Helgarpósturinn - 15.04.1983, Síða 24
r
[■
i
p
I
i
í
t
|
t
t
i
[
24
Föstudagur 15. apríl 1983
ftelgai----
-Pðsturinn
Gerið verðsamanburð
Juvel hveiti kr. 20.85
Bragakaffi 250 gr kr. 19.70
Súpur California kr. 5.70
Rekord kakó 1 kg kr. 89.90
Bl. ávaxtasafi 1 I. Sanitas kr. 27.95
Appelsínusafi Sanitas 11 kr. 22.90
Ferskjur 1/1 ds kr. 34.90
Ananas 1/1 ds kr. 39.50
Jarðarber 1/2 ds kr. 38.95
W.C. pappír Leni 4 rl kr. 33.50
W.C. pappír Príma 8 rl kr. 67.70
íva þvottaefni 10 kg kr. 281.50
Kynnum á
föstudag frá kl. 3
unghænur frá
ísfugli.
Unghænur og
kjúklinga á
KYNNINGARVERÐI
S TORMARKAÐ URINN
Opið til kl. 22.00 SKEMMUVEGI 4A
föstudaga og KÓPAVOGI
hádegis laugardag
Þótt þingmenn flengist nú
/ \ þvers og kruss um landið í
S' kosningabaráttunni er ólík-
legt að það komi verulega við
buddu þeirra. Sem kunnugt er fá
þingmenn ferðastyrk, mismunandi
háan eftir kjördæmum. Reykjavík-
urþingmenn fá 1875 kr. Reykjanes-
þingmenn 3375 kr. og þingmenn
annarra kjördæma 5585 kr í fastar
mánaðagreiðslur. Að auki fá svo
þingmenn greiddar allar ferðir milli
kjördæma með því að sýna reikn-
inga. Þannig fær þingmaður Reyk-
víkinga að fullu greitt flugfar til
Akureyrar.og öfugt. í margra vikna
kosningabaráttu safnast bessir
reikningar saman og verða að feikn-
arlegum upphæðum, eins og gefur
að skilja.'Ekki síst kannski vegna
þess að við heyrum að sumir þing-
menn fari nokkuð frjálslega með
þessi forréttindi og panti á sínu
nafni farseðla fyrir meðframbjóð-
endur sein ekki eru þingmenn...
r
Frú Vigdis Finnbogadóttir,
forseti lý‘iveldisins, er um
þessar mi ndir í heimsókn í
Frakkiandi, eins og alþjóð mun
vita. Nokkurs misskilnings heft’.r
BILALEIGA
Mesta úrvalið.
Besta þjónustan.
Skeifan 9, 108 Reykjavik s. 91-86915
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
8. 96-23515
gætt hér á landi varðandi heimsókn
þessa, svo sem sést á því að í frétt-
um er jafnan talað um „opinbera
heimsókn" forsetans. Frakklands-
för Vigdísar flokkast nefnilega ekki
undir opinbera heimsókn, að
minnsta kosti ekki frá sjónarmiði
Frakka, sem telja hana vera ein-
hvers konar „menningar- og vin-
áttuheimsókn". Það er sagt vera
eitthvað allt annað en opinber
heimsókn. Flver munurinn er, það
er svolítið óljóst...
Enn um heimsókn forsetans
í k til Gallíu hinnar fornu. Á
þriðjudagskvöld undirrituðu
utanríkisráðherrar íslands og
Frakklands, þeir Ólafur Jóhannes-
son og Claude Cheysson, sam-
komulag um menningar- og vís-
indasamvinnu landanna. Var það
gert með pompi og prakt, og plagg-
ið mun vera hið virðulegasta ásýnd-
um og orðalagið huggulegt. Það ku
líka vera allt og sumt. Okkur er tjáð
að báðar þjóðirnar hafi gert það að
skilyrði fyrir undirritun að samn-
ingurinn hefði engin fjárútlát í för
með sér! Hann er sem sé nákvæm-
lega pappírsins virði — en heldur
ekki meira...
Kreppan lætur ekki að sér
/ l hæða og kemur sem kunn-
ugt er ekki^ síst' niður á
möguleikum fólks til að eignast þak
yfir höfuðið. Úr öreigakreðsum
heyrum við þó gleðilega sögu: Mað-
ur nokkur hugðist reyna að selja
hús sitt við Fjólugötu og var von-
daufur um að éitthvað gengi í stöð-
unni þegar alþýðan lepur dauðann
úr skel. En þegar húsið var komið í
sölu kom annað á daginn. Margir
bitust um boðin, og þó tveir öreiga-
fulltrúar mest: Guðrún Helgadótt-
ir, alþingismaður og Álfheiður
Ingadóttir, blaðamaður, — tveir af
frambjóðendum Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík. Og hafði Álf-
heiður betur. Húsið hreppti hún
fyrir þrjár milljónir króna. Þessi
gleðitíðindi úr heimi öreigastéttar-
innar teljast fasteignakaup vikunn-
ar...
Einhver „heitasta" staðan
/ J sem nú er laus hérlendis er
S' staða deildarstjóra fyrir
væntanlega „rás 2“ hjá útvarpinu.
Við höfum þegar sagt frá einum sig-
urstranglegum, — Helga Péturs-
syni, fréttamanni í Washington sem
er að læra þar slíkan rekstur, en
önnur nöfn sem nefnd eru sem
hugsanlegir umsækjendur eru Stef-
án Jón Hafstein, sem lengi hefur
neitað því að hafa áhuga á málinu,
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
pg Þorsteinn Eggertsson, Presley-
íslands...
r'^ Úr borgarapparatinu heyrum
/ Jl við að stjórnkerfisbreytingin,
S\ sem Davíð Oddsson borgar-
stjóri beitti sér fyrir í vetur hafi gef-
ið mjög góða raun. Eins og menn
muna voru nokkrir „toppar“ færð-
ir á milli starfa og segja heimildar-
menn okkar á borgarskrifstofunum
að þessi tilfæring hafi haft góð á-
hrif á gang kerfisins, sem virki nú
eins og vel smurð vél. Það fylgir
sögunni, að andrúmsloft meðal
borgarstarfsmanna sé nú með besta
móti — sannanlega betra en á síð-
asta kjörtímabili, svo ekki sé
minnst á stjórnartíð fyrri borgar-
stjóra Sjálfstæðisflokksins...
Fyrirtækið Hagvangur hefur
unnið úttekt á rekstri Bæjar-
1 útgerðar Reykjavíkur að ósk
stjórnar fyrirtækisins og lagt fram
tillögur að breyttum og bættum
rekstrarháttum. Þar mun koma
fram, að rekstrinum beri að skipta
í fjögur svið í stað núverandi tví-
skiptingar í fiskvinnslu og útgerð-
arsvið, og verður ekki annað séð en
síðan eigi að setja einn forstjóra yfir
þessi fjögur svið. Þar heyrist nafn
Ragnars Julíussonar, stjórnarfor-
manns BÚR oft nefnt...