Helgarpósturinn - 22.10.1982, Síða 17

Helgarpósturinn - 22.10.1982, Síða 17
~!piSsturÍnn Föstudagur r£'1 Góður rómur hefur verið / i gerður að breytingum þeim S' sem Davíð Oddsson gerði á stöðum æðstu embættismanna borgarinnar nýverið. Ennþá eru samt eftir nokkrir mjög háttsettir menn á vegum borgarinnar sem setið hafa í embættum sínum lengi og eru æviráðnir. Þannig heyrast nú sögusagnir þess efnis að vatns- veitustjóri, Þóroddur Th. Sigurðs- son, sem er rafmagnsverkfræðing- ur að mennt og hannaði m.a. afl- stöðina við Svartsengi verði gerður að rafmagnsveitustjóra og raf- magnsveitustjóri þá að vatnsveitu- stjóra. Ennfremur að hitaveitu- stjóri, Jóhannes Zoéga, sem er skipaverkfræðingur, sé líklegur að verða hafnarstjóri, og hafnarstjór- 22. október 1982 irtn þá að hitaveitustjóra. En þetta verður ekki selt dýrara en það var keypt.... ‘/j_\Þrett^nda leikár Leikbrúðu- f ^lands hefst á sunnudaginn, og y verða sýningar að vanda að Fríkirkjuvegi 11. Verkefni vetrar- ins er „Þrjár þjóðsögur - Gípa, Umskiptingurinn og Púkablís- tran“. Þeir sem lána brúðunum raddir sínar eru Sigrún Edda Björnsdóttir, Guðrún Stephensen, Sigurður Sigurjónsson, Þórhallur Sigurðsson, Jón Sigurbjörnsson Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Þórunn Magnea Magnúsdóttir. Fé- Iagar í Leikbrúðulandi eru þær Bryndís Gunnarsdóttir, Erna Guð- mannsdóttir, Hallveig Thorlasíus og Hclga Steffensen, og hafa þær bæði gert brúðurnar og handritin. Þær stöllur fluttu þessa sömu sýn- ingu á norrænni brúðuleikhúshátíð í Vasa í Finnlandi í sumar þar sem einnig voru brúðuleikhús frá Hol- landi og Póllandi og urðu sýning- arnar fjórar í stað tveggja sem ráð- gerðar höfðu verið, vegna mikillar aðsóknar. Sýningin fékk mjög gó- ða dóma í blöðum ytra og var skip- að á bekk með sýningum Svíanna og Hollendinganna. Leikbrúðu- land hefur fengið boð um að taka líka þátt í næstu brúðuleikhúshátíð í Vasa, sem verður næsta vor... v v.lagnús Hreggviðsson hinn nýi / Jeigandi útgáfufyrirtækisins 'Frjálst framtak hf. mun hafa fullan hug á því að bæta efnisgæði blaða sinna og sjást raunar þegar nokkur merki í þá átt að „Eyjólfur sé að hressast." Mun Magnús ætla að breyta verulega Frjálsri verslun og gera blaðið að meira fagblaði fyrir verslun og viðskipti en verið hefur. Hefur hann sjálfur sest í rit- stjórastól blaðsins í stað Markúsar Arnar Antonssonar sem gefur sig nú nær alfarið að borgarmálefnum og auk þess mun Magnús hafa gert samstarfssamning bæði við Versl- unarráðið og Verslunarmannafél- ag Reykjavíkur um útgáfu blaðs- ins.... Þrátt fyrir allt krepputalið að / iundanförnu hefur atvinna •S- verið meira en nægjanleg víð- ast hvar á landinu. Segja iðnaðar- menn að þeir muni varla eftir eins góðu atvinnuástandi á þessum árs- tíma í Reykjavíkursvæðinu og að yfirfljótanleg verkefni séu fram- undan hjá þeim a.m.k. fram eftir vetri, en skammdegismánuðirnir hafa oft verið fremur daufir hjá iðnaðarmönnum. Þessu til stað- festingar má nefna að HP er kunn- ugt um húsbyggjanda nokkurn sem ætlaði að notfæra sér kreppu- ástandið og auglýsti útboð á bygg- ingu húss síns. Áhuginn hjá iðnað- armönnum var ekki meiri en það að ekkert tilboð barst, og þegar húsbyggjandinn ætlaði svo að fara hina hefðbundnu leið og útvega sér meistara, þá var það þrautin þyngri, þar sem allir höfðu meira en nóg verkefni.... MOTOROLA Einnig getum við nú boðið nýja Motorola MCX100 25 watta V.H.F. talstöð sem hægt er aó aðlaga þörfum hvers notanda. Höfum nú til afgreiðslu strax hina viðurkenndu 100 watta Motorola SSB bílatalstöð fyrir tíðnisviðió 2 til 13,2 MHz. Kristinn Gunnarsson & co Grandagarði 7 Símar: 21811,26677 ALPÝDU SKOLIIMM í REYKJAVÍK HVERFISGÖTU106A 3HÆÐ SÍMI29244 Námskeið Alþýðuskólans í Reykjavík veturinn 1982 - 1983 Félagsmálanámskeið 1 Almennt námskeið í félags- og fundastörfum ásamt leiðbeiningum í framsögn dagana 23. og 24. október n.k. Féiagsmáianámskeið 11 Almennt námskeið í félags- og fundastörfum í fram- haldi af félagsmálanámskeiði 1. Námskeiðið fer fram dagana 20. og 21. nóvember n.k. Leiklistarnámskeið Almennt námskeið þar sem kennd verða grundvallar- atriði leikrænnar tjáningar og stefnt að myndun leikhóps í lok þess, er síðan setji leikrit á laggirnar í samvinnu við leiðbeinanda. Námskeiðið fer fram í janúarmánuði n.k. Tímasetning verður ákveðin í sam- ráði við þátttakendur. Leiðbeinandi verður þjóð- kunnur leikari og leikstjóri. Stjórmálanámskeið 1 Almennt námskeið um Jafnaðarstefnuna, Alþýðu- flokkinn og starf hans fyrr og nú. Þjóðkunnir stjórn- málamenn munu flytja erindi og lögð verður áhersla á að kryfja viðfangsefnin til mergjar. Námskeiðið fer fram 15. og 16. janúar n.k. Stjórnmálanámskeið II Almennt námskeið um Alþýðuflokkinn og verkalýðs- hreyfinguna og tengsl þeirra fyrr og nú. Erindi fjytja m.a. þekktir forystumenn verkalýðssamtakanna og kappkostað verður að skoða málin niður í kjölinn. Námskeiðið fer fram dagana 12. og 13. febrúar n.k. Samtakanámskeið I Almennt námskeið um störf og stefnu launþegasam- takanna, skipulag þeirra og starfsemi. Námskeiðið fer fram 5. og 6. marz n.k. Félagsmálanámskeið I almennt námskeið í félags- og fundastörfum ásamt leiðbeiningum í framsögn dagana 9. og 10. apríl n.k. Félagsmálanámskeið II Félagsmálanámskeið í félags- og fundarstörfum í framhaldi af félagsmálanámskeiði II. Fer fram dagana 7. og 8. maí n.k. Öll þessi námskeið fara fram í Félagsmiðstöð Sam- bands ungra jafnaðarmanna að Hverfisgötu 106 A 3ju hæð Reykjavík. Innritun er hafin í síma 29244 kl. 9.00-5.00 alla virka daga. Þar eru gefnar allar nánari upplýsingar. Vakin skal athygli á því, að vegna takmarkaðs húsrýmis, er þátt- takendafjöldi á hvert námskeið mjög takmarkaður, en það leiðir jafnframt til ítarlegri kennslu. Fólk er því hvatt til að skrá sig strax á ofangreind námskeið. Fræðsluráð Alþýðuflokksins í Reykjavík

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.