Helgarpósturinn - 20.08.1982, Page 25
'e/gar'Jsv/- .í*í ^l!0^blKaÖBooo
fq,ýy /r/nr? Fostudagur 20. agust 1982
25.
LAUQARA8
ji;
Simi 3207S
★
Okkar á milli - í hita og þunga dags-
ins. -sjá umsögn í Listapósti.
ÉGNI
C 1« ÖOÍ^
SIMI
18936
★ ★ ★
Síðsumar (On Golden Pond).
Bandarísk kvikmynd, árgerð 1981.
Handrit: Ernest Thompson, eftir
eigin leikriti. Leikendur: Henry
Fonda, Katherine Hepburn, Jane
Fonda, Doug Mackeon. Leikstjóri:
Mark Rydell.
Hvað gerir góða mynd svona góða?
Leikarar, handrit, leikstjórn, kvik-
myndataka o.s.frv. Allir þessir
þættir verða að vefjast vel saman
svo karfan slitni ekki. Hún verður
að bera áhorfandann gegnum
myndina. Stundum finnur maður
fyrir því að hné eða olnbogi rekst í
gegn, stundum hangir maður á
nokkrum þáttum og stundum er
bara engin karfa til staðar. Hér er
karfan þétt og silkipúði á botn-
inum. ★ ★ _ JAE
Undir Urðarmána (The Stalking
Moon). Bandarísk kvikmynd, ár-
gerð 1968. Leikendur: Gregory
Peck, Eva Marie Saint. Leikstjóri:
Robert Mulligan.
Eltingarleikajvestri. Indíánafaðir
barnsins hennar eltir hana, en hún
hefur sloppið úr fangavist hjá Indí-
ánum. Hraði og spenna.
Nærbuxnaveiðarinn. (Every Home
should have One). Bandarísk kvik-
mynd. Leikendur: Marty Feldman,
Penelope Keith.
Feldman, gríni'tinn góði, leikur
auglýsingastjóra, sem á í baráttu
við prestinn á staðnum. ^
Mannræninginn (Sweet Hostage).
Bandarísk kvikmynd, árgerð 1975.
Leikendur: Martin Sheen, Linda
Blair. Leikstjóri: Lee Philips.
Mannránsmynd, eins og nafnið
gefur til kynna, en öðruvísi mann-
ránsmynd, því að hin rænda vill
ekki yfirgefa ræningjann, létttrufl-
aðan og rómantískan ungan mann.
Ekki sem verst og fallegt landslag.
Mynd fyrir rómantíkerana.
★ ★ ★
Sólin ein var vitni (Evil under the
Sun). Ensk. Argerð lilXI. Leik-
stjóri: Guy Hamilton. liandrit:
Anthony Shaffcr. Aðalleikari:
Pcter Ustinov.
.3* 1 -1 5-44
Glímuskjálfti í gaggó (Fighting
Chance). Bandarísk kvikmynd, ár-
gerð 1981. Handrit: Kieth Merrill
og Eric Hendershot. Leikendur:
Edward Herrmann, Kathlccn
Lloyd, Lorenzo Lamas. Leikstjóri:
Kicth Merrill.
Menntaskóli nokkur í Ameríku
héfur alltaf tapað fyrir öðrum skóla
í íþróttakeppni. Sveinar skólans
vilja þó gera tilraun til að sigra
a.m.k. einu sinni áður en þeir út-
skrifast.
TÓNABÍÓ
Sími 31182
Barist fyrir borgun (The Dogs of
War). Bresk-bandarisk. Argerð
1980. Leikstjóri: John Irvin. Aöal-
hlutverk: Christopher Walken,
Tom Berenger, Colin Blakely.
Simi 11475
Neyðarkall frá Norðurskauti (Ice
Station Zebra). Bresk-bandari.sk
kvikmynd, árgerð 1968. Leikcnd-
ur: Rock Iludson, Ernest Bor-
gnine, Patrick McGoohan. Lcik-
stjóri: John Sturgcs.
Yfirleitt hröð og skemmtileg
mynd, sem gerð er eftir einni af
sögum Alasters Makklíns*
Ognvaldurinn (Parasite). Banda-
rískkvikmynd, árgerð 1982. Hand-
rit: Allan Adler. Leikcndur: Ro-
bert Glaudini, Demi Moore. Leik-
stjóri: Charles Band.
Þrívtddarmynd um vísindamann,
sem hefur framleitt einhverja
óvætti, sem er að því komin að
granda honum. Myndin gerist í ná-
inni framtíð, þegarStóri Bióðirræð
ur öllu, eða svo til. Heldur þunnt
handrit og leikur eftir því. en þrí-
víddarbrellurnar sumar alveg ágæt-
ar. Ef menn hafa enn ekki séð slíka
mynd, ættu þeir að skella sér.
\
U.IM
ií 7Ronn
A-salur
Einvígi köngulóarmannsins (The
Dragon Challenge). Bandarísk
kvikmynd. Leikendur: Nicholas
Hammond, Ellen Bry, Robert F.
Simon. Leikstjóri: Don McDougal.
Köngulóarmaðurinn reynir að
bjarga ráðherra í Kína frá falli og
dauða og að sjálfsögðu tekst hon-
um það mætavel.
sýnd kl. 3 og 5.
Góðir dagar gleymast ei (Secms like
Old Times). Bandarísk kvikmynd.
Handrit: Paul Simon. Leikendur:
Goldie Hawn, Chevy Chase, James
Brolin. Leikstjóri: Jay Sandrich.
Hraðsuðuhandrit frá Páli Símon-
arsyni og lítt fyndið. Aðdáendur
Goldie Hawn ^eta þó fengið
eitthvað út úr þessu. Sýnd kl. 7, 9
og 11.
B-salur: * *
Cat Ballou. Bandrisk kvikmynd,
árgerð 1965. Leikendur: Lee Mar-
vin, Jane Fonda, Nat King Cole.
Leikstjóri: Elliot Silverstein.
Stórkostlega skemmtileg og fynd-
in kúrekamynd. Tekiö er til þess
hve vel Marvin stendur sig, enda
fékk hann Óskarinn fyrir
Bara viö, væna min (Just You
and Me, Kid). Bandarisk kvik-
mynd, árgerö 1980. Leikendur:
Brooke Shields, George Burns,
Burl Ives. Leikstjóri: Leonard
Sterm.
Bráöfjörug og skemmtileg
gamanmynd um samskipti
gamlas manns og ungrar stúlku,
sem hann finnur i öskutunnunni
hjá sér. Þó nokkuö um hlátur i
salnum.
Sími 78900
Dularfullar símhringingar (When a
Stranger calls). Bandarísk kvik-
mynd. Leikendur: Charles Durn-
ing, Carole Kanc, Colleen Dew-
hurst.
Skólastúlka er fengin til að passa
börn, en þá hringir síminn og ó-
kunn rödd...bammbammbamm-
ba. Ótti og örvænting.
Flugstjórinn (The Pilot). Bandarísk
kvikmynd, árgerð 1979. Handrit:
Robert P. Davis, eftir eigin
sögu. Leikendur: ClifT Robertson,
Diane Barker, Dana Andrews.
Leikstjóri: Cliff Robertson.
Cliff leikur flugstjóra, sem á við
drykkjuvandamál að glíma, hann
þolir ekki appelsínusafa. "
Lögreglustöðin í Bronx (Fort
Apache-the Bronx). Bandarísk"
kvikmynd, árgerð 1980. Leikend-
ur: Paul Newman, o.fl.
Palli leikur löggurhann, sem á í
vandræðum með íbúa hverfis síns.
Lögguhasar og spenna. Góður
maður Palli.
* ¥
IIvcllurinn (Blow Out). Banda-
nsk kvikmynd, árgerö 1981. Leik-
endur: John Travolta, Nancy All-
en. Handril og leikstjórn: Brian
DePalma.
★ ★ ★
Ameriskur varúlfur i London i An
Ameriean Warewolf in London)
Bandai isk kvikmynd, árgerö
1981. Leikendur: David Naugton
Jenny Agutter, Griffin Dunne!
Ilandrit og leikstjórn: John Land-
is.
★ ★ ★
Fram í sviösljósiö (Being There)
Bandarisk, árgerð 1981. Handrit
Jerzy Kosinski, eftir eigin skáld-
sögu. Leikendur: Peter Sellers,
Melvyn Douglas, Shirley
MacLaine. Leikstjóri: Hal Ashby.
Kreppukrásir
The Cíty of R,
leykjavík
Grey vorra hátigna góluðu loörödduö fræöi
geiflaöir hrækjaftar jöpluöu á tuggunni siöferði
sóini skækjunnar þakti sig herskáum þyrnum
þjóðraust drefjanna kvrjaöi Guödómnum lof...
Fruktandi biölund skelfur viö dyr sinna drottna
dögunin Tjoöar verðlagning nauöar og glæpa
og srnánin er aum jafnt og dygöirí og eymdin
scm drambiö.
Og Djöfullinn spandérar enn cinum degi á the
City.
Svo yrkir stórskáldið Sigfús Daðason um
höfuðborg þjóðarinnar i siðustu ljóðabók sinni
Fá ein ljóö Í1977). Einhvern veginn hafa þessar
linur leitaö mjög á hug minn siöustu daga — það
er eins og myrkravöldin spandéri á mann enn
einum óvissudegi og smánar, og siðan enn öðr-
um nákvæmlega eins...
Ongþveitiö i efnahagsmólum virðist algert,
enn eina ferðina. Ráðherrar streitast við að
komast að samkomulagi um aðgerðir sem eng-
inn veit hvort þingmeirihluti veröur fyrir. Loö-
raddaðir boða þeir gengisfellingu, vaxtahækkun
og skerðinguveröbólaenneinaferðina.byggingu
A\;itkr;ik;in
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
flugstöðvar sem yröi mettaphlt fyrir rikið,
(okkur),en.metgróðahitfárra útvalinna dollara-
glottseigenda.Ovfst er uin úthlutun húsnæöis-
stjórnarlána á síðustu mánuðum þessa
árs... Völvan forna þrumar:
//Vituð ér enn — eða hvað?"
Fer nú ekki fruktandi biðlundin þverrandi
meðal almennra launþega? Til hvaða ráða ætla
t. d. húsbyggjendur og ibúðakaupendur — sem
margir hverjir standa I þvi bardúsi af nauö — aö
gripa, ef stórlega verður dregiö úr húsnæðis-
stjórnarlánunum? Fæstir geta bæL viö sig
meiri aukavinnu. Einkalifsstuðull flestra hetur
þegar verið lækkaöur niður i 2 l/2%.Fótt fellur
undir privatlif i okkar þinglýstu veröld. Fari
sem horfir föllum við innan tiðar verö- og vööva-
bólgin sem vixlar i bankastjóraskaut. Eru menn
dúsir við að vera flaðrandi hlaupatikur i kerfi
þar sem „fjármagnið er ferlega dýrt”, eins og
það heitir á máli drottnanna?
Ætli lesendur séu nú kannski búnir aö missa
matarlyslina eftirþetta þunglyndishjal...? Nú er
ekki um annað aö ræða fyrir mig en taka á
honum stóra minum (sem væri þó betra að vita
hver er), og þjóðnýla það litla starfsþrek sem ég
á eftir — i augnablikinu — meö þvi að setja
saman kræsilegan matseðii, ódýran og hollan, i
tilefni yfirvofandi efnahagskreppu þjóðarbús og
nátengdri kreppu þjóðarsálar.
1 forrétt eru kaviarfyllt egg með karrýsósu,
ofnbökuö kálfalifur með fullan vasa i aðalrétt og
ferskir ávextir með kotasælu i eftirrétt, fyrir þá
matfrekustu. Annars býst ég ekki við að fólk
gæði sér oft á eftirréttum, einu sinni til tvisvar I
viku ætti lika að vera hæfilegt, og fullt einS'Hk-
legt að eftirréttir liverfi algerlega af margra
borðum með haustinu, eftir þvi som sultarólin er
fastar hert... Uppskriftirnar eru handa fjórum.
Kavíarfyllt egg með karrýsósu
Forréttir geta veriö afar fjölbreytilegir, en al-
mennt má segja að hlutverk-þeirra sé aö leysa
lvstina úr læðingi fyrir kvöldveröinn, þeir eiga
ekki aðeins aö kitla góminn, heldur mega þeir
lika gjarnan gleðja augað.
Otbúa má forrétt með mikilli viðhöfn viö há-
tiðleg tækifæri, en hann getur lika veriö sáraein-
faldur i sniðum, sé honum t.d. ætlað aö drýgja
hversdagslegan aðalrétt sem er af skornum
skammti, e.t.v. vegna þess að þið hafiö fengið
óvænta matargesti. Þessi hér gæti ekki einfald-
ari veriö. Fyir fjóra reikniö þið með eftirfarandi
hráefnum:
1 egg
8 tsk svartur kaviar
4 salatblöö
u. þ.b. 1/2 dós sýröur rjómi
1—1 1/2 tsk karrý
Harösjóöið eggin, kæliö þau, takið skurnina af
og skerið þau langsum i tvennt. Setjiö 1 tsk af
kaviar ofan á hvern eggjahelming. — Hrærið
karrýinu saman við sýröa rjómann.
Setjið eitt saialblað á hvern disk, tvo fyllta
eggjahelminga þar ofan á og beriö fram ásamt'
sósunni i sérstakri skál.
Sé aöalrétturinn i saðsamara lagi, nægir
reyndar að reikna með hálfu eggi á mann
Fyllt ofnbökuð kálfalifur
4>á er það biessuð kálfalifrin sem er miklu
ódýrarijhollari og mýkri en annað kjötmeti. Þið
getið allt eins notaö lambalifur i þennan rétt, en
kálfalifrin er mýkri...
U.þ.b. 500 g. kálfalifur, i heilu lagi
1 laukur, grófsaxaöur
smjörklipa, u.þ.b. 15 g
2 sneiöar sólarhringsgamalt franskbrauö,
skorpulaust, skoriö Lteninga
1 lirært egg
1/4 tsk paprikuduft ,
1/2 tsk þurrkaö cstragon eöa timjan
salt
2 msk söxuö steinselja
1. Fjarlægið himnuna utan af iifrinni og skerið
stóran ,,vasa” lárétt eftir henni miöri.'
2. Bræöið smjörið i potti og léttsteikið i þvi
saxaðan laukinn. _ (
3. BÚÍÖ til kryþdblöndu úr paprikudufti, estra-
gon (eða timján), salti og steinselju, hrærjð
saman við hana eggi og brauðteningum. Úr
þessu verður fars — þiö getiö hrært saman við
það ögn af.injólk eða vatni, þyki ykkur það bf
þurrt.
4. Komið nú farsinu fyrir i „vasanum”, pakkiö
lifrinni iaust inn i velsmuröan álpappir og leggiö
i smuröa ofnskúffu eða eldfast fat. Bakið lifrina i
170 gr. heitum ofni i 45—60 min, eða þar til velluf
úr henni tær vökvi en ekki rauðleitur, þegar þið
stingiö i hana. Berið fram meö soðnu grænmeti
að eigin vali. i
/ \
Ávextir með kotasælu
Þjóðarheilsan færi áreiðanlega batnandi,að ég
tali nú ekki um útiitið, ef Islcndingar minnkuöu
sykurátið. Fyrir nokkrum árum áttu þeir heims-
met i sykurneyslu, en siðan hafa t.d. bæöi
Bandarikjamenn og fsraelsmenn bætt um betur.
A sl. ári neytti hver lslendingur 48,2 kilóa af
sykri að meffaltali og hafði þá neyslan aukist um
5,796 frá þvi árinu áöur. '
Eftirréttir eru oft ansi sætir en þurfa alls ekki
að vera það. Ferskir ávextir eru ætiö ákjósan-
legir, eins og þeir koma fyrir eða I salötum (ég
hef nokkrum sinnum komið með uppskriftir að
léttum „tutti frutti” salötum).Hér kemur upp-
skrift aö eins konar kotasælusósu, litt sykraöri,
sem er fyrirtaks meölælr með hvers kyns
ferskum ávöxtum sem þiö sneiðið niður. og
blandið saman i skál.
Ferskosturinn kotasæla er búinn til úr geril-
sneyddri sýrðri undanrennu, örlitlu af osta-
hleypi og 15—20% feitum rjóma. Rjóminn er
ekki meiri en svo að fullunninn osturinn inni-
heldur aðeins um 4.h% fitu. Hann er þvi ákaflega
magur, en inniheldur jafnframt mikið af eggja-
hvituefnum og vitaminum. 1 þvi feist hollusta
hans. Hér kemur svo uppskrift að kotasælusósu
sem nægir a.m.k. handa fjórum út á ferska
ávexli. ‘
4 dl kotasæla
1 hrærð eggjarauða
1 msk bráðið smjör
ögn af salti, 1/8 tsk
2 msk púöursykur
1 sitróna
Hrærið eggjarauðu, smjöii, salti og púður-
sykri saman við kotasæluna. Þvoið sitrónuna og
rifið börkinn út i hræruna með rifjárni.pressiö að
lokum safann úr sitrónunni og bragðbætiö eftir
smekk, með einni matskeið af safanum eða
meiru. i
Megiö þið ÖU mett upp frá borðum risa, þó ekki
ofmett!
ine kleine
N
achtmusik
Til að bæta lesendum upp svartagallsrausið
hér að framan (sem á þó fyllsta rétt á sér) og til
sönnunar að matkrákarNiié nú ekkilögst i algjört
kreppulyndi, leyfi ég að fljóta með örstuttu mið-
næturstefi, niðurhripuöu á slagveðursnóttu fyrir
skömmu:
Oti lemur regnið glugga
öskjuhliðarviti logar
inni kveikist funi af funa
feiminn kaktusinn
kikir út I nóttina.