Helgarpósturinn - 22.10.1982, Síða 18
18
íÖNGvrn
Heil og sæl!
Þá er ég flogin heim á klakann meö Flugleiðum
eftir aö hafa borist á vængjum Eastern Airlines vítt
og vítt um Bandaríkin, þar sem ég var lengi vel
staðráðin í að stíga aldrei niður fæti mínum, af
þjóðernisástæðum, rétt eins og með Danmörku á
unglingsárum. Þessi ferð batt því formlegan endi á
þjóðcrnisfasismaskeiðið í lífi mínu, og var nú
kannski kominn tími til.
Þó er ekki hægt að segja að ég hafi kolfallið fyrir
Ameríkönum eins og ég gerði vissulega fyrir Dön-
um, þegar ég urn tvítugt neyddist til að millilenda í
þrjá daga í Kaupmannahöfn, sem þá hafði verið
Sódóma Gómorra í mínum augum. Eigi að síður
var ýmislegt í fari og lífsvenjum Ameríkana sem
hreif mig meir en ráð var fyrir gert. Kannski er
samt best að þegja um það að sinni, nema það sem
að matargerðinni snýr.
Það sem ég sagði áður en ég fór urn fyrirhugaða
athugun rnína á skyndibitastöðum westra var nátt-
úrlega haugalygi. Ég hefði nú ekki átt annað eftir
en belgja mig út af sprautuðu kjöti og tyggigúmmí-
brauði McDonalds, Burger King, Wendy's old
fashioned hamburger, Hangaburger, Whataburg-
er og öðrum afurðum hamborgaralógíunnar, sem
ásamt sjónvarpi, bíl og bjór gera margan Amerí-
kanannsvorasssíðanog ístrumikinn sem raun ber
vitni.
Nei, ó nei, ég lagði leið mína á öllu kúltíveraðri
matsölustaði og fékk víða einhverja Ijúffengustu
rétti sem ég hef á ævi minni bragðað. Skák og mát!
Þetta á einkanlega við kreólamatinn í New Or-
leans sem mönnum kemur saman um að eigi ekki
sinn líka í víðri veröld. Hann er eins og jazzinn
tilkominn við samruna evrópskra, afrískra og
amertskra menningarstrauma.
Ferð mín hófst á maraþonhlaupi í Chicago og
endaði á gríðarlegri átveislu á Antoine’s í New
Orieans, eftir margvísleg ævintýri, eins og að
lenda í klónum á fellibylnum Bella Donnu (eða
hvað hún hét nú aftur) á Flórída. (Skólabókar-
dæmi um karlrernbu veðurfræðinga að þeir skuli
sífellt kvenkcnna fellibyli, líta á þennan eyðilegg-
ingarkraft náttúrunnar sem eins konar „femme
fatale”, örlagafrauku sem öllum vill granda ogöllu
spiila sem hún kemur nálægt...) - Þó líkami minn
hafi eftir því sem aðrir segja kláriega verið í
Reykjavík á aðra viku, er hugurinn ennþá hálfur
fyrir westan á daginn, en allur á nóttunni. Þá á ég
til að vakna upp við skordýrasynfóníuna í skógin-
um í Norður-Georgíu eða ilminn af krókódílasúp-
unni í New Orleans. Þegar ég hef síðan fundið út
hnattfræðiiega stöðu mína eftir ærið brölt i nátt-
myrkrinu, er ekki um annað að ræða en slangra
fram í eldhús og úða í sig kotasælu (sádan tröste-
spiser man pá en sund niáde!), fara aftur upp í rúm
og reyna að þröngva undirmeðvitundinni til að
starfa á hagkvæmari brautum, t.d. við að kryfja til
mergjar Garðveislu Guðmundar Steinssonar, en
það gengur satt að segja heldur brösulega í vöku.
Að öllu samanlögðu er ég enn í hálfgerðu öng-
viti eftir þessa fyrstu og líkast til ekki síðustu Am-
eríkureisu mína, sem sýnir sig m.a. í því að ég hef
unnið á Suðurríkjahraða alla vikuna (mjög „easy
going"), neita aifarið að láta stressa mig upp úr
skónum þó ýmsum finnist ærin ástæða til. Þess
vegna verður sómasamleg umfjöllun á suðurríkja-
matargerð að bíða í svo sem viku, ég þarf að melta
hana betur í minningunni, hjóla á milli verslana og
huga að kryddúrvaiinu (skyldu þeir t.d. eiga
gumbo filé?), prófa að elda ýmsa réfti áður en ég
dirfist að leggja uppskriftirnar í hendurnar á hátt-
virtum lesendum. Þessi pistill verður því hvorki
jazzaður né bluesaður að ráði og tómt mál að tala
um krókódílasúpu á íslandi... Þess vegna gef ég
ykkur nú uppskriftirnar að þeim réttum sem ég
eldaði kvöld eitt á Flórída mcðan að Bella Donna
reið húsum og móskítóflugurnar drukku sig ofur-
ölvi af blóði mínu. Forréttinum, hráum ostrum,
sleppi ég af skiljanlegura ástæðum, en aðalréttur-
inn er fylltur silungur og eftirrétturinn ananas með
kotasælusósu.
Verði ykkur að góðu .
Fylltur silungur í ofni
Þessi rétturerbæði fljótlegur og einfaldur. Undir-
búningstíminn er í hæsta lagi 30 mín., en steiking-
artíminn fer eftir stærð fisksins, þ.e. 10 - 20 mín.
Uppskriftin er handa fjórum.
Hægt er að baka bæði litla og stóra silunga á
þennan hátt. Fyrst er fiskurinn hreinsaður og
þveginn upp úr köldu vatni. Gott er að dýfa hon-
um snögglega ofan í sjóðandi vatn og strjúka sfðan
yfir hann, því þá losnar slímhúðin.
1 - 4 silungar (eftir stærð)
2 - 3 msk smjör
1 msk salt
álpappír
Fylling:
3 msk saxaður laukur og/cða sveppir
2 tómatar
1 msk dill, nýtt eða þurrkað
1 saxaður steinscljukvistur eða 1/2 - 1 msk af
þurrkaðri stcinselju
1 tsk pipar
safi úr einni sítrónu
4 msk smjör
1. Skerið smátt iauk og/eða sveppi og hrærið
saman við smjörið ásamt kryddjurtum, pipar
og sítrónusafa.
Látið bíða í hálftíma.
2. Saltið fiskinn að utan og innan og komið fyll-
ingunni fyrir. Smyrjið álpappírinn lítillega og
pakkið fiskinum inn í hann, (ef þið eruð með
smásilung, pakkið þá hverjum fiski sérstak-
lega).
3. Bakið í ofni við 200 gr. C í 10 - 20 mín., eftir
stærð fisksins.
Sem meðlæti kemur margt til greina svo sem
kartöflusalat eða einfalt hrásalat og hrísgrjón. -
Allt eins má svo nota papriku, sellerí, púrru eða
rækjur í fyllinguna í stað lauks og sveppa.
Ananas með kotasælusósu
Kemur hún enn með kotasælusósu, hugsa nú á-
reiðanlega einhverjir með sér. Þið ættuð að vera
farin að vita að það gefur betri magafyllingu en
minni fitu að borða kotasælu með ávöxtum heldur
en þeyttan rjóma. Hér er uppskrift að kotasælu-
sósu fyrir fjóra. Þið reiknið síðan með tveimur
sneiðum af nýjum eða niðursoðnum ananas á
mann.
1 dós af kotasælu (200 gr)
2 msk súrmjólk
1/2 msk fljótandi hunang
riflnn börkur af hálfri sítrónu (má sleppa)
Hrærið saman kotasælu og súrmjólk, bragðbæt-
ið með hunangi og rifnuni sítrónuberki, ef verkast
vill. Takið fram stóran disk, hrúgið kotasælunni á
hann miðjan og raðið ananassneiðunum í kring.
Ef þið búið svo vel að eiga svo sem eins og hnefa-
fylli af valhnctum er vel við hæfi að saxa þær og
strá þeim yfir.
Any Woman’s Blues
Um leiðog égóska lesendum rólegrarogánægj-
ulegrar helgar, vil ég nota tækifærið og senda Erlu
Hafrúnu Guðjónsdóttur flugfreyju þakklætis-
kveðjur fyrir að hafa konúð mér heilu og höldnu á
milli heimsálfa, þrátt fyrir nokkuð annarlegt
ástand, svo og Helgarpóstslesendum vestra fyrir
frábæran viðurgjörning, með laginu Frosty morn-
ing blues sem er t.d. að finna á plötu Bessie Snúth,
Any womun's blues. í textanum segir svo m.a.:
How come l’m blue as can be?
How come I nced sympathy?
1 know the troublc in me
listen and you’ll see...
Did you ever wake up on a frosty inorning
and you saw your good man gone
if you did you understand
why I sing this mournful song.
Svo blúsa ég betur í næsta pistli...
Að setja andstæðinginn
inn þannig, að
hann þvingist til að
spila manni í hag
Að setja andstæðinginn inn
þannig, að hann þvingist til að
spila manni í hag.
Eftirfarandi spil kom einusinni
fyrir í spilakeppni:
S Á-7-4
H 9-8
T 7-4-2
L K-D-8-4-2
S K-D-G-8 S 10-6-5-3-2
H D-G-6-4 H 7-5-2
T-K G-6 T 10-9-5-3
L 5-3 L 6
S 9
H Á-K-10-3
TÁ-D-8
L Á-G-10-9-7
Rétta spilamennskan er sú, að
suður tekur á spaða ásinn og
trompar spaða. Inn í borðið á
tromp og trompar síðasta spað-
ann. Aftur inn í borðið á tromp
og þá eru báðir svörtu litirnir ein-
angraðir. Nú látum við hjarta ní-
una. Láti austur ekki yfir, þá
látum við hana flakka. Ef að
austur léti gosa eða drottningu,
þá tökum við og spilum hjarta
þristinum að áttunni í borði.
Þannig tapast aðeins einn hjarta-
slagur og suður á nú tvö fríhjörtu
sem hann notar til þess að losa sig
við báða tígulhundana í borðinu.
Þannig verður enginn tapslagur í
tígli.
Eins og spilin liggja, getur
Suður spilar sex lauf. Vestur
lætur spaða kóng. Við fyrstu at-
hugun virðist rétt að taka tromp-
in eftir að borðið hefur tekið á
spaða ás. Einangra spaða og
hjörtu með því að trompa. Láta
svo tígul úr borðinu og láta áttuna
nægja. Með þessu móti ætti vest-
ur að þvingast til að spila í tvö-
falda eyðu og í gaffal suðurs, þ.e.
ás/drottning. Þessi spilamennska
væri hárrétt hefði suður átt tígul-
níuna í stað áttunnar. Þá hefði
gaffallinn myndast. Með þessari
spilamennsku tapast spilið, þar-
sem vestur á gosa og kóng. Enda
fór spilið einn niður.
austur ekki látið spil yfir níuna og
því lætur suður þristinn. Vestur
fær slaginn, en það er sama hvaða
spil hann lætur. Allt verður upp í
gaffal suðurs. Láti hann spaða,
verður það í tvöfölda eyðu. Tígli
kastað úr borðinu og trompað í
suður. í ás og kóng í hjarta fara
tíglarnir. Vilji vestur frekar spila
hjarta, er það beint upp í gaffal
suðurs Suður fær þrjá slagi á
hjarta og í tvö þeirra kastar hann
tíglinum. Spili hann tígli, er það
líka upp í gaffal suðurs.
Eins og þið sjáið lesendur góð-
ir, er spilið alltaf unnið með
framangreindri spilamennsku.
Skákdæmi helgarinnar
KENNETH S. HOWARD
Mát í þriðja leik
HERROU
1. H-ffl *i
k i a • iii . ., 'Á : mS&it
ái
fitó m
Sá ía ,kp\ 1:
£ á.; - 0 l&. é ISi
H \ m- m
THOMPA
Hvítur á leik. Hann vann snagg-
aralcga í fáum lcikjum.
Lausnir á bls. 23