hún á að fá uppeldi eins og venjulegt barn. Enda er hún það. Ég hef gætt þess að hún sé aldrei með i neinum samkvæmum eða þess háttar. Ég held ég sé nokkurn veginn eins og aðrir foreldrar sem bera hag barna sinna fyrir brjósti. Við förum i bió saman og stundum i leikhús. Við fórum t.d. að sjá Reviuna frá Akureyri saman þegarhúnvar sýnd á Hótel Sögu. Svoleiðis „Eg er farin að rýna I stjórnmál öllum stundum, og það geröi ég ekki áður”. „Ég er ekki mikið gefin fyrir Iburð og prjál, sist I svefni”. „Er vandræðalega óminnug á kjaftasögur”

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.