Helgarpósturinn - 15.04.1983, Qupperneq 6
6
Viðskiptafratðinemar við
f~J Háskóla íslands hafa
S um nokkurra ára skeið haft
það fyrir verkefni að ganga inn í
fyrirtæki og gera nokkurskonar út-
tekt á stjórn þeirra. Hafa þeir m.a.
rætt við starfsfólk um samskipti
undir- og yfirmanna og spurt um á-
lit óbreyttra á stjórn fyrirtækisins.
Hefur stúdentunum yfirleitt verið
tekið vel og fyrirtæki gjarnan talið
sér hag í að fá þessar heimsóknir. Á
dögunum óskuðu viðskiptafræði-
nemar eftir að fá að koma í sjón-
varpið og gera slíka athugun. í
fyrstu var þeim tekið vel en þegar
þeir komu á staðinn, vopnaðir
spurningalistum sínum, blokkum
og skriffærum var komið annað
hljóð í strokkinn: stúdentunum var
einfaldlega vísað á dyr. Þótti mörg-
um óbreyttum sjónvarpsstarfs-
manninum þetta miður — því
margir höfðu talsverðan áhuga á að
láta í Ijós afdráttarlausar skoðanir
sínar á stjórn fyrirtækisins og þær
skoðanir falla stjórnendum þess
ekki allar beinlínis í geð...
Tæknimenn ríkisútvarpsins
J sjónvarps kættust mjög
S nú fyrir skömmu þegar inn
á gólf barst langþráð sending af
nýjum tækjakosti, stúdíómynda-
vélum, mixerum og alls kyns full-
komnum útbúnaði sem lengi hefur
verið skortur á þar á bæ. En fljót-
lega rann af þeim kætin. Á daginn
hefur komið að loksins þegar stofn-
unin hefur tækin þá hefur hún ekki
efni á að nota þau. Fjárhagur sjón-
varpsins mun svo bágborinn að á
næstunni verður fátt annað fram-
leitt en fastir liðir, fréttir og slíkt, og
er nú búið að semja við stúdíólið
þess um að það geti í sumar stimpl-
að sig inn árla dags, farið svo útí bæ
að vinna fyrir sjálfa sig og mætt svo
í fréttirnar aftur að kveldi...
Sumarið er á næsta leiti eða
T]
f A svo segja þeir, og þar með
sumarmyndir kvikmynda-
húsanna. Friðbert Pálsson í Há-
skólabíói er nýkominn frá London,
þar sem hann fékk nokkrar myndir,
sem við fáum að sjá á næstu vikum
og mánuðum. Þar má nefna tvö-
falda Óskarsverðlaunamynd frá því
í ár, Officer and Gentleman. Þá er
einnig væntanleg Óskarðsverð-
launamynd frá því i fyrra, Reds eftir
leikarann fræga Warren Beatty.
Framhaldsmyndir af gömlum
kunningjum eru væntanlegar,
Grease II og Star Trek II. I’m
Dancing as Fast as I can heitir mynd
með leikkonunni vinsælu Jill Clay-
burgh. Hún fer þar með hlutverk
sjónvarpsfréttakonu, sem ánetjast
lyfjum. Loks má svo minnast á
Partners með þeim kumpánum
George Segal og John Hurt...
V
Senn rís vegleg „gull-
höll“ við Laugaveginn í stað
tveggja gamalla húsa sem
þar hafa lengi verið. Það er Alþýðu-
brauðgerðin sem átt hefur húsin nr.
61 og 63 við Laugaveg en hefur nú
selt þau Jóni og Oskari, gull- og úr-
smiðum. Þeir munu ætla að rífa
þau og byggja stórhýsi í staðinn...
Föstudagur 15. apríl 1983
jpifisturinn.
BETRI LBÐIR
BJÓÐAST
ALÞÝÐUFLOKKURINN
VILL GERBRE YTTA
STEFNU í EFNAHAG5MÁLUM
Til er betri leið í efncthagsmálum, en nú er
fylgt. Með henni getum við skapað okkur
traustari framtíð í stað þeirrar óvissu sem nú
ríkir. Til þess þarf samstillta áætlun en ekki
bráðabirgðaráð.
Verkefnið er að brjótast úr vítahring erlendrar
skuldasöfnunar og sívaxandi verðbólgu. Treysta
verður atvinnuöryggi og afkomu heimila og
atvinnulífs. Þetta má gera með því að leysa úr
læðingi þá krafta, sem nú fara í súginn og nýta
þau verðmæti, sem nú fara til spillis. Tækifærin
blasa við til nýsköpunar í atvinnulífi, ef íslenzkt
hugvit og framtak fá að njóta sín.
Það sem þarf er:
- Afkomuöryggi
- Ný atvinnustefna
- Uppstokkun í ríkisbúskap
- Ábyrg samskipti.
Afkomuöryggi
Á næstu misserum verður að brjótast úr
verðbólgufarinu, draga úr erlendri skuldaaukn-
ingu og tryggja atvinnu.
1. I stað hins úrelta vísitölukerfis, komi
Scimningur um launaþróun, lágmarkslaun og
lífskjaratryggingu. Vísitölukerfið hefur gengið
sér til húðar. Það á að leysa af hólmi með
lífskjaratryggingu:
- Afkoma heimilanna verði varin með greiðslu
sérstakrar fjölskyldutryggingar.
- Tekin verði upp afkomutrygging, fyrir þá er
við lökust kjör búa og hún greidd launafólki sem
ekki nær tilteknum lágmarkslaunum.
2. Atvinnulífið fái eðlileg rekstrarskilyrði svo
að vel rekin fyrirtæki þurfi ekki að lifa á
bónbjörgum.
3. Erlendar lántökur verði takmarkaðar.
4. Húsnæðislán til kaupa á fyrstu íbúð, verði
tvöfölduð og kaup-Ieigufyrirkomulag innleitt.
5. Greiðslubyrði lána ráðist af tekjuþróun, svo
að vinnutíminn sem þarf til að standa undir
afborgunum fari ekki vaxandi.
6. Almennt sparifé verði verðtryggt, þannig að
bankar skili raunvirði til sparifjáreigenda og
skuldakóngar hætti að arðræna fólk.
ALÞÝÐUFLOKKURINN
VILL NÝJAR LEIÐIR
í EFNAHAGSMÁLUM
Ný atvinnustefna
Ný störf og atvinnu handa öllum, á að tryggja
með því að veita í nýsköpun atvinnulífs, þeim
fjármunum, sem eytt er í óarðbærar
framkvæmdir, óhagkvæman togarainnflutning
lán til hallærisrekstrar og óhóflegar
útflutningsbætur.
• Smáfyrirtæki fái eðlilegan aðgang að
rekstrarfé og allar atvinnugreinar njóti jafnræðis
í skattamáium og á Iánamarkaði.
• Stjórnun fiskveiða verði tekin til endur-
skoðunar svo að afrakstur fiskistofna sé
tryggður.
• Urvinnsluiðnaður í sjávarútvegi og
landbúnaði fái að dafna.
• Orka landsins verði nýtt til atvinnuupp-
byggingar í samræmi við markaðsmöguleika.
• Nýtækniiðnaður, fiskirækt og nýjar búgreinar
njóti vaxtarskilyrða.
•Eftirlit verði tekið upp með óeðlilegri, erlendri
Scimkeppni við íslenzka framleiðslu.
• Ríkið og opinberar stofnanir kaupi ávallt
íslenzkan iðnvarning, þegar þess er kostur.
• Endurmenntun verði efld m.a. til að auka
vöruvöndun og framleiðni.
Alþýðuflokkurinn.
Uppstokkun í ríkisbúskap
Ríkisfjármál og skattamál verði stokkuð upp
og ráðist gegn spillingu.
• Framkvæmdastofnun verði lögð niður en
byggðaáætlanir gerðar til að treysta byggðina í
landinu.
• Tekjuskattur ríkisins af almennum
launatekjum verði afnuminn í áföngum.
Virðisaukaskattur komi í stað söluskatts.
Skattadómstóli verði komið á fót og skatteftirlit
eflt til að spoma gegn skattsvikum. Taka á upp
staðgreiðslu skatta.
• Tolla- og aðflutningsgjaldakerfið á að
endurskoða og einfalda.
• Samræmdu lífeyriskerfi verði komið á fyrir
alla landsmenn.
• Ráðist verði gegn óráðsíu og sukki í
opinberum rekstri og komið á sérstöku
eftirlitsráði til að sækja slík mál. Þingmenn sitji
ekki í bankaráðum og sjóðsstjómum.
Ábyrg samskipti
Ábyrgðin verði sett í öndvegi að nýju, þannig
að sérhver aðili beri ábyrgð á eigin ákvörðunum,
en samtryggingarkerfi ábyrgðarleysisins verði
rofið. Atvinnurekstur standi á eigin fótum, án
bakábyrgðar ríkisins. Fjárfestingarfé fari í að
skapa arðbær störf:
• Aðilar, sem ákveða fiskverð, beri ábyrgð á
ákvörðunum sínum án ávísunar á ríkið.
• Verðlagskerfi landbúnaðarins á að
endurskoða, gera vinnslustöðvar viðskiptaiéga
ábyrgar og afnema útflutningsbætur í áföngum.
• Verðmyndunarkerfinu í landinu verði breytt,
þannig að ábyrgð og ákvörðun fylgist að.
Verðlagsfræðsla, neytendavemd og eftirlit með
einokun, verði stóraukin.
• Fjárfestingarsjóðir verði sameinaðir og þeim
settar nýjar starfsreglur.
• Dregið verði úr sjálfvirkni ríkisframlaga og
ríkisstofnunum fengið efnahagslegt sjálfstæði.
• Sveitarfélögin fái aukið sjálfsforræði um leið
og þau axla ábyrgð á eigin ákvörðunum.
• Ábyrgð og umhyggja fyrir frambúðarhag
ráði í umgengni okkar við landið og miðin.