Helgarpósturinn - 24.09.1982, Side 8

Helgarpósturinn - 24.09.1982, Side 8
8 sÝniuyarsalir Listmunahúsið: Nú er síðasta sýningarhelgin á Ijósmyndum Svisslendingsins Max Schmid. Sýningin er opin kl. 10-18 virkadagaog kl. 14-18 um helgar. Kjarvalsstaðir: í forsal er textilsýning sem Geljun og Epal standa fyrir og er þetta síðasta sýningarhelgi. Bragi Ásgeirsson opnar á laugardag sýningu i vestursalnum á málverkum,vatnslitamyndum og teikningum og höggmyndir Bertils Thorvald- sens eru sýndar til 30. október. Gallerí Lækjartorg: Þýska listakonan, Erika Stumpf sýnir 40-50 verk eftir sig, einkum landslagsmyndir, mynd- skreytingar við Ijóð o.fl. Sýningin stendur fram til 3. október. Gallerí Langbrók: Sýning Langbróka er opin kl. 12-18 virka daga en kl. 14-18 um helgar. Listasafn Einars Jónssonar: Myndir Einars eru til sýnis tvo daga i viku, mið- vikudaga og sunnudaga kl. 13.30 til 16. Á efstu hæð hússins er íbúð Einars og konu hans og er hún til sýnis gestum. Ásmundarsalur: Forvitnileg sýning Norður-Kóreumanns sem sýnir ýmsa listmuni. Listasafn ASÍ: Sýning sex félaga úr Textilfélaginu hefur nú staðið í tvær vikur í Listasafni ASl við Gren- sásveg og aðsókn verið mjög góð. Á sýning- unni eru 47 verk og hafa nokkur þeirra selst. Sýnendur eru Eva Vilhelmsdóttir, Ina Salóme, Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir, Kristín Jóns- dóttir, Salóme Fannberg og Sigurlaug Jóhann- esdóttir. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-22 og lýkur henni sunnudaginn 26. september. Norræna húsið: Sýningin margumtalaða á verkum Errós heldur áfram i kjallara og anddyri. Niðri eru málverkin og skiptast i tvær deildir; Geimfarar og 1001 nótt heita þær. Uppi eru plakötin. Opið til 26. þm. Ásgrímssafn: Nú eru einkum sýndar vatnslitamyndir og hafa margar þeirra sjaldan sést áður. Par gefur að líta landslagsmyndir, blómamyndir og fiokka mynda úrþjóðsögum. Opiðsunnudaga, þriðju- daga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Aðgangur ókeyþis. Mokka: Olga von Leuchtenberg sýnir oliumyndir, acryl- myndir og vatnslitamyndir. Gott kaffi á meðan á glápinu stendur. Árbæjarsafn: Opið samkvæmt umtali. Upplysingar i sima 84412 kl. 9 - 10 alla virka daga. Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar: Safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 14-16. Kirkjumunir í versluninni Kirkjumunir, Kirkjustræti 10, stend- ur nú yfir sýning á list- og kirkjumunum eftir Sigrúnu Jónsdóttur. Hún er opin á verslunar- tima og auk þess til kl. 16 laugardaga og sunnu- daga. Bókasafn Kópavogs: Sýning Félags áhugalistamanna - FÁLM - stendur yfir 6130. september. Þar sýna niu óþ- ekktir áhugalistamenn verk sin. Skruggubúð: Sýning á klippimyndum arabisku listakonunnar Haifa Zangana sem verið helur atkvæðamikil í starfsemi súrrealista bæði í arabíska heiminum og á Englandi. Opið kl. 17-21 virka daga en 15-21 um helgar. Skruggubúð er i Suðurgötu 3a. leiklnis Pjóðleikhúsið: Litla sviðið: Sunnudagur kl. 20.30. Tvíleikur eftir Tom Kempinski i þýðingu Úlfs Hjörvar. Leikstjórn: Jill Brooke Árnason. Leikmynd: Birgir Engilberls. Ljós: Ásmundur Karlsson. Miðvikudagur kl. 20.30: Tvíleikur. Miðasala kl. 13.15 - 20. Simi 11200. viðlHiröir Blómasalur Hótel Loftleiða: Á fostudaginn verður tiskusýning. Sigurður Guðmundsson leikur létt lög á píanó og gestum er boðið uppá kalt borð, en auk þess má fá sér rétti af matseðli hússins. Efnt verður til happ- drættis meðal matargesta og dregið um glæsi- lega vinnmga. Kynnir og stjórnandi kvöldsins er Hermann Ragnar Stefánsson. Föstudagur 24. september.1982 Erró, góði hirðirinn Svo er sagt í Gátubókinni aö gátur megi ekki vera þaö einfaldar að svarið ljggi í augum uppi, og felu- myndir verði helst að heilla augað um stund. Það hefur Guömundur Erró sagt í fjölmiðlum að hann sé kom- inn til að fara í réttir, en ætli að sýna nokkur olíumálverk í Norr- æna húsinu um leið. Eftir viðtölum að dæma er Erró ekki aðeins hér í réttum, . heldur virðast göngur og réttir vera allt hans líf, eins og nafn hans bendir til, því hann er sífellt að smala úr myndum annarra í myndir sínar. Hann er ekki óá- þekkur góða hirðinum sem vakir yfir sauðunum, en telst þó vera einnig sauðaþjófur að íslensku mati. Þrátt fyrir ást á sauðum og unun af smali eru myndir Errós ekki málaðar í hinum rammís- lensku sauöalitum, heldur í öðr- um nútímalegri en jafnvinsælum litum, sem sé í jólaseríulitunum. Litameðferðin er þess vegna þjóðleg og alþjóðleg í senn, en slíkt sanibland þykir oft vera ör- uggasta leiðin til frægðar. Eftir bfaðaviðtölum að dæma lítur Erró sjaldan upp úr smali sínu, heldur grúskar hann í myndum hvar sem til þeirra næst, stuggar hann þá girnilegustu myndskjátununi í almenninginn og hefur smalahunda sér til að- stoðar. Að svo búnu dregur hann myndformin í dilka en kýs helst að gæða ekki mynddráttinn sér- stakri merkingu. Að sögn dregur hann í dilka svo skáldin geti síðan dregið sinn lærdóm af hinu mis- lifh fé og samið úr sögur. Einnig gefst kaupandanum kostur á að keppast við að sjá eitthvað út úr myndunum. Ekki er ætlun mín sú að rekja ættir fjárstofnsins í myndum Err- ós. Allt eru þetta sauðir úr al- þekktum málverkum, allt frá skólanum í Fontainbleu til Cour- bets. Það liggur því í augum uppi hvaða myndhaga hinn myndhagi Erró hefur smalað. Með því málverkin eru ekki aðeins mynd- efni heldur líka söguefni langar mig að spreyta mig á að semja sögu við besta málverkið í sýning- unni, og er það reyndar líka utan á sýningarskránni. Sagan hljóðar svona: í sæludal einum í Bandaríkjun- uni er búsældarlegt um að litast. Búið er þar að kveða niður alla karlrembuhrúta og kemur lamb- ið því kollótt úr kindinni. Allar tvævetíur eru að sjálfsögðu harðánægðar með þann árangur sem hefur náðst í ærkindabarátt- unni. Nú er svo að um sæludalinn hefur auðvaldið lagt járnbraut, en engu að síður býr fólk þar óspilltu lífi enn og annast hjarðir sínar, ánægt þótt enn notist það við brunna og hafi ekki fengið rennandi vatn. Fólkið lítur varla upp frá fjárræktinni. Svo er það dag einn að sælunni lýkur í Sauðlauksdal. Um hann renna tvær járnbrautir á þann hátt að í myndbyggingunni verð- ur vaxandi spenna. Þegar eimlestirnar renna í kross um dalinn eftir brautarteinunum, þá kemur inn í myndina líka Kristur nokkur frá Nasaret. Alkunna er úr Biblíunni að Kristur þessi var á móti verka- konum, eins og sagan um Mörtu og Maríu sannar. Nú kemur hann inn í myndina með kossaflens og heillar hjarðmey frá hinum knýjandi verkum og kyssir hana á bjart og flekklaust ennið. Eftir það nennir hún auðvitað ekki að vatna fénu og lendir það á lág- launakonu, sem bregst reið við í rússneskum raunsæisstíl og hún þrífur, afar vöðvastyrk, í horn á hrúti, en með hinni hendinni hell- ir hún vatni úr fötu; og fara menn nærri um það hver merkingin er í slíku fáti sem gripið hefur hina lendamiklu Mörtu. Meðan þetta gerist góna fjár- hirðar furðu lostnir á kossaflens Krists, en þeir eru ættaðir úr jólamálverkum sem segja frá fæðingu hans. Einn gráskeggur bendir á kyrrláta fólkið sem faðmast og segir við ungan, undirleitan hjarðsvein sem hall- ast fram á smalaprikið og þykist ekkert sjá, þótt hann sé unnusti hjarðmeyjarinnar: Hann Kristur ætlar laglega að stinga undan þér! Hjarðsveinninn svarar engu, og þess vegna víkur nú sögunni til ferðafólksins í efri lestinni. Hér eru komnir hinir frægu vesturfar- ar í leit að fyrirheitna landinu. Þeir góna furðu lostnir út um lest- argluggana á það sem gerist niðri í dalnum. Allur vafi hverfur úr huga fátæklinganna, fólkið veit að nú er það komið til drauma- landsins: hér er ekkert við að vera annað en kossa og kannski að beita fé. Vélamaðurinn í lestinni er á öðru máli og á valdi auðvaldsins sem á lestina, sem þýtur frá miðju út úr myndinni með ógnarhraða. Varmennið fyllist heift og þrífur haglabyssu og horfir drungalegur með sólgleraugu hins sígilda bófa á Krist og vill skjóta hann. Lestin er þannig kross Krísts í „nú- tímamerkingu”. En andartaki áður en eimlest- arstjórinn vondi lyfti haglabyss- unni þá vill heimslistinni það til happs að Guðmundur Erró málar atburðinn og festir varmennið um alla eilífð í striga svo engin leið er að lyfta byssunni. Og um leið verður atburðurinn ódauð- legur. Slíkur er máttur hinnar háu listar, hún festir vopnið í höndum morðingjans og varir við enni hjarðmeyja, hönd við horn og höku við smalaprik. Allt er þetta gott og blessað, en hvaða hagfræðilegan eða samfé- lagslegan lærdónt er hægt að draga af málverkinu? spyr eflaust sá vaxandi hópur hérlendis sem hefur áhuga á hagfræði og mynd- list. Svarið er, að það kostar 20 krónur að sjá myndina á sýning- unni, en myndin keypt og komin á vegg í heimahúsum kostar um 4500 dollara (auðvitað eru sönn listaverk seld fyrir þann gjald- miðil), en myndasagan sem þið hafið lesið kostar sama og það .. sem þið borguðuð fyrir Helgar- póstinn. Þetta er talandi dæmi um það hvað myndmál er miklu dýrara en lesmál. Og ætti það.að vera íhugunarefni þeim smækkandi hópi manna sem heíur áhuga á bókmenntum. UPP OG ABC — The Lexicon of Love ABC er ein af þessum Shef- field-hljómsveitum sem vakiö hafa athygli aö undanförnu. Reyndar hefur ABC gert meira en að vekja bara athygli, hún hefur slegið rækilega i gegn. Nú þegar hafa fjögur lög, Poison Arrow, Tears Are Not Enough, The Look of Love og nú siðast All Of My Heart komist hátt á lista i Bretlandi. öll þessi lög er að finna á stóru plötunni The Lexicon of Love, sem einnig hefur fengið mjög góðar viö- tökur og farið alla leið i fyrsta sæti breska listans fyrir stórar plötur. The Lexicon of Love er óvenju pottþétt og góð plata af fyrstu plötu hljómsveitar aö vera, þvi auk fyrrgreindra laga er að finna á plötunni sex önnur lög sem öll eru mjög góð. Aðalmaður ABC er söngvar- inn Martin Fry en aðrir með- limir hljómsveitarinnar eru trommuleikarinn David Palmer, saxófónleikarinn Step- hen Singleton og gitar og hljóm- borðsleikarinn Mark White. Auk þeirra eru nokkrir gestaleik- arar á plötunni. En sá maður sem á kannski stærstan hlut að máli er upptökustjórinn Trevor Horn. Hann var áöur meðlimur hljómsveitanna Buggles og Ye^ NIÐUR en eftir að sú siðarnefnda lagöi upp laupana snéri hann sér að upptökustjórn meö góöum ár- angri. Tónlist ABC er fyrst og fremst pottþétt popptönlist, oft með léttfönkuðum takti. Góður hljómborðsleikur kryddar tón- listina skemmtilega á köflum og söngvarinn Martin Fry er ágætur þó hann sé kannski svo- litið takmarkaður. Helsti galli plötunnar er aö á stundum eru strengirnir dálitið yfirkeyrðir og drekkja þá nærri þvi hljómsveitinni. Þetta er þó minni háttar galli og i heildina finnst mér The Lexicon of Love vera hin ágætasta skemmti- plata. Frida — Something's Go- ing On Hvað eiga hljómsveitirnar ABBA og Genesis sameigin- legt? t fljótu bragði virðist það ekki neitt annað en að þær eru báöar mjög vinsælar. Tónlistin sem þær leika er hins vegar ekki sérlega svipuð. Nú hefur það gerst að tveir af meðlimum þessara hJjóm- sveita, þau Frida úr ABBA og Phil Collins úr Genesis, hafa leitt saman hesta sina. Hér er um að ræða fyrstu sólópiötu Fridu og hefur hún fengið Coll- ins til að stjórna upptökum, auk þess sem hann leikur á trommur og syngur litilsháttar. Aðrir sem leika á plötunni eru gitarleikarinn Dary Stuermer, sem leikið hefur með Genesis á hljómleikum.bassaleikarinn Mo Foster, hljómborðsleikarinn Peter Robinson, sem lék áður með hljómsveitunum Hill og Quatermass auk þess sem hann hefur leikið inn á plötur meö Bryan Ferry, Carly Simon, Stomu Yamashta o.fl., og loks er aö geta hornaflokks þess sem leikur meö Earth, Wind & Fire. Þessir hljóðfæraleikarar skila allir sinu vel og eru útsetningar nokkrar ágætar. Helsti galli plötunnar er hins vegar hversu lélegt lagavalið er, þó það sé nú samt ekki alvont. Bestu lög tel ég vera I See Red, I Got Some- thing, The Way You Do og I Know There IsSomething Going On, sem reyndar er áberandi besta lagið. Þessi fyrsta sólóplata hennar Fridu er ekkert sérlega slæm en hún er nú heldur ekki neitt sér- lega góð en hver bjóst svo sem við þvi. Van Halen— Diver Down Van Halen er vist ein af betri bárujárnsrokksveitum Banda- rikjanna og plötur þeirra seljast þar i miklu magni og fara flestar inn á topp tiu-listann. Var Diver Down engin undan- tekning þar á. Þar sem ég hef ekki gert mikið af þvi um dagana að hlusta á Van Halen á ég erfitt með að gera mér grein fyrir hvernig þessi plata er i saman- buröi við fyrri plöíur hljóm- sveitarinnar. Ég hef þó á tilfinn- ingunni að þessi plata sé nokkuð ólik fyrri plötum þeirra hvað lagaval snertir. Aðeins fjögur af lögunum eru frumsamin og tel ég þá ekki með leiðinda fingra- æfingar sem gefur að heyra

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.