Helgarpósturinn - 22.10.1982, Síða 10

Helgarpósturinn - 22.10.1982, Síða 10
10 Föstudagur 22. október 1982 irinn 4 4 Anarkistar og gamlir jaxiar Hingað til lands átti að koma í síðustu viku gamli jaxlinn Ian Gillan, sem áður gerði garðinn frægan með Deep Purple en hef- ur nú um nokkurra ára skeið haldið úti ágætri eigin hljómsveit sem eins og eflaust margir vita heitir bara Gillan. Ekki mun hljómsveitin vera hér í för með honum núna, heldur er hér ein- ungis um einskonar auglýsinga- ferð að ræða, þar sem hann mun mæta í einhverja Karnabæjar- búðina og árita plötur og væntan- ■lega mun hann einnig ræða við blaðamenn. Tilefni ferðarinnar er nýút- ekki mikið fyrir nýjum hugmynd- um en hver kærir sig líka um slíkt og þvíumlíkt í þungu rokki, sem verið hefur sama gamla klisjan í áraraðir. Til dæmis minnir tónlist Gillan mig stundum á tónlist hljómsveitarinnar Hard Stuff, sem Gillan pródúseraði hér í eina tíð, sérlega á það við um lög eins og t.d. Driving Me Wild og Bluesy Blue Sea. í heild er Magic nokkuð heilsteypt og Gillan er í fínu for- mi, svo og aðrir meðlimir hljóm- sveitarinnar hans. Eins og áður segir er hér ekkert nýtt á ferð en hvað um það. komin plata hljósmsveitarinnar, sem nefnist Magic. Gillan er nú ein af fáum þungarokkhljóm- sveitum sem ég hef haft einhverja ánægju af að hlusta á, eftir út- komu síðustu plötu þeirra, Dou- ble Trouble, hafði ég þó nær af- skrifað hljómsveitina. En maður má víst aldrei vanmeta gamla gaura eins og Gillan, því oft á tíðum eru þeir eins og gamlir fót- boltakarlar, þ.e. þeir rífa sig upp á reynslunni, þó fæturnir séu farnir að fúna. Svo er líka með Gillan og plötuna Magic, því hún er líklega eitthvað það besta sem hann hefur látið frá sér fara síðan platan Glory Road kom út hér um árið. Nýi gítarleikarinn, Janik Gers, sem fyrst lék á Double Trouble, hefur nú komið sér þægilega fyrir í sveitinni og gítarinn aftur orðin mest áberandi hljóðfærið, svo sem eðlilegt er með þungt rokk. Annars er heildarsvipur plötunn- ar heldur poppaðri en áður og lögin fleiri og styttri en flest hnit- miðuð þó. Það fer nú kannski Bad Company — Rough Diamonds Líklega hefur engin hljómsveit slegið jafn rækilega í gegn með sinni fyrstu plötu og Bad Com- pany gerði á sínum tíma með plötunni Bad Co. og laginu Can’t Get Enough. Vinsældirnar döl- uðu þó fljótlega í Bretlandi en í Bandaríkjunum var hljómsveitin alltaf óhemju vinsæl og má því til marks benda á að síðasta plata þeirra Desolation Angels dvaldi meðal fimm vinsælustu platna í Bandaríkjunum um tveggja mán- aða skeið árið 1979. Það mun nú liðið um þrjú og hálft ár frá því að Desolation Angels kom út og satt að segja hafði ég alveg gleymt tilvist Bad Company, þar til fyrir nokkru að þeir tilkynntu nýja plötu á leiðinni. Rough Diamonds heitir platan og er nú komin út. Ég hef nú aldrei verið neinn sérstakur Bad Company aðdáandi, mér þótti t.d. Free alltaf miklu betri hljóm-1 sveit, en ég átti þó von á betri plötu en raun ber vitni. Ég veit satt að segja ekki af hverju þeir eru að rembast við að halda hljómsveitinni gangandi, því hún er nú orðin heldur þreytt. Það sem verra er, mér finnst þeir hafa týnt sérkennum sínum, því tónlist þessi gæti að miklum hluta til ver- ið spiluð af næstum hvaða ame- rískri rokkhljómsveit sem væri. Það eina sem sker sig úr er að Paul Rogers er enn þrælgóður söngvari en það er bara ekki nóg til að redda þessu, ekki einu sinni í horn. Crass-Christ- The Album Hljómsveitin Crass er einstakt og furðulegt fyrirbrigði í rokk- sögunni. Það er engin hætta á því að þú rekist nokkru sinni á auglýsingu um plötu frá þeim í nokkru blaði. Blaðaviðtöl eru fá og heldur undarleg, þar sem hljómsveitarmeðlimum og blaða- mönnum kemur yfirleitt heldur illa saman og enda viðtölin oft í hálfgerðu skítkasti. Ástæðan fyrir því er að flestir breskir poppskríbentar telja sig sósíalista eða eitthvað því um líkt en Crass meðlimirnir eru hins vegar harðir anarkistár og reyna að lifa eftir því. En þau búa saman í kom- múnu í Epping Forest. Þrátt fyrir allt seljast plötur þeirra í þúsunda tali en þær auglýsa sig á orðspor- inu svo og veggjakrassi ofl. því um líku. Plötur þeirra eru meira en bara venjulegar plötur, því þeim fylgir oftast mikill prentaður áróður fyrir anarkisma. Aldrei hefur hann þó verið í líkingu við það sem er með nýjustu plötum þeirra, Christ The Album, því þar fylgir með heljarmikill bæklingur, sem út af fyrir sig er heljar mikil pæling, sem ég ætla mér ekki að fjalla um hér, enda verður það að viður- kennast að þolinmæði mín við lesturinn var ekki sérlega mikil. Plöturnar í albúminu eru tvær. Sú fyrri heitir Christ-The Album og er þar um stúdíó plötu að ræða. Steve Ignorant er nú aftur í aðalhlutverki sem söngvari, en hann var ekki til staðar á síðustu Crass plötu, Penis Envy. Miðað við fyrstu Crass plöt- urnar hefur hljómsveitinni farið mikið fram tónlistarlega og meiri fjölbreytni gætir í flutningi þeirra. Þó er tónlistin enn sem áður helst í ætt við pönkið, þó Crass neiti hugmyndafræði pönksins og segi það dautt. Ekki ætla ég mér að fara að tína til eitthvað sérstakt úr textunum, sem mér finnst sláandi, því að nóg er þar að finna sem kemur við kaunin á manni, alveg burt séð frá því hvort maður er sam- mála því eða ekki. Eitt er það sem mér þykir vert að geta um er að lögin á plötunni eru mjög skemmtilega tengd saman með hluta af samtölum við stjórnmálamenn, hermenn, bút- um úr auglýsingum ofl. þesshátt- ar og undirstrikar hver inngangur yfirleitt innihald textans sem á eftir kemur. Seinni platan, Well Forked- but Not Dead, er að mestu tekin upp á tónleikum en einnig er að finna þar gamlar stúdíó upptökur og segulbandsbúta af ýmsu tagi og er þessu öllu hrært saman. Ekki finnst mér nú þessi hluti al- búmsins neitt sérlega spennandi og standa Christ hlutanum, sem er eitthvað það besta sem Crass hafa sent frá sér, nokkuð að baki. Dire Straits — Love Over Gold Það er undarlegt að hugsa til þess að þegar Dire Straits sendi frá sér sína fyrstu plötu, að þá hafi þeir verið taldir í hópi ný- bylgju hljómsveita. Raunar eiga Dire Straits næsta lítið skylt með nýbylgju hljómsveitunum, nema ef vera skyldi að þeir byrjuðu að leika á stöðum, s.s.Hope & Anc- hor, þar sem pub rokk og ný- bylgja var í hávegum höfð. Tón- list Dire Straits svipaði á þessum tíma frekar til J.J. Cale og ekki var nú Dylan víðs fjarri. Enda fór jú svo að hljómsveitin sló í upp- hafi mun rækilegar í gegn í Band- ríkjunum en í Bretlandi. Það er ekki fyrr en fyrst nú að Dire Straits hafa slegið £ gegn í Bretlandi svo um munar. Að vísu hefur Making Movies selst þar óhemju vel en það er hins vegar á nokkuð löngum tíma. Vinsældir lagsins Private In- vestigations, í Bretlandi, nú um þessar mundir hafa komið mörg- um á óvart og þegar nýja stóra platan, Love Over Gold, kom út rauk hún beint í fyrsta sæti breska listans. Það eru ekki nema fimm lög að finna á Love Over Gold. Fyrsta lagið heitir Telegraph Road og er það fjórtán mínútna langt. Er hér um að ræða verk sem Knopfler hefur lagt mikið í og þó að það sé svona langt þá verður maður þess ekki svo mjög var. Því er vel skipt niður í söngkafla og sóló, sem aldrei verða of löng en eru mjög góð og á það jafnt við um gítar- og píanósólóin. Ef eitthvað er að þá eru það helst til mikil Springsteen áhrif á köflum. Seinna lagið á fyrri hliðinni er svo Private Investigations. Sagt er að þegar hafi komið að því að velja lag af plötunni til að setja á litla plötu, þá hafi ekkert þeirra þótt líklegt til vinsælda og því ver- ið valið það lag sem minnsta möguleika var talið hafa. Víst er að Private Investigations er eitt af undarlegri lögum þessa árs, sem vinsældum hafa náð. Lagið er sérlega rólegt og laglínan leikin á kassagítar á einkar smekklégan hátt én textinn er hins vegar allt að því talaður. Seinni hliðin finnst mér ekki eins góð, að minnsta kosti ekki ennþá, þó kann ég ágætlega við lögin It Never Rains og Industrial Disease en Love Over Gold hrífur mig ekki eins. Miðað við Making Movies finnst mér þessi nýja plata ekki alveg eins góð, en ég var nokkuð lengi að átta mig á Making Movi- es og það má vel vera að svo verði einnig með þessa. IITVAIM' Föstudagur 22. október 7.00 Gull í mund Þetta er nú sjálfsagt liðin tíð þegar þú, lesandi góður, lest þetta. Það hefur því lítið uppá sig að vera að Kynna það. Sorrý. 9.05 Morgunstund barnanna. Ég hef nú grun um að þetta sé sömuleiðis búið, en sagan er góð, Jón Oddur og Jón Bjarni. Leitt að þú hafir ekki lesið blaðið fyrr. 10.30 Mér eru fornu minnin kær. Mér líka. En þaö er sama. Líkurnar á því að þessi þáttur sé búinn eða að þú, lesandi góður, missir af honum vegna vinnu eða einhverra slíkra truflana eru lalsverðar. 13.00 Á frivaktinni. Þessu ættirðu hinsvegar að ná. Sjómenn til lands og sjávar, á lofti og legi, og snarfara og iúðufossi senda bestu kveðjur. Margrét kemur til skila. 14.30 Móðir min i kvi kvf. Móöir min er á bíl. Það er móðir Adrian Johnson sem um er að . ræða. Benedikt Arnkelsson þýddi, og Helgi Elíasson les. 16.40 Litli Barnatíminn. Margt smátt gerir eitt stórt, sagði maðurinn og Heiðdis Norðfjörð tók undir i viðlaginu. 17.00 „Dauðamenn" Þá eru það bókmenntir. Njörður P. Ytri-Njarðvík les úr skáldsögu sinni. 17.15 Nýtt undir nálinni Kristín Björk Þorsteins kynnir nýjar plöööötur. fslenskar. 19.50 Lög unga fólksins. Gott. Vonandi spilar hún Silfurkórinn. Hann er bestur. 20.30 Sumarvaka. Hugsa sér. Sumarvaka núna. No förðer komment. Laugardagur 23. október 9.30 Óskalög sjúklinga. Ég á ekki von á því að menn séu almennt komnir á ról á þessum tima. Og þó. En Kristin. Ekki svindla á fréttatímanum. Hann Jón Múli varð svo 6- þolandi fúll þegar þú fórst, hva? þrjár mín- útur frammyfir um daginn? 11.20 Kemur mér þetta við? Maður þorir ekki að segja nei. Þetta er nefnilega umferðarþáfl- ur. Og var góður siðast. En hvar er Óli H.? Blikk, Blikk. 13.20 (ca) Helgarvaktin. Ekki frumlegur þáttur, en ekki galin svosum. Hróbjartur hefur kannski ekki alveg nógu vel smurðan tal- anda. En þá er bara að smyrja. Upp, upp min sál. 13.35 íþróttaþáttur. Nú má Hermann Gunn fara að breyta um stæl, eins og sumir myndu segja. Eða form á þættinum. Eða lit á bíln- um. Eða fót í vitinu. 15.10 í Dægurlandi. Svabbi með þáttinn sinn, sem sumum finnst gaman að. 17.00 Hljómspegill. Stefán Jónsson bóndi á Grænumýri i Skagafirði stokkar upp kýrnar og skellir plötu á grammufóninn. RUVAK. 19.35 Á tali. Helga Thorberg og Edda Björgvins- dóttir bíba samfleytt i rúman hálftíma. 20.30 Þingmenn Austurlands segja frá. Sverrir Hermannsson verður varla í vandræðum með að kjafta í þennan tæpa klukkutíma. Og þó þeir væru tveir. En hann getur verið skemmtilegur. 23.00 Laugardagssyrpa. Snilld. Lekandi brili- jans frá upphafi til enda. Fantastique. Ég meina það. Sunnudagur 24 október 10.25 Út og suður Pétur Pétursson segir frá leit að heimildum um Gaimard leiðangurinn. Skemmtilegur maður Pétur. 11.00 Messa Hreinn Hjartarson messar yfir Breiðhyltingum. 13.15 Nýir söngleikir á Broadway. Ekkert illt gert hjá Árna Blandon. Efni til að hlusta á með öðru eyranu í uppvaskinu. 14.00 Fegurð ástarinnar og lífsins. Leikrit eftir Véstein Lúðvíksson. Leikstjóri Sigmundur örn og meðal leikenda er Árni Blandon sem er nýkomin til landsins frá Broadway. Hlýtur að vera. 15.00 Umræðuþáttur um drög að útvarps- lögum. Væntanlega mikill smjatt og kjass- þáttur gáfaðra spekinga. Eða kannski hressilegur rifrildisþáttur? Maður vonar og bíður. Páll Heiðar Stjórnar. 16.20 Friðarhreyfing kvenna. Þáttur um líkams- uppbyggingu, og fegurð í hreyfingum. Not true. Margrét Björnsdóttir og Kristín Ást- geirsdóttir. 18.00 Það var og. Afbragðsefni útvarpsins um þessar mundir. Notalegt og skemmtilegt. Þráinn Bertelsson í fínu tormi. 19.25 Veistu svarið? Spurningaþáttur að norð- an. Litlir spekingar þar. Vér sunnlendingar vitum betur. S.IÓKVAKI' Föstudagur 22 október 20.35 Á döfinni Snilldartaktar í klippingum, lýs- ingu og l'eik. Gott veður, fallegt landslag. Sex stjörnur. 20.45 Skonrokk Stundum gott og stundum ekki eins gott og stundum ekki alveg eins gott og stundum hreint ekki alveg eins gott og það gæti verið. Semsagt: Gott. 21.15 Katljós Umsjónarmenn Bogi Ágústsson og Sigrún Stefánsdóttir. Kastljós hefur farið vel af stað að mörgu leyti. Maður saknar þó alltaf svolítiðs hasars í fréttamennskunni, því þetta er kjörinn vettvangur fyrir rannsóknarblaðamennsku af einhverju tagi. Allt i lagi í þessu fagi. 22.15 Fuglahræðan (Scarecrow) Bandarisk ansi hrottafengin bandarísk mynd um tvo utan- garðsmenn sem eiga samleið þvert yfir Bandarikin og lenda þar í ýmisskonar hrakningum og veseni. Þetta er mynd í góðu meðallagi enda leika tveir af bestu leíkurum aðalhlutverkin: Gene Hackman og Al Pacino. Leikstjóri er Jerry Schatz- berg og myndin er niu ára gömul. Börn yngri en myndin ættu ekki að horfa á hana. 00.05 Dagskrárlok Laugardagur 23 október 16.30 Iþróttir Dæmigert. Knattspyrna. Handknattleikur. Evrópumeistara- mótið í Aþenu, Rallaksturskeppni bifreiðalþróttaklúbbs Reykjavíkur, úr Úrvalsdeildinni í Körfuknattleik, Út- varpsráði, úrslit Skeiðarárhlaups, kraftlyftingamóts í sjónvarpssal ofl. 18.30 Riddarinn sjónumhryggi. Ný þýsk fræðslumynd um hinn íslenska stjórnmálamann. Fylgst er með lifnaðarháttum og hugsjónum hans. Stórmerk náttúrulífsmynd. 18.55 Enska knattspyrnan. Það jafnast ekkert á við hana. Nema ef væri það hæna. Hehehe. 20.45 Löður Um þessar mundir er Sverrir Hermannsson, - framkvæmda- stofnunarstjóri, eöa tala í útvarpinu, og er það vel, því hann er týpa sem mundi smella laglega inní Löður sem slíkt. 21.00 Félagsheimilið Þarna þykist ég hafa rekið augun í prentvillu f dag- skránni. Löður í korter? Nei maður minn. Auglýsingar í 20 mínútur? Nei. Eitthvað er að hér. Vonandi verður þó félagsheimilið í lagi og lýsingin þar á bæ. Jónas Guðmundsson, kúnstnerog krítíkerogallt þará milli, skrifaði þessa sögu um undirbúning og komu frægs sonar staðarins frá útlöndum. Leikstjóri er Hrafn Gunn- laugsson og aðalleikendur nánast þeir sömu og síðast. 21.45 Mislit Hjörð. (Before Winter Com- es) Hressilegur þriller, gerður af kunnum leikstjóra slíkra mynda - J.Lee Thompson, og.með David Ni- ven, Topol Ori Levy, Anna Karina og John Hurt í aðalhlutverkum. Gerist rétt eftir stríð en var tekin 1968. Fjall- ar um samskipti fólks í og við her- búðir. 23.30 Dagskrárlok. Sunnudagur 24 október 18.00 Sunnudagshugvekja Séra Vigfús Þór Árnason flytur vekjuna. 18.10 Stundin okkar Heimsókn í reið- skóla, söngflokkur frá Seyöisfirði, landkynning og fleira og meira. Bryndís vertu hress, Bless. 20.35 Sjónvarp næstu viku. Guömundur Ingi sat á bingi en ekki þingi. Þótt hann kyngi og bjallan klingi og kúin syngi. Right? 20.50 Glugginn. Þáttur um listir, menningarmál og fleira, sem kemur í stað Vöku og er í mun aðgengilegra formi. Það er það sem allt snýst um í dag - að hafa hlutina aðgengilega. Sniðugt. 21.40 Schulz i herþjónustu Þetta hef ég bara ekki séð og get því ekkert kommenterað á það. Einhver sagði mér að þetta sé grín um peningafalsanir á stríðsárunum. Allir á jassinn. 22.30 Stjórnandi að starfi Claudio Abbado, sá frægi hljómsveitarstjóri er ekki með tærnar þar sem our beloved leader Gunnar Thor- oddsen er með hælana og þvi ætti hann frekar að vera tekinn fyrir. Og skammaður. NO? 23.20 Dagskrárlok.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.