Helgarpósturinn - 12.11.1982, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 12.11.1982, Blaðsíða 20
20 Einar Krist- jánsson frá Hermundar- felli rithöfund- ur er búsettur á Akureyri. Hann sér um þáttinn „MÉR ERU FORNU MINNIN KÆR" sem er á dagskrá annan hvern föstud. kl. 10.30-11.00. Einar hefur unniö nokkur ár að dag- skrárgerð fyrir Ríkisútvarpið. Hann hefur m.a. skrifað töluvert af gamanefni og gefið út nokkr- ar bækur. Sigrún Sig- urðardóttir er annar tveggja föstu starfs- manna RÚ- VAK. Hún er skrifstofustjóri og sérm.a. um að upptöku sé raðað á stúdí- óið og menn fái greitt fyrir vinnu sína. Árni Jó- hannsson er tæknimaður í afleysingum, en annars er hann útvarps- virki og starfar að iðn sinni. Helgi Már Barðason stjórnar fimmtudags- stúdíóinu, sem er útvarp unga fólksins og er á dag- skrá á fimmtu- dögum kl. 20.00-20.30. Helgi Már er kennari við Gagnfræða- skólann á Akureyri og veitir auk þess forstöðu „Dyn- heimum", fé- lagsmiðstöð unglinga. Pálmi Matthí- asson er frétt- aritari Ríkis- útvarpsins á Akureyri. Hann er prest- ur í Glerár- prestakalli sem stofnað var fyrir stuttu hérá Akureyri. Sl. 5 ár var Pálmi prestur í Melstaðar- prestakalli á Hvamms- tanga. Pálmi er fæddur og uppalinn á Ak- ureyri. ÍÍVAK Hjónin Jónas Jónasson og Sigrún Sigurðardóttir, en hún er skrifstofustjóri RÚVAK. „Við erum tilbúin að gera galdra” Nú hafa sendingar ríkisútvarpsins á Akureyri hljómaö á öldum Ijósvakans í rúman mánuö. Þaö er ekki langur tími af 50 ára sögu útvarps á íslandi. Þó finnst manni þaö orðið eins sjálfsagt og hvaö annaö, aö útvarpssendingar komi að norðan á hverjum degi og skyndilega hafi skotið upp mörgum nýjum útvarpsröddum. Þessir dagskrárgerðarmenn RÚVAK höfðu fæstir unnið við útvarp áður, og vinna raunar við það í hjáverkum. Aðeins Jónas, Sigrún Sigurðardóttir skrifstofustjóri og Björn Sigmundsson tæknimaðureru í fullu starfi. Að ekki er meiri viðvaningsbragur á vinnu nýliðanna en sendingarnar bera með sér á sér sjálfsagt ýmsar skýringar. Ein er kannski sú að Norðlendingar hafi einhverja sérstaka náttúru fyrir útvarpsvinnu. Önnur skýring er efalaust Jónas Jónasson. Með 34 ára reynslu af útvarpsvinnu að baki var hann sendur norður til að vera þar útvarpsstjóri, deildarstjóri eða hvað það er kallað, og koma RÚVAK í gang. Snorri Ólafur Torfa- Dómhildur Gestur E. Alice Jó- Guðvarðs- son sér um Sigurðardótt- Jónasson hanns og son erstunda- SJÓN ir er kennari stjórnar þætt- Snorri kennari og DEILDAR- og sér um Litla inum VIÐ Guðvarðs- húsamálari. HRINGINN barnatímann á POLLINN sem son sjá um Hann sér um sem útvarpað móti . þeim RÚVAK sendir KVÖLD- þáttinn er á þriðjudög- Heiðdísi og út kl. 11.00 á STRENGI á Kvöldstrengi á um kl. 17.20. Grétu. fimmtudögum. móti Hildu móti Alice Jó- Ólafur starfar Gestur er Torfadöttur. hanns annan hér á Akureyri fæddur og Þau eru bæði hvern sunnu- við tímaritiö uppalinn á Ak- innfæddir Ak- dag. Heima er best. ureyri og hefur ureyringar og S.l. 7 ár var veriö fast- kenna við Ólafur kennari ráðinn leikari Glerárskóla; í Stykkishólmi, hjá Leikfélagi svo spila þau Ijósmyndari og Akureyrar síð- bæði í hljóm- fréttaritari og an sú skipan sveitinni myndlistar- komst - á og „Jamaica" maður er hann hefurleikið þar sem leikur í líka. Ólafur er milli 70 og 80 Sjallanum og fæddur og hlutverk. víðar. uppalinn í (Guðinn Reykjavík. Brilliantín er frábær hjá honum í Atóm- stöðinni) „Petta er alveg ný hlið á starfinu og býsna forvitnileg. Samt finnst mér ég vera réttu megin við borðið og tek þátt í öllu starfi. Stundum finnst mér auðvitað að auðveldara væri að gera hlutina sjálfur - en það gengur að sjálfsögðu ekki“, segir Jónas við Helgar- póstinn. „Útvarpsmenn spretta ekki upp úr mold- inni, og þeir verða heldur ekki keyptir í kaupfélaginu. Hinsvegar hefur þetta fólk sem ég fékk til starfa verið óskaplega fljótt að taka tilsögn - og það er allt af vilja gert að læra“, bætir Jónas við. „Þú ert þá ánægður með hvernig til hefur tekist á þessum fyrsta mánuði?" „Já, ég er ákaflega ánægður með þennan árangur sern nú blasir við að hefur náðst. En við höfum fullan hug á að gera betur. Meðal annars höfum við lítið getað sinnt tón- listarefni og leiklist þar sem við búum bæði við lélegan tækjabúnað og þröngan húsakost. Það stendur þó varla til bóta fyrr en við kom- um í nýja útvarpshúsið. En framkvæmdir við það hefjast á næstunni, þannig að við sjáum fyrir endann á því verki um áramótin 1983- ’84. Að vísu höfum við enn of lítið rúm í dag- skránni, erum aðeins með 1-2 prógrömm á dag. Við þyrftum að geta tekið meiri þátt í dagskránni, en til að svo megi verða þarf að koma prógramm tvö - ríkisútvarpið hlýtur að byrja á því þegar á næsta ári“, segir Jónas. „En hverjar hafa viðtökurnar verið nyrðra?“ „Það heíur verið ósköp hljóðlátt um allar viðtökur, utan dálítið skítkast í íslendingi til að byrja með. Og ég var ekki farinn að láta niður í töskurnar fyrir sunnan þegar farið var að láta mig gjalda þess að vera aðkomu- ntaður. Síðan er eins og fólk hafi verið að bíða átekta. Ég hef heyrt ákaflega lítið sjálfur; þó er eins og fólk sé farið að skilja að við ætlum okkur að gera eitthvað hérna við útvarpið fyrir norðan, ekki láta nægja að tala bara um það og séum komnir til að vera.“ —segir útvarpsstjórinn nyrðra Jónas Jónasson „Það hefúr heyrst dálítið óvægin. gagnrýni á útvarp Akureyri. Meðal annars eru þeir til sem segja að efnið að norðan sé viðvanings- legt og leiðinlegt. Hvað segir þú unt það?“ „Við tökum alla gagnrýni fyrir. ræðurn hana og reynum að laga ef ástæða er til. En ef hlustað er á það sem borið er fram í útvarpinu er dagskráin frá okkur ekki á nokkurn hátt öðruvísi en dagskráin annars. Við erum held- ur alls ekki að búa til neina skemmtiþætti, og ég hef aldrei orðið var við að þessi þjóðværi neitt afskaplega skemmtileg! En sú gagnrýni sem hefur slegið mig mest er forkastanleg bókun útvarpsráðsmanns um útburðarvæl á undan og eftir þáttum frá okk- ur. Við höfum reyndar ákveðið að skipta um lag - en það verður áreiðanlega haldið áfram að kalla það útburðarvæl!” „Hlutdeild Norðurlands í dagskránni hefur óneitanlega aukist. En maður bjóst við að fleiri fréttir kæmu úr fjórðungnum í frétta- tímum en raunin virðist vera“. „Sá er munurinn á okkur og ykkur fyrir sunnan, að þið getið ekki gefið út blað með auðum síðum og það verður að fylla frétta tímann.Héðan sendum við hinsvegar ekki fréttir nema eitthvað sé að frétta. Við búum ekki til fréttir. En Pálmi Matthíasson fréttaritari er mjög áhugasamur og hefur sent margfalt meiri fréttir suður en voru fyrir tíð Akureyrar- deildarinnar að jafnaði. Auk þess erum við að vinna upp mikil og traust samskipti við fréttaritara í fjórðungnum. Svo er það náttúr- lega þeirra fyrir sunnan að meta fréttagildi þess sem við senduni - og það kemur ekki allt á segulbandsspólum", segir, Jónas Jónasson. Þótt allur útbúnaður sé til beinna útsend- inga í gamla reykhúsinu á Akureyri eru út- sendingar RÚVAK samt sem áður fæstar beinar. Það er raunar aðeins óskalagaþáttur sjómanna sem er í beinni, „lifandi" útsend- ingu. Auk þess eru þættir á mánudags- og fimmtudagsmorgnum sendir frá stúdíói á Ak- ureyri og teknir á band fyrir sunnan. Annað efni er sent á segulbandi flugleiðis eða þá um símalínur. „Þetta er í fyrsta lagi spurning um sparnað. Væru t.d. kvöldþættirnir sendir beint héðan þyrfti tæknimann á vakt bæði hér og í Reykjavík. Einnig er erfitt að koma við út- sendingum héðan úr reykhúsinu vegna þess einfaldlega að við höfum ekki nema eitt stú- díó, sem er oft notað til hljóðritunar á efni", segir Jónas. Fjárlægðin frá Reykjavík veldur fleiri erf- iðleikum en þeim, að senda þarf segulbands- spólur í flugi. Enn er lítið til af hljómplötum fyrir norðan, en það stendur þó til bóta. Nú er farið að senda allar nýjar íslenskar plötur norður um leið og þær eru gefnar út, og óska- lagaþættir eru sendir í heilu lagi og fást vinsæl- ustu lögin þannig mjög fljótt inn í vaxandi tónlistardeild fyrir norðan, auk þess sem út- varpið hefur nýtt sér einkasöfn manna fyrir norðan. Dagskrárstjórnin fer líka að hluta fram milli landshluta. Það er ákveðið fyrir sunnan hve mikið rúm norðanmenn fá í dagskránni og í grófum dráttum hvers konar efni kemur þaðan. „Það er til dæmis ákveðið hvort tónlistar- þættir eru með léttri tónlist eða hvort þeir eru með klassískri tónlist og rabbi. Með það í huga veljum við fólkið og spyrjunt hvort menn séu til í að vera með. I byrjun varð alltaf að leita eftir þessu fólki, en nú er farið að bera dálítið á því, að efni sé boðið fram", segir Jónas. Um samskipti sín við fjármálavaldið syðra segir hann: „Þau eru alveg frábær, enda hef ég fyrirmottó að reyna að gera góðan þátt en hafa hann ódýran. Og við erum tilbúin að gera galdra hér fyrir norðan þegar nýja út- varpshúsið okkar er komið í gagnið og við höfum lokið við að þjálfa fólkið til starfa. En ég vil bæta því við, að þetta hefur ekki verið nein bylting. Hér á Akureyri hafa verið gerðar upptökur fyrir útvarpið í áratugi. Grímur Sigurðsson upptökumaður vann fyrir útvarpið frá því skömmu eftir 1930 og sjáifur man ég eftir að hafa útvarpað beint úr kjallar- anum hjá honum. Á eftir kom Björg- vin Keitinn Júníusson, sem ætlunin var að ynni með mér aðþessari uppbyggingu, en honum entist ekki aldur til þess, hann lést nýlega fyrir aldur fram", segir Jónas Jónas- son útvarpsstjóri á Akureyri. eftir Þorgrfm Gestsson myndir: Kristján Arngrimsson

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.