Helgarpósturinn - 24.09.1982, Side 20

Helgarpósturinn - 24.09.1982, Side 20
20 SVONA SPÁÐU ÞEIR: SVONA VAR VEÐRIÐ: Föstudagur 24. september 1982 J~iek IpSsturinrL Sunnudagur Á laugardagskvöldið spáði Knútur eins og sést hér t.v. Hann reiknaði með talsverðu hvass- viðri og rigningu sunnanlands, en léttskýjuðu fyrir norðan, eins og sést á korti hans. Daginn eftir sagði Borgþór veðrið hafa verið eins og sést á kortinu hérna nær. Knútur hefur í heild ekki verið fjarri lagi, en munurinn cr þó nokkur, nema að hitastigið er rétt, nánast uppá gráðu. Mánudagur Á sunnudagskvöldið spáði Borg- þór. Hann reiknaði með 6 til 8 stiga hita um allt land, rigningu á norðausturlandi en bjartviðri á suðvesturhorninu. Á mánudags- kvöldið sagði Guðmundur veðrið hinsvegar hafa verið bjart allsstað- ar nema á austfjörðum, og hitann ójafnari, auk þess sem á korti hans er mun meira sólskin. Hve sannspáir eru veður fræðingar sjónvarpsins? Veðurspámenn sjónvarpsins eru ekki svo galnir. Sú er í stuttu máli niðurstaða örlítils prófs sem Helgarpóst- urinn lét þá gangast undir nú í vikunni - án þess að þeir vissu af'því. Við fylgdumst með því hvernig þessir ágætu rnenn spáðu fyrir veðri - og síðan hvernig þeir lýstu þessu sama veðri daginn eftir. Niðurstöðurnar eru hérna á síðunni, dag fyrir dag. Hún er ansi góð sagan um bóndann sem hncykslaðist á bruðli hins opinbera. „Fyrir nokkrum áratugum var Jón Eyþórsson einn um vcðrið. Nú eru á veðurstofn- unni um 50 manns og veðrið hefur akkúrat ekkert batnað“, sagði hann. Veðurfræðingar veðurstofunnar búa að vísu ekki til veðrið þó þeir séu ábyrgir fyrir því í hugum margra. Það eru þeir sem segja okkur hvernig veðrið er og hvernig það verður. I>að er fræðum þeirra að þakka að sjaldan kemur veðrið á óvart. Sjálfsagt eru Islendingar al- mennt veðurglcggri en gengur og gerist meðal þjóða heims. Ekki aðeins vegna þess að hingað til hef- ur afkoma þjóðarinnar svo mjög byggst á veðrinu — vegna sjósókn- ar og landbúnaðar — heldur einn- ig, og nú á dögunt ekki síður, vegna veðurfrétta í sjonvarpinu. í sextán ár, eða frá upphafi sjón- varps á Islandi, hafa veðurfræð- ingar spáð í veörið á liverju kvöldi eftir fréttir. Sama form hefur veriö í þessum þætti frá upphafi, og enn eru tveir þeirra sem byrjuðu fyrir 16 árum að — þeir Páll Berg- þórsson og Knútur Knútsen. í gegnum árin hafa sumir dottið út og aörir komið í staðinn, en þá tekið upp vinnjubrögð þeirra'sem fyrir voru í stórum dráttum. Þessar veöurfregnir sér afar stór hluti þjóðarinnar og þær eru tals- vert ítarlegri en víöast hvar er- lendis. í nágrannalöndum okkar í Skandinavíu, Bretlandi og í Bandaríkjunum, er farið mun fljótar yfir sögu — nánast bara sagt hvernig veðrið verður daginn eftir, en sleppt að segja frá ástæðum og forsögu eins og gert er hér. Af- leiðingin er sú að hér veit hvert mannsbarn aö ef djúp lægð er á leiðinni til landsins úr suð-vestri þá má búast við hlýindum og rigningu á suðvesturlandinu. en ef hæð er yfir Grænlandi má eiga von á bjart- viðri og norðanátt. Og svo fram- vegis. Einkabísness Pað er útbreiddur misskilningur að sjónvarpsveðurfréttir séu á veg- um veðurstofunnar. Það eru þær ekki. Sjónvarpsntennskan erauka- vinna hjá veðurfræðingunum, og þeir eru á launum hjá sjónvarpinu. Petta eru því þeirra prívatspár. Helgarpósturinn bað Pál Berg- þórsson, einn sjónvarpsveður- fræðinganna, að segja frá því hvernig þeir ynnu þessa stuttu þætti. „Við byrjum um fimmleytið og höfunt því tvær og hálfa klukku- stund til að vinna þetta," sagði hann. „Sumunt þykir betra að hafa veriö á vakt vfir daginn. því þá eru þeir betur inní því sem er að gerast, en mér finnst betra að koma í þetta alveg óþreyttur og ferskur. Vinnan felst í því að teikna fjög- ur kort, tvö yfirlitskort og tvö Is- landskort. Við byrjum á yfirlits- korti frá hádegi, og það er alltaf á hreinu hvernig það verður. Pessi vinna er unnin hér á veðurstofunni, og viö einfaldlega leggjum kort, sem hefur verið unnið hér, undir eyðublaðið sent notað er í sjón- varpi og teiknum upp táknin. Pað tekur svona hálftíma. Á sama hátt vinnurn við staðreyndakortið yíir veður á íslandi klukkan 18," sagði Páll. „Spákortin getum við náttúrlega ekki unnið svona, en við gerð þeirra eru sanit einnig notuð föst vinnubrögð. Við byrjunt gjarnan á því að iíta yfir staðfeyndakort veðurstofunnar eitthvað aftur ítím- ann, til að átta-okkur á hreyfingum sem orðið hafa. Á hvaða leið lægð- irnar eru, hve hratt þær fara yfir. svo eitthvað sé nefnt. En aðallega er stuðst við erlendar tölvuspár. Veðurstofan fær reglulega sendar spár, frá Washington og frá Bret- landi, og þær eru notaðar til grund- vallar. Yfirleitt ber þeim nokkuð vel santan. þó cinhver blæmunur sé á þeim. Útfrá þessunt upplýsingúm teiknum við svo yfirlitskort sem á að gilda klukkan 18 daginn eftir. og útfrá því korti er svo unnið á spákort fyrir ísland. Á meðan maður er að vinna þetta alltsaman reynir ntaður að velta því fyrir sér hvernig sé best að setja þetta fram í hvert skipti. Ég fvrir mitt leyti skrifa orðrétt allt sem ég segi. og ég held að Trausti skrifi líka ansi mikið. en aðrir gera það ekki. að ég held. Með því að skrifa svona getur ntaður stytt nokkuð mál sitt og losnað viö am- bögur, en ef til vill verður þetta ekki eins persónulegt fyrir vikið. og það kemur sjaldnast eins vel fram ef maður er í vafa um spána. Þetta er svolítið mikilvægt atriði, vegna þess að í útvarpinu er alveg fast orðalag, og ekkert verið að velta sér uppúr hlutunum. Óvissa í spám kemur ekki fram nema í sjón- varpinu, og því tökuni við yfirleitt fram hvað gæti gerst ef veðrið hag- ar sér ekki eins og við má búast. Sjónrænt En meginkosturinn við sjónvarpsveðurfréttirnar er að þær sýna á kortum hvað er að gerast. Veðurfregnir eru í eðli sínu sjón- rænar. og það sem tæki langt mál að útskýra t.d. í útvarpi blasir um leið við í sjónvarpi." Að sögn Páls reikna veðurfræð- ingarnir ekki nteð því að spár þeirra standist uppá hár. Þeirra hlutverk er að gefa almenna ntynd af því sem er að gerast í kringum okkur og reynaað draga ályktanir þar af. „En ef skeikar fimrn gráð- um í hitastigi þá þætti okkur það verulega miður". sagði hann. Úr- koman er erfiöari. og nánast úti- lokað að spá hér um magn hennar af einhverri nákæmni. Páll nefndi sem dænti að við Hvalvatn sem er undir Botnssúlum og er tveggja kílómetra breitt ntunar helming á úrkontu á norðurbakkanum og suðurbakkanum. Úrkoman sunnanmegin, undir Botnssúlum er 2500 millimetrar á ári en í norðurbakkanum, tveinr kfjómet- runt í burtu. er hún 12 til 1300 milli- metrar að meðaltali. Þá þarf líklega varla að segja neinumlslendingi að hér eru veður fljót að breytast, sérstaklega á haustin og vorin. þegar mest ríður á að spárnar standist í aðalatriðum. Að spá fyrir veðri á íslandi getur verið ansi snúið. eins og sjá má af sýnishornum sem hér fylgja.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.