Helgarpósturinn - 20.08.1982, Síða 11
kynni í þrívídd
Náin
Viltu láta skúrkinn í bíómynd-
inni kýla þig á kjaftinn? Ha?
Ekki hægt, svarar þú, og hefur
alveg rétt fyrir þér. Þú getur setið
rólegur fyrir framan sjónvarpið
þitt, eða í venjulegu kvikmynda-
húsi, þegar ofannefndur skúrkur
kemur æðandi með framréttan
hnefann í átt að myndavélinni.
Þetta er bara bíó, og þú veist, að
hann kemst ekki út úr kassanum
eða tjaldinu. Hann nær mér sko
ekki, hugsar þú með sjálfum þér
og stingur upp í þig enn einum kon-
fektmolanum.
Allt í lagi. En farðu þá á 3-D, eða
þrívíddarmynd, eins og við köllum
þær, og sestu á fremsta bekk. /Etli
þú yrðir jafn rólegur og áður?
Ætli þú hrykkir ekki nokkrum
sinnum í kút og reyndir að forðast
höggin? Það mætti segja mér það.
í þrívíddarmyndinni ertu nefni-
lega sjálfur orðinn þátttakandi í
leiknum, og þú hefur það á tilfinn-
ingunni, að þú getir snert allt, sem
er á tjaldinu fyrir framan þig. Og
öf ugt.
íslenskir kvikmyndahúsagestir þekkja
flestir þrividdarmyndir aðeins af afspurn,
ef þeir á annað borð hafa heyrt þeirra getið.
Nú gefst öllum hins vegar tækifæri til að sjá
slikar myndir reglulega i einu af kvik-
myndahúsum höfuðborgarsvæðisins —
nánar tiltekið i Bióbæ i Kópavogi.
Gunnar Josefsson, rekstrarstjóri Bióbæj-
ar, sagði i samtali við Helgarpóstinn, að
ástæðan fyrir þvi að kvikmyndahúsið hefði
sérhæft sig i sýningu slikra mynda væri sú,
að þvi heföi boðist kvikmyndin t opna
skjöldu, sem sýnd var fyrr á þessu ári.
„Þetta var eitthvað nýtt, og það má
segja, aðþetta sé svar okkar við videóinu”,
sagði hann.
Nýtt og ekki nýtt, en siðari ástæðan sem
Gunnar nefnir, er einmitt sú sama og rak
bandarisk kvikmyndafélög út i gerð þri-
viddarmynda i upphafi sjötta áratugarins.
Nema hvað, að þá hét videó bara sjónvarp.
Bölvað sjónvarpið
Kvikmyndaframleiðendur i Hollywood
voru lengi vel á móti sjónvarpi og leiddu
það algjörlega hjá sér. Þeir bönnuðu,
margir hverjir, leikurum sinum að koma
fram i sjónvarpi, og þeim sást meira að
segja yfir þann möguleika að auglýsa vænt-
anlegar myndir sinar i imbakassanum til
þess að ná aftur þeim áhorfendum, sem
sjónvarpið hafði fest i neti sinu. A árinu
1952 uppgötvar Hollywood, að viðskiptin
ganga illa, og sér fyrir, að ástandið eigi eft-
ir að versna. Ahorfendum hafði fækkað
mjög mikið og skuldinni var að sjálfsögðu
skellt á sjónvarpið.
Framleiðendur sáu, að eitthvað varð að
gera til þess að ná aftur i þá, sem sátu
heima og horfðu ókeypis á þætti i sjón-
varpstækinu sinu. Það varð að bjóða áhorf-
endum upp á lifsreynslu, sem þeir gátu ekki
öðlast fyrir framan tækin sin heima i stofu.
Nýjungarnar fólust aðallega i þvi, að sýn-
ingartjaldið var stækkað til muna, og upp
komu tækniorð eins og cinerama, cinema-
scope, panavision og Todd-AO, svo einhver
séu nefnd. Ein nýjungin, sem i rauninni var
ekki nýjung, var svo þrividdarmyndin, þar
sem þrividdarábrifin náðu hámarki sinu.
Aö græöa á 3. víddinni
Þrividdartæknin byggir á þvi, að augu
okkar sjá hlutina ekki alveg eins. Vinstra
augað sér aðeins meira af vinstri hlið á-
kveðins hlutar — nema hann sé i mikilli
fjarlægð — og hægra augað sér meira af
hægri hliðinni. Til þess að skrá atburðinn
eins og mannsaugun, tekur þrividdar-
myndin tvær myndir á sama augnablikinu.
Linsa einnar myndavélar tekur inn það,
sem hægra augað mundi sjá, og linsa ann-
arrar vélar — um sjö sentimetra frá — tek-
ur inn það, sem hitt augað mundi sjá. Þess-
ar myndir eru siðan sýndar samtimis og til
þess að sjá þær sem eina mynd með 3. vidd-
inni, þarf að nota sérstök gleraugu.
Fyrsta myndin i þessu þrividdaræði hét
Bwana Devil og þykir hún ekki sérlega
merkileg. Hins vegar naut hún gifurlegra
vinsælda. Það var þvi eins og við manninn
mælt, allir vildu vera með, og þetta sama
ár, 1953, voru framleiddar um sextiu þri-
viddarmyndir i Ameriku. Allir vildu græða.
Þrividdarmyndir þessar voru svo til allar
gerðar fyrir litið fé og oft voru þær gerðar
eftir handritum gamalla mynda. Þá voru
gæði þeirra ekki mikil, bæði var efnið ó-
merkilegtog illa unnið tæknilega. Þetta átti
sinn þátt i að vinsældir þeirra dvinuðu
fljótt, auk þess sem sýningarmenn áttu oft i
erfiðleikum með tækin, sem þá voru notuð
til sýninga á þessum myndum.
En kvikmyndaverin notuðu þrividdar-
tæknina ekki eingöngu á lélegar myndir,
heldur fengu góðar myndir, eins og Kysstu
mig Kata, eftir hinu vinsæla Broadway-
leikriti Cole Porter, og mynd Hitchcocks
Dial M for Murder að fljóta með. Þegar
MGM bauð upp á „flata” útgáfu af Kötu i
Þrívíddarmyndirn
ar komnar aftur
Framtíðarskrímslin eru nú komin í þriðju
víddina. Veggspjaldið segir frá myndinni,
sem nú er sýnd í Bíóbæ, eina kvikmyndahús-
inu sem sérhæfir sig í þrívíddarbíómyndum.
árslok 1953, kom það hins vegar i ljós, að
hún var betri þannig og náði meiri vinsæld-
um. Warner bræður sýndu hins vegar
aldrei Hitchcock myndina i þrividd, þvi
þegar hún var loksins tilbúin sem slik, var
þrividdaræðið búið. Það er þó aldrei að vita
nema hún birtist á næstunni, ef hið nýja þri-
viddaræði verður eitthvað meira en loft-
bóla.
Gamalt vin
Enda þótt þrividdarmyndir hafi ekki náð
neinni útbreiðslu fyrr en á sjötta áratugn-
um höfðu tilraunir i þá átt verið gerðar i
tæp eitt hundrað ár. Arið 1861 tók Coleman
nokkur Sellers ljósmyndir af hreyfingum
barna, og notaði til þess tvær stereóskóp-
iskar linsur. Afraksturinn var siðan sýndur
i sérstöku tæki. Arið 1889 tók Friese Green
tvöfaldan ramma á filmu og hann hefur lik-
lega skoðað myndirnar með hjálp spegla.
Arangurslausar tilraunir voru gerðar meö
þrividdarmyndir á næstu þrjátiu árum, en
það var ekki fyrr en i lok þriðja áratugar-
ins, sem fram komu brúklegar lausnir.
Fyrri lausnin, og sú frumstæðari, byggir á
tveim stereóskópiskum myndum i tveim
litum, rauðu og grænu. Ahorfendur
þurftu siðan að horfa á myndina i gegnum
gleraugu i sömu litum. Hin lausnin byggir á
polaroid filterum. Slikir filterar voru settir
bæði fyrir framan sýningarvélarnar og i
gleraugu áhorfenda.
Það er alveg ljóst, að áhrif þrividdar-
kvikmynda geta verið mun meiri en áhrif
hefðbundinna „flatra” mynda, en spurn-
ingin er bara hvort hið nýja þrividdaræði á
eftir að vara. Eins og er virðast hryllings-
myndir og klámmyndir vera það helsta
sem boðið er uppá, og er það ósköp skiljan-.
legt, þar sem biógestir eru ólmir i aö verða
fyrir sterkum áhrifum. Ef slikar myndir
verða eingöngu á boðstólum, er ekki ólik-
legtað eins fari fyrir æðinu núna og á árun-
um 1953-’54.
Næstu þrividdarmyndir, sem við fáum aö
sjá i Bióbæ, eru Tiger Man.sem er karate-
myndiBruce Lee stilnum, WhattheSwedish
Butler Saw.sem er amerisk bermynd með
! hinum vinsæla danska leikara Ole Söltoft
sem allir þekkja úr Rúmstokksmyndunum,
ogsiðast en ekki sist Andy Warhol’s Frank-
enstein sem hjálparkokkur hans Paul
Morrissey stjórnaði.
Kýldu bara, ef þú þorir.
í opna skjöldu. Hún átti greinilega ekki von á þessu,
stúlkan í fyrstu þrívíddarmyndinni, sem Bíóbær sýndi.
Bráðum fáum við hins vegar aS sjá Franken- ...og karatemynd í anda kappans mikla, Bruce Lee. Og að sjálfsögðu eru
stein í útgáfu Andy Warhol ... báðar þessar myndir í þrívídd.