Helgarpósturinn - 12.11.1982, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 12.11.1982, Blaðsíða 9
_f~lelgai-- pðsturinn, Föstudagur 12. nóvember 1982 Hljómsveitin í leikhúsinu Nýja kompaníið í Iðnó á mánudagskvöld - aldrei fúlt og leiðinlegt segir Vernharður í umsögn sinni. (Mynd: Jim Smart) Pað er ekki ofsögum sagt af dugnaði þeirra í Nýja kompaní- inu. Þeir hafa fylgt hinni nýju breiðskífu sinni, Kvölda tekur, (Fálkinn FA 032) vel úr hlaði og á mánudagskvöldið var efndu þeir til hljómleika í Iðnó, þar sem þeir blönduðu saman ópusum af skíf- unni og nýjum verkum, er þeir hafa verið að æfa í haust. Hljómsveitin notaði sér leikhúsið ágætlega og er gítar- istinn Sveinbjörn Baldvinsson þeirra Olafur Stephensen. Eftir að hafa hitað upp með þjóðlaginu ágæta, /írátandi kem ég nú guð minn til þín, í útsetningu pían- istans, Jóhanns G. Jóhannssonar, var leikið nýtt verk eftir þann sama: E lagið. Þar ríkti kændof- blú stemmning. Næst á dagskrá var parkerlína eftir bassaleikar- ann, Tómas R. Einarsson, sem nefndist: Fagurt gól foglið. Línan var skemmtilega leikin a la NH/P og var þá bara að bíða sólóanna en minna varð úr þeim en skyldi, því saxafónleikarinn Sigurður Flosason tók að blása eins og Jacquet á JATP tónleikum um miðnætti í háskólabæ í Banda- ríkjunum. Kannski varð hann að ryðja sig því í næsta verki, stray- hornskri ballöðu eftir Jóhann er Óður nefndist, blés hann mjög fallega með websterfílíng. Sveinbjörn hvíldi sig í því verki svo hinn klassíski djasskvartett stóð á sviðinu: sax, píanó, bassi og trommuleikarinn Sigurður Valgeirsson við settið. Þá var komið að síðasta lagi fyrir hlé, í lófa lagið eftir Jóhann. Þarnavor- um við komin á slóðir Edmundo Ross og Ragna Bjarna og keyrði bandið laglínuna í minnið hjá njótendum. Eftir hlé var hitað upp með hinu þjóðlaginu á skífunni: Kvölda tekur og síðan sveiflaði bandið sér í rómantískan sálara eftir Sveinbjörn, Ekki orð. Góð rýþmísk spenna í því verki. Síð- asta nýja verkið á efnisskránni var eftir Tómas: Vor hinsti dag- ur. Undirritaður varð dálítið hrif- inn af þessari dramatísku nýball- öðu og þarna var skemmtilega unnið með framsæknina sem stendur föstum fótum í hefðinni. Svo voru tvö verk af skífunni: Minningarstef Flosasonar um Gunnar Ormslev og Frýgíska frumlagið hans Jóhanns. Það var fjörlega leikið og hafði yfir sér þetta skipulagða frelsi sem er aðal austantjaldsdjassins. Hljómsveitinni var firnavel tekið af nær fullskipuðu leikhús- inu og lék svo aukalag, gamlan kunningja: Síðasta sauðaþjófinn eftir Flosason, og var sumar í sól- ói hans. Svo var heimtað annað aukalag og auðvitað Ross & Bjarnason. Það á ábyggilega eftir að selja næstu skífu þeirra félaga, sem undirritaður hlakkar- þó nokkuð til að fá í hendurnar. Ég hef oft skrifað um hljóðfæra leik þeirra félaga og hef ekki miklu þar við að bæta eftir þessa tónleika, nema hvað Sigurður er orðinn yfirvegaðri í sólóum sín- um og Tómas traustari. Nýja kompaníið hefur einn stóran kost sem fær mann oft til að gleyma öllum göllunum. Það er aldrei fúlt og leiðinlegt, sviðs- framkoman er óþvinguð og pilt- arnir gera sér far um að ná til þeirra sem þeir eru að léika fyrir. Það er list sem margir nútíma- djassleikarar hafa gleymt. Það verður gaman að heyra þessi nýju verk aftur og kanna hvernig þau verka þá á hljóð- himnurnar. PS. A sunnudaginn kemur efnir Jazzvakning til eftirmiðdagsdjass á Hótel Borg. Þar munu ýmsir ágætustu djassleikarar okkar koma fram og reyna að létta hreyfingunni tapið mikla er hún beið við komu Charlie Haden’s Liberation Music Orchestra. Vonandi bregðast íslenskir djass- unnendur ekki á örlagastundu og mæta á Borgina til að styrkja Jazzvakningu og heyra það besta í íslenskum djassi. Hina nýju óp- usa Nýja kompanísins, verk Guð- mundar Ingólfssonar og félaga og kvartett Kristjáns Magnússonar. kannski heldur hressilegri en á Minute. McDonald er ágætur söngvari en það er bara ekki nóg, því tónlist hans er öll sömul steypt í sama farið þannig að maður endist ekki til að hlusta á mikið meira en eitt lag í einu. Ég er hræddur um að þetta sé ein af þeim plötum sem eiga ein- ungis eftir að safna ryki uppi í skáp, enda heldur slöpp. Michael Rutherford - Acting Very Strange Það er tiltekin venja meðlima hinna og þessara hljómsveita að senda frá sér sólóplötur, þegar hljómsveitin hefur náð vissum status. Yfirleitt eru sólóplötur þessar heldur fátæklegar og í ansi mörgum tilfellum eiga þær ekkert erindi á markað. Éinhverjar eymdarlegustu sólóplötur af þessu tagi, sem ég minnist að hafa heyrt^ru plömr Genesis meðlim- anna Tony Banks og Michael Rutherford. Það var því ekki með neinni tilhlökkun sem ég hlustaði á nýútkomna plötu þess síðarnefnda. Ekki get ég nú sagt að ég hafi hrifist sérlega af því sem fyrir eyru bar en það er þó langtum betra en það sem Rutherford hefur áður gert. Það er ýmislegt að þessari plötu til þess að hún geti talist góð. Tvö stórvægilegustu atriðin eru þau að Rutherford er heldur aumur söngvari og það sem þó öllu verra er, að lögin eru alls ekki nógu góð. Sum eru raunar lítið annað en sami kórusinn endurtekinn aftur og aftur. Þetta er svona hálfgerð Police- formúla. Þú manst lagið örugg- lega þó þú hafir ekki heyrt það nema einu sinni en það er allt eins víst að þú hafir þá þegar fengið ógeð á því. Á heildina litið eru tvö lög á plötunni sem ég get fellt mig við en það eru Acting Very Strange og Who’s Been Fooling Who. Rutherford nýtur aðstoðar ým- issa góðra gesta og er svo sem ekkert yfir þeirra þætti að kvarta en efnið býður ekki upp á mikið. Iiíwiu Bíóhöllin Hæ pabbi. Bandarísk. Leikendur: George Segal, Jack Warden, Susan Saint James. Gamanmynd um pabba sem uppgötvar skyndilega aö hann á uppkominn son - sem er svartur á hörund. Atlantic City. Bandarísk. Argerð 1981. Leik- stjóri: Louis Malle. Aðalhlutverk: Burt Lanc- aster, Susan Sarandon, Michel Piccoli. Félagarnir frá Maxbar. Bandarísk. Leik- stjóri: Richard Donner. Aðalhlutverk: John Savage, David Morse, Diana Scarwind. * Dauðaskipið. (Deathship). Bandarisk. Aðal- hlutverk: George Kennedy, Richard Crenna. Nafnið aetti að segja eitthvað til um elni þessar- ar hrollvekju. Fram í sviðsljósið (Being There). Bandarisk, árgerð 1981. Handrit Jerzy Kosinski, eftir eiginskál sögu. Leikendur: Peter Sellers, Melvyn Douglas, Shirley MacLaine. Leik- stjóri: Hal Ashby. Svörtu tígrisdýrin (Good Guys Wear Black). Bandarísk. Árgerð 1979. Leikstjóri: Ted Post. Aðalhlutverk: Chuck Norris, Dana Andrews, Jim Backus. Væntanlega heilmikil hasarmynd, því Chuck Norris er þekktur fyrir annað en rólegar vanda- málamyndir. Áreiðanlega mikil slagsmál. Kvartmílubrautin (Burnout) Mynd fyrír kvartmilukappa og áhugafólk um þá mílu. Absence of Malice. Bandarísk. Argerð 1981. Handrit: Kurt Luedtke. Leikstjóri: Sidney Poll- ack. Aðalhlutverk: Paul Newman, Sally Field, Bob Balaban. Nýja bíó: On Any Sunday 2. Bandarisk. Árgerð 1980. Handrit: Sam Moses, Roger Riddell, Larry Hoffman og Ed Forsyth. Leikstjórar: Don Shoemaker og Ed Forsyth. Aðalhlutverk: Nok- krir af þekktustu kappakstursmönnum heims. Hér er ekki um eiginlegan söguþráð að ræða, heldur er myndin nánast kýnning á ýmsum teg- undum kappaksturs, og þannig kjörin fyrir dellu- kalla og konur, en einnig er boðið uppá æsileg augnablik. Austurbæjarbíó Blóðhiti (Body Heatj.Bandarísk. Árgerð 1981. Handrit og leikstjórn: Lawrence Kasdan. Aðalhlutverk: William Hurt, Katheleen Turner, Richard Crenne, Ted Danson. Þetta er alveg prýöilegur, stemmnings- þruginn þriller, iöandi af erótik, stigmagn- aöri spennu og neikvæöum mannlegum tilfinningum, eins og peningagræögi, undirferli, samviskuleysi, og alhliða skepnuskap. Afbragðsvel fariö meö marg- .notaö efni, og leikarar eru sem sniðnir i hlutverkin, ekki síst Ted nokkur Danson i hlutverki sérkennilegs saksóknara. Sem sagt: Gaman, gaman. Regnboginn: "★ ★ ★ ★ framúrskarandl ★ ★ ★ ág»t ★ ★ góð ★ þolanleg 0 léleg Bíóbær Frankenstein. Bandarísk. Andy Warhol á sér nokkra aödáendur hér sem annarsstaðar og þeir fá hér tækifæri að skoða eina afurð hans. Þetta ku vera með allra blóð- ugustu og svæsnustu myndum, og þeir sem áhuga hafa á sliku fá því einnig sitt. A sjösýning- um komast tveir inn á einum miða. Háskólabíó: Flóttinn úr fangabúðunum (Hoodwink) Áströlsk. Árgerð 1981. Handrit: Ken Quennell. Leikstjórl: Claude Watham. Aðalhlutverk: John Hargreaves, Judy Davis, Wendy Hug- hes. Petta er brokkgeng og dálítið skritin mynd sem maður veit eiginlega aldrei hvert er að fara. Er litlu nær þegar upp er staðið um raunverulegt við- fangsefni þessarar sögu um harðsvíraðan banka- ræningja sem lendír eina ferðina enn í klóm rétt- vísinnar sem er mun spilltari en hann sjálfur, gerir sér upp blindu til að snúa á kerfið og sleppa burt. I steininum hittír hann ólukkulega prestsfrú og tak- ast með þeim kynni sem engin leið er að fá botn i. Sumsé botnaust, en ekki tiltakanlega leiðinleg mynd og hefur talsvert af þeim ferskleika sem einkennir mýndir Ástrala, enda framleiða ekki aðrar þjóðir ánægjulegri myndir I heild en Ástralíu- menn hafa gert undanfarin ár. -ÁÞ. Stjörnubíó Blóðugur afmælisdagur (Happy birthday to me). Bandarisk. Handrit: John Saxton, Peter Jobin og Timothy Bond, eftir sögu John Saxtons. Leikstjóri: J. Lee Thomp- son. Aðalhlutverk: Melissa Sue Anderson, Glenn Ford, Lawrence Dane o.fl. Mynd um dularfullt hvarf sex ungmenna úr kyrr- látum háskólabæ. Porky's. Bandarisk. Argerð 1982. Hand- rit og leiksjórn: Bób Clark. Aðalhlutverk Dan Monahan, Mark Herrier, Wayatt Knight. Porky's hef ur ekkert nýtt fram aö færa. Hún er stæling á American Graffiti: baldin menntaskólaæska, þrakkarastrik, kynlífs- fitl, smávegis andóf viö fullorðinsheiminn og slatti af gömlum dægurtögum. I heild eins og gamall slitinn slagari. -ÁÞ Laugarásbíó: A Time to Die. Bresk-Bandarisk,-Hollensk. Ár- gerð 1980. Handrit: Mario Puzo. Aðalhlutverk: Rex Harrison, Eddy Albert j. og Raf Vallone. Leikstjóri: Eddy van der Enden. Spepnumynd um mann sem verður fyrir þvi að missa sína nánustu i klær nasista á striðsárunum, og ákveður að hefna sín, þó siðar verði. Tónabíó Dýragarðsbörnin. Þýsk. Árgerð 1981. Leikstjórn: Ulrich Edel. Aðalhlutverk: Natja Brunkhorst, Thomas Haustein. David Bowie kemur einnig fram. Þetta er víðfræg mynd, gerö eftir víöfrægri bók, sem komið hefur ut í íslenskri þýö- ingu, um unga stúlku sem verður forfallinn eiturlyfjaneytandi en nær sér upþúr því aftur. Frönsk kvikmyndavika Laugardag veröa þessar myndir sýndar: Moliére. Árgerð 1978. Handrit og leikstjórn: Ariane Mnouchkíne. Aðalhutverk: Phillppe Caubére, Josette Derenne. Myndin tjallar um líf hins fræga rithöfundar, frá unglingsárum og framá grafarbakkann, og þykir góð. Stórsöngkonan (Diva) Árgerð 1981. Leik- stjórn: Jean-Jacques Beineix. Handrit: Jean- Jacques Beineix og Jean Van Hamme. Aðal- hlutverk: Wilhelminia Wiggins-Fernandez, Frédéric Andrei. Fjallar um ungan póstburðarmann sem er með óperudellu. Hann er sérstaklega heillaður af rödd og fegurð ákveöinnar söngkonu og það dregur ýmsa dilka á eftir sér. Surtur (Anthracite) Árgerð 1980. Leikstjórn: Edouard Niermans, og hann samdi handritið einnig. Aðalhlutverk: Bruno Cremer, Jean Bo- uise, Jean Pol Dubois. Gerist í afskekktum jesúítaskóla árið 1952 og fjall- ar um grimmdina sem býr í okkur öllum - ekki sist börnum. Leikstjórinn verður gestur kvikmyndavik- unnar. Á laugardagskvöldið verður hann viðstaddur sýninguna og mun flytja einhverja tölu. Harkaleg heimkoma (Retour En Force) Árgerð 1980. Handrit og leikstjórn: Jean-Marie Poire. Aðaihlutverk: Vlctor Lanoux, Bernadette Laf- ont, Pierre Mondy. Um mann sem lengi hefur setið í fangelsi og kemst að þvi þegar hann sleppur að eiginkonan býr með öðrum, sonurinn er glæpon, dóttirin dansmær og allt í steik. Hann tekur til sinna ráða. Hreinsunin (Coup de Torchon) Árgerð 1981. Lelkstjórn: Bertrand Tavernier. Handrit: Jean Aurenche, Bertand Taverniere. Aðalhlutverk: Phlllppe Nolret, Isabelle Huppert, Stéphane Audran. I litla afriska þorpinu Bourkassa Ourbangi var bara einn lögregluþjónn árið 1938 og hann var lélegur. En gagnrýni allra hans nánustu verður þess valdandi að hann ákveður að hreinsa til í plássinu. Sunnudagur: Nótt útitaka (Exterierur Nuit) - Sjá umsögn I Listapósti. Undarlegt ferðalag (En Etrange Voyage) - Sjá umsögn í Listapósti. Moliére Stórsöngkonan (Diva) Surtur (Anthracite) Harkaleg heimkoma (Retour En Force) viifcliuritir Gamla bíó: Lokatónleikar og danssýning listafólksins frá Tjadsjikistan veröa á sunnudagskvöld klukkan 20.30. Á efnisskrá er einsöngur og einleikur auk hljómsveitarleiks og sýninqar dansflokks. Norræna húsið: Gjörningur verður iaugardagskvöldið 13 nóv. klukkan 20.30 Þar koma fram sameiginlega lista- mennimir Bat-Yosef, Haukur og Hörður, Elias Da- víðsson og Orthulf Prunner. Hugmyndin er að sameina þrjár listgreinar: Myndlist, hreyfilist og tónlist. Hótel Loftleiðir: Barnum á Lottleiðum hefur nú verið breytt i bresk- an Pub og þar skemmtir pianóleikarinn Sam Avent á hverju kvöldi tram til 21. nóvember. Ýmsir pöbba-smáréttir á boðstólum. I kvöld verður svo sérstakt villibráðarkvöld á Loftleiðum. Kjarvalsstaðir: Fyrstu tónleikar kammermúsikklúbbsins í vetur verða að Kjarvalsstöðum þriðjudaginn 16. nó vember klukkan 20.30. Flytjendur: Árni Kristjdns- son, Laufey Sigurðardóttir og Gunnar Kvaran. Broadway: Meiriháttar tónlistarkvöld verður haldið á vegum Satt fimmtudaginn 18. nóv. undir heitinu 4M: Er kvöldið tileinkað tónlistarmönnunum Magnusi Eiríkssyni, Magnúsi Kjartanssyní og Magnúsi Þór Sigmundssyni og hljómsveitinni Mannakorn sem aðeins treður upp í þetta eina sinn. Félagsstofnun Stúd- enta: Jazz verður leikinn á laugardagskvöldið. Þá munu þremenningarnir úr Mezzoforte - Eyþór Gunnars- son, Friörik Karlsson og Gunnlaugur Briem taka höndum saman við Tómas Einarsson og Sigurð Flosason og leika jazz. Allir velkomnir. Ártún íslandsmeistara-danskeppni í gömlum dönsum hefjast í Ártúni sunnudaginn 21. nóvember, held- ur áfram næstu 3 sunnudaga og lýkur sunnudag- inn 12. desember með verðlaunaafhendingum. Öllum áhugamönnum (ekki atvinnumönnum) frá 6 dra og uppúr er heimil þátttaka. Þátttakendur tilkynni sig í sima 85090 daqleqa frá kl. 10-12.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.